Helgarpósturinn - 15.09.1983, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 15.09.1983, Blaðsíða 12
• 11 12 Fimmtudagur 15. september 1983 ,rjnn r Vestur á Sólvöllum er síðasta ágústkvöldið fagurt — en napurt. Ylurinn er aftur á móti í tvílyftu steinhúsi Braga Kristjónssonar fornbókasala. Nína Björk býður mig vel- kominn, sama gera synirnir þrír: Ari Gísli, Valgarður og Ragnar ísleifur — allir á besta aldri, sex til sextán ára. Hundurinn Sókrates myndi eflaust fara um mig fögrum orðum ef hann mætti mæla, en lætur sér nægja að dilla rófunni kankvíslega. Loks birtist Bragi sjálfur, heilsar notalega og leiðir mig til stofu. Það er enginn asi. Hann gefur sér góðan tíma til að sýna mér myndir á veggjum, bækur í hillum; hvergi of mikið af neinu — en nóg. Ofor- varandis erum við niðursokknir í hrókasamræður. íslenskrar menningar á okkar öld. Hann eign- aðist marga bókina, en honum var líka gefið margt, það var heiður að gefa Nordal. Margir kunnu vel við sig undir pilsfaldi hans. þegar ég hafði safnað saman bókunum hans bað ég hann að árita þær og hann bauð mér fyrsta sérrístaupið — áritaði bækurnar og leiddi mig inn í Nordalsbergið. Þar glitraði nú á margt“ — Manstu eftir fleirum? „Þarna voru þeir Torfi Hjartarson tollstjóri og Sveinn og Pétur Benediktssynir. Gat orðið heitt í kolunum ef þeim Ienti saman við aðra, Engeyjardrengjunum, því að þeir voru skap- menn. Rauk þá prísinn upp úr öllu valdi“ Handskrifað í einu eintaki — Hvernig eignaðistu fyrstu bækurnar? „Maður keypti fyrir kaupið sitt á sumrum á meðan maður var unglingur í skóla. Um tvítugt átti ég þegar orðið myndarlegt bóka- safn — auðvitað alls konar blandaðir ávextir. Á seinni árum hef ég ekki safnað mörgu nema handritum íslenskra skálda frá öllum tímum;* — Þar kennir líkast til margra grasa? „Satt er það. Ég get til að mynda nefnt eitt. 1913 til 14 var gefið út í Menntaskólanum í Reykjavík rit sem hét Snegju-Halli, hand- skrifað í einu eintaki. Efnið er eftir menn sem síðar urðu þjóðkunnir — Jón;Helgason próf- essor í Kaupmannahöfn-, Lárus Jóhannesson hæstaréttarlögmann, séra Hálfdán Helgason, Jónas Sveinsson lækni og fleiri. Ég eignaðist þetta blað fimmtíu og fjögur — eina eintakið eins og ég sagði. Þarna getur að líta fyrsta kveðskap Jóns Helgasonar, hann hefur þá verið eitthvað fjórtán ára. Þetta er til dæmis ekki amalegur kveðskapur! Hreinferdug er historijan sanna hvar fortalt skal nuu einn smuula fraa sorglig blijfur endalykt illra manna ætijd hittir refsivöndur þaa herrann ætijd hreinferdugur blijfar hann er lijkasem einn slaattumann hver í burtu heila grased hijfar hvorki roos nje jasmijn skaanar hann.“ — Höfundur Tannlækniskvæðis lifandi kominn! „Já, og hann teiknaði myndir líka, níðings- legar myndir, skal ég segja þér, svo sem af skólabræðrum sínum á koppnum. En þær eru listilega gerðar og mjög skemmtiiegar, sem auðvitað er. Einu sinni þegar karlinn var á landinu og sat á Landsbókasafninu þá kom ég til hans og spurði hann um blaðið. „Er þetta til“ spyr ég. „Nei, það er löngu búið að brenna það“ segir hann, „og hann Morten Ottesen kastaði ösk- unni í sjóinn“ „En ef til væriþ spyr ég áfram. „Þá eru tvö blöð á Islandi sem ég vildi sjá brennd á báli — Morgunblaðið og Sneglu- Halli“ var svarið. Seinna, ég var þá blaðamaður á Vikunni, sagði ég lítillega frá þessu í grein sem ég skrif- aði og sendi Jóni. En hann hefur aldrei á það minnst.“ ' Víxil dags sem Laxness skrifaöi uppá — Fleira sjaldgæft í-þinni kistu? „Handrit á ég eftir alla mögulega karla og kerlingar á þessari öld og frá fyrri tíð, en þó hvorki eftir Þórberg né Kiljan. Hins vegar á ég prófarkir með leiðréttingum beggja. Ég á skrifuð kvæði allra þekktari ljóðskálda — og ég hef líka keypt af þeim víxla, reyndar víxla sem þeir voru búnir að borga, skilurðu. Til að mynda á ég víxil Dags Sigurðarsonar sem Halldór Laxness skrifaði upp á fyrir hann. Auk þess hef ég safnað fyrstu bókum höf- unda — frumútgáfumí1 Palladómar í Vikunni — Þú varst blaðamaður á Vikunni. Þá var Vikan önnur...? „Ég var farinn að snudda í þessu bókasýsli hérna í þorpinu langt innan við tvítugt. Það má segja að ég hafi átt nokkra guðfeður sem kveiktu í mér áhugann. Þar er einkum að' nefna þá Sigurð Benediktsson uppboðshald- ara og Helga Tryggvason bókbindara. Helgi var mikilvirkur í miðlun á bókum í uppundir fimmtíu ár, átti ógrynni bóka og tímarita sem hann geymdi á skólapiltaloftinu á Bessastöð- um. Hann var kunnugur öllum þessum körl- um sem voru aðsópsmiklir á bókamarkaðin- um í þá daga. Mér hafði auðvitað dvalist löng- um stundum í fornbókabúðum inn á Hverfis- götu, en fyrir alvöru byrjaði þetta þegar ég fór að vinna við uppboðin hjá Sigurði Benedikts- syni á árunum fimmtíu og fjögur og fimm. Óhætt er að fullyrða að á okkar öld hafi — auk Sigurðar Benediktssonar og Helga Tryggvasonar — fjórir bókasafnarar orðið þekktastir hér á landi. Ég hafði kynni af þeim öllum, utan Benedikt Þórarinssyni, kaup- manni og brennivínssala. „Engir timburmenn af mínu víni,“ auglýsti hann — þetta var fyrir bannið og mína tíð, sjáðu til — og hann safn- aði öllu prenti um íslendinga sem hann með nokkru móti gat komist yfir hérlendis sem er- lendis. Það gaf hann allt í Háskólabókasafn- ið. Hinir voru kallaðir Þorsteinarnir þrír — allt mjög ötulir bókasafnarar. Einn var Þorst- einn gamli Þorsteinsson sýslumaður Dala- manna. Hann safnaði gömlu íslensku prenti frá Hólum og Skálholti, Hrappsey og Viðey, Beitistöðum og víðar að. Gúmmístimpill Ég átti töluverð samskipti við hann. ekki var örgrannt um að hann væri aðgætinn og í- heldinn á bækur. Því var hann kallaður Dala- kútur. Get ég sagt þér einasögu af því. Árbók Ferðafélagsins var torfengin orðin í uppruna- legu útgáfunni. Þorsteinn hafði skrifað eina bók um Dalasýslu og var aukinheldur heið- ursfélagi í Ferðafélaginu. Ég vissi að hann átti aukaeintak af frumútgáfu Árbókarinnar — sem ég girntist. Kem ég til hans með tvær gamlar bækur fágætar og vil skipta, en hann segir mér að koma seinna. Þegar ég finn karl- inn næst þá er hann með tvo stóra pakka á borðinu hjá sér. „Þarna er þetta“, segir karl. Ég þakka fyrir og ætla að gægjast í pakkana og sé óðara að þar er endurútgáfa en ekki frumútgáfan. Það var auðfundið því að ekk- ert þrykk var í pappírnum. „Það á að standa ef þetta er önnur útgáfaý segir karl og tvístíg- ur. En það var enginn vafi, þetta var endurút- gáfan. Ártalið sem stipmlað hafði verið á með* gúmmístimpli hafði karlinn þurrkað út. Við gerðum gott úr þessu. — Álit samtíðarinnar á Þorsteini kemur skýrt fram í eftirfarandi vísu Guðmundar Böðvarssonar um hann látinn. Fallega Þorsteinn flugið tók, fór um himna kliður. Lykla-Pétur Lífsins bók lokaði í skyndi niður. Mér reyndist Þorsteinn ávallt hinn ljúfasti fræðari og miðlari, en hann var stríðinn spaugari og smáhrekkjóttur. Hinir Þorsteinarnir voru ekki jafnatgangs- samir. Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri á Akur- eyri safnaði öllum textaútgáfum á íslendinga- sögunum gefnum út erlendis, þúsundum binda sem Árnastofnunin keypti. Loks var Þorsteinn Jósefsson blaðamaður og ljós- myndari sem átti mikið og fallegt bókasafn;’ Nordal bauð fyrsta staupið — Viltu ekki segja mér af bókauppboðun- um sem þú gast um? „Það var oft ansi fjörugt á uppboðunum, sem haldin voru í Sjálfstæðishúsinu og Þjóð- • leikhúskjallaranum. Margt skrafað og skegg- rætt, það var spenna í loftinu. Það mætti nefna mörg nöfn. Stundum kom Sigurður Nordal, þessi kosmópólítanski ægishjálmur „Fra vasaDro upp f GuðPr

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.