Helgarpósturinn - 20.12.1984, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 20.12.1984, Blaðsíða 11
formaður Félags íslenskra iðnrek- enda, hefur verið tiður gestur í fréttatímum sjónvarpsins að undan- förnu enda hefur maðurinn frá mörgu að segja, og félagsskapur hans haft ýmislegt áhugavert á prjónunum, eins og hið nýja Frum- kvæði h/f. Semsagt gott fréttaefni. Það er hins vegar ekki einleikið hvað sjónvarpið hefur verið duglegt að snapa upp fréttir úr herbúðum Félags íslenskra iðnrekenda. Skýr- ingin er samt sáraeinföld: Víglundur er nefnilega eiginmaður eins af fréttamönnum sjónvarpsins, Sigur- veigar Jónsdóttur. Það getur komið sér vel að vera vel giftur. .. urgur og reiði er meðal kaupmanna í Reykjavík vegna ákvæða í reglugerð, sem banna þeim að stunda verslun á mesta söludegi ársins, Þorláks- messu. Þorláksmessa fellur nefni- lega á sunnudag og þá má ekki selja vörur né kaupa. Nú heyrist, að kaupmenn hafi fullan hug á að hundsa sunnudagsregluna á Þor- láksmessu og hafa opið. Á Lauga- veginum er gjarnan litið á Guðlaug Bergmann í Karnabæ sem eins konar formælanda kaupmanna við þá götu og segir sagan, að kaup- menn á Laugaveginum bíði þess hvaða afstöðu Gulli taki. að vekur óneitanlega nokkra athygli, þegar fjárlagafrum- varpið er skoðað, að þar kemur fram, að Barnaverndarráð íslands fer fram á fjárveitingu, sem miðast við óbreytta starfsemi. Þetta gengur á skjön við þá staðreynd, að eftir fimm ára starfsemi hefur Foreldra- ráðgjöf ráðsins legið niðri frá því í byrjun september og ekkert sem bendir til þess, að ætlunin sé að halda þessari þjónustu áfram. Mjög mikil ásókn hefur verið í þessa þjón- ustu, en Guðfinna Eydal og Álfheiður Steinþórsdóttir, sál- fræðingar, töldu sér ekki fært að starfa áfram á vegum ráðsins og sögðu upp. Ástæðan mun vera áhugaleysi núverandi Barna- verndarráðs á Foreldraráðgjöf- inni. í kjölfarið hafa þær Álfheiður og Guðfinna stofnað Sálfræðistöð- ina, sjálfstætt sálfræðifyrirtæki, sem meðal annars hefur á sinni könnu námskeið fyrir foreldra. Á meðan hefur Barnaverndarráð ekki boðið neina slíka þjónustu og hefur nú safnað í kassann sem svar- ar sex mánaða launum sálfræðings hjá ríkinu. Og meira á eftir að safn- ast, ef Alþingi tekur góða og gilda fjárveitingarbeiðni Barnaverndar- ráðs fyrir komandi ár, ef það er þá ætlunin að láta Foreldraráðgjöfina hverfa á vit feðranna í reynd þótt áfram renni peningar til þessarar aflögðu starfsemi. Það er Björn Líndal í viðskipta- ráðuneytinu og varaþingmaður, sem er formaður Barnaverndar- ráðs, og segja kunnugir, að hann vilji gjarnan fá peninga Foreldraráð- gjafarinnar, en sé á hinn bóginn hreint ekki hlynntur þessari ókeypis þjónustu ríkisins, sem búin var að festa sig í sessi og sanna tilverurétt sinn... skákar keppinautunum í verði og gæðum. VHS P-618 myndsegulband myndbands spólur á einu árí. '■1 mg » fr% ■ tt v-á m «> O* 'i f iOFpi * W; m *1! f/ KR 39.900.- Jólaglaðningur sem endist allt áríð Pú kemur og semur. Fisher, fyrsta flokks. LÁGMÚLA 7. REYKJAVÍK - SÍMI 685333. SJONVARPSBUDIN HELGARPÓSTURINN 11 aygjjbs

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.