Helgarpósturinn - 15.09.1983, Síða 8
twnlist
Félagsbíó
Keflavík:
Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingi-
mundarson syngja og leika á töstu-
dagskvöid kl. 21.
Austurbæjarbíó:
Á laugardag kl. 14.30 halda Kristinn
Sigmundsson barítónsöngvari og
Jónas Ingimundarson píanóleikari
tónleika þar sem flutt verða verk eftir
Verdi, Ives, Schönberg, Mozart,
Schubert og Wagner. Kristinn hefur
gert garðinn frægan að undanförnu
og minnisstæðir eru tónleikar hans i
Breiðholtinu fyrr í haust. Þetta er síð-
asta tækifærið til að heyra hann að
sinni því að hann er á leið til Vínar-
borgar, þar sem hann hefur veriö við
nám.
sÝBiiiHh'irssilir
Gallerí Langbrók:
Langbrækur sýna og selja muni sína.
Grafík, keramik, tauþrykk og margt
fleira skemmtilegt. Opiö virka daga
kl. 12—18.
Verslanahöllin
Laugavegi 26:
Sigþrúður Pálsdóttir opnar myndlist-
arsýningu á laugardag kl. 17á 2. hæö
hússins. Sýningin stendur til 30. sep-
tember og er opin daglega kl. 14—19
og 20—22.
Listasafn ASÍ:
Baltasar, Bragi Ásgeirsson og jafnvel
fleiri opna sýningu á verkum sínum á
laugardag.
Norræna húsiö:
Á laugardag kl. 17 opnar danski list-
málarinn Henri Clausen sýningu á
verkum sínum i kjallarasalnum. Sýn-
ingin stendur til 2. október og er opin
kl. 14—19 alla daga. Á kaffistofu opn-
ar á föstudag sýning á glerlist eftir
Ingunni Benediktsdóttur og í anddyri
veröur sýning á teikningum eftir
Kristján Jón Guðnason.
Kjarvalsstaöir:
Sýningalok um helgina. Hagsmuna-
félag myndlistarmanna i vestursal og
á göngum og Kjarval á Þingvöllum i
Kjarvalssal. Opið kl. 14—22. Húllum-
hæ alla helgina.
Gallerí
Lækjartorg:
Tvíburabræðurnir Haukur og Hörður
sýna höggmyndir og mikró-relief verk
og fleira. Þeir eru á leiö til útlanda.
Missið ekki af tækifærinu. Sýning-
unni lýkur á sunnudag. Opið daglega
kl. 14—18 nema fimmtudaga og
sunnudaga kl. 14—22.
Ásmundarsalur:
Garðar Jökulsson sýnir oliu- og vatns-
litamyndir. Sýningunni lýkur á sunnu-
dag. Opið virka daga kl. 16—22 og
14—22 um helgar.
Mokka:
Valgarður Gunnarsson sýnir málverk.
Góð verk, góður staður, gott kaffi.
Listmunahúsiö:
Afmælissýning Ragnars Kjartans-
sonar myndhöggvara opnar á laugar-
dag. Þar sýnir Ragnar smáhögg-
myndir og veggmyndir. Sýningin
stendur til 2. október og er opin kl.
10—18 virka daga og kl. 14—18 um
helgar. Lokað á mánudögum.
Gallerí Grjót:
Örn Þorsteinsson sýnir smámyndir.
Opið virka daga kl. 12—18.
Djúpið:
Dagur Siguröarson sýnir myndlist til
2. október. Góö vinna. Opið daglega
kl. 11—23.30.
Listasafn
Einars Jónssonar:
Dulmagnaðar höggmyndir. Opið alla
daga nema mánudaga kl. 13.30—16.
Höggmyndasafn
Ásmundar Sveinssonar:
Stórbrotin verk. Opið daglega kl.
14—17. Lokaö mánudaga.
Ásgrímssafn:
íslensk list eins og hún gerist hvað
best. Opiðsunnudaga, þriðjudagaog
fimmtudaga kl. 13.30—16.
Árbæjarsafn:
Opið samkvæmt samkomulagi. Upp-
lýsingar fást á skrifstofu safnsins.
Bogasalur:
Myndir úr íslandsleiðöngrum og fleiri
myndir úr fórum safnsins sem ekki
hafa verið sýndar áður.
Icikluís
Leikfélag
Reykjavíkur:
Hart í bak eftir Jökul Jakobsson.
Fyrsta verkefni vetrarins. Sýningar á
föstudag, laugardag og sunnudag kl.
20.30.
Stúdentaleikhúsið:
Norski tónlistarleikhópurinn Symre
heldur tvær sýningar, þar sem skipt-
ast á tónlist og stuttir leikþættir. Sýn-
ingarnar verða á föstudag og laugar-
dag kl. 20.30. Léttar veitirigar með-
an á sýningu stendur.
List færð í
,,fóstrustíl“
Svo segir í snilldarverki sem
gefið var út nýlega fyrir yngstu
lesendurna, þá sem eru rétt farnir
að geta stautað, að lítil telpa hafi
villst inn á listasafn ásamt hvolpi
sínum og hafi hrifist svo af lista-
verkunum þar að bæði vildu vera
málarar. Þegar þau komu heim
sofnaði telpan, úrvinda, enda
alkunna að börn þreytast fyrr en
hundar. Meðan telpan svaf
málaði hundurinn mynd af
telpunni. Nú vaknaði telpan og
vildi ekki vera minni en hundur-
inn, því henni hafði verið sagt í
leikskólanum að maðurinn væri
æðsta skepna jarðarinnar og svo
mikil vitsmunavera að hann gæti
búið til snjó með því að rífa bréf
í smásnepla. Það væri það fyrsta
sem dönsku fóstrurnar kenndu
negrunum í föndri í Afríku, að
búa til snjó úr fínrifnum bréfmið-
um. Þetta finnst negrunum vera
svo mikið furðuverk að þeir vilja
helst ekkert annað en skreið og
dönsk niðursoðin hrogn, vörur úr
löndum þar sem bréfsneplasnjór
er næstum allt árið. Af þessum
sökum er nýja nýlendu- og
markaðsstefnan sú að senda fyrst
fóstrur inn í frumskógana á hvít-
um tréklossum, í staðinn fyrir trú-
boða, eins og bretar gerðu.
„Fostrur gefa betri raun en trú-
boðar og prestar", segir Per
Sörensen í sinni frægu bók
Skandinavísk markaðskönnun í
svörtu Afríku.
Um þetta hafði telpan enga
hugmynd, hitt vissi hún að hún
var kölluð til listsköpunar, svo
þegar hundurinn lagði sig (enda'
alkunna að Iistsköpun hefur
þreytandi áhrif á hunda) þá
málaði hún í skyndi mynd af
hundinum. Og út úr munninum á
hundinum teygðist magatútta og í
henni var stórt bein.
Síðan vaknaði hundurinn úr
sínum súrreala svefni, með undir-
meðvitundina hálfpartinn utan á
sér, og telpan og hann fóru með
listaverkin sín strax á listasafnið.
Hér Iýkur þessari snjöllu
barnasögu, um það hvað hundar
og telpur eiga auðvelt með að
skapa ódauðleg listaverk. Söfnin
taka við þeim eins og skot.
Selmurnar eru svo sætar í sér við
innkaupin.
Ég bar þessa bók, ekki undir
okkar besta sérfræðing í barna-
bókalist, heldur Gunnu fóstru,
frænku. Hún sagði mér brátt „eft-
ir vandlega þemagreiningu" að
jafn markvissar og marktækar
bækur vektu sjálfstraust barna af
því endirinn er jákvæður. Telpan
kemur list sinni á framfæri. Hún
sýnir! Listasafnið kemur til móts
við hana.
En er niðurstaðan jákvæð fyrir
hundinn? spurði ég.
Hundurinn í sögunni er hjálp-
argagn, sagði Gunna fóstra. Hann
er tákn fyrir leiðsögn, hann er
hvati, ástarþörf barnsins, hið fer-
fætta sköpunareðli í hverjum
manni.
Sýning Hagsmunafélags mynd-
listarmanna að Kjarvalsstöðum
gæti hafa verið máluð að mestu af
telpunni en þó miklu fremur af
hundinum.
Fátt er jafn athyglisvert í menn-
ingu okkar og áhrif fóstrunnar á
allt þjóðlífið. Ekki er fráleitt að
halda því fram að hvarvetna gæti
„fóstruviðhorfa" til lífsins. Hin
rísandi myndlist er að mestu í
„fóstrustíl". Og listamennirnir
eru svo ánægðir yfir henni að þeir
minna á glaðar fóstrur sem koma
tilbúnar með stimpilinn til að
stimpla „allt gott“ með stjörnu-
stimpli.
Og ekki má gleyma dægur-
lögunum, flest eru þau í fóstru-
söngstíl og textinn fóstruljóða-
gerð, einnig ljóðagerð ungskáld-
anna. FÓstran veður uppi. Áður
sungu íslendingar í rútum um nú
er horfið Norðurland, nú eru þeir
hættir að syngja heima. En þeir
syngja þeim mun meira, er mér
sagt, í sólarlandarútunum, þegar
þeir eru á leið (þjáðir af ræpu en
hreifir af víni, æstir í að gefa
þjórfé og auka álit þjóðarinnar)
til að skoða gagnmerka staði. Þá
syngja þeir fóstruljóð sem þeir
lærðu í forskólanum: „Hvar er
augað? Það er hérna. Benda á
nebba, líka á eyrað. Einn-tveir-
nebbi-eyra og munnur. En hvar er
táin?“ Lófum er klappað saman,
og svo kemur fóstran og allir fá
sinn stjörnustimpil á eyrað, nefið,
tána. Við þetta ná börnin afar
eðlilegum þroska, sífellt að bíða
eftir stjörnustimplinum: í listinni,
í hjónabandinu, á vinnustaðnum.
Gott ef þeir vilja ekki líka fá
stjörnustimpil á gröfina sína. Að
minnsta kosti á minningin að vera
stjörnustimplum stráð.
Um þessar mundir sýna að
Kjarvalsstöðum málverk um þrjá-
tíu hagsmunastjörnur. Verkin eru
flest í „fóstrustílnum" og auðsætt
að allar fóstrur borgarinnar
mundu stimpla rækilega við þá
miklu blönduðu tækni sem notuð
er við myndgerðina. Þarna sýna
líka tvær lífsreyndar og listreynd-
ar fóstrur úr Leikskóla SÚM. í
tengslum við sýninguna voru
haldnir miklir gjörningar. Mesti
gjörningurinn fór fram á Skeiðar-
ársandi þegar lokið var við að
mála þar táknræna þjóðlífsmynd
í „fóstrustíl“ með afar blandaðri
tækni. Við gjörninginn fannst
hollenskt hugmynda-gullskip frá
sautjándu öld, myndbreytt og í
gervi þýsks togara frá hinni
tuttugustu. Fundurinn var í sam-
ræmi við þróun íslenskrar málara-
listar síðasta áratuginn: frá
hollenskættaðri hugmyndalist
(konsepti) til þýskættaðrar
litkekkjalistar. Yfirlistfræðingur
þjóðarinnar úr Fornminjasafninu
ruglaðist í gjörningunum á hinni
frægu „fallbyssukeðju" og
himnafestingu hugmyndaskipsins
(konseptskipsins).
Þjóðin veit nú að í keðjubútn-
um er veikasti hlekkur þjóðlífs
okkar, undirmeðvitundin veit
það, en tíðarandinn (Zeitgeist)
nfeitar að viðurkenna. í gjörning-
unum fóru nokkrar fóstrur út á
sandinn með stjörnustimpilinn.
Þær óðu gegn hugarvillunni með
hann á lofti syngjandi: Hvar er
augað? Eða nebbinn? Eða vitið?
Engu að síður komu þær engu inn
í hausinn á neinum, sjónin komst
aldrei inn í augun, ilmanin flúði
nefið (og fann kryddlykt af viði)
snerting komst aldrei í fingurna
og ekkert jafnvægi var í tánum.
I gjörningunum ku tvær sauð-
kindur á Blikastöðum hafa orðið
fyrir sterkum áhrifum frá mál-
verki eftir Jóhann Briem og breytt
um lit, en bóndinn tók undir orð
listakonunnar: íslenskt sauðfé er
afar skemmtilegt fyrirbrigði.
Slíkur er máttur íslenskrar
myndlistar að náttúran hefur far-
ið inn á „nýnáttúrusviðið“ eins og
sést á Esjunni, hún er stöðugt að
nálgast málverkið. Hún á því skil-
inn stjörnustimpil.
Mál var að málverkið yrði ekki!
aðeins fyrir áhrifum frá landslag-
inu heldur yrði landslagið undir
sterkum áhrifum frá málverkinu.
SJOKVAKI*
Föstudagur
16. september
20.00 Fréttir. Er það Magnús með pipi-
úrið? Eða er það einhver annar?
Eigandinn ætti nú annars að taka
pað niður.
20.35 Á döfinni. Birna „Sigurgrima"
Hrólfsdóttir kynnir afkastamögu-
leika menningarbelgsins.
20.45 Skonrokk. Loksins fáum viö aftur
brosandi andlit á skjáinn. Hún léttir
okkur lífið hún Edda Andrésdóttir.
Svo er hún svo prófessíónal.
21.15 Málmartil hernaöarnota. Náttúran
ætlar kannski að koma vitinu fyrir
hernaðarbröltara. Fágætu málm-
arnir eru nefnilega ekki óþrjótan-
legir. Ameríkanar hafa lika áhyggjur
af áhrifum Sovótmanna i Afriku.
Þaðan koma flestir málmanna.
22.15 Brot (Smithereens). Bandarísk
bíómynd, árgerð 1982. Leikendur:
Susan Berman, Brad Rinn,
Richard Hell. Leikstjóri: Susan
Seidelman. Rótlaust lif og utan-
garðsfólk f skuggahverfum stór-
borgarinnar. Hér er það New York.
Raunsæ lýsing og mynd sem var
sýnd á kvikmyndahátíð. Gott stöff.
Laugardagur
17. september
17.00 íþróttir. Ingólfur Hannesson drepur
marga tittlinga áður en yfir lýkur.
Skemmtilegir þættir.
18.55 Enska knattspyrnan. Bjarni Fel gat
ekki látiö okkur i friði einn laugar-
dag. Hann veit liklega hve vinsæll
hann er.
20.35 I blíðu og stríðu. Loksins lokaþátt-
urinn. Þau hafa aldrei elskað hvort
annað jafn heitt og nú. Hún orðin
forseti og hann forstjóri sjúkrasam-
lagsins. Hvílíkir draumar.
21.00 Glæður. Stórir tónlistarmenn.
Gamlir og góðir. Fyrsti þátturinn af
sex. Rætt við þá og bönd endur-
sköpuð. Hér er þaö Björn R. Einars-
son.
22.00 Skffurnar sjö (The Seven Dials
Mystery). Bresk sjónvarpsmynd,
alveg ný. Leikendur: Cheryl Cham-
pell, James Warwick, John Giel-
gud, Harry Andrews, John Vine.
Agata Kristi á fullu og leysir morð-
mál á friðsælu sveitarsetri. Siðan
eru það leynisamtökin Skifurnar
sjö. Það eru sko karlar í krapinu.
Sunnudagur
18. september
18.00 Sunnudagshugvekja. Jón Hjörleif-
ur Jónsson komandi presturflytur. í
næsta hverfi.
18.10 Amma og átta krakkar. Ég endur-
tek bara andvörp min og samúðar-
kveðjur.
18.30 Vofur á flugi. Þær eru nú hálfgerð-
ar uglur þessar turnuglur sem hér
verða sýndar. Þær eru alltaf I turn-
um. Hipparnir hefðu talað um að
umturnast.
20.35 Sjónvarp næstu viku. Guömundur
Ingi Kristjánsson kynnir okkur góm-
sætindin.
20.50 Krlstinn Sigmundsson. Ungur
sönvari á uppleiö og vænsti dreng-
ur. Hór er sýnt frá tónleikum, sem
hann hélt um daginn. Söngelsk-
endur biða í ofvæni.
21.40 Amma og himnafaðirinn. Gamla
konan heldur áfram að rausa í guði.
Eins og þaö hafi nokkurn tima leitt
til einhvers. Ástand heimsmálanna
sýnir þaö nú best.
ÍITVARI’
Föstudagur
16. september
8.30 Unglr pennar. Börn bókmennta-
þjóðarinnar sýna hvers þau eru
megnug. Þurfum við að kvíða fram-
tíðinni? Verður nokkur framtið?
8.40 Tónbillð.Róandi tónlist áður en erill
dagsins hefur niðurrifsstarfsemi
sína.
10.30 Það er svo margt að minnast á.
Torfi Jónsson hefurfilsminni, made
of steel.
11.05 Ég man þá tið Er grösin greruurru.
Hermann Ragnar Stefánsson með
nostalgluþátt.
11.35 Úrævi og starfi islenskra kvenna.
Björg Einarsdóttir segir okkur frá
huldufólki islandssögunnar.