Helgarpósturinn - 13.09.1984, Síða 10
HP
HELGARPÓSTURINIM
Ritstjóri og ábm.:
Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaðamenn:
Óli Tynes, Ómar
Friðriksson og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Björgvin Ólafsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Hildur Finnsdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Guðmundur H. Johannesson
Auglýsingar:
Steen Johansson
Markaðsmál, sölustjórn og
dreifing: Hákon Hákonarson
og Sigþór Hákonarson
Innheimta:
Jóhanna Hilmarsdóttir
Afgreiðsla: Ásdís Bragadóttir
Lausasöluverð kr. 35
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, simi
8-15-11. Afgreiðsla og skrif-
stofa eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Letrun: HP-setning
Upplýsinga-
skylda
Síðustu tvær vikur hafa blas-
að við einhverjar mögnuðustu
kjaradeilur á Islandi síðan 1977.
Ríkisstjórninni undir forystu
Steingríms Hermannssonar
hefur tekist að stórlækka verð-
bólguna en launþegar í landinu
hafa þurft að færa miklar fórnir
til að það dæmi gengi upp. Það
var vitað mál að götin á marg-
hertri ólinni um miðju launþeg-
ans væru ekki óendanlega
mörg; ríkisstjórnin yrði að
bregðast við vandanum og
halda verðlagi í skefjum ef ekki
ætti að stefna í holskeflu verk-
falla eða allsherjarverkfalls.
Félag íslenskra bókagerðar-
manna reið á vaðið og boðaði
verkfall frá og með 10. þessa
mánaðar. Á mánudagsmorgun
komu DV og NT út og síðan
ekki söguna meir, að frátöldum
nokkrum fréttablöðum. Hér
skal ekki fjallað um launakröfur
bókagerðarmanna og prent-
ara. Hitt er Ijóst að á jafn örlaga-
ríkum tímum og undanfarnar
tvær vikur hafa verið, hefur
frjálsrar pressu sjaldan verið
meiri þörf. Deilurnar innan
stjórnmálaflokkanna, og þá
ekki síst stjórnarflokkanna
tveggja, hafa aldrei verið
magnaðri. Verkalýðsforysta og
atvinnurekendur búa sig
undir mikil átök. í allri þessari
elfu þjóðlifshræringa er press-
unni meinað að koma út vegna
verkfalls prentara. Meðtilhlýði-
legri virðingu fyrir ríkisfjölmiðl-
unum er öllum Ijóst að þeir eru
síður en svo í stakk búnir til að
gefa alhliða eða raunsæja
mynd af núverandi ástandi í
landinu.
Helgarpósturinn hefur ekki
viljað bregðast trausti lesenda
sinna þrátt fyrir verkfall prent-
ara, jafnvel þótt það hafi kost-
að okkur það að leita út fyrir
landsteinana til að fá blaðið
prentað. I dag komum við út í
fullri stærð og í blaðinu er alla
fasta þætti þess að finna.
Aðalgrein HP í dag fjallar um
yfirstandandi kjaradeilu, átökin
á vinnumarkaðnum, bakgrunn
þeirra og pólitískt ívaf deiln-
anna og þrengingar ríkisstjórn-
arinnar. HPhefur leitaðtil fjölda
manna í röðum vinnuveitenda,
verkalýðshreyfingar og stjórn-
málaflokka til að draga upp
sem gleggsta mynd af þjóð-
málum á þessu hausti. Lesend-
ur í frjálsu landi eiga ávallt
heimtingu á að fá að vita hvað
er að gerast á bak við tjöldin í
stjórnmála- og atvinnullfinu.
Þess vegna komum við út í
dag og þess vegna munum við
reyna að halda útgáfunni
áfram.
10 HELGARPÓSTURINN
^Íðindalaust í fjölmiðlaheimin-
um? Reyndar ekki alveg: Við heyr-
um t.d. að þau Illugi Jökulsson og
Hanna G. Sigurðardóttir sem
hafa séð um morgunþáttinn í bítið
með miklum ágætum, að sögn val-
inkunnra morgunhana, láti af því
starfi um næstu mánaðamót, en við
taki sá reyndi útvarpsmaður Stef-
án Jökulsson, sem sá um þennan
seima þátt við þriðja mann á virkum
dögum í fyrravetur. Þau Illugi og
Hanna þurfa þó naumast að kvíða
ellinni: lllugi verðir ritstjóri helgar-
blaðs DV, en Hanna tekur að sér að
stjóma kór Menntaskólans í
Reykjavík. Rétt er að nefna til
glöggvunar að þeir Jökulssynir, 111-
ugi og Stefán, eru ekkert skyldir...
Tfiuverðar vangaveltur hafa
verið um það að undanfömu hver
verði næsti þingfréttamaður út-
varpsins, en Ema Indriðadóttir,
sem siðast gegndi stöðunni hjá út-
varpinu, er nú sem kunnugt er tekin
við starfi fréttamanns stofnunar-
innar á Akureyri. Nú mun afráðið
hver hlýtur þetta hnoss. Það er
Helgi Pétursson...
kmyndasalir verða sífellt
fleiri í borginni. Nú heyrum við að
Grétar Hjartarson, kvikmynda-
hússtjóri Laugarásbíós, hafi byrjað
miklar framkvæmdir við kvik-
myndahúsið. Tveir kvikmyndasalir
eru nú í byggingu, áfastir aðalsal
Laugarásbíós. Innan tíðar verður
Laugarásbíó orðið þriggja sala bíó...
LAUSNÁ
SPILAÞRAUT
Vestur tekur fyrsta slaginn og
lætur strax tíguldrottningu. Suður
tekur og spilar hjarta. Vestur tek-
ur. Tígulás látinn. Þá er hjarta spil-
að á ásinn. Tígli spilað og vestur
trompar. Nú eru þrír tíglar fríir óg
spilið unnið.
••
enaðrirbanharbióða
Þaö er engin spurning, lönaöarbankinn býöur aðrar sparnaöarleiöir.
Viö bjóöum þér BANKAREIKNING
MEÐ BÓNUS í stað þess aö kaupa
skírteini.
Þú týnir ekki bankareikningi. Þú
þarft ekki aö endurnýja banka-
reikning. Þú skapar þér og þínum
lánstraust meö bankareikningi.
Iðnaðarbankinn
Fereigin ieiðir-fyrir sparendur