Helgarpósturinn - 22.12.1983, Page 32
M
■ V BHenn muna eftir hvellin-
um sem varð vegna athugunar sem
gerð var á vegum iðnaðarráðuneyt-
isins á sparnaðar- og niðurskurðarT
lerðum hjá Rafmagnsveitum ríkis-
ins. Nú er stutt í næsta hvell: Hann
verður hjá Orkustofnun eftir ára-
mótin. Þá verður birt ný skýrsla um
uppstokkun og sparnað hjá henni,
en Orkustofnun hefur iengi þótt eitt
kostnaðarsamasta báknið í ríkisbú-
skapnum. Það er hópur undir stjórn
sérstaks trúnaðarmanns Sverris
Hermannssonar iðnaðarráðherra
við þetta verkefni, Hannesar Þ.
Sigurðssonar, sem gerir skýrsl-
una....
||
■ ■ eimildir kunnugar Morgun-
blaðinu herma að þar stefni í nokkr-
ar breytingar á næsta ári, m.a. hvað
mannaforráð varðar. Er talið líklegt
að styttist í að Björn Bjarnason
verði gerður formiega að aðstoðar-
ritstjóra eða jafnvel ritstjóra. Þá er
einnig talið trúlegt að Agúst Ingi
Jónsson, sem verið hefur frétta-
stjóri í afleysingum fái þann titil á
árinu....
ins og aiþjóð er kunnugt, hafa
fimm nýir menn bæst við í heiðurs-
launafiokk Alþingis. Þrír listamenn
í heiðurslaunaflokki hafa látist á ár-
inu og er því þetta fjölgun um tvo.
Saga fjölgunarinnar er ekki alveg
jafn sjálfsögð og fjölmiðlar hafa
greint frá. Það stóð nefnilega alls
ekki til að fjölga heiðurslaunþegum.
Menntamálanefndir beggja þing-
deilda Alþingis sem um þessi mál
fjalia greiddu í fyrstu aðeins at-
kvæði um þrjá menn og hlutu flest
atkvæði þeir Jón Nordal, Jóhann
Briem og Matthías Jóhannessen.
Það vakti hins vegar athygli að
Matthías hlaut öll sex atkvæði sjálf-
stæðismanna. Þegar atkvæða-
greiðslan var um garð gengin, kom-
ust sjálfstæðismenn að því í skelf-
ingu sinni að þeir höfðu steingleymt
öðrum manni sem þeir eru hliðholl-
ir, nefnilega Hannesi Péturssyni
skáldi. Nú voru góð ráð dýr. Ekki
var hægt að ónýta atkvæðagreiðsl-
una og kippa Hannesi inn í staðinn
fyrir Matthías en hins vegar mundi
það vera ansi kauðalegt ef sjálf-
stæðismenn hefðu tekið Matthías
fram yfir Hannes. Það varð úr að
lokum að sjálfstæðismenn komu að
máli við þingmenn hinna flokkanna
og báðu þá um að samþykkja fjölg-
un um tvo listamenn í viðbót. Eftir
nokkuð þref var þessi tillaga sam-
þykkt og Jóni Helgasyni og Hannesi
var hleypt inn í hlýjuna, svo nú geta
allir unað glaðir við sitt. Eða
hvað...?
E
HSSins og frá var skýrt í síðasta
HP risu mikiar öldur innan stjórnar
Handknattleikssambands Islands
og var allt útlit fyrir það um tíma að
boðað yrði aukaþing og kjörinn nýr
formaður sambandsins. Nú mun
hafa tekist að setja niður deilur
a.m.k. í bili og verður Friðrik
Gudmundsson áfram formaður
sambandsins. Áhrif hans munu þó
ekki verða mikil og er sagt að Jón
Erlendsson ráði nú mestu hjá sam-
bandinu og flestir stjórnarmanna
standi á bak við hann. Það munu
einkum vera fjáröflunarmál sam-
bandsins og hvernig að þeim er
staðið sem vakið hafa deilur innan
þess, en fjárhagsstaðan mun lítið
hafa batnað þrátt fyrir allt bröltið.
Mikið þarf til að standa í skilum þótt
ekki sé nema við landsliðsþjálfar-
ann Bodan sem mun vera á sann-
kölluðum ráðherralaunum hjá sam-
bandinu...
Ö "
vík um að verslun Hagkaupa þar í
bæ verði lokað sem slíkri en Skelj-
ungur taki yfir húsnæðið. Er sagt að
komið hafi á daginn að staðsetning
verslunarinnar sé röng og viðskipt-
in hafi brugðist að verulegu leyti.
l harðnandi krepputíð bregða
ýmsir góðir menn á leik. Mikil og
vegleg veisla verður haldin í Grill-
inu á Hótel Sögu á nýárskvöld. Það
eru ýmsir ungir menn á uppleið í
viðskiptaheiminum sem hafa tekið
höndum saman og hyggjast fagna
nýju kreppuári á viðeigandi hátt.
Munu bisnessmennirnir hafa haldið
sams konar böll tvisvar sinnum áð-
ur og í bæði skiptin uppselt á gleð-
ina. Sömu sögu er að segja nú, og
komust mun færri að en vildu. Ljón-
in ungu ætla ekki að snæða neinn
dónamat og hafa því sérpantað
ferskan ál frá Danmörku og ný,
fersk jarðarber frá Kaliforníu sem
verður sérstaklega flogið til íslands
í tilefni samkomunnar. Til að gera
nóttina sem gleðilegast stóð til að
hafa gistingu á Hótel Sögu innifalda
í miðaverðinu og halda líflega
kampavínsmorgunveislu næsta
morgun. Því miður strandaði þessi
áætlun á því leiða fyrirkomulagi
hótelanna að banna Reykvíkingum
að gista í gistihúsum borgarinnar
nema eitthvað sérstakt liggi við, svo
sem húsbruni, jarðskjálftar o.s.frv.
Hins vegar eru veislugestir stað-
ráðnir í að skemmta sér tvöfalt um
kvöldið. Við vorum reyndar hér um
bil búnir að gleyma miðaverðinu á
kreppuhátíðina. Hann kostar 2.900
krónur litlar. Hjón sem fara á þessa
hátíð og fá sér nokkur glös eftir mat-
inn og léttan næturverð eru því
komin hátt í tíuþúsundkall...
T alið er líklegast að Páll
Magnússon, Síðdegisvökumaður
hljóðvarpsins, hreppi stöðu þing-
fréttamanns sjónvarpsins nú þegar
Ingvi Hrafn Jónsson lætur af
henni eftir gott starf. Þá herma
heimildir að Omar Ragnarsson
fréttamaður hafi áhuga á að losna
úr fréttum til að sinna þáttagerð
frekar, og mun Emil Björnsson
fréttastjóri vera því hliðhollur. Ef
þannig fer er trúlegt að Ingvi Hrafn
taki við starfi Ómars í innlendum
fréttum sjónvarpsins....
imanum varð hált á svellinu í
jólaauglýsingaharkinu nú í desem-
ber. Auglýsingamanni þar var laus
höndin og kippti heilu síðunum út
úr jólagjafahandbók,,sem DV hafði
látið vinna upp, og birti síðan undir
haus Tímans. En auðvitað komst
upp um kauða og eftir langar og
strangar samningaviðræður milli
Tímans og DV féllust hinir fyrr-
nefndu á að greiða tugþúsundir til
DV í sáttaskyni. Og svo er talið að
Tímanum hafi ekki tekist að rukka
neitt inn af fyrrnefndum auglýsing-
um, enda auglýsendur ekki ætlað
inn í Tímann með jólagjafakynning-
ar sínar. Það eru því sannmæli að
kapp er best með forsjá, meira að
segja í hinum hatramma slag, sem
logar á auglýsingamarkaðnum, þar
sem öll brögð eru notuð og flest tal-
in gild...
J
«SÍF ólin eru sögð hátíð friðar og
hátíð kaupmanna. Svo vill til að
friður og bissniss geta farið saman á
þessari hátíð. Það sannreyna Flug-
leiðir nú því félagið flytur hvorki
meira né minna en 300 stykki af
friðarsinnum frá meginlandi
Evrópu til Chicago í Bandaríkjun-
um, — væntanlega á friðarfund þar
vestra....
A
il^^^lmenna bókafélagið hefur
lengi rekið stóran og gamalgróinn
bókaklúbb, eins og kunnugt er, og
hafa komið út hjá honum bækur af
hinu fjölbreytilegasta tagi. Nú heyr-
um við að hjá AB sé í undirbúningi
að skipta bókaklúbbnum í tvær
deildir, einn klúbb fyrir svokallaðar
fagurbókmenntir en annan fyrir
,,non-fiction“, þ.e. bækur af öllu
öðru tagi.
HP
Þetta er si'ðasta tölublað
Helgarpóstsins fyrir jól og
jafnframt það síðasta á ár-
inu.' HP kemur næst út
fimmtudaginn 5. janúar
1984. Sjáumst!
sí.
OcV
1
ÆGISUTGAFAN
Læknirinn í litla þorpinu er oröinn gamall og tregur til að taka
upp nýja starfshætti. Hann bregst illa viö þegar ungur læknir,
Philip March, flyst í nágrenniö og sjúklingarnir leita frekar til
hans. Dóttir gamla læknisins, Laura, stendur meö fööur sínum
og þolir illa vinsældir nýja læknisins, en ýmsir óviðráðanlegir
atburðir valda því aö leiöir hennar og Philips liggja hvaö eftir
annaö saman. Yngri systir hennar, Barbara, sér aftur á móti
ekki sólina fyrir hinum unga og glæsilega lækni og grípur til
heldur vafasamra ráöa til aö vekja athygli hans á sér.
Þessi bók er skrifuð af kínversku skáldkon-
unni Han Suyin, en hún er löngu orðinn
heimsfrægur rithöfundur. Hún hefur skrifaö
margar metsölubækur en Doktor Han er
þeirra þekktust og hefur veriö kvikmynduö.
Sagan segir frá ástarsambandi kínversks
kvenlæknis og Englendings sem kynnast í
Hong Kong. Hún menntuð Asíukona trú
þeim heföum er uppeldiö hefur kennt henni
og hann vesturlandamaöur meö gjörólíkan
bakgrunn. Þeirra ólíku uppeldisáhrif
spanna gegnum þessa margþrungnu ást-
arsögu og gefa henni stórkostlegan bak-
grunn.
Sagt hefur veriö aö Han Suyin segi sína
eigin sögu í þessari bók.
í þessari bók er fjallaö ítarlega um öll
stjörnumerkin.
Þar eru skýröir kostir og gallar í fari karla
og kvenna í hinum einstöku merkjum.
Hvers vegna er maki þinn sífellt aö skipta
um áhugamál?
Er hann kannski „Tvíburi".
Er vinur þinn þrjóskur?
Þá er hann líklega í „Nautinu".
Finnst þér augun hennar lesa sálu þína?
Er hún kannski „Sporödreki?"
Þær eru margar kunnuglegar skýringarnar
í þessari bók af þeim sem þú þekkir og
umgengst.
Þú finnur fljótlega í hvaða merki viökom-
andi er án þess aö vita hvaöa mánaðardag
hann eða hún eru fædd. Hegöan þeirra
skýrir þaö allt.
Verð kr. 494.-
Verö kr. 494.00.-
Verð kr. 697.80.-
32 HELGARPÓSTURINN