Helgarpósturinn - 23.06.1983, Síða 8
sýninjiarsalir
Norræna húsið:
Sumarsýning hússins er aö þessu
sinni helguð Ásgrlmi Jónssyni. Sýnd-
ar eru 40 myndir allar I eigu Ásgrims-
safns. Sýningunni lýkur 24. júlí. I and-
dyri sýna tveir graenlenskir listamenn
Aka Högh og Ivar Silis.
Ásmundarsafn:
Ásmundarsafn við Sigtún er opið
daglega nema mánudaga frá kl.
14—17.
Listmunahúsið:
Nú fer hver aö verða síðastur aö sjá
verk Gunnars Arnar Gunnarssonar,
þvi sýningunni lýkur 26. júnl. Opið
14—18 um helgar, 10—18 virka daga.
Lokað á mánudögum.
Kjarvalsstaðir:
„Kjarval á Þingvöllum" er i Kjarvals-
sal. Opin I sumar. 20 listmálarar List-
málarafólagsins sýna I vestursal, á
göngum hússins sýna fimm grafiker-
ar sem útskrifuöust úr Myndlistar-
skólanum í vor og Richard Valtingojer
sýnir litla grafíska bók. Þrjár sfðast
nefndu sýningarnar eru opnar til 10.
júli.
Mokka:
Italski myndlistarmaðurinn Ricardo
Licate sýnir verk sln.
Nýlistasafnið:
Ásta Ríkharðsdóttir og Ragna Her-
mannsdóttir verða með sýningu frá
18. júní og til 26. júni. Safnið er opiö á
virkum dögum frá 16-20 en um helgar
frá 14-22. Þær sýna málverk, bækur
og fleira.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Opiö miðvikudaga og sunnudaga kl.
13.30—16. Stórfenglegar höggmynd-
ir.
Gallerí
Langbrók:
Langbrókarmunir til sýnis og sölu.
Opið virka daga kl. 12-18.
Bogasalur:
Myndir úr islandsleiööngrum og
fleira nýtt. Opiö alla daga kl. 13.30-16.
Sýningin stendur út ágúst.
Listasafn ASÍ:
Lokaö i júni.
Ásgrímssafn:
Búiö aö opna. Opiö daglega kl.
13.30—18 nema mánudaga. Til
ágústloka. Strætó 10 frá Hlemmi.
Árbæjarsafn:
Safniö hefur nú veriö opnað að nýju.
Ivikliiis
Stúdentaleikhúslð:
Jökull og við, dagskrá úr verkum
Jökuls Jakobssonar er endurtekin í
kvöld fimmtudag kl. 20.30 i allra, allra
siðasta sinn. Viö megum ekki missa
af þessu.
Óstöðvandi flaumur er yfirskrift fjög-
urra stuttra einþáttunga eftir Samuel
Beckett sem verða frumfluttir laugar-
dag kl. 20.30. 2. sýn. sunnudag kl.
20.30 og 3. sýning mánudag kl. 20.30.
Svart og sykurlaust:
Sýningarferð götuleikhússins um
landiö hefst á föstudag. Helstu sýn-
ingarstaölr eru Hólmavíjt, Tfékyllisvik,
Hótel Klúka og Borðeyri. Góöa
skemmtun.
Fimmtudagur 23. júní 1983
id.
urinn____i
Fjölmiðladjass
Djasslífið í íslensku ríkisfjöl-
miðlunum hefur verið upp og of-
an í áranna rás, en þó alltaf heldur
fjörugra en í blaðakosti lands-
manna; enda er tónlist fyrst og
fremst til að hlusta á.
Sunnudaginn 12. júní hóf
djassprófessorinn okkar ís-
lenskra, Jón Múli Árnason, þátta-
röð um sögu djassins. Verða þætt-
irnir uþb. 30 og eru á dagskrá á
Laxness sveiflunnar! Jón mun
ekki vera með hina almennu
djassþætti sína á meðan djasssag-
an verður á dagskrá og er Gerhard
Chinoti einn um slíkt er þetta er
ritað. Gerhard, sem er franskur
maður, hefur af mikilli þrautsegju
kynnt hinn frjálsa djass fyrir ís-
lenskum aðli. Á stundum hefur
honum tekist bærilega upp, en
heldur þykja mér þættir hans
undanfarið þungir, þegar alltað
eftir Vernharð Linnet
sunnudagskvöldum kl. 23. Veit
maður þá hvað maður eyðir þeim
tíma í á næstu mánuðum. Fyrsti
þátturinn lofar góðu um fram-
haldið, enda hefur enginn annar
ísleridingur jafnnæman skilning
á hinum klassíska djassi og Jón
kann jafnframt að klæða frásögn
sína í fagran íslenskubúning án
þess að missa niður sveiflu djass-
málsins. Undirritaður þekkir vel
hversu erfitt getur verið að segja
frá djassupplifuninni á prenti og
ef enginn Jón Múli hefði verið til,
þá hefði mér oft gengið erfiðlegar
að orða upplifunina. Hann er
fjörutíumínútna verk eru leikin í
heild, án mikilla skýringa annarra
en að tæknimaðurinn ætli að
snúa skífunni við. Ég held það sé
farsælla að leika styttri verk svo
og búta úr lengri ásamt skýring-
um, eigi tónlistin að ná til fleiri en
örfárra útvaldra. Jórunn Tómas-
dóttir hefur kynnt þætti Gerards,
en undanfarið ár er farið að heyr-
ast meira í kappanum sjálfum og
er það vel.
Eitt er það sem nýtt er í gamla
Gufunesradíóinu okkar, en það er
Jazzstund. Hvað skyldi þetta nú
vera? hugsaði ég. Jú, nokkrir
djassmenn sungu og léku. Þetta
var áður kallað: Oscar Peterson,
Ella Fitzgerald, Elvis Prestley og
Count Basie leika og syngja. Nú
er búið að sleppa Elvis kallinum
og hann kominn í annan þátt hvað
sem sá nú heitir.
Að lokum: Húrra fyrir Tónlist-
ardeild Útvarpsins og Joni Múla
fyrir djasssöguna. Missið ekki af
henniH
Sjónvarpið hefur verið nokkuð
duglegt við að sýna allskonar
djass og hefur erlent efni verið í
miklum meirihluta. Margt hefur
verið gott en fleira lélegt, enda er
trúlegt að þetta sé keypt í pökkum
á útsöluprís. Einn albesti djass-
þáttur er sýndur hefur verið í
sjónvarpinu var á skjánum fyrir
nokkrum vikum. Tenórsaxófón-
snillingurinn Johnny Griffin blés
þrjú verk ásamt kvartett sínum.
Griffin er einn geggjaðasti blásar-
inn sem blæs í saxinn um þessar
mundir og aldrei bregst honum
bogalistin. Ég hef hlustað á hann
blása Clark Terry sundur og sam-
an, Eddie Davis hafði ekki við
honum og seint líður úr minni ein
ágústnótt á gamla Montmartre
árið 1967, þegar Griffin og Dexter
Gordon blésust á svo klukkutím-
unum skipti. Þá var nú heitt í kol-
unum og mátti ekki á milli sjá,
hvor kappanna hefði betur.
Rýþmasveitin; Kenny, Niels og
Tootie, var orðin all sveitt undir
lokin. í Nat Adderley þættinum
sem var á undan Griffin var það
líka tenoristi sem átti leikinn:
Ricky Ford. hann var því miður
nýlega hættur í Hampton-band-
inu þegar það kom hingað. Fanta-
tenor Ricky Ford!
Laugardaginn 11. júní var
klukkutímaþáttur á skjánum með
Benny Goodman í Jazzhus Sluk-
eftir í Tívolí í Kaupmannahöfn.
Þessi þáttur var frá 1981 og mikið
ósköp er nú Benny orðinn gamall
og klarinettutónninn búinn að
missa hina gömlu fyllingu. Hann
gæti verið pabbi Hamptons ef
þeir væru ekki næstum jafnaldr-
ar. Slíkur munur er á þeim nú.
Goodman skuggi gamallar
frægðar en Hampton enn eldspú-
andi sveifludreki. Verst var að
Goodman dró einhverja afdánk-
aða sleða með sér á sviðið og var
oft sorglegt að hlusta á trommar-
ann og bassaleikarann. En fátt er
svo með öllu illt osfrv. Sá danski
fiðlusnillingur Svend Asmussen
kom uppá sviðið og lék með
gamla manninum If I Had You
(sem hljómsveit Björns R. Einars-
sonar leikur á Ormslevskífunum)
og Aftur You’ve Gone. Það var
einsog allt yrði nýtt þarna á svið-
inu í Slukeftir og hin gamla sveifla
færi á fullt þó rýþmasveitin gerði
sitt besta til að svo mætti ekki
verða. Goodman yngdist um ára-
tug og danski bogameistarinn fór
á kostum. Þetta var það sem
Goodman þurfti!
Sjónvarpið tók upp tónleika
Lionel Hamptons og Gary Burt-
ons og vonandi fáum við að sjá þá
og heyra með haustinu og svo var
einhver að segja mér að von væri
á Fats Waller þætti. Þá held ég að
einhverjir renni sér nú í glas. One
never knows, does one?
Teiknar til að
halda heilsu
Elizabeth Layton neitar að selja myndir sínar
Haustið 1977 sat Elizabeth Layt-
on, Wellsville í Kansas-fylki í
Bandaríkjunum, þá 67 ára gömul,
við eldhúsborðið sitt og tók örlaga-
ríka ákvörðun.
Sonur hennar var nýlega dáinn. í
fjörutíu ár hafði hún þjáðst af
þunglyndi. Á áratugnum 1940 til
1950 hafði hún farið sautján sinn-
um í raflost, sem þá var eina lækn-
ingin sem þekktist við þessum sjúk-
dómi. Síðan þá hafði hún verið í
stöðugri meðferð á göngudeild geð-
sjúkrahússins í bænum með litlum
árangri.
Hún átti um þrjár leiðir að velja.
Hún gat haldið áfram ferðum sín-
um á sjúkrahúsið, jafn árangurslitl-
um. Hún gat framið sjálfsmorð,
það hafði hún reynt einu sinni áður,
en verið bjargað, og hafði ekki
beinlínis löngun til að reyna aftur.
Þriðja úrræðið var að fara á teikni-
námskeið, sem auglýst var í dag-
blaði bæjarins. Og það gerði hún.
Á stuttum tíma varð mikil breyt-
ing á högum hennar. í stað þess að
sofa 22 klst. á sólarhring, og gráta
tímum saman án þess að vita orsök-
ina, fór hún að teikna dag og nótt.
Hún var á tveimur teikninámskeið-
um í háskólanum, og kom sér upp
eigin aðferð. Hún notar sjálfa sig
sem fyrirmynd á öllum myndunum.
Hún sest fyrir framan spegil með
blað og blýant, horfir á sjálfa sig i
speglinum og teiknar allar útlínur
og andlitsdrætti, hverja einustu
hrukku, án þess að líta á blaðið..
Síðan tekur hún allskonar hluti,
sem hún þarf á að halda, og teiknar
þá á sama hátt.
Eftir nokkra mánuði var þung-
lyndið horfið. Söknuðurinn eftir
sonarmissinn og minningarnar um
raflostin hættu að valda henni
þjáningum, og í fyrsta sinn á ævinni
fann hún tilgang í lífinu. í gleði
sinni og þakklæti tók hún þá á-
kvörðun að selja aldrei mynd.
Elizabeth Layton litur á starf sitt
með augum sjúklings. Hún teiknar
til að halda sér heilbrigðri. „Myndir
mínar eru ekki list“ segir hún.
„Þær eru svo ljótar, að við Glenn
(seinni maðurinn hennar) þolum
ekki að horfa á þær uppi á vegg. Ef
ég ætlaði að gera listaverk, myndi
ég teikna fallegar myndir handa
fólki að horfa á“
Hún er ekki bara einföld alþýðu-
kona. Hún er vitringur, sjáandi.
Sjálfsmyndir hennar sýna alveg sér-
staka innsýn og heiðarleika. Hún
teiknar allar hrukkur og hrörnun
ellinnar og innibyrgð reiði og þján-
ingar lífs hennar brjótast fram eins
og gos. En myndirnar eru líka fullar
af hæðni og fyndni, og efni þeirra
er ekki smáborgaralegt og einstak-
lingsbundið, heldur almennt og al-
þjóðlegt. Þær fjalla um stjórnmál,
mannréttindi, jafnréttisbaráttu og
mannleg samskipti yfirleitt. Stund-
um skrifar hún skýringar með
myndunum: Til dæmis er mynd
sem heitir „Ég Gulliver“. Á mynd-
inni liggur hún og smáverur binda
hana niður og í hári hennar er
hreiður með eggjum. „Jé minn, allt
sem hún gæti gert ef það væru ekki
svona margir kraftar sem héldu
henni niðri: Kynlíf, barneignir, ó-
merkilegar venjur, græðgi. Sam-
viskan skríður upp úr sápuhylkinu
og segir henni hvað hún sé heimsk
og léleg. Hún lítur niður á sjálfa sig
og sér að það er satt. Fuglarnir
byggja hreiður í hári hennar, annars
myndi hún ganga burt“
En það má heldur ekki gleymast
áð verk hennar eru frábær myndlist
án orða.
Gagnrýnendur eru í erfiðleikum
með að greina list hennar. Þeir geta
ekki kallað hana alþýðulist, (naiv-
isma) til þess eru myndir hennar of
tilfinningaríkar (expressive). Don
Lambert, sem er framkvæmda-
stjóri Iistastofnunar í Topeka,
Kansas, og hefur átt mestan þátt í
að kynna list Elizabethar, segir að
hún sé einskonar milliliður milli
Grandma Moses og Edvard Munch.
Annar listfræðingur, Graham Beal,
líkir henni við Chagall. Lucy Lipp-
ard, frægur gagnrýnandi og höf-
undur bóka um list, segir: „Ég held,
að ég hafi ekki séð neitt í nútímalist,
sem ég hef hrifist svo afí‘ Aðeins
tvær af myndum hennar hafa verið
gefnar út á prenti.
Elizabeth Layton er núna 73 ára.
Hún hefur ekki breytt um lifnaðar-
hætti, þótt hún sé nú orðin víðfræg
um Bandaríkin. Hún teiknar enn til
að halda heilsu.
Verk hennar eru notuð við
kennslu í listlækningum (Art Ther-
apy) í mörgum háskólum í Banda-
ríkjunum, sem dæmi um þann
undramátt, sem listin hefur á þann,
sem iðkar hana af einlægni og lítil-
læti.
SJOKVAKI*
Föstudagur
. 24. júní
20.40 A döfinnl. Það er það helst að
Hróðmar er aö fara í fríið og við
kveðjum klökk. Bless.
20.50 Stelnl og Olli i sauðalitunum.
Húrra.
21.15 Meö kveöju frá íslandi. Coldwater
Seafood Corporation. Nei þetta er
satt. Þetta er framhald myndarinn-
ar Fagur fiskur úr sjð.
21.35 Undralyfiö kallókain. Gerð eftir
skáldsögu Karin Boye en hún er
sænsk. Þessi mynd gerist i framtið-
inni. Leo Kall efnafræðingur finnur
upp lyf sem fær fólk til að afhjúpa
leyndustu hugsanir sínar. Þú getur
huggaö þig við þessa Helga min.
Laugardagur
, 25. iúní
17.00 Iþróttir. Já Hróomar missir af þeim.
20.35 íbliöu og stríðu. Eru ekki allir meö
þennan nýja Löður-þátt á hreinu?
21.00 Loretta Lynn. Þetta er ein skærasta
kántrýstjarnavestanhafs. HallLjörn
horfir á hana þessa. Er það ekki?
Já kondi Kántrýbæ. Tralalalæ.
21.55 The Rake’s Progress. Bresk bíó-
mynd frá 1945 með Rex Harrison
og Lilli Palmer i aðalhlutverkum.
Sunnudagur
26. júní
18.00 Upp upp min sál.
18.10 Svo eru það teiknlmyndirnar allar
og það í siöasta sinn. Ida, Dúfubær,
Palli póstur og Sú kemur tið.
20.35 Sjónvarp næstu viku. Aha
20.50 Kóramót í Namur. En það er i Bel-
glu. Það eru 26 kórar sem koma
fram í þættinum víðs vegar úr heim-
inum og m.a. Hamrahliðarkórinn
sem varð 15 ára um daginn.
21.30 Þróunin. Lokaþátturinn heitir
Regnið.
lÍTVAKP
Föstudagur
24. júní
8.30 Ungir pennar.Dómhildur Sigurðar-
dóttir stjórnar þættinum sem kemur
beint frá Akureyri. Þar er nú gott að
vera.
11.05 Ég man þá tíö. Já. Þaö var alltaf
svolitið erfitt að fá silfrið Hermann.
Kannski var það vegna þess aö
enginn bauð mér upp það árið og
ég varð að dansa við vinkonurnar.
11.35 Félög aldraðra. Erindi sem Sigurö-
ur Magnússon flytur.
14.20 Á frivaktinni. Ég er ekki a frívakt.
17.15 Upptaktur. Guðm. Ben.
19.50 Viö stokkinn. Góða nótt, unga fólk.
20.00 Lög unga fólksins. Já fyrir þau
sem ennþá haldavöku sinni.