Helgarpósturinn - 27.10.1983, Síða 8
sÝniiijjnrsnlir
Galierí
Langbrók:
Sigurður Örn Brynjólfsson sýnir 100
mjög svo liflegar og skemmtilegar
teikningar. Sýningin stendur frá 15.
okt. til 30. okt. og er opin virka daga
frá kl. 12—18 en um helgar frá kl.
14—18.
Norræna
húsið:
Þriöjudaginn 25. okt. opnar Jón Lax-
dal sýningu í anddyrinu. Sýningin ber
nafnið Myndþankar. Jón sýnir mál-
verk og teikningar og fer létt meö aö
raöa steinum í alls kyns kynjamyndir.
Gailerý
Lækjartorg:
Laugardaginn 22. okt. opnar Ragnar
Lár sýningu á málverkum og teikning-
um sem hann vann í Danmörku síð-
astliöiö sumar. Sýningin stendur til 6.
nóvember og er opið frá kl. 14—18
nema fimmtudaga og sunnudaga frá
kl. 14—22.
Bogasalur:
Sýningin stendur til sunnudagsins 27.
nóvember.
Vesturgata 17:
Listmálarafélagiö sýnir málverk og
teikningar í sýningarsalnum. Fjöl-
margir málarar sýna verk sln þar. Op-
iö er frákl. 8 f.h. til kl. 17e.h.
Kjarvalsstaðir:
Þar standa yfir tvær sýningar um
þessar mundir. Sú fyrri er sýning á
verkum eftir Jóhannes Sveinsson
Kjarval, gjöfum til safnsins frá opnun
þess 1973. Afar sérstök sýning sem
opin er daglega kl. 14—22 fram til 13.
nóv. Hin seinni er samsýning F.Í.M. á
verkum unnum í pappir, staösett i
vestursal og vesturfordyri og stendur
til 30. okt.
Höggmyndasafn Ás-
mundar Sveinssonar:
auglýsir nýjan opnunartima. Frá 1.
okt. verður safniö opiö kl. 14—17
þriðjud., fimmtud., laugard. og
sunnudaga. Ákveöiö hefur veriö aö
framlengja yfirlitssýningunni á verk-
um Ásmundar.
Bogasalur:
auglýsir nýjan opnunartima. Þriöjud.,
fimmtud., laugard. og sunnudaga er
opiö kl. 13.30 — 16.00.
Laugardaginn 15. okt.kl. 15.ooveröur
opnuö sýning er ber nafnið „Island á
gömlum landabréfum". Þetta eru is-
landskort allt frá 16. öld.
Ásgrímssafn:
Þar stendur yfir haustsýning á verk-
um Ásgríms. Þau yngstu frá ca. 1939.
Sýningin verður opin fram aö áramót-
um. Opiöveröurþriöjud., fimmtud.og
sunnudaa kl. 13.30 — 16.00.
Hallgrímskirkja:
Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur
fyrir 3. listsýn. sinni frá 15. okt. til 27.
nóv. 1983 í anddyri Hallgrimskirkju.
Leifur Breiðfjörð, glerlistamaður, sýn-
ir frumdrög, vinnuteikningar og Ijós-
myndir af steindum gluggum. Sýn. er
opin dagl. kl. 10—12. Laugard. og
sunnud. kl. 14—17. Lokað á mánu-
dögum.
Gallerí Grjót:
Ragnheiður Jónsdóttir opnar sýningu
á grafíkmyndum laugardaginn 22.
okt. Sýningin stendur til 3. nóvember.
Opiö virka daga kl. 12—18.
Háholt, Dalshrauni 9,
Hafnarfirði:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur nú á-
kveðiö aö efna til sýningar á mál-
verkagjöf þeirra hjóna Ingibjargar
Sigurjónsdóttur og Sverris Magnús-
sonar lyfsala i Háholti. Á sýningunni
eru listaverk frá ýmsum tímabilum í ís-
lenskri myndlist eftir um sjötiu lista-
menn. Sýningin opnar laugardaginn
15. okt. n.k. 'kl. 15.00 og veröur opin
daglega kl. 14—23 til sunnudagsins
23. okt. Aögangur er ókeypis.
leiklnis
L.R.:
Fimmtud. 20. okt. Guörún.
Föstud. 21. okt. Hart i bak.
Laugard. 22. okt. Úr lifi ánamaðk-
anna.
Sunnud. 23. okt. Guðrún.
Leikbrúöuland.: sýnir einþáttunga i
Iðnó sunnudaginn 23. okt. kl. 15.00.
Bera þeir yfirskriftina Tröllaleikir. Leik-
stjóri: Þórhallur Sigurðsson.
Þjóðleikhúsið:
Fimmtud. 20. okt. St.sv.: Eftir konsert-
inn kl. 20.00. Li.sv.: Lokaæfing kl.
20.30.
Föstud. 21. okt.: Skvaldur kl. 20.00
Laugard. 22. okt.: Línalangsokkur kl.
15.00. Skvaldur kl. 20.00.
Sunnud. 23. okt.: Lína langsokkur kl.
15.00. Eftir konsertinn kl. 20.00.
Stúdentaleikhúsið:
„Hvers vegna láta börnin svona?“.
Dagskrá um atómskáldin Synmgar
verða’föstudaginn 21. okt., sunnu-
daginn 23. okt. og skólasýning er á
mánudaginn 24. okt.
L.R. Austurbæjarbíó:
Forsetaheimsóknin eftir Régo og
Bruneau. Miönætursýnin ; á laugar-
dag kl. 23.30.
Bækur frá Sögufélaginu
Feröasaga og fyrirlestrar
Fyrstu öldum jólabókaflóðsins
er tekið að skola á land. Sögufélag-
ið heyrir reyndar ekki til þeirra út-
gefenda sem stíla upp á jólabækur,
þar er byggt á gömlum grunni og
haldið áfram útgáfu bóka þar sem
hver rekur aðra. í ár kemur út
fimmtánda bindi Alþingisbóka sem
hafa verið í útgáfu frá árinu 1912 og
eru nú aðeins tvö bindi eftir. Von er
á Jarðabók Snæfells- og Hnappa-
dalssýslu svo og Landsyfirréttar- og
Fimmtudagur 20.
hæstaréttardómum 10. bindi frá ár-
unum 1802-1873. Það sem telst til
tíðinda á þessu bókahausti hjá
Sögufélaginu er Ferðasaga frá 17.
öld eftir Daniel Vetter. Vetter var frá
Tékkóslóvakíu og kom hingað til
lands 1613. Á 19. öld drógu menn
mjög í efa að hann hefði nokkurn
tíma komið til landsins, en nú fáum
við að lesa um það sem hann sá og
heyrði fyrir langt um iöngu. Þá er
komið út fyrirlestrasafn frá
október 1983 irinn
kvennasöguráðstefnunni sem hald-
in var í Skálholti árið 1981, en í því
er að finna erindi um sögu kvenna
á miðöldum, þar af nokkur eftir ís-
lenska fyrirlesara. Saga, tímarit
sögufélagsins, 1983 er komin út
þykk og vegleg með fjölda greina.
Að sögn Ragnheiðar Þorláks-
dóttur sem ræður ríkjum í húsa-
kynnum Sögufélagsins við Fischer-
sund er útgáfan i ár með minna
móti, en vegleg að vanda. —ká
Ekkert kemur fram ímyndinni, sem bendir til að aðalpersónan hafi ekki
vitað hvað hún var aðfara útíþegar hún hóf vœndi. Það les maður bara
í prógramminu. Fyrir miðju Miou—Miou, lengst til hœgri María
Schneider.
Milli steins
og sleggju
Bíóhöllin:
SPLIT IMAGE. Bandarísk. Ár-
gerð 1982.
Tónlist: Bill Conti. Kvikmynda-
taka: Robert Jessup A.S.C.
Handrit: Scott Spencer. Aðalhlut-
verk: Michael O’Keefe, Karen
Allen, Peter Fonda, James
Woods, Elizabeth Ashley, Brian
Dennehy o.fl. Leikstjóri og fram-
leiðandi: Ted Kotcheff.
Danny Stetson (Michael
O’Keefe — þekktur úr CADDYS-
HACK og THE GREAT
SANTINI) er ungur, laglegur og
efnilegur íþróttamaður sem æfir
af kappi fyrir komandi Ólympíu-
leika. Hann kynnist stúlku að
nafni Rebekka (Karen Allen) sem
er meðlimur í samtökum ungs
fólks er setur manngæsku, kær-
leika og nægjusemi eftir græn-
bylgjuhugsjóninni ofar öllu í líf-
inu. Danny er boðið að eyða helg-
inni á búgarði samtakanna sem
kallast Homeland. Þar kynnist
hann leiðtoganum Kirklander
(Peter Fonda) sem stýrir hinu
hamingjusama og ástríka sam-
félagi með styrkri ástúð og blíð-
legu valdboði. Eftir nokkurra
daga dvöl brotnar Danny á sálinni
og gefst upp fyrir goðinu Kir-
klander og kenningum hans um
betri heim.
Foreldrar Dannys, miðaldra
„lukkuð“ hjón í efri miðstétt, fara
á taugum út af heilaþvotti sonar-
ins og freista þess að ná honum
aftur í „eðlilegt“ ástand, þ.e.a.s.
amerískt samfélag og leikreglur
þess. Á fjörur þeirra rekur náunga
er heitir Charles Pratt (James
Woods), sem haldinn er ofstækis-
fullu hatri á Kirklander og hugar-
heimi hans og býðst hann til að
ræna Danny aftur og „hreinsa“
hann af vilíutrúnni. Hvernig fer
skal hér ósagt látið.
Leikstjórinn (og jafnframt
framleiðandi) Ted Kotcheff (m.a.
FIRST BLOOD) hefur blessunar-
lega sneitt hjá flestum þeim gildr-
um er kunna að leynast í handriti
af þessu tagi. Styrkur myndarinn-
ar liggur einmitt í þeim andstæð-
um sem Kotcheff teflir saman;
þjóðfélagi neyslu og samkeppni
annars vegar og samfélagi kær-
leika og samhyggju hins vegar.
Með því að leggja áherslu á hina
neikvæðu þætti tekst leikstjóran-
um nefnilega hið erfiða; að greina
eðli, valdauppbyggingu og leik-
reglur þessara tveggja heima og
sýna hve margt þeir eiga sameigin-
legt, þrátt fyrir miklar andstæður
á ytra borði. Fulltrúar andstæðn-
anna falla saman sem samlokur.
Þannig verða Pratt og Kirklander
valdhafarnir sem berjast um hina
klofnu sjálfsímynd Dannys
(SPLIT IMAGE — titill myndar-
innar), unglingarnir í Homeland
og foreldrar Dannys eru ógagn-
rýnir þolendur hinna tveggja sam-
félaga, starfsmenn Pratts og
sterku strákarnir hans Kirkland-
ers varðhundar hinna andstæðu
kerfa. Sama gildir um myndbygg-
ingu og táknmál myndarinnar;
fjöldaæsingin á íþróttaleikvang-
inum í upphafi myndarinnar og
músefjunin á hópsamkomum á
Homeland-búgarðinum, um-
breyting Dannys í höndum hins
áhrifamikla Kirklanders og „bat-
inn“ í meðferð hins léttgeggjaða
Pratts. Fleiri dæmi má tína til, en
flestöll undirstrika þau kjarna
myndarinnar: mótun einstakl-
ingsins af samfélagi hans, mynd-
un persónuleikans undir þrýstingi
hóphyggju og einstakra leiðtoga.
Því miður eyðileggur Kotcheff
frábært handrit Scott Spencers
með aulafyndni á stöku stað og
billegri ástarsögu Dannys og
Rebekku, sem reyndar er notuð
sem bindiefni á geðklofninginn
eða „ástin er sterkasta afliðl* Að
öðru leyti er SPLITIMAGE mjög
athyglisverð mynd sem vekur ó(al
spurningar og hvetur áhorfand-
ann til að íhuga lausnir sértrúar-
flokka og lögmál „frjálsra," vest-
rænna þjóðfélaga. |M
Slappur
stofuþriller
Austurbæjarbíó:
Lífsháski — Deathtrap. Banda-
risk. Árgerð 1982. Handrit: Jay
Presson Allen, eftir leikriti Ira-
Levin. Leikstjóri: Sidney Lumet.
Aðalhlutverk: Michael Caine,
Christpher Reeve, Dyan Cannon.
Maður skildi aldrei alveg hvers
vegna gamanþriller Ira Levins
(Rosmary’s Baby) Lífsháski náði
jafnmiklum vinsældum í leikhús-
um Vesturlanda fyrir nokkrum
árum og raun varð á. Leikritið er
að vísu af vinsælli sort, en mér
þótti það bara ekki nógu sniðugt
og snúið til að halda áhuga. Því
síður skilur maður hvers vegna er
verið að kvikmynda svona stofu-
stykki. Þeir sem eru skilnings-
ríkari en ég og ekki sáu leikritið í
Iðnó eða annars staðar geta að
vísu haft agnarögn gaman af þess-
ari fléttu um leikritahöfund
(Caine) sem snýr síðasta floppi
sínu upp í samsærisflipp um pen-
inga eiginkonu sinnar (Cannon)
og ástir ungs lærisveins (Reeve).
En þetta er samt heldur langdreg-
ið og slappt. Caine og Cannon
standa vel fyrir sínu, en Reeve er
of stífur og herptur fyrir annað en
Súperman. Sá afkastamikli en
vandvirki fagmaður Sidney
Lumet hefði betur sleppt þessu
verkefni, eins og allir aðrir aðilar
reyndar Íika, og er langt frá því að
útkoman verði eitthvað álíka góð
og i Sleuth, sem þetta verk líkist ó-
þægilega mikið. — ÁÞ.
Afturbata...
Háskólabíó:
Þegar vonin ein er eftir. Frönsk
kvikmynd byggð á endurminn-
ingum Jeanne Cordelier. Handrit:
Christopher Frack og Jeanne
Cordelier. Tónlist: Vladimir
Kosma. Kvikmyndataka: Michael
Genet. Aðalleikarar: Miou-Miou,
Maria Schneider og Daniel Duval.
Leikstjóri: Daniel Duval.
Sagan kom út fyrir nokkrum
misserum í þýðingu Sigurðar
Pálssonar og seldist víst ágætlega.
Ég hef ekki lesið hana og er nokk
sama. Þó hygg ég að bókin hafi
verið betri en filman og gerð af
göfugri hvötum. Svona saga um
raunir vændiskonu í París þarf að
vera ansi trúverðug, þ.e. maður
þarf að hafa sterklega á tilfinn-
ingunni að hér sé verið að lýsa
raunverulegum atburðum, sem
áttu sér stað, til að hún verði meira
en hver annar reyfari, með sam-
blandi af ofbeldi og kokteil kyn-
ferðisóra.
Fyrri hluti myndarinnar var
einkar óskemmtileg uppáferða-
súpa. Þrátt fyrir mjög góðan leik
hjá þeim Miou-Miou og Maríu
(Síðasti tangó í París) Schneider
varð manni engan veginn ljóst
fyrir hvaða bensíni þessar persón-
ur gengu. Ég velti meira að segja
fyrir mér að yfirgefa bíóið í hléinu
úr þvi ég var á annað borð staðinn
upp. En skylduræknin hélt mér og
sem betur fór var seinni hlutinn
miklu skárri. Þá fór aðalpersónan
að hafa svolítinn vilja og þar með
skýrðist hún. Svo hafði hún afar
mikinn vilja í lokin og reif sig upp
úr öllu saman. Það hefði orðið
harla vondur endir ef þannig
hefði ekki farið í raun og veru,
fyrir Jeanne Cordelier. — Annars
hefði hún heldur ekki skrifað
bókina.
Meginvandamál þessarar kvik-
myndar er að hún heldur ekki sem
reyfari óstuddur af hinum „raun-
verulegu atburðumþ né hefur
maður nægilega á tilfinningunni
að verið sé að sýna okkur „það
sem raunverulega gerðistý til að
hægt sé að fyrirgefa dramatúr-
giska veikleika.
Hitchcock sagði að hvað væri
drama annað en lífið þegar búið
væri að klippa burt leiðinlegu
kaflana. Ef hann hefði ekki hugs-
að svona mikið um að vera orð-
heppinn, hefði hann bætt við að
það þyrfti að velja skemmtilegu
kaflana vandlega og setja þá í
rétta röð. Lýó
SJONVAItl*
Föstudagur
21. október
- 20.00 Fréttir og veður. Innlendir fag-
menn taka við sér eftir fimmtudags-
blundinn.
20.40 Á döfinni. Dafarlega Birna, dreifir
list um landið.
20.50 Stan Getz. Ættingi Svavars i
sveiflu. Bandariskur jatzþáttur.
21.50 Kastljós. Verðugur er fréttamaður-
inn launa sinna. Sigurveig Jóns-
dóttir og Einar Sig. kasta sér á
málaflokkana.
22.25 Fanginn(La prisonniére). Eða fang-
in. Kona verður ástfangi. Frönsk
biómynd frá 67. Leikstjóri Henry-
Georges Clouzot. Laurent Terzieff,
Elisabeth Wienerog Bernard Fres-
son I aöalhlutverkum. Gift kona
verður fyrirsæta listaverkasala/ljós-
myndara sem stundar fríkaöa Ijós-
myndun.
00.15 Dagskrárlok. Klukkan kortér yfir
miðnætti.
Laugardagur
22. október
16.30 (þróttir. Bjarni Fel i felulitunum.
18.30 Fyrirgefðu, elskan min. Þau eru
strákur og stelpa. Gjörólik en pæla
samt rosalega hvort í öðru. Finnsk
unglingamynd.
19.00 Færeyska knattspyrnan. Erling
Karlur Gjóvgan snagar knöttfiminni
og hermir.
20.35 Tilhugalíf. (Fínn Rómans) Sjötti
þáttur af sjö.
21.05 Við byggjum leikhús. Söng- og
leikdagskrá. Unnin í þágu bygging-
arsjóös Borgarleikhússins. 20 leik-
arar LR syngja lög eftir Kai Siden-
ius, Tómas Einarsson og syrþur úr
leikritum Kjartans Ragnarssonar,,
sem er umsjónarmaður. Texta og ný
atriöi semja Kjartan, Jón Hjartarson
og Karl Ágúst Úlfsson. Viðar Vik-
ings stjórnaði útsendingunni sem
gætiorðiödálitiötöff. Uþþ, uþp, upp
mitt hús!
21.50 Haltu um hausinn. (Don’t Lose
Your Head) Bresk áfram mynd. Þaö
ætti að sýna þessar myndir aftur-
ábak.
Sunnudagur
23. október
18.00 SUnnudagshugvekja. Björgvin F.
Magnússon flytur. Hvert?
18.10 Stundin okkar. Látbragösleikur,
föndur, Dimmalimm, Smjattpattar
og Krókópókó — allt í einum pakka.
Allt ber að þakka sem gert er fyrir
krakka.
20.30 Sjónvarp næstu viku. En aö fá
bara sjónvarp næstu viku í þessari
og þannig koll af kolli?
21.00 Wagner. Hugmyndir Wagners um
óþerur stangast á við venjur. Áhrifa-
mönnum likar þetta ekki.
IITVAKP
Fimmtudagur
20. október
20.30 Varadagskrárstjóri i klukkutíma.
Valgeir Guöjónsson, stuðmenni,
glensast með dagskrána.
22.35 í beinu sambandi. Helgi Péog Kári
Jónasson með umræðuþátt frá
tveimur stöðum á landinu í einu.
Ekki er sagt um hvað á að ræða né
hvaðan þeir tala. The Medium is the
Message.
Föstudagur
21. október
10.35 Mér eru fornu minnin kær. Einar
man.
11.05 Ástaljóð fyrri tima. Nina Björk les
úr bókinni „íslensk ástaljóð”. -
llandsmerkin áður en þau urðu rað-
smiðuö.
11.15 Erindi um áfengismál. Björn Jóns-
son býr menn undir helgarfylleríið.
14.45 Nytt undir nálinni. Hildur Eiríks
segir frá nýstárlegum útsaumsfor-
skriftum.
17.10 Siðdegisvaka. Ehem, ehhghem,
hóst, ræsk. Segðu mér... Hvernig á
eiginlega að salta sild?
20.00 Lög fríkaða fólksins.
21.40 Norðanfari. Saga Akureyrar.
22.35 Traðir. Gunnlaugur Yngvi Sigfús-