Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 13.09.1984, Qupperneq 3

Helgarpósturinn - 13.09.1984, Qupperneq 3
Danmerkurfararnir í Tívolí; Jói, Diddi, Viðar, Eiður, Gunn- ar, Torfi, Finnurog Unnsteinn. Tívolíliðið á íslandi, nýbúið að raða í sig hamborgurum á Trillunni. Strákarnir úr lcebreakers, þeir Arnór, Siggi og Bjössi sem eiga von á að fara til New York innan tíðar og keppa þar á alþjóðlegu Break- dansmóti, kenna meiriháttar Break- dans eins og hann gerist bestur. 12 tíma námskeið frá 6 ára aldri. Innritun og nánari upplýsingar í síma 11007 kl. 13.00 - 19.00 daglega nema sunnudaga. Kennsla hefst mánu- daginn 24. sept. Afhending skírtejna fer fram laugardaginn 22. sept. í Ár- túni v/Vagnhöfóakl. 13.00- 17.00. Uaraldsdóitir dansskóli Auður Gengur Skugga- Sveinn aftur og aftur? ,,Já, já, og síðast var hann sýndur 1962 í Þjóðleikhús- inu, en seinna í Iðnó og skólum hér í Reykjavík. Annars hefur leikritið verið sýnt alveg ótalsinnum og ég held að Matthías hafi sjálfurekki hafttölu áþví meðan hann lifði. Þetta er hreinlega vinsælasta leikrit þess stutta tíma sem leiklist hefur lifað í landinu, og er eitt af þeim fáu klassísku verkum sem við eigum.“ - Ert þú kannski fyrsta konan sem leikstýrir Skugga-Sveini? ,,Ég hef bara ekki hugsað út í það. Mér finnst það frekarólíklegt, þvíþettahefurveriðsýntútumallt land.“ - Hvaða erindi á leikurinn á f jalirnar í dag? „Það er 150 ára ártíð Matthíasar á næsta ári og það á svo sannarlega erindi I dag. Þetta er alþýðuleikur, og það til skemmtunar og yndis, en þegar hann kom fyrst fram var Matthías að draga fram hina gömlu arfleifð og lyfta undir stolt Islendinga sem var vægast sagt lítið og smátt á þeim tíma“ - Fylgirðu texta og hefðbundinni uppfærslu stíft eftir? „Auðvitað hnika ég ekki orði, en túlkun, áherslu1 punktar og aðferðin eru færð að okkar tíma, okkar fólki og leikhúsi. Svo fylgjum við þeim vegvísi að spyrja okkur „Hvað vildi Matthías og hvað var hann að fara með leikritinu? Og hvað af því hentar okkur til gagns og yndis?“ Við reynum að undirstrika það og höfum grand- skoðað allt frá fyrstu leikgerðinni. Leitað alveg til upp- runans. Hann vildi sjálfur láta leikinn gerast á öndverðri 17. öld og við viljum hnykkja á því; - hvað höfðar sterkt til okkar í dag og hvaða gagn við getum haft af því.“ - Leikhúsgagnrýnendur hafa verið að senda at- vinnuleikhúsunum neikvæðan tóninn fyrir að vera að fást við þessi gamalgrónu og alkunnu leikverk. „Ég skal segja þér, að það eina sem listamenn geta gert er að svara aldrei gagnrýni, heldur halda sínu striki.“ - En heldurðu þá að áhorfendur muni þyrpast á Skugga-Svein? „Eg er alveg handviss um að þetta verður í orðsins fyllstu merkingu kassastykki, og það er faguryrði í mín- um eyrum.“ - Og það hefur þá það gildi í leiðinni að styrkja vel fjárhag Þjóðleikhússins? „Mér hefur bara aldrei dottið það i hug og við sem erum að vinna þetta erum hugfangin, bæði af Matthíasi, og eins því tækifæri að geta skoðað tímann sem við viljum setja verkið í. Eins og á stóð fyrir Matthíasi á 19. öldinni þá hafði hann t.d. ekki möguleika á að fá tónskáld heldur varð að taka gamlar lummur, - þýska slagara, danska músík o.fl. - en við getum valið okkur tónskáld, og það er m.a. fólgið í okkar aðferð að leita að vilja Matthíasar og upp- runans. Þetta gerum við með nútíma tækni leikhússins til að koma því til skila, áhorfendum til gagns, yndis og gleði í þessum erfiða heimi.". - Hefurður áður verið með í uppfærslu á Skugga- Sveini? „Nei, en ég átti ömmubróður sem var frægur sögu- maður á Stokkseyri og hann lék held ég Grasa-Guddu áratugum saman. Ég man vel þegar hann tók sprettinn og það er sennilega það fyrsta sem ég man eftir Skugga- Sveini. En síðan ég byrjaði að vinna þetta hef ég gert mér far um að tala við sem flesta sem hafa verið með í uppsetningum á Skugga-Sveini, og þá kannski sérstak- lega þá elstu.“ - Er það metnaðarmál leikhusfólks að hafa fengið að taka þátt í Skugga-Sveini á ferli sínum? „Þetta er heillandi verkefni fyrir leikara, sérstaklega fyrir okkur vegna þess hve við eigum litla klassík hér á landi og kornungt leikhús. Mér finnst það hreinlega nauðsyn að draga fram í dagsljósið það litla sem við eigum, - helst árlega. Allur hópurinn er á fullu við umfjöllun og skoðun leiks- ins nú fram að frumsýningu, sem verður um miðjan októ- ber. Eins og leikhús gerist best þá er mikil samvinna en ekki hver í sínu horni með sitt hlutverk, heldur vinna allir saman með hlutverk hvers og eins.“ Þjóðleikhúsið mun nú á haustdögum taka til sýninga hið gamalkunna leikverk Matthíasar Jochumssonar Skugga- Svein. Alls taka 25 manns þátt í uppfærslunni en Brynja Bene- diktsdóttir sér um leikstjórn. HELGARPÓSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.