Helgarpósturinn - 08.09.1983, Síða 12
12
Fimmtudagur 8. september 1983
Átta ára gamall strákur gekk upp á Skólavörðuholtið og bankaði
upp á hjá Guðmundi Einarssyni frá Miðdal, sem pá rak fyrsta kera-
mikverkstæðið á íslandi í Listvinahúsinu. Þar var honum tekið opn-
um örmum, og parbyrjaði hann að módelera hunda, ketti og krókó-
díla úr leir, sem Guðmundur og samstarfsmenn settu síðan glerung
á.
Síðan eru liðin 35 ár, og litli strákurinn er orðinn maður og áhuginn
á að skapa eitthvað, var ekki bara bernskuáhugi. Eyjólfur Einarsson
hélt sig að listinni og opnaði nýlega áttundu einkasýningu sína, í
Listmunahúsinu, en fyrstu einkasýninguna hélt hann 25 ára gamall
í Bogasalnum, 1965.
lexli: Anna Hrisiine
Magnúsdóitir
Ijosm.: Jim Smari