Helgarpósturinn - 20.12.1984, Qupperneq 3

Helgarpósturinn - 20.12.1984, Qupperneq 3
Þau voru ekki smeyk við hana Grýlu gömlu og hennar fólk, krakk- arnir sem hópuðust í Alaska fyrir skömmu þegar frést hafði að hún ætlaði að llta þar inn, enda töldu þau sig ekki hafa neina ástæðu til að óttast pokaskjattann hennar ill ræmda. Má eiga von á bráðfyndnu skaupi? Hlín Agnarsdóttir „Það er erfitt að spá nokkru um það. Við vonum það a.m.k. en það er erfitt að segja til um hvernig þorri landsmanna muni bregðast við nýrri tegund af húmor." — Nýrri tegund, já. Þetta er þá ekki með hefðbundnu skaupsniði? „Ekki hefðbundnu að því leytinu til að við kusum ekki að taka fyrir dægurmálaþras pólitíkusa sem aðaluppistöðu í skaupinu. Það fannst okkur ekki beinlínis áhugavert." — Hvað getur komið í staðinn fyrir það? „Uppistaðan er kannski fremur ýmsar fyndnar hliðar á mann- legum þáttum sem við reynum að sýna með því að láta skaupið gerast á Sjónvarpsrás '84. Það er formið eða ramminn þar sem sýndar verða fyndnar hliðar á mannlífinu sem koma ýmsum við" — Nú er upptökum lokið. Hvernig líkar ykkur árang- urinn? „Já, þessu er loks lokið og við erum bara tiltölulega ánægð- ar." — Væntanlega má margur maðurinn eiga von á að fá til sfn sneið f skaupinu. Ekki satt? ,Ua. það er óhætt að fullyrða að sumir geta tekið til sín eitt- hvað sem þar birtist, en við höfum þó lagt áherslu á að taka fyrir einstaka hópa fremur en einstaklinga og grínast með þá." — Konur semja handritið og konur við stjórnvölinn... „Jú, við vorum fjórar sem sömdum handritið og byrjuðum að viðra hugmyndir strax í ágúst. Auk mín eru það Edda Björg- vinsdóttir, Guðný Halldórsdóttir og Kristín Pálsdóttir. Guðný er svo aðalleikstjóri, Kristín upptökustjórnandi, Edda aðalleikari og ég hef haft vakandi auga með þeim." — Hefur þetta kvennaríki haft áhrif á skaupið sér- staklega? „Margar konur hafa alveg sérstaka kímnigáfu og okkar kímnigáfa er sjólfsagt alveg sér á báti, en þetta er þó ekkert kvennaskaup. Við vinnum þarna með fjölda karla og þeir hafa komið með margt nýtt inn í þetta. En auðvitað höfum við þó tekið eftir ýmsu í fari kvenna sem við þekkjum betur en karlar svo uppistaðan er að miklu leyti konur." — Er meira lagt í þetta skaup en stundum áður, s.s. f peningum? „Nei, ábyggilega ekki. Þetta er afskaplega sparsamt skaup og við höfum ekki farið fram úr kostnaðaráætlun og ég held að allar áætlanir hafi staðist, nema hvað verkfallið stöðvaði allt í einn mánuð." — En hefur þá gefið ykkur viðbótarefni í handritið? „Það má segja það, já, en við vorum þó orðnar leiðar á að fá nánast á hverjum degi verkfallsins ábendingar frá fólki, sem sagði að þetta eða hitt yrðum við nú að taka inn í áramóta- skaupið." — Var ekki einvalalið skemmtilegs hæfileikafólks með ykkur við gerð skaupsins? ,Uú, fjöldinn allur. Það má nefna Ladda, Gísla Rúnar, Kjartan Bergmundsson og Margréti Helgu Jóhannsdóttur auk fjölda statista. Sjálfsagt uppundir hundrað slíkir og þetta gekk allt Ijómandi vel. Það var góður andi ríkjandi. Mestur hluti skaups- ins var kvikmyndaður og sennilega ekki nema um 20 mínútur teknar í stúdíói." — Að lokum: Nú vill áramótaskaup gjarnan vera helsta umræðuefni fólks lengi framan af nýárinu. Þið berið engan ugg f brjósti? „Aha, jú. Við erum allar búnar að panta okkur far til útlanda í sóiarlandaferð fyrsta janúar, svo það þýðir ekkert að reyna að hringja heim til okkar. Við vonum svo bara að fólk skemmti sér vel." Áramótaskaup sjónvarpsins verður á sínum stað (ár og nú und- ir kvennastjórn. Sömuleiðis er handritið af konum samið. Að þessu sinni gerist skaupið að mestu á „Sjónvarpsrás '84" þar sem starfsmenn rýna í skoplegar hliðar þjóðlífsins og draga upp spaugilega samtíðarþætti. Vinnslu skaupsins er nú full- lokið og einn af höfundum handritsins, Hlín Agnarsdóttir, dreg- ur örlítið úr leyndinni í HP-spjalli. HP I ASKRIFT IIL NAMSMANNA ERLENDIS Kynningarverð: 3ja mán. áskrift í dönskum krónum 104,- utan Evrópu í US$ 10,- burðargjald 40,- burðargjald 6,- Samtals 144,- Samtals 16,- ÁSKRIFTARGJALD GREIÐIST í BYRJUN ÁSKRIFTARTÍMABILS EINNIG ER HÆGT AÐ FÁ 6 og 12 MÁNAÐA ÁSKRIFT UPPL. í SÍMA 81511 HELGARPÓSTURINN HELGARPÓSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.