Helgarpósturinn - 13.09.1984, Page 7

Helgarpósturinn - 13.09.1984, Page 7
Steingrímur Her- mannsson for- sætisráöherra kemurheim frá Mið-Austurlönd- um í mögnuðustu kjaradeilursíðan 1977. ÞJOÐARSÁTT EÐA STJÓRNARKREPPA eftir Hallgrím Thorsteinsson og Óla Tynes myndir Jim Smart Þegar Steingrímur Hermannsson forsœtisráöherra kom heim til Is- lands aöfaranótt mánudags beiö hans eitt erfiöasta verkefni sem rík- isstjórn hefur staöiö frammi fyrir á íslandisíöan 1977. Þaö hefur aö lík- indum ekki staöiö í blööunum í Amman, en bókageröarmenn voru þá þegar komnir t verkfall og við blöstu mögnuöustu kjaradeilur sem upp hafa komiö hér á landi síöast- liöin sjö ár. Til aö reyna aö fá heildarmynd af ástandinu og því sem líklegast er aö gerist á nœstu dögum og vikum haföi Helgarpósturinn samband viö tugi manna úr öllum stjórnmála- flokkum og tilheyrandi bœöi at- vinnurekendum og verkalýösforyst- unni. Margir óvissuþættir eru í þessu dæmi, en þeir sem Helgarpósturinn ræddi við voru nokkuð sammála um að rík ástæða væri til að óttast allsherjarverkföll. Ríkisstjórnin virðist ekki vera laus við þann ótta sjálf og boðaði forystumenn laun- þega og vinnuveitenda til sérstakra og óvæntra funda í byrjun vikunn- ar. Þessi fundarboðun hlaut dræm- ar undirtektir. Bæði Dagsbrún og BSRB samþykktu að senda ekki full- trúa sína á staðinn. Rósin í hnappagati ríkisstjórnar- innar er auðvitað stórlækkun verð- bólgunnar, en fyrir þá rós hefur launafólk greitt með einni mestu kjaraskerðingu síðari ára. En hefur ríkisstjórnin lagt sitt af mörkum á móti? „Það er ljóst að stjórninni hefur ekki tekist framhaldið sem skyldi," segir maður í innsta hring Sjálfstæð- isflokksins. „Launþegar í landinu eru búnir að færa miklar fórnir til að ná verðbólgunni niður en það vant- ar fórnir ríkissjóðs inn í dæmið. Rík- isstjórnin hefur ekki sýnt nándar nærri nóga hörku við að skera nið- ur útgjöld og halda verðlagi í skefj- Margir sjálfstæðismenn vilja fyrst og fremst kenna Albert Guömunds- syni fjármálaráðherra um hve illa hefur til tekist í ríkisfjármálunum, en einn af forystumönnum flokks- ins segir það þó einföldun. „Hér eiga allir ráðherrarnir sök. Þeir fengu fyrirmæli um niðurskurð, frá Albert, og hinn stórfelldi vandi í rík- isfjármálunum núna stafar af því að þeir höfðu ekki dug í sér til að taka á hlutunum í vor.“ Þeir Þorsteinn Pálsson og Stein- grímur Hermannsson notuðu ágúst- mánuð til að berja saman verkefna- listann svokallaða og tími ríkis- stjórnarinnar í kringum mánaða- mótin fór í að ræða hann og takast á við fjárlög. Síðan hurfu ráðherr- arnir af landi brott hver af öðrum en hér heima hrönnuðust óveðursský- in upp. Á fimmtudag í síðustu viku, sama dag og sáttatiilagan í kjara- deilu BSRB var lögð fram og þrem- ur dögum eftir að verkfall bóka- gerðarmanna skall á, mættu ein- ungis fjórir ráðherrar á ríkisstjórn- arfund. PÓLITÍSKT TUNDURSKEYTI Þeir sem Helgarpósturinn talaði við vóru ekki á einu máli um áhrif þessa verkfalls á aðra hópa; það var jafnvel gagnrýnt innan forystu ASÍ. Einn af forystumönnum ÁSÍ sagði til dæmis við Helgarpóstinn: „Ég held ekki að þetta verkfall hafi mikil áhrif inn í raðir annarra starfsstétta innan ASÍ. Prentaraverkfallið er sérfyrirbæri og fer ekki að hafa smitandi áhrif fyrr en í fyrsta lagi ef VSÍ kemur með verkbann á þá fé- um. • Verðbólgan hefur lækkað, framhaldið vantar, þrengingar aukast • Þorsteinn vill þríhliða viðræður, Framsókn klofin • Hræðsla við vinstri stjórn • Óvissa, beiskja og harka hjá launþegum • Verður krötum og Bandalagi jafnaðar- manna fórnað fyrir nýjan miðjuflokk? HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.