Helgarpósturinn - 15.09.1983, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 15.09.1983, Blaðsíða 5
l~lel ’ ~ ' ' \ ~ LjS^tl irinn Fimmtudagur 15. september 1983 Umboðsmennirnir í verðlista sölubúða ATVR getur að líta 461 tegund áfengis. Vínteg- undirnar sem boðið er upp á eru reyndar nokkru færri, vegna þess að margar tegundir eru seldar í fleiri en einni flöskustærð og hver víntegundgetur haft fleiri en eitt af- brigðf. Lettvínstegundir eru 176, millisterkt vín er til af 64 gerðum og í sterkum vínum hafa kaupendur úr 221 tegund að velja. „Hér þykir bæði gott úrval og gott verð, ef við miðum t.d. við einkasölur frændþjóða okkur á Norðurlöndum", segir Jón Kjart- ansson, forstjóri ÁTVR, í samtali við Helgarpóstinn. „Hér var á ferð franskur prófessor fyrir nokkru og honum kom úrvalið á óvart, sér- staklega hvað hér var mikið af góð- um vínum“, sagði Jón. „Staðreynd- in er sú að hér er ekkert vont vín í gangi“. Einn umboðsmaður áfengis sem HP ræddi við kvað skýringuna á þessu vera þá, að íslenskir umboðs- menn hefðu leitað uppi öll bestu vínin og þau sem best seldust er- lendis. Þannig væri t.d. lítið hér um ódýrari og lítt þekktari vín. Jón Kjartansson sagði hins vegar að umboðsmannakerfið hefði engin á- hrif haft á úrvalið. Það væri ATVR sem réði því hvaða tegundir væru seldar, og í því efni hefði ÁTVR haft hliðsjón af innkaupum norsku ríkiseinkasölunnar, og notið sér- fræðiþekkingar hennar. Umboðsmannakerfið hefur sætt nokkurri gagnrýni. „Þegar ég tók við stjórn hjá ÁTVR fyrir 26 árum sá ég enga á- stæðu fyrir þessu kerfi“, segir Jón Kjartansson. „Ég hafði samband við framleiðendurna og þeir sögðu þá að innkaupsverðið myndi ekkert lækka þótt ATVR keypti beint frá verksmiðjunum", sagði Jón Það er stefna framleiðendanna að hafa umboðsmenn; þeir vilja hafa „sína“ menn á staðnum“, segir einn umboðsmaður í samtali við HP. Lítið umstang Nú eru starfandi um 60 umboðs- fyrirtæki fyrir vin á íslandi. Fæst þessarra fyrirtækja flytja inn veru- legt magn, sum hver aðeins eina víntegund. Nokkur stærstu umboð- in eru: J.P. Guðjónsson (Smirnoff vodka, Geisweiler rauðvín), G. Helgason og Melsted (Martini), Al- bert Guðmundsson, heildverslun (White Horse viskí, Cinzano), Rolf Johansen og Co. (Black & White viskí, Valpolicella rauðvín, Dubonnet) og Karl K. Karlsson (Haig viskí, Kenderman og Paul Masson hvítvín). Af öðrum um- boðsfyrirtækjum mætti nefna Glo- bus hf, Bifreiðar og landbúnaðar- vélar, Pólaris hf., Marco hf, Nathan og Olsen, Svein Björnsson og Co, Þorvald Guðmundsson, HÓtel Holti og Jón Hjaltason i Óðali. Umboðsmannakerfið virkar á einfaldan hátt: ÁTVR sér um birgðahald og pantanir. Einkasalan sendir umboðunum pantanirnar og þau senda þær áfram til framleið- enda. Framleiðendur sjá um að koma víninu með fyrstu ferð til landsins, þar sem ÁTVR tekur við því. Þetta kostar ekki mikið um- stang af hálfu umboðsmannanna. Umboðslaun þeirra eru breytileg eftir tegundum, allt frá 3% upp i 10% af verksmiðjuverðinu. Jón Kjartansson segir að álagning ÁTVR sé um 100% á léttum vínum en mörg hundruð prósent á sterk- um. „Það þýðir ekkert að standa i þessu nema maður selji eitthvert magn“, segir Rolf Johansen í sam- tali við HP. „Innkaupsverð á viskí- kassa er kannski £24. ÁTVR leggur 800—1200% á. Maður verður að selja í þúsundum. Annars er viskíið frekar „prestige“ atriði hjá mér heldur en spurning um peningaþ segir Rolf. 5 „Þetta er arðbær innflutningur ef menn ná góðum markaði, annars ekki“, segir Ingi Björn Albertsson, framkvæmdastjóri Alberts Guð- mundssonar, heildsölu. „Það er reynt að stunda þá markaðsstarf- semi sem hægt er en það er litið svigrúm vegna auglýsingabannsins. En það verður að sinna þessu vel ef menn ætla að halda markaðshlut- deild sinni, reyna að tryggja það að vínið sé selt, tala við barþjóna, vera með kynningar o.s.frví1, segir Ingi Björn. Eins og í Arabalöndum Hjá umboðs- og heildverslun Karls K. Karlssonar varð Ingvar Karlsson fyrir svörum: „Það má segja að vínumboð sé eins og hvert annað umboð, nema e.t.v. að því leyti að vínin eru hent- ugri fyrir þá sem hafa lítinn eða engan lager. Þannig er mái með vexti að framleiðendurnir úti eru að langmestu leyti einkafyrirtæki og vilja því auðvitað skipta við einka- fyrirtæki hér, vilja fá sem greiðastar upplýsingar um það sem selst. Reyndar er það svo að í Ríkinu hérna er mjög gott úrval, þótt því sé ekki að neita að æskilegt væri að geta kynnt vöruna betur. Ég er sannfærður um að auglýsingar hefðu ekki aukna drykkju í för með sér, á hinn bóginn myndi fólk geta gert sér betri grein fyrir úrvalinu. Áuglýsingarnar myndu dreifa söl- unni á milli tegunda". Júlíus P. Guðjónsson sem rekur eigið heildsölufyrirtæki tók í sama streng. „Það er agnúi á yfirvaldinu í sambandi við kynningu á vör- unni“, sagði hann. „Ég tel að algert auglýsingabann á áfengi og tóbaki sé ekki til hagsbóta fyrir neytendur, það hefur helst þau áhrif að neyslan verður einhæfari. Einnig skýtur skökku við að það rignir yfir okkur áfengisauglýsingum í erlendum blöðum og tímaritum og er því vandséð hvers vegna íslenskum um- boðsaðilum er gert ókleift að aug- lýsa sína vöru. Nema farið yrði út í að banna sölu á þessum erlendu Framhald á 11. síðu „Við bíðum eftir bjórnúm“, máli um að frjáls bjórinnflutning- annað eftirspurninni ef til kæmi. sagði Rolf Johansen við blaða- ur myndi hafa geysileg áhrif — og Það er ekkert leyndarmál að ef mann Helgarpóstsins, um leið og er ugglaust hægt að gefa þeim rétt sala á bjór yrði leyfð í dag gætum hann hallaði sér makindalega aft- í því. Voru þeir ekki í vafa um að við byrjað framleiðslu á morgun. ur á bak í umfangsmiklum for- áfengisneyslan myndi gerbreytast, Viðmyndumeinfaldlegahættaað stjórastólnum og teygaði gúlsopa einkum á kostnað hinna léttari þynna pilsnerinn okkar með vatni af hinum gullna gersafa. Alllangt vína, en það mætti hæglega ráða eins og við gerum núna og tappa er um liðið síðan Rolf tryggði sér af þeirri þróun sem orðið hefði í honum óblönduðum — 4‘/2% umboðið fyrir Heinekenbjcjrnum Frihöfninni eftir að þar var farið sterkum — á flöskur! hollenska. Honum finnst betra að að selja bjór — hann væri frekar Náttúrlega yrði þetta ein stór hafa vaðið fyrir neðan sig, efbjór- keyptur en léttvín. Annar hand- bomba til að byrja með, við innflutningur yrði einhvern tíma leggur væri svo aftur á móti hvort myndum verða að brugga nótt og leyfður. bjórinnflutningur yrði nokkru dag til að anna eftirspurn, vanda- En fleirum én Rolf Johansen sinni leyfður hér á landi. Um slíkt mál myndu koma upp með að út- hefur þótt ráðlegra að hafa allan vildi enginn spá. „Það verður að vega nægilegt magn af umbúðum varaá. Þau bjórumboðsem akkur bíða og vona..!‘ og þar fram eftir götunum. Allir er í hafa þegar verið klófest. Að myndu rjúka upp til handa og einungis séu nefndar fáeinar „...að aldrei verði“, sagði hins fóta að prófa — en þegar nýja- þekktustu bjórtegundirnar þá er vegar Ragnar Birgisson forstjóri brumiðfæriafyrðiástandiðaftur heildverslun Karls K. Karlssonar Sanitas, og bætti við: „Ef bjór eðlilegt, jafnvel betra en áður. með Carlsberg, Sveinn Björnsson verður einhvern tíma leyfður á ís- Sanna dæmin í þcim löndum þar &co. hefur tryggt sér Tuborg, og landiá vitaskuldaðeinskorðasöl- sem bjórsalan er leyfileg að þar „bjór eins og Bæjaraland“ — una við íslenska framleiðslu, dettur salan á sterkum drykkjum Löwenbráu — er í höndum Skorra bæði í því skyni að spara gjaldeyri niður og áfengisvandamálið er h.f. og eins til að hlúa að og byggja minna. Auðvitað myndum við Þeir umboðsaðilar sem Helgar- upp íslenska iðnaðinn, ekki síst miða við að salan yrði á vegum pósturinn náði tali af voru á einu þar sem við gætum auðveldiega ÁTVR“. ALNO SÝNINGARELDHÚS ERU Á ÍSAFIRÐI HJÁ JAKOBI ÓLAFSSYNI — Á AKRANESI HJÁ MÁLNINGARÞJÓNUSTUNNI — OG Á HVOLSVELLI HJÁ BYGGINGARFÉLAGINU ÁS H.F. nmO ELDHÚSINNRÉTTINCAR VESTUÞÝSK FRAMLEIDSLA í SÉRFLOKKI HVAR OC HVERNIG SEM LITID ER A MALIN. (^) ivíYMtaAMórr HLI10 eldhúsinnréttincar Háþróuð þýsk gæðavara RLflO eldhúsinnréttincar Fjölmargar gerðir og litir (60-70 TEG..!) RLÍID eldhúsinnréttingar Verðið mjög viðráðanlegt FILnO eldhúsinnréttingar Hægt er að semja um þægilega greiðsluskilmála. Höfum í okkar þjónustu tvo innahúsarkitekta, sem standa yður ávallt til boða, þegar um er að ræða val og skipulagn- ingu á nýjum eldhúsinnréttingum — eða breytingar á þeim gömlu — allar leiðbeiningar eru að sjálfsögðu án allra skuld- bindinga. nino eldhús Grensásvegi 8 (áöur Axminster) simi 84448

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.