Helgarpósturinn - 20.12.1984, Side 12

Helgarpósturinn - 20.12.1984, Side 12
AGUST tjUÐMUNDSSON LEIKSTJORI I eftir Hallgrím Thorsteinsion myndir Jim Smart Ágúst Guðmundsson kom heim frá London aðfaranótt mánudags, seint. ,,Ég er viss um að Flug- leiðavélin var síðasta vél frá Heathrow í gærkvöldi," segir hann um leið og hann sviptir umbúðun- um utanaf filmuspólunum fjórum í sýningarklefa Austurbæjarbíós. Klukkan er tíu á mánudagsmorgni og í bíóinu er að.hefjast fyrsta sýning á endanlegri gerð kvik- myndarinnar Gullsands. Sigurður Sverrir Pálsson,-aðalkvikmyndatökumaður er einnig mættur á þessa prívatsýningu. Ágúst og hann ætla að fara yfir þessa fyrstu kópíu af myndinni til að ákveða hvaða senur á að lýsa og hverjar að dekkja o.s.frv. í framköllun aðalkópíunnar, sem verður notuð til sýninga í Reykjavík frá og með frumsýningu myndarinnar á annan í jólum. „Endirinn er kannski of dökkur en hann er kannski bara snotur svona," segir Ágúst við Sigurð Sverri meðan Stefán Jónsson sýningarmaður þræðir fyrstu spóluna á vélina. Sigurður Sverrir bíð- ur spenntur og horfir á. Og þá: „Halló elskan mín, mikið er gaman að sjá þig aftur. . ." Edda Björg- vinsdóttir, sem leikur aðalkvenhlutverk myndarinnar er komin til að sjá hana. Hún smellir stórum kossi á leikstjórann. „Mátti ég ekki alveg koma?" spyr hún., Jú, auðvitað, nú vil ég sýna öllum myndina," segir Ágúst. Þau Ijóma öll þrjú. Þetta eru eins og litlu jólin hiá þeim. Gullsandur er fjórða kvikmynd Ágústs Guðmundssonar í fullri lengd. Áður hefur hann gefið okkur Land og syni, Útlagann, og Með allt á hreinu. Hvernig er honum innan- brjósts núna, áður en myndin kemur fyrir augu áhorfenda? ,,Ég er orðinn eldri í hett- unni og reyndari, býst ég við. Ég man að ég var voðalega upphafinn þegar ég kom heim með Land og syni. Ég hef verið að vinna svo mikið í myndinni að ég á erfitt með að halda henni í nokkurri fjarlægð frá mér. Ég er mest spenntur að vita hvað fólki finnst." Svo er labbað inn í bíósalinn, sem er orð- inn almyrkvaður þegar hópurinn ratar í sæt- in. Á tjaldinu eru þrír amerískir hertrukkar farnir að renna í austurátt í morgunhúminu. „Ég er með smámagapínu," viðurkennir Edda. Það er miðvikudagur í myndinni þegar amerísku hermennirnir slá upp tjöfdum á miðjum Meðallandssandi og byrja að bauka með tól sín og mælitæki. Edda kemur brun- andi á rauðum vitavarðarblazernum sínum yfir rennvotan sandinn inn í myndina og Pálmi Gestsson á eftir henni á hvítum Land- róver. Pálmi leikur allaballann í hrepps- nefndinni, ungan bónda, sem þenur aríur eftir Verdi á grammófón í fjósinu fyrir belj- urnar. Myndin er komin af stað. Hreppsnefndin fer að kanna athæfi banda- rísku hermannanna á sandinum og þau Pálmi og Edda vekja svo athygli umheimsins á brölti Kananna með eftirminnilegum hætti. Ró sveitarinnar hefur verið raskað og afstaða sveitafólksins til hersins, vígbúnaðar- málanna og hermangsins, kemur smám saman í ljós á þeim Ijórum dögum sem myndin spannar. LANDIÐ ER LEIKMYND „Ég var í sveit á þessum slóðum þegar ég var strákur, 10—11 ára, í Fljótakróki," segir Ágúst. „Þá hafði ég þetta landslag fyrir aug- unum og kynntist því — Meðallandssandi, Landbrotshólunum. Það er ekki beint fallegt þarna, ekki í venjulegum skilningi, eins og okkur finnst Þingvellir fallegir, og þetta er ekki jafn stórbrotið landslag og t.d. Jökulsár- gljúfur. En þetta er furðulegt landslag á sama hátt og mér finnst t.d. Breiðafjarðareyjar furðuheimur. Það hefur sérstakan stíl. Manni finnst það kannski ekkert spennandi þegar maður keyrir þarna í gegn, bara sandur og hólar — hraun. En ef maður staldrar við þá fer manni að finnast það stórkostlegt." Ágúst velur alla tökustaði í myndum sínum sjáifur. „Mér finnst það afskaplega mikil- vægt, ég hef alltaf gert þetta. Við Sigurður Sverrir höfum líka báðir gaman af því að velta landinu fyrir okkur sem leikmynd." — Madur veröur var vid rómantíska af- stödu til landsins í þessari mynd. Þad eru fuglar á sandinum á sumarnótt, skrjáfí mel- gresinu. . . „Já? Það eru hlutir í myndinni sem maður hefði ekki komist að nema með því að hafa eigrað svona sjálfur um þetta svæði einhvern tímann. Þetta svæði hefur alltaf haft sterk ítök í mér. Bærinn sem ég var á var alveg ofaní hrauninu og ég fann alltaf fyrir nálægð hraunsins. Og ég man að fólkið þarna mundi eftir Kötlugosinu 1918 og lýsti því fyrir mér. Náttúra og saga þessa svæðis eru eins konar undirtemu í myndinni og gefa henni sérstak- an tón. Þetta var mjög afskekkt sveit þegar ég var þarna sem strákur. Þá var enginn hring- vegur, engin mjólk seld, þarna voru aðallega sauðfjárbændur, gott fólk, og það stendur miklu nær þessum gamla tíma í lífi þjóðar- innar en við sem búum í Reykjavík. Og i myndinni er þetta svæði og þetta fólk skyndilega dregið inn í nútímann." ALLRA VIÐKUNNANLEGUSTU MENN Ágúst fór á ný á þetta svæði sumarið 1973 þegar hann gerðist hótelstjóri á Hótel Eddu á Kirkjubæjarklaustri, 26 ára gamall. Þetta var sumarið áður en hann fór út til kvik- myndagerðarnáms í London. „Ameríkan- arnir höfðu verið þarna á sandinum að hjálpa til við leitina að „gullskipinu" Het Wapen van Amsterdam og mig langaði strax til að gera mynd um þá. Ég hafði miklu meiri áhuga á að gera mynd um Ameríkana á sandinum heldur en t.d. einhverja leikna heimildarmynd um íslenskan leiðangur sem var að grafa eftir gullskipi. Ég vildi strax segja táknræna sögu. Mér fannst og finnst táknrænt um samband íslendinga og hersins hvernig bandarískir hermenn gátu farið að leggja þessu lið, að það skyldi vera hægt.“ I myndinni er afstaða heimamanna til nær- veru bandaríska hersins útlistuð rækilega. Menn eru ekki á eitt sáttir og hinir ýmsu pól- ar kristallast í hreppsnefndinni. Sjálfstæðis- mennirnir vilja ekkert vera að fetta fingur út í það sem hermennirnir eru að gera niðri á sandinum: Til hvers að trufla þá? Kannski starfsemi hersins sé að færast austur á bóg- inn eftir suðurströndinni, og það gæti komið sér vel fyrir hreppinn. Jafnvel framsóknar- maðurinn er á þeirri skoðun eftir að hafa hitt hermennina að þetta séu allra viðkunnan- legustu menn. Og þegar Edda, róttæki vita- vörðurinn, sem vill stofna deild herstöðva- andstæðinga á staðnum, spyr hann hvort hann vilji taka þátt í hernaðarbrölti risaveld- anna svona persónulega, þá svarar hann sem svo, ja því ekki það, ef það gæti lækkað útsvörin! KLISJUR ÚR BÁÐUM HERBÚÐUM „Herstöðvarmálið hefur mér alltaf fundist forvitnilegasta ágreiningsefni í íslenskri póli- tík,“ segir Ágúst. „í myndinni er ég hins vegar ekkert að segja hvaða skoðun ég hafi á því, eða hvaða skoðun aðrir ættu að hafa á því. Þetta er ekki áróðursmynd. Fólk hefur haft ýmsar skoðanir á þessu máli, en mér finnst samt að það hafi eiginlega alltaf snúist um átök milli tveggja skoðana: Hvort herinn eigi að vera eða fara. Annar flötur hefur eiginlega aldrei fundist, og mjög gjarnan hafa þessi átök staðið á milli tveggja öfga- hópa. Það er þess vegna gert með ráðnum hug að hafa alþekktar klisjur úr báðum her- búðum í myndinni. Vinstri maðurinn vill ekki að verið sé að „selja landið" og einn sjálfstæðismaðurinn furðar sig t.d. á þeim sem „vilja ekki einu sinni hafa það frelsi að geta skrúfað niður í annarri sjónvarpsstöð en þeirri íslensku". Það er kannski helst, að í myndinni sé ver- ið að mælast til þess að fólk láti af einstreng- ingslegri afstöðu í málinu og taki tillit til þess sem er að gerast í veröldinni." — / myndinni er þad hugsanlegur gródi fólksins vegna bauksins í hermönnunum sem endanlega umturnar sveitinni. „Já, það vakti t.d. sérstaklega athygli mína í niðurstöðum könnunar Ólafs Þ. Harðarsonar á stjórnmálaviðhorfum Islendinga á dögun- um, hvað margir vildu taka gjald fyrir her- stöðina. Ég hitti líka breskan lögfræðing, sem ég veit að þekkir annars vel til íslands, og hann hélt að íslendingar stórgræddu á því að hafa herinn hérna! Við töpum náttúru- lega ekki á því. Það er Ijóst, en það er ekki heldur þannig, ennþá að minnsta kosti, að um bein fjárframlög frá Bandaríkjamönnum sé að ræða. En þetta sem Englendingurinn sagði sló mig, og ég fór að velta því fyrir mér hvort Islendingar héldu ekki sjálfir að þeir græddu ofboðslega á að hafa herinn. Væru jafnvel hræddir við að brottför hans myndi kalla á sjö ára hallæri í landinu!" HINN LÁGSTEMMDI HÚMOR — Hefdir þú getað hugsað þér að gera hreina gamanmynd úr þessu efni? „Það hefði í sjálfu sér verið mjög auðvelt að hafa myndina hreina gamanmynd. En þá hefði Iíka ýmislegt tapast, efnið hefði ekki orðið jafn trúverðugt. Það er samt alls ekki þannig með myndina, að allt sem í henni gerist geti í raun gerst einmitt svona, en mér fannst samt nauðsynlegt að setja þetta efni fram af því raunsæi, sem hrein kómedía hefi aldrei leyft. Einn af þeim sem lásu handritið áður en tökur byrjuðu sagði að sér fyndist ég vera að gera grín að bændum. Myndin sjálf gefur hins vegar ekkert slíkt í skyn.“ — Það er einmitt eftirtektarvert við þessa mynd og fleiri myndir þínar reyndar, að þú sýnir á raunsœjan en líka kómískan hátt ýmis smáatriði t fari fólks sem gerir það trú- verðugt. Finnst þér gaman að fást við slíka hluti? „Þetta er það sem mér finnst ég gera best, þetta er að minnsta kosti það sem ég leitast við að gera best og eiginlega stíleinkenni hjá mér ef eitthvað er það. Þetta er svona lág- stemmdur húmor fyrir fólki, „understate- ment“ á ensku. Ég vil heldur draga úr en smyrja á. Ég stofnaði þetta fyrirtæki mitt og kallaði það Mannamyndir því að ég vil gera myndir um fólk. Þær bíómyndir sem ég hef mestar mætur á hafa líka alltaf þessi ein- kenni. Ég reyni að draga fram litlu atriðin i samskiptum fólks og gera þau að einhverju stóru, einhverju sem skiptir máli. Maður sér þetta t.d. mjög greinilega í tékknesku ný- bylgjunni, sem ég hreifst mjög mikið af, hjá leikstjórum eins og Milos Forman og lvan Passer og maður sér þetta líka í leikritum Tchekovs. I Gullsandi er t.d. dæmi um svona lagað þegar Jón Sigurbjörnsson sveiflar kaffibrús- anum að félögum sínum í hreppsnefndinni og segir: „Fáið ykkur meira strákar," þegar ljóst er orðið að hreppsnefndin hefur klofn- að í afstöðunni til hermannanna. Hann er í rauninni að segja: „Já, okkur greinir á um þetta, en við getum samt sem áður unnið saman, er það ekki? Gerum gott úr þessu.““ — Finnst þér íslensk menning bjóöa ríku- lega upp á svona frásagnarmáta? „Ég held að öll menning geri það, hverrar þjóðar sem hún er. Það er hins vegar önnur saga, að þetta er ekki algengt í íslensku lista- lífi. Gamanleikrit sem sett eru upp hérna eru t.d. miklu oftar farsakennd en að þau bjóði upp á þennan lágstemmda húmor. Sá húmor er ekki algengur í leikritum hérna. Ég man t.d. eftir að þegar Bedroom Farce kom hing- að til lands sem Rúmrusk, þá var það miklu hrjúfara en á enskunni." ANDRÚMSLOFT í TÖKUM — Allir sem vinna með þér tala um það hvað allt gangi snurðulaust fyrir sig í tökum, þœr renni rólega og markvisst áfram. Legg- urðu áherslu á svona þœgilegt andrúmsloft í kringum þœr myndir sem þú stjórnar? „Já, það er mér geysilega mikilvægt. Mér finnst agalega slæmt að hafa allt á öðrum endanum í kvikmyndatökunni. Ég er heldur ekki þannig karakter að ég geti öskrað á fólk og skipað því harðri hendi fram og aftur. Ég er líka sannfærður um að það andrúmsloft sem ríkir við kvikmyndagerðina skili sér í sjálfri myndinni. Ég veit að það gerir það.“ — Velurðu leikara í myndir þínar þann- ig að þeir skapi sérstakt andrúmsloft í sam- leiknum? Reynirðu þannig að skapa fyrir- fram ákveðna stemmningu í myndinni með ákveðnu samvali á leikurum? „Já, hiklaust. Ég legg einmitt afskaplega mikið upp úr þessu, og ég hef mjög ákveðnar skoðanir á því hvaða leikarar passa saman og hverjir passa ekki saman. Ég er kannski of ákveðinn að þessu leyti, en mér finnst líka, að maður verði að fara eftir eigin fordómum í þessu. í upphafi hafði ég reyndar annað leikarapar í huga fyrir aðalhlutverkin í Gull- sandi, en það plan gekk ekki upp — helming- urinn datt út og ég þurfti að finna annað par sem virkar vel saman. Og Edda og Pálmi gera það tvímælalaust í myndinni, finnst mér.“ — Þú gerir annað líka, þú notar oft sömu leikarana í myndum þínum? „Já, sem er eðlilegt í raun og veru. Það

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.