Helgarpósturinn - 20.12.1984, Síða 15

Helgarpósturinn - 20.12.1984, Síða 15
Kynlíf, dauði og trú Kukl í Austurbæjarbioi á morgun Stórviðburðurinn í íslensku rokki þessa hátíðardaga verður konsert Kukls í Austurbæjarbíói á morgun, föstudagskvöldið 21. desember. Hljómsveitin hefur ekki spilað frammi fyrir íslenskum áheyrend- um síðan í ágúst, en þess í stað glatt rokkáhugafólk á tónleikum víðs vegar annars staðar í Evrópu, eins og frægt er orðið. Tónleikarnir í Austurbæjarbíói verða líklega það eina sem Islend- ingar fá að sjá af hljómsveitinni í bráð, því strax eftir áramót heldur Einar Örn söngvari aftur út til London að lesa sér til nánar um fjöl- miðlun. „Þetta eru mjög mikilvægir tón- leikar fyrir okkur," segir hann í spjalli heima hjá Sigtryggi ásláttar- manni nú í vikunni. „Við erum að kveðja efnið á Auganu, síðustu plöt- unni og heilsa nýju efni, nýjum tíma í lífi hljómsveitarinnar. Við erum að skora okkur sjálf á hólm. Það hefur mikið verið að gerast tónlistarlega hjá hljómsveitinni." Kuki tók upp fimm lög á nýja plötu í haust í Southern Studios i London, þar sem Augað var líka hljóðritað. Konsertinn á morgun verður hljóð- ritaður og væntanlega verður eitt- hvað af þeim upptökum notað á nýju plötunni, sem meiningin er að komi út fyrir páska. Nýja efnið er öðruvísi og nýja platan kemur til með að hljóma tals- vert nýstárlega fyrir þá sem eru vanir sándi Kuklsins á Auganu. „í stað áherslunnar á trommur og bassa verður megináherslan á gítar og hljómborð í hljóðblönduninni," segir Guðlaugur gítarmaður. „Megináherslan verður ekki lögð á sándið sem slíkt, heldur verður reynt að draga fram meginþættina í hverju lagi fyrir sig.“ Það er Penny Rimbaud, trommari Crass, sem sér um að mixa plötuna og þetta er í fyrsta skipti sem Kukl fá utanaðkomandi til að stjórna upp- tökum hjá sér. „Það var svo mikið að gerast hjá okkur hverju um sig að ekkert okkar hafði raunverulega yfirsýn yfir það sem við erum að gera sern hljómsveit," segir Björk söngvari. „Penny sagði: Viljiði hefðbundið mix, eða viljið þið róttækt mix,“ segir Einar Örn. „Við vildum rót- tækt mix. Hann sagði að sum lögin gætu kannski lengst um helming í mixinu. Kannski hendum við því í hann aftur." En þau hafa trú á Englendingnum og telja að hann viti hvað hann er að gera. Hann er t.d. eini maðurinn sem hefur farið fram á og tekist að láta Einar Örn halda tóni í söng. „Penny segir að tónlist Kukls sé „mesta tónlist" sem hann hafi komist í snertingu við,“ segir söngvarinn. Þetta hafa fleiri en Penny haft á til- finningunni; erlend rokktímarit hafa keppst við að lofa ,,post-punk“ tónlist hljómsveitarinnar, sem er reynt að lýsa á allra handa máta. Hún er spennandi, manísk, seið- andi, auðug af ímyndunarafli, marg- ræð, músíkalskt grípandi, full af gleði, reiði, örvæntingu, á barmi hins óþekkta. Hér heima er hljómsveitin hins vegar ekki í tölu spámanna, ef marka má spilun í útvarpi, t.d. „Við erum að velta því fyrir okkur að banna Augað við Rás 2. Þeir virðast ekki vilja spila hana þar nema mað- ur gefi hverjum og einum umsjónar- manni eintak. Ég skil ekki af hverju þeir geta ekki spilað þau eintök sem stöðin fær send,“ segir Einar Örn. „Það er eins og okkar tónlist sé ekki tónlist fyrir þeim, heldur eitthvað annað. Þeir geta ekki flokkað okkur neins staðar og af því að við erum öðruvísi segjast þeir ekki getað spil- að okkur. Svo er okkur kennt um. Skuldinni er skellt á okkur og við sökuð um að vera eigingjörn fyrir að spila öðruvísi og meira krefjandi tónlist en aðrir. En þetta er tónlist. Okkar tónlist." Þau segja að íslenski markaður- inn skipti raunar engum sköpum fyrir hljómsveitina. Augað hefur þegar selst i 5.000 eintökum, aðal- lega erlendis, og er að fara í þriðju pressun. „En okkur leiðist þetta svona frekar," segja þau. Tóniist Kukls gerir kröfur til áheyrenda, og þá ekki síður yrkis- efnin í textunum. „Við vorum að taka það saman um daginn," segir Björk, „og fundum út, að af 13 nýj- ustu lögunum fjalla níu um þrennt aðallega, kynlíf, dauða og trú. Við veltum þessu fyrir okkur .. H.T. KVIKMYNDIR Glúrin samsuda eftir Ingólf Margeirsson og Sigmund Erni Rúnarsson Laugarásbíó: Tölvuleikur (Cloak and Dagger). Bandarísk 1984. Handrit: Tom Holland. Kvikmyndataka: Victor J. Kemper. Framleiöandi: Alan Carr. Leikstjóri: Richard Franklin. Aðalhlutverk: Henry Thomas, Dabney Coleman, Michael Murphy, Christina Nigra ogfl. Mynd þessi er nokkuð kostuleg blanda af bófahasar þrjúbíóanna, tölvuleikjum, spennumyndum og sálfræðilegu raunsæis- drama. Dáldið skondin formúla sem mér vit- andi enginn hefur lagt út í nema kannski Walt Disney-samsteypan að einhverju leyti. Tölvuleikur segir frá stráknum Davey (Henry Thomas — sá sami og í ET) sem misst hefur móður sína en lifir í hugarheimi bófa- hasarsins þar sem hetjan Jack Flack líkamn- ast oft við hlið hans honum til trausts og stuðnings. Og að sjálfsögðu er hugur drengs- ins allur í tölvuleikjum. Pabbinn er andstæða Jack Flacks, nærgætinn faðir sem vinnur mikið og hefur lítinn tíma til að sinna drengnum sem flýr enn lengra í ímyndaðan heim hasarsins. Það sniðuga er hins vegar að sami leikarinn (Dabney Coleman) leikur Flack og föðurinn. En dag einn lendir Davey í átökum raunverulegra glæpamanna þar sem njósnir og hernaðarleyndarmál sitja í fyrirrúmi, en þá leggur enginn trúnað á strákinn með ímyndunaraflið fjöruga. Agætur gagnrýnandi Morgunblaðsins sagði myndina Hitchcock fyrir börn — og mikið rétt; þarna eru heil myndskeið tekin frá meistaranum sáluga, eltingarleikir innan um manniðu hvunndagsins og einmanaleiki hetjunnar sem enginn trúir á. Þarna eru líka senur gerðar í þekktum byggingum og á sögustöðum Bandaríkjanna, og óvænt enda- lok sem auk þess eru sálfræðileg; breyting piltsins í ungling, skrefið frá barnæsku í heim fullorðinna þegar hugarfiugið og ímynduð veröld víkur fyrir grárri alvörunni. Þetta er ljúflega gert í lokasenunni þegar Jack Flack breytist í föðurinn; í stað hetjunnar kemur hlýr og skilningsríkur faðir. Cloak and Dag- ger er glúrin mynd sem leikur sér á mörgum sviðum án þess að heildaráhrifin fari for- görðum og má eindregið mæla með henni. -1M Strákadraumar Háskólabíó: Indiana Jones og musteri refs- ingarinnar. Handrit: Georg Lucas. Tónlist: John Williams. Kvikmyndataka: Douglas Slocombe. Framleiöandi: Robert Watts. Leikstjórn: Steven Spielberg. Afbragd Nýja bíó; Whose Life is it anyway? Leikstjórn: John Badham. Handrit: Brian Clark, Reginald Rose, byggt á sviösleikriti Brian Clark. Tónlist: Arthur Rubenstein. Kvikmyndun: Mario Tosi. Aöalleikarar: Richard Dreyfuss, John Cassavetes, Christine Lahti, Bob Balaban. Aöalhlutverk: Harrison Ford, Kate Cap- shaw, Ke Huy Quan, Amrish Puri, og fl. Þá er framhaldið á Raiders of the Lost Ark komið og alveg í sama dúr: Indiana Jones á ferð og flugi gegnum exótísk lönd á fjórða áratugnum, eins og strákadraumurinn líkamnaður. Never a dull moment. Út um Það stórkostlegasta við þessa gæðakvik- mynd er að hún er allan tímann laus við væmni, þó svo að nærfellt hvert einasta skot hennar bjóði upp á velgjulega útfærslu. John Badham hefur hér tekist á við erfitt verkefni, en skilað því með slíkum sóma að aðdáun vekur. Sterki leikurinn hans er líkast til sá, að flugstjóralausa vél í gúmmíbát, niður snævi- þaktar fjallshlíðar, eftir ólgandi straumfljót- um, gegnum leyndardóma musteris þar sem pöddur, vítisvélar, eimyrja og hofprestar eiga aðsetur. Og svo framvegis. Allur hinn hraði söguþráður er sagður með mikilli tækni, oft veisla fyrir augað. Húmorinn er einnig kom- hafa fengið sjálfan höfund sviðsverksins, sem myndin byggir á, til að færa það í búning kvikmyndar, í stað þess að láta einhverj- um utanaðkomandi það verk í hendur. Handrit myndarinnar er enda gríðarlega sterkt. Þessi átakaniega saga um uppgjör fjölfatlaða mannsins við það hvort hann vilji inn meira fram, stundum hrein sjálfsírónía framieiðendanna eins og þegar hetjurnar eru látnir segja brandara þegar líf þeirra er í veði. Allt er þetta fyrst og fremst skemmtun og reynir ekkert að þykjast annað. Og hvað er sosum hægt að segja um slíka mynd? -IM lifa lengur hrífur menn með sér. Hún varðar alla. Hins verður svo líka að geta; leikstjórn og leikur eru sjaldséð augngæti. Fjórar stjörnur; hiklaust. -SER. HELGARPÓSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.