Helgarpósturinn - 08.04.1983, Page 23
23
_Helgai—-——
-PösturinrL
“'ÖCi'yj'u' 3
Föstudagur 8. apríl 1983
Árni Bergmann, ritstjóri
f~J Þjóðviljans, verður sífellt
y afkastameiri rithöfundur.
Skáldsaga hans, Geirfuglarnir, fékk
góða dóma um síðustu jól, og um
páskana var flutt leikgerð hans eftir
snilldarverki Dostoévskís, Glæp og
refsingu. Árni er nú sestur við að
semja nýja skáldsögu, en efni henn-
ar mun sjálfsagt koma ýmsum á ó-
vart. Við heyrum nefnilega að um
sé að ræða sakamálasögu...
Tveir ungir bissnissmenn í
Reykjavík, þeir Sigurður
Kárason og Pálmar Magnús-
son hafa nú fest kaup á Hótel Borg;
á vildarkjörum að því er séð verður.
Borgin kostaði fimmtíu milljónir
en innan við tíundi hluti þess var
borgaður út. Þeir Sigurður og
Pálmar hafa hingað til rekið fyrir-
tækið Kauþland s.f. í Einholti og
Spilaþraut
helgarinnar
vestur austur
S Á-G-8-2 S 6
- H Á-K-6-4 H 9-7-5-2
T 2 T Á-K-6-5
L K-G-6-2 L D-10-8-4
Vestur spilar fjögur hjörtu. Norð-
ur lætur laufa fimm. Suður tekur
með ás og lætur laufa níuna.
Hvernig spilar vestur?
LAUSN
•uijnni nnq buio>) ubqjs 'BQBds
jnjjþfs jb)sb>( So i|S;j i 8up>( 3o
SB Jn>(3L 'BQBdS UBUUB JBdlUOJJ 3o
8up>( BJJBfH B UUl JnjJB J3J 'BQBdS
JBduiojj 8o sp BjjBfq b jn>(3j
jnjsaA 'j88njo 0^06 bjsa pB Qipds
ijjæ unpæB uqjsS juiæAqúiBS
*SnB(Bþ(BA UUIJB
-((ds J3 BCJ iacJ ‘mnusp jijjs b 8u'o>(
BjJBfq BJBI BUI I>(>(3 qb ‘QiSnqjy
S D-7-4-3
H 3
T D-10-8-7-3
L 7-5-3
S 6
H 9-7-5-2
T Á-K-6-5
L D-10-8-4
S K-10-9-5
H D-G-10-8
T G-9-4
L Á-9
S Á-G-8-2
H Á-K-6-4
T 2
L K-G-6-2
:ui(ids [[p njOA 8[uubci
hafa litla eða enga reynslu af rekstri
fyrirtækis eins og Hótel Borgar.
Þeir eru samt hvergi bangnir; hyggj-
ast halda áfram svipaðri starfsemi
og verið hefur, og með tímanum
færa hótelið til fyrri reisnar. Sögur
um að á Borginni eigi að setja upp
leiktækjasali virðast því vera úr
lausu lofti gripnar...
Talandi um Borgina, þá mun
f'l Alþýðuleikhúsið frumsýna
y\ þar á næstunni leikrit eftir
Bandaríkjamanninn Leroy Jones,
sennilega þann 18. apríl. Leikritið
heitir Neðanjarðarlestin og fjallar
meðal annars um menningu banda-
rískra negra og í tilefni þess verður
slegið saman leiksýningu og jazz-
tónleikum sem Jazzvakning stend-
ur fyrir. Lárus Ýmir Óskarsson leik-
stýrir verkinu, en hlutverk eru tvö;
i höndum Guðrúnar Gísladóttur og
Sigurðar Skúlasonar. Annað leikrit
sem Alþýðuleikhúsið hefur æft
undanfarið, einþáttungur eftir
Rainer Werner Fassbinder, verður
ekki frumsýnt fyrr en í haust og ó-
víst hvar það verður sett upp, e.t.v. í
Félagsstofnun stúdenta eða Nor-
ræna húsinu. Alþýðuleikhúsinu
hefur gengið mjög illa að fá hús-
næði fyrir starfsemi sína, en að-
standendur þess eru samt ekki á því
að gefast upp...
Tryggjum
að þessar dyr
lokist ekki
Merkjasala 8. og 9. apríl Póstgírónúmer: 44400-6
Kvennaathvarfið missir húsnæðið 14. maí.
Athvarfið er opið öllum konum sem beittar hafa verið ofbeldi.
Síðastliðna fjóra mánuði hafa yfir 80 konur og börn dvalist
þar. Konur úr öllum landsfjórðungum hafa hringt og leitað
ráða.
Tökum höndum saman.
Tryggjum framtíðarhúsnæði Kvennaathvarfsins.