Helgarpósturinn - 15.09.1983, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 15.09.1983, Blaðsíða 2
Eldhressar ballettstúlkur Mitt í líkamsræktaræðinu hafa þrjár hressar stúlkur opnað nýtt dans-stúdió að Hverfisgötu 105, er nefnist Jazz-sporið. Þetta eru kennararnir Ásta Ólafsdóttir,Jenný Ólafsdóttir og Sólveig Róbertsdóttir, en fyrir fram- an þær sitja tveir nemar Anna og Kristín. Þessi nýja vakning er í nýju húsnæði þar sem þær stúlkurnar bjóða uppá námskeið í almennri leikfimi, jazzdansi og jazzballett, jafnt fyrir byrjendur og unga sem aldna. Fólki gefst ennfremur kostur á gufubaði og nuddpotti til afslöppunar og í sama húsnæði er einnig snyrtistofa og fáanlegir tímar í Ijósabekki með mjög góðum afslætti hjá þeim stúlkum. Fjársjóös- leitarmenn taka vitlausan lykil Ibúarnir 45 í þorpsnefnunni Cowesby í Norður-Jórvíkurskíri á Englandi komust ekki inn í kirkj- una sína á dögunum. Það er talið að kappsamir fjársjóðsleitarmenn hafi tekið eina lykilinn að kirkjunni í þeirri trú að hann væri sá sem þeir leituðu að, nefnilega lykill að gull- kistu mikilli. Dagblað á svæðinu stóð fyrir leitinni og verðlaunin voru andvirði fimm þúsund sterlingspunda. Kirkjan í Cowesby hefur aðeins tvennar dyr. Aðrar þeirra liggja inn í skrúðhúsið og er þeim læst innan frá. Lykillinn að aðaldyrunum er að öllu jöfnu falinn undir steini fyrir framan kirkjuna, og það er sá lykill sem hefur horfið. Fjársjóðsleitarmenn söfnuðust hundruðum saman fyrir framan ritstjórnarskrifstofur Bergmáls Norðursins, héraðsblaðs nokkurs í Darlington, aðfaranótt þriðjudags, og biðu eftir að blaðið kæmi glóð- volgt úr prentsmiðjunni. í því tölu- blaði voru nefnilega síðustu vís- bendingarnar um hvar fjársjóðinn góða væri að finna. Löngu áður en dagur reis flæddu lykilveiðimenn inn í Norður-Jórvík- urskíri. Margir þeirra höfðu log- andi vasaljós og gerðu íbúum Cowesby ónæði. Um kl. 5.45 fannst svo rétti lykillinn, þar sem hann var grafinn um 15 sentímetra niður í jörðina í rjóðri í Boltbyskógi nokkra kílómetra frá Cowesby. Hitt skilja menn ekki hvernig nokkur gat farið lyklavillt. Kirkju- Iykillinn er nefnilega tuttugu sentí- metra langur, ryðgaður og hann hefur verið soðinn saman í miðj- unni. Kirkjuvörðurinn Sir John Cameron hefur hvatt handhafa til að skila lyklinum. Það gæti nefnilega skipt íbúana miklu máli að fá hann aftur. Guðs- þjónustur hafa ekki verið haldnar í Cowesby í eitt ár vegna þess að þar er enginn prestur. En það stendur til bóta og þó að aðeins fimm manns láti sjá sig alla jafna í kirkju á sunnudögum, vilja aðrir íbúar að kirkjan sé opin svo þeir geti Iaumast þar inn til að biðjast fyrir. Kannski verður þetta atvik til þess að glæða trúaráhuga Cowesby- manna. Voru þetta forlögin? Við sjáum hvað setur. Alheims- magnarinn Eðlisfræðingar í Palo Alto í Kali- forníu hafa fundið krókaleið til þess að senda radíóboð til kafbáta neðansjávar, nefnilega um Van All- en geislabeltið, sem er í tugþúsund kílómetra fjarlægð frá jörðu. Radíóboðin koma ekki einasta til jarðar aftur, heldur hefur styrkur þeirra aukist til muna í geislabelt- inu. Vísindamenn sendu útvarps- bylgjur með mjög lágri tíðni til seg- ulhvolfsins, þar sem belti hlaðinna einda streyma í átt að segulsviðum jarðar. Boðin fylgdu eftir lögun segulbeltanna til jarðar og voru numin um hálfan hnöttinn, sums staðar allt að þúsund sinnum sterk- ari en þau voru er þau voru send upp. Eðlisfræðingarnir komust að því að boðin styrktust með því að safna í sig orku frá elektrónum í geislabeltinu. Brosmildir japanir Þessir tveir broshýru japanir eru kokkar og sáu um bragðgóðar veitingar er blaðamönnum og öðrum gestum var nýlega boðið upp á í Kristalsal Flugleiða. Hófið var haldið í sambandi við kynningu á nýrri kynslóð Cor- olla-bíla frá Toyota. Fimmtudagur 15. september 1983 þJf^SÝUrínn Útvarpsbylgjur með mjög lágri tíðni geta ferðast um langan veg og farið niður í vatn og eru þær notað- ar til þess að koma boðum til kaf- báta og til þess að leiðbeina skipum á siglingu. Bylgjur þessar eru nú sendar með gífurlegum fjölda tækja um allan heim, en að sögn vísindamannsins Joseph B. Reagan þyrfti aðeins örfáa senda ef hægt væri að magna bylgjurnar í segul- hvolfinu. „Við skiljum hins vegar ekki fylli- lega hvers vegna sumar bylgjurnar magnast upp en aðrar ekki. Næsta skref er að koma senditæki um borð í gervihnött og fylgjast með á- hrifum beinna boðsendinga inn í geislabeltinþ sagði Joseph B. Reag- an. íbúasamtök Þingholtanna: Skipulag við Skúlagötu verði kynnt nánar Stuðningsyfiriýsing hefur verið send borgarstjóranum í Reykjavík, Davíð Oddssyni, og borgarráði Reykjavíkur, einnig borgarstjórn Reykjavíkur. Stjórn íbúasamtaka Þingholtanna styður tilmæli eitthundrað og fimmtíu íbúa í Skuggahverfi og ná- grenni, um að skipulag við Skúla- götu verði kynnt nánar, áður en nýt- ingargráða svæðisins verður ákveð- in endanlega. , ÓDÝRT ISLÁTRIÐ RAKAKA-OG lUiltllA DÍMV- (Mi MiAKSXYRTiSTOFA BARAAIÍUVPLXGAR Laugavegi 28 l’UMAXVTT • STIUÍ’I li Símf26850 GTAASSIÍOI • UTAXUi

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.