Helgarpósturinn - 15.09.1983, Side 7
Hagsmunafélag myndlistarmanna:
Hljóðverkstæði á
Kjarvalsstöðum
Langar þig (il að fá útrás í fram-
sækinni hljóðmyndun um helgina?
Hagsmunafélag myndlislar-
manna býður þér upp á það að
Kjarvalsstöðum í tilefni þess að
samsýningu félagsmanna lýkur þar
á sunnudagskvöld.
Aðstandendur sýningarinnar
ætla að koma upp svokölluðu
hljóðverkstæði (soundworkshop)
þar sem gestum gefst færi á að
reyna sig við alls kyns hljóðmynd-
un. Upptökumenn verða á staðnum
og geta menn því fengð að heyra eft-
ir á hvernig til tókst.
Þá gefst sýningargestum færi á
Öllum
heimil
notkun
að hlýða á hljóðverk eftir lista-
mennina Ástu Ólafsdóttur,
Magnús V. Guðlaugsson, Finnboga
Pétursson, Þór Elís Pálsson, hljóm-
sveitina Oxmá, sem líka ætlar að
sýna kvikmynd í vísindasagnastíl,
og ef til vill fleira. Einnig verður
hægt að hlusta á sögu hljóðlistar-
innar, sem Rod Summers hefur tek-
ið saman.
Hljóðverkstæðiðopnarumkl. 16
á laugardag og stendur eitthvað
fram eftir degi. Á sunnudag verður
það svo opnað um kl. 15 og tilraun-
unum lýkur það kvöld með allsherj-
ar tónleikum, þar sem Oxmá og
fleiri leika. Tónleikarnir verða tekn-
ir upp og ef vel tekst til, verða þeir
ef til vill gefnir út á snældu.
Hljóðverkstæðið er opið fyrir
alla aldurshópa.
Norski tónlistarleikhópurinn Symre kemur fram á fyrsta vísnakvöldi vetrarins í
Pjóðleikhúskjallaranum
Vísna-
vinir
hefja
kveö-
skapinn
Vísnavinir eru komnir í vetrar-
búninginn. Fyrsta vísnakvöld
haustsins verður haldið í Þjóðleik-
húskjallaranum á mánudagskvöld.
Heiðursgestir verða norskir lista-
menn, þeir sem mynda tónlistar-
leikhópinn Symre, en auk þeirra
koma fram Hjalti Jón Sveinsson,
Pjetur Hafstein Lárusson og Guð-
rún Hólmgeirsdóttir.
Vísnakvöld Vísnavina verða síð-
an haldin mánaðarlega í vetur og
verður nánar sagt frá þeim síðar.
Skemmtunin á mánudagskvöld
hefst kl. 20.30.
Magnús Geir Þórðarson 9 ára er alltaf að skrifa leikrit. Nú eru þau þegar
orðin 15.
Barnaleikritið Keisarinn flutt um helgina:
,,Mig langar frekar
til að vera leikari“,
segir höfundurinn,
Magnús Geir
Þórðarson 9 ára
Magnús Geir Þórðarson heitir 9
ára skólapiltur úr Mclaskóla, sem
hefur verið að dunda sér við að
skrifa leikrit í frítíma sínum. Leik-
ritin eru nú orðin 15 og verður eitt
þeirra, „Keisarinn", flutt á barna-
skemmtun í tilefni 10 ára afmælis
Flugleiða um næstu helgi.
Bænahúsið á að byggjast í hallar-
garðinum og skal það vera eitt
hundrað fermetrar að flatarmáli.
En áður en að byggingu kemur fer
keisarinn til íslands í boði forseta
íslands.
„Þegar keisarinn sér að það er
engin höll á íslandi, fer hann að
hlæja“, heldur Magnús Geir áfram.
Danski keisarinn verður veður-
tepptur hér í tvo mánuði og þegar
hann kemur aftur til heimalands
síns finnur hann ekki höllina. í
staðinn er komið bænahús. Það
kom sem sé i ljós, að hallargarður-
inn var ekki nema fimmtíu fermetr-
ar þegar til átti að taka.
„Keisarinn fréttir síðan að það sé
verið að byggja höll á íslandi“, segir
höfundurinn.
„Keisarinn" var sýndur í vor í
sunnudagaskóla og í Melaskólan-
um og að sögn Magnúsar Geirs
fékk það góðar viðtökur, enda allt
upp á grínið.
Magnús Geir leikur sjálfur í leik-
ritinu og hefur áður leikið í mörg-
um leikritum í skólanum. Þá lék
hann í sumar í kvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur.
En hvort skyldi hann frekar vilja
verða, leikári eða leikskáld?
„Mig langar til að verða hvort
tveggja, en samt langar mig frekar
til að verða leikari".
Magnús Geir hefur þó ekki lagt
leikritun á hilluna, því hann hefur
nú i smíðum nýtt verk um tvo
stráka. Annar þeirra er ekki dugleg-
ur í skólanum.
„Hiiin er bara venjulegur", segir
leikskáldið Magnús Geir Þórðar-
son, 9 ára.
Afturhvarf til
einfaldleikans
Bergþóra Árnadóttir vísna-
söngkona slcer ekki slöku við
þessar vikurnar. Hún er nýbúin
að gifta sig, frumflytja Blóma-
frceflablús á Lœkjartorgi ásam-
komu blómafræflaunnenda og
á allra nœstu dögum er von á
nýrri hljómplötu frá henni sem
ber heitið Afturhvarf
„Við erum að bíða af okkur
útsölurnar, það er verið að
pressaplötuna, svo kemur hún“,
sagði Bergþóra í samtali við
Helgarpóstinn“.
— Hvers konar tónlist er á þess-
ari plötu?
„Það eru aðallega lög eftir mig
og eins og nafnið ber með sér er ég
aftur að hverfa til einfaldari fram-
setningar. Á síðustu plötunni minni
Bergmáli var mikið af hjálpar-
mönnum, alls konar hljóðfæri, en á
þessari er allt einfaldara í sniðum.
Við erum þrjú sem spilum aðallega,
Pálmi Gunnarsson bassaleikari,
Tryggvi Hubner gítarleikari og svo
ég, en Gísli Helgason blokkflautu-
leikari og Kolbeinn Bjarnason
flautuleikari koma við sögu. Text-
arnir eru flestir eftir góð skáld, eins
og Stein Steinarr, Jóhannes úr Kötl-
um, Pál Ólafsson og Pál Árdal,
Benedikt Gröndal og fleiri. Ég vil
sérstaklega nefna ljóðið Borgarljós
eftir Sigurð Anton Friðþjófsson,
ljóðskáld sem dó fyrir þremur ár-
um. Hann hafði þá gefið út eina
ljóðabók og ég hef séð handrit að
annarri sem ég vil endilega stuðla
að útgáfu á. Pálmi syngur lagið við
ljóðið hans. Það er líka eitt lag eftir
Pálma á plötunni, instrúmental lag.
Og eitt norskt lag.
— Hvernig ætlið þið svo að
kynna plötuna?
„Við erum eiginlega búin að
kynna hana um allt land. Við héld-
um tónleika i Norræna húsinu í
sumar, þar er yndislegt að syngja.
Svo fórum við um allt land í tón-
leikaför, meira að segja til Gríms-
eyjar. Það var toppurinn.
— Hvernig var ykkur tekið í
Grímsey?
„Ofsa vel. Við fengum um þriðj-
ung íbúanna á konsertinn, hefðum
líklega fengið fleiri ef veðrið hefði
ekki verið svona gott og allir bátar
á sjó.
— Hvað er svo framundan?
„Það eru fleiri tónleikar. Það er
von á norskum fiðluleikara Svein
Nymo, sem er einn af þeim allra
skemmtilegustu í vísnatónlistinni,
við ætlum að halda tónleika með
honum. Síðan verðum við á kvöldi
Vísnavina. Það má geta þess að
Vísnavinir verða með leikhóp frá
Noregi í heimsókn í vikunni, Symre
kalla þau sig, þau ætla að halda
námskeið og tónleika. Nú við ætl-
um að halda áfram að vinna saman
þessi þrjú og kannski að leita inn á
árshátíða- og þorrablótamarkaðinn
Bergþóra
Árriadóttir
meö nýja
plötu
með okkar tónlist. Ég var líka að fá
boð um að koma í tónleikaferð til
Norðurlandanna og hef fullan hug
á því að fara. Það verður vísnamót
í lok nóvember í Serö við Gauta-
borg og þar verðum við Gísli Helga-
son að öllum líkindum.
— Finnst þér vísnatónlist vera á
uppleið hér á landi?
Álveg hiklaust. Það sýnir að-
sóknin að vísnakvöldum Vísna-
vina. Það er alltaf uppselt. Við er-
um að fara af stað með vetrarpró-
grammið á næstu vikum og verðum
áfram í Þjóðleikhúskjallaranum á
mánudagskvöldum.
— ká