Helgarpósturinn - 19.04.1984, Qupperneq 20
ÞJÓÐLEIKHllSlti
Gæjar og píur
(Guys and dolls).
7. sýn. miðvikudag kl. 20.00, upp-
selt,
8. sýn. fimmtudag 26. april kl. 20.00.
Amma þó
skirdag kl. 15.00,
annan páskadag kl. 15.00.
Sveyk í síðari
heimsstyrjöldinni
skírdag kl. 20.00.
Öskubuska
annan páskadag kl. 20.00,
þriðjudag 24. april ki. 20.00,
miðvikudag 25. april kl. 20.00.
Síðustu sýningar.
Miðasalakl. 13.15-20.
Simi11200.
WfWIATA
miðvikudag kl. 20.00.
Siðasta sinn.
^akarinn
iSevWa
mánudag 23. apríl kl. 20.00.
Miðasala opin frá kl. 15-19, nema
sýningardaga kl. 20.
Sími 11475.
Bflbeltin
hafa bjargaö
UUMFERÐAR
RÁÐ
AlþýðuMkhúslð
A Hótsl
LoftMðum
Undir teppinu
hennar ömmu
Sýning 2. í páskum kl. 21.00.
Miðasala alla daga frá kl. 17.00.
Simi22322.
Matur á hóflegu verði fyrir sýningar-
gesti I veitingabúð Hótel Loftleiða.
Ath. leið 17ferfráLækjargötuáheil-
um og hálfum tíma alla daga og það-
an á Hlemm og svo að Hótel Loftleið-
um.
Litli prinsinn og Píslarsaga
séra Jóns Magnússonar
Tónverk eftir: Kjartan Ólafsson.
Látbragösgerð og leikstjórn. Þórunn
Magnea Magnúsdóttir.
Grímurog búningar, leikmynd:
Dominique Poulain og Þórunn
Sveinsdóttir.
Lýsing: Ágúst Pétursson.
Frumsýning:
2. í páskum kl. 20.30.
2. sýning:
25. apríl kl. 20.30
í Félagsstofnun stúdenta.
Veitingar. Miðapantanir í sima
17017.
LEiKFÉLAG
REYKjAVlKUR
SÍM116620
GUÐGAFMÉR EYRA
í kvöld kl. 20.30.
Næst siðasta sinn.
GÍSL
Skirdag uppselt.
BROS UR DJÚPINU
4. sýn. þriðjudag kl. 20.30.
Blá kort gilda.
Stranglega bannað börnum.
Miðasala i Iðnó kl. 14 - 20.30.
HÖGGDEYFAR
í MIKLU ÚRVALI
Viö opnum kl. 8.30
og höfum
opið í hádeginu
Næg bíiastæði
TTT ■ " n
Skeif unni 5a, sími 84788.
20 HELGARPÓSTURINN
LEIÐARVÍSIR PÁSKANNA
og Björn Karlsson hiö geð-
þekka yfirvald bæjarins.
Reynir Antonsson lýkur leik-
dómi sínum um sýninguna á
þennan hátt: „Mestu máli
skiptir aö hér er um að ræða
hugljúfa sýningu sem allir, líka
fullorðnir, hafa ekki nema gott
af að sjá. Ekki síst á þessum
tíma kvóta og óuppfylltra fjár-
lagagata.“
Leikfélag
Hafnarfjarðar
Grein 22
Leikfélag Hafnarfjarðar iðar
af lífi um páskana undir hand-
leiðslu leikstjórans Karls
Ágústs Úlfssonar sem þýddi
fyrir félagið bandaríska leikrit-
ið Catch 22. Höfundurinn,
Jospeh Heller, hefur um langt
skeið verið vinsæll höfundur í
sínu heimalandi. Leikritið er
leikgerð hans upp úr þeirri
skáldsögu sem hann hefur
fengið mest lof fyrir, reyndar
verið kvikmyndað líka. Tuttug-
asta og önnur grein fjallar um
ungan flugmann í bandaríska
flughernum sem sinnir her-
skyldu á Ítalíu seinni heims-
styrjaldarinnar. Þaðan erhann
sendur vítt og breitt til að
sprengja mann og annan. Það
er hinsvegar hans heitastaósk
að lifa að eilífu og því er greyið
óneitanlega ekki í sem heppi-
legustum starfa. Leikritiðsegir
síðan frá ýmsum tilraunum
þessa ólánssama piltungs til
að losna undan herskyldunni,
sem illa tekst sakir 22. greinar
herlaganna sem enginn veit
hvort til er, en yfirmenn nota
óspart ef undirmenn þeirra eru
með einhvern derring. Gunn-
laugur Ástgeirsson segir um.
uppfærslu L.H. á verkinu:
„Leikstjóranum tekst nokkuð
vel að halda utan um sýning-
una og halda góðum hraða og
lipru samspili.“ Leikendur eru
um tuttugu í þessu verki Hafn-
firðinga.
Stúdentaleikhúsið
Hljóðleikhús
Stúdentaleikhúsið fer ekki
troðnar slóðir í efnisvali sínu.
Það sannar nýjasta viðfangs-
efni hóþsins sem er útfærsla á
tveimur ólíkum sögum fyrir
hljóð og látbragð. Annarsveg-
ar er píslarsaga Jóns Magnús-
sonar tekin fyrir, valdir kaflar
lesnir inn á segulband og síð-
an fiffaðir í hljóði þanng að
fram náist sem mest áhrif og
sá hugarheimur sem Jón
geggjaði lifði í á sínum tíma.
Síðan túlkar einn leikandi efn-
ið undir hljóðfiffaða lestrinum.
Hinsvegar er frönsk smásaga
tekin fyrir, fallegt barnaævin-
týri fyrir fullorðna sem segir af
prinsi sem 6ýr-á_plánetu úti í
alheirrii. Hann tekór að ferðast
^iLjárðar, kemurviq á sex plán-
^etum í þeirri reisu/bg hittir þar
tyrir einn karakter á hverjum
stað. í þessu verki sem hinu
fýrra er notast við upplestur
irjn á band til að auka áhrif
tulkunarinnar. Þessi upp-
f^ersla Stúdentaleikhússins er
updir stjórn Þórunnar Magneu
Magnúsdóttur og verður frum-
sýning í Félagsstofnun stúd-
enta á annan í páskum.
BÍÓIN
★ ★ ★ ★ framsúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
-¥■ þolanleg
O léleg
Bíóhöllin
Heiðurskonsúllinn
**A
Þessi kvikmynd er byggð á
kunnri skáldsögu rithöfundar-
ins Graham Greene, The Hon-
orary Consul. Sagan fjallar um
drykkfelldan og sjúskaðan
heiðurskonsúl Breta í Argent-
ínu, sem heldur meiri reisn en
aðrir, þegar ungur læknir ræn-
ir frá honum konunni og hon-
um er sjálfum rænt af skæru-
liðum frá Paraguay í misgrip-
um fyrir bandaríska sendiherr-
ann. Leikstjóri myndarinnar er
John MacKenzie, en í aðal-
hlutverkum eru Michael Caine
og Richard Gere. „Vönduð
mynd og meira en Breiðholts-
ferðar virði, ef menn búa þar
þá ekki á annað borð.“ - ÁÞ.
Silkwood
***
Myndin gerist í Kerr McGee
kjarnorkuverinu í Cimarron,
Oklahoma í Bandaríkjunum.
Grunur leikur á að verið leki
geislavirkni út í umhverfið.
Karen Silkwood er einn starfs-
maður versins sem veit hvað
er að gerast í fyrirtækinu, en
hún finnst látin þegar mest ríð-
ur á að njóta vitneskju hennar
um dularfulla atburði sem ger-
ast í verinu. Þetta er svoiítil
spennumynd, leikstýrð og
framleidd af Mike Nichols, en í
helstu hlutverkum eru Meryl
Streep, Kurt Russell og Cher.
„Langdregin með ákveðinni
undirspennu. Streep æðisleg í
sínu hlutverki.“ - IM.
Mjallhvít og dvergarnir sjö
Geðþekk framleiðsla Walt
Disney-frabrikkunnar fyrir
börnin. Þetta er glæný útgáfa
af sögunni sem allir þekkja, en
verða seint fullsaddir á, hvað
sem aldri líöur.
Tónabíó
Svarti folinn snýr aftur
**
Coppola ríður svörtum hesti
austur Skipholtið um páskana.
Þeir í Tónabíó sýna þar fram-
haldsframleiðslu hans á The
Black Stallion eftir sögu
Walters Farley. Hann skrifaði
á sínum tíma sextán bækur
um þennan gjörvilega gæðing
og er hér um að ræða annað
hefti þessa bókaflokks, Svarti
folinn snýr aftur. Kelly Rino
heldur áfram að leika litla
strákinn með þeim blakka, en
Mickey Rooney nennti ekki að
leika meira í sona hestamynd-
um og er því ekki með núna.
Kvikmyndataka mun sem fyrr
vera aðal þessa verks, fögur
og litrík a la Coppola, en sögu-
þráður helst til væminn.
„Engu aö síður má hafa gam-
an aö þessu ævintýri sem er
fallega fram sett, en því miður
of fallega á stundum og
skemmir það fyrir annars Ijúfri
kvöldstund.“-SER„
Regnboginn
Return of the Soldier
**
Alan Bridges leikstýrði
þessu verki sumarið 1981 með
nafna sínum Bates, Julie
Christie, Ann Margareth og
Glendu Jackson í megin rull-
um. Þessi mynd fjallar um her-
mann sem styrjöldin skilar
minnislausum heim til sín, en
þar taka við honum þrjár konur
sem allar eru meira og minna
sálræn reköld þegar lífsakker-
ið (nefndur dáti) slitnar frá.
„Vönduð en frekar ruglingsleg
og tilgerðarleg sálfræðistúdía.
Góður leikur bjargar ansi
brotakenndu handriti.“-ÁÞ.
Stjörnubíó
Educating Rita
Þessi kvikmynd er unnin
upp úr all vinsælu leikriti Willy
Russell sem enn gengur á fjöl-
um West End í Lundúnum.
Segir hér af ungri breskri al-
þýðustúlku sem leitar sér full-
orðinsfræðslu hjá miðaldra
prófessor sem hefur hallað sér
að flöskunni með árunum.
Kvikmyndagerð Lewis Gilbert
á verki Russell þykir afar
hugguleg, en hann fékk þau
Michael Caine og Julie Walt-
ers til að leika aðalhlutverkin í
myndinni og mun hann ekki sjá
eftir því vali. Hvorttveggja
góðir leikarar, sem svíkja ekki
áhorfandann hér sem endra-
nær.
Austurbæjarbíó
Atómstöðin
★ **
Þetta er eina íslenska kvik-
myndin sem höfuðborgarbúar
og nágrannar þeirra hafa
möguleika á að sjá yfir páska-
hátíðina, og því ástæða til að
hvetja alla þá sem ekki hafa
þegar séð stykkið að nota til
þess frídagana sem nú fara í
hönd. Þessi útfærsla Þor-
steins Jónssonar og félaga á
sögu Laxness þykir enda vel
heppnuð. Myndin er fögur og
áhrifamikil, aukinheldur
spennandi á köflum. Gunnar
Eyjólfsson fer á kostum í aðal-
hlutverki myndarinnar ásamt
Tinnu Gunnlaugsdóttur í mót-
hlutverki.
Nýja bíó
Wargames
John Badham getur ekki
kvartað yfir því að þessir
stríðsleikir sínir hafi ekki notið
athygli frá því hann setti þá
fram fyrir þremur misserum
eða svo. Óhætt mun að full-
yrða að þetta sé einhver um-
talaðasta mynd síðustu ára,
enda efnið ekki með öllu óvið-
komandi nútímabörnum.
Strákpatti nær með tölvufikti
sínu sambandi við sjálfvirkan
sleppibúnað á kjarnorkuvopn-
um Bandaríkjahers. Og þar
með er spennan komin til sög-
unnar og helst út alla myndina,
sumum um megn að því er
sagt er. Helstu leikendur eru
Matthew Broderick, Ally
Sheedy og John Wood.
Laugarásbíó
Scarface
Þetta er nútímamafíósi, ekki
óskyldur Guðföðurnum að eðli
og uppbyggingu, enda Al
Pacino enn í megin rullunni.
Myndin gerist í undirheimum
Miami þar sem bófaflokkar
eigast við og fyrsta boðorðið
heitir: Dreptu, eða þú verður
dreþinn. Þetta er krassandi
spennumynd þar sem allur
hryllingur leikstjórans Brian
de Palma finnur sér stað, en
sem fyrr fer hann ansi fag-
mannlega með viðbjóðinn.