Helgarpósturinn - 15.09.1983, Blaðsíða 16
16
_f~/elgar------
Fimmtudagur 15. september 1983 pOsturinn
Hvernig líta
ráðherrastól-
arnir út?
Steingrimur Hermannsson:
,,Ég man þaö svei mér ekki.
Þaö er oröið svo langt síöan ég
kom síöast inn í Alþingishúsið“.
Geir Hallgrímsson: ,,Ég man
þaö ekki".
Halldór Ásgrímsson: ,,Þaö
get ég ómögulega munaö".
Albert Guðmundsson: ,,Ég
veit þaö nú líklega manna best.
Ég hef mænt á þá í öll þessi ár.
Þeir eru...“
Svona,...
Aðalatriðið
að rústa liðið
— segja Agnes Bragadóttir og Fríða Proppé sem
hlutu Black og Decker-verðlaun Málfrelsis-
sjóðs fyrir framúrskarandi blaðamennsku
— Við erum auðvitað mjög
ánægðar með þessi verðlaun, þær
lyfta íslenskri fréttamennsku á
hærra plan, sögðu þær stöllur
Agnes Bragadóttir og Fríða Proppé
en þær hlutu Black og Decker verð-
launin úr Málfrelsissjóði fyrir
framúrskarandi blaðamennsku.
Voru verðlaunin veitt fyrir frammi-
stöðu þeirra í þættinum „Hafa þau
aðra lausn“.
— Nú þóttu spurníngar ykkar
fullfráar?
„Hvað er þetta eiginlega! Held-
urðu að þessi helvíti eigi bara að
sleppa, segir Agnes og Fríða tekur
undir það: „Þessir bjánar héldu því
meira að segja fram að Iðnaðar-
bankinn væri ekki ríkisbanki".
— Verölaunin hljóöa upp á 100
þúsund krónur. Hvernig ætlið þiö
aö verja þeim?
„Ég ætla að láta gamlan draum
rætast, segir Fríða, og kaupa mér
heildarútgáfu á verkum Iænins“.
„Ég ætla að verja peningunum til
ferðalaga“, svaraði Agnes.„Fyrstog
fremst hef éghug á að skreppa til
Norður-Kóreu og slappa af og
sækja þar jafnframt málfunda-
námskeið hjá Tjúng-Tómt-Píp, en
hann er ofsalega góður ræðumaður
og náfrændi vinar míns Kim-Il-
Súng“.
— Voruö þiö aldrei hræddar um
að spurningarnar mundu geiga í
umræddum sjónvarpsþætti?
„Jú“, segir Fríða(„ég var alveg á
nálum þegar ég spurði Svavar um
úrræði stjórnarandstöðunnar og
hann fór að minnast á fyrri sjón-
varpsfundi okkar. En ég reddaði
þessu með því að benda honum á að
hafa sig hægan“.
„Ég var aldrei nervös, segir
Agnes.„Það var t.d. alveg klárt mál,
að málflutningur ríkisstjórnarinn-
ar á Alþingi gegnir því hlutverki að
vera gagnrýni á stjórnarandstöð-
una. Stebbi greyið Ben var nú eitt-
hvað að fárast út í þetta en ég sigldi
hann snögglega í kaf. Nei, ég var
aldrei nervös“. "
— Þaö fór alvarlega aö hitna í
kolunum þegar Kjartan Jóhanns-
son formaöur Alþýöuflokksins fór
aö ræöa um niðurskurð fjárlaga
sem algerlega óþekkta stærö?
„Já, Guð rnanstu", segir Agnes
og gýtur augunum á Fríðu. „Já
bölvaður hólkurinn", samsinnir
Fr.íðaj„ hann hélt að hann-mundi
bara sleppa með það. En ég var
náttúrlega búin að pakka saman
Svavari og Stína Halldórs var alveg
orðin óvirk eftir kjaftshöggið frá
Agnesi í sambandi við samdrátt
ríkisins. Það voru 16 mínútur til
loka þáttarins og maður þurfti nátt-
úrlega að „tæma“ þetta rétt. Svo ég
reddaði þessu með amerísku að-
ferðinni; setti upp þrjóskusvip en
passaði mig þó á því að vera ábúð-
armikil og gáfuleg til augnanna,
það er gasalega þýðingarmikið. Svo
lét ég það flakka: Spurði Kjartan
hvasst hvort hann mundi hafa þetta
svona ef hann væri forsætisráð-
herra?“
„Já, hann sökk saman, vindur-
inn úr belgnum!”skýtur Agnes inn í.
Ég meina það! Síðan tók ég við óg
þröngvaði Svavari í enn eitt hornið,
framboðsræðurnar fóru alveg út í
veður og vind! Aðalatriðið er að
rústa liðið“.
Þær Agnes og Fríða hafa nú
fengið fjölda tilboða frá ýmsum
sjónvarpsstöðvum í Evrópu og
Bandaríkjunum. Til dæmis hefur
Agnesi verið boðið „talk show“ hjá
CBS sem á að bera heitið „The punk
panther“. Fríðu Proppé hefur boð-
ist fjöldi tilboða meðal annars að
vera „stand in“ fyrir Miss Piggy í
„Prúðu leikurunum“ í háskalegum
návígissenum.
— Aö lokum stúlkur: Hvernig
fannst ykkur Helgi P. stjórna þætt-
inum?
— Helgi P? Je minn, ég tók ekki
eftir honum! Var hann með?!!
Agnes Bragadóttir og Fríða Proppé fagna eftir velheppnaða sjónvarpsút-
sendingu. Stjórnandi þáttarins Helgi Pétursson á milli þeirra.
Hægt að ná svona samningi
ef Hjörleifur og Ragnar hefðu
verið framsóknarmenn
segir Steingrímur Hermannsson for-
sœtisráðherra
— Það hefði verið hægur leik-
ur að ná svona samningi við
Alusuisse fyrir löngu ef Hjörleif-
ur Guttormsson og Ragnar Hall-
dórsson hefðu verið framsóknar-
menn, sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra í
viðtali við Aðalblaóið.
„Ég vek athygli á því, sagði
Steingrímur, að Hjörleifur lagði
til að verðið yrði hækkað upp í 10
mills en það er nákvæmlega það
sama og við náðum fram núna.
Þetta bendir til þess að Hjörleifur
sé framsóknarmaður eða alla
vega hugsi mjög líkt og við. Hins
vegar heimtaði hann skilyrðis-
lausa uppgjöf Alusuisse-manna
en við fórum aldrei fram á slíkt og
höfum þar af leiðandi náð fram
hækkuðu rafverði án ærumeið-
inga. Það mætti því kalla þessa
samninga „Hækkun í hafi án
heimtufrekju“.
— Hér er um bráðabirgða-
samkomulag að ræða?
„Ég tel mikilvægt að það komi
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra: Á ég að brosa á
myndinni? Hvort á ég að segja
SIS eða MILLS?
fram, að engin endurskoðunar-
ákvæði fylgja samningum. Raf-
orkuverð er orðið á eftir tímanum
og þess vegna mjög viðunandi að
hækkun náðist, ég harma hins
vegar að Hjörleifur hafi ekki get-
að komið þessu til leiðar á sínum
tíma“.
— Fyrirgefðu en spurning var...
„Auk þess er athyglisvert, að
Alusuisse hefur boðið okkur að
kaupaeinhvern smáhlut í álverinu
svo við höfum eitthvað til mál-
anna að leggja í framtíðinni, alla
vega á pappírnum. Þarna ætti að
skapast ákveðinn viðræðugrund-
völlur í framtíðinni“.
— Spurningin var...
„Að lokum vil ég undirstrika,
og vil vekja á því sérstaka athygli,
að Alusuisse hefur verið veitt
velyrði fýrir því, af okkar hálfu,
að taka inn hluthafa að helming.
Hafa þeir nefnt franska álfyrir-
tækið Aluette og tel ég það heppi-
legt fyrirtæki".