Helgarpósturinn - 28.03.1985, Síða 8
Rannsóknarlögreglan: „Við fáum stundum svo furðulegar ávísanir í hendur, að það er óskiljanlegt hvernig nokkrum
hefur dottið í hug að taka við þeim. Aðrir eru aftur á móti útsmognir í falsinu.“
Dæmi:
1. í leióbeiningabók um ávísananotkun, var birt mynd af
tilbúinni ávísun frá Selvogsbanka. Lítió á henni aö
græóa, eða hvað? Jú, náungi nokkur klippti hana út,
límdi yfir lesmálió aftan á henni, fyllti út, fór í verslun —
og seldi.
2. í bókfærslukennslu fyrir nokkrum árum voru notaðar
ávísanir. Meö stórum, rauóum stöfum var prentaó á þær:
Ógilt sýnishom. Þær reyndust nú ekki ógildari en svo,
aó einum peningaþurfi tókst aó selja eina þeirra í búó.
3. 9 ára drengur fyllti út ávísun á bamalegan hátt. Hann
skrifaði meóal annars: „Til handa hans.. .“, þar sem aó
öóm jöfnu hefði verió skrifað: „handhafá'. Drengurinn
fór út í búó og seldi þessa ávísun, sem var upp á nokkur
hundmð krónur.
4. Maóur nokkur komst yfir gamalt tékkhefti. Eigandi þess(
hafói skrifað „Ónýt“ stómm stöfum, meó svörtu tússi, á
hvert eyóublaó til öryggis. Sá fyrrnefndi setti það ekkert
fýrir sig, og tókst að selja fleiri en eina í búóum. Einhver
athugasemd var gerö aó vísu, en maöurinn bjargaói sér
snarlega: „Æ, þetta á ekki aó standa þarna, þetta var
óvart.“ Ávísanimar þóttu gjaldgengar.
5. Tvær unglingsstúlkur gengu nióur Laugaveginn, meó
stolið ávísanahefti í vasanum. Á skömmum tíma seldu
þær 25 ávísanir í verslunum vió sömu götu — sem sagt
öll blöóin í heftinu.
6. Maóur komst yfir tíu ára gamalt ávísanahefti, löngu úr
sér gengió. Ávísanahefti höfóu tekió miklum breyting-
um á þeim tíma. En ekki varó þaó honum tafsamt. Þær
gömlu reyndust rétt eins gjaldgengar.
7. Upphæóir eins og 3.469.- eóa 7.942 - þykja greinilega
traustvekjandi. Afgreióslufólk dregur þær síður í efa.
Þaó notfæra þeir kænu sér. Og ef einhver spyr? „Jú, ég
var að fá launin mín.“
8. Það þykir ekki síóur traustvekjandi aó skreyta ávísanir
meö stimplum eóa nöfnum fyrirtækja, svo ekki sé talaó
um hf. á eftir. í innbrotum þar sem ávísanaheftum er stol-
ið, fá stimplamir þess vegna gjaman að fylgja meó.
9. Unglingsstrákar, sem komast yfir ávísanahefti, fá gjam-
an jafnöldru sína til aó útfylla hvert blað. Hún hefur fal-
lega rithönd og um leið traustvekjandi. Stúlkan fær
hugsanlega einhvem aur í sinn hlut fyrir vióvikió.
10. Piltur kom inn í búð. Hann sagóist þurfa að kaupa afmæl-
isgjöf handa föður sínum. Afgreióslustúlkunni fannst
hann elskulegur í viómóti, og vildi gjaman aóstoóa
hann. Þau komu sér saman um aó hlutur sem kostaði 800
krónur væri gjöf vió hæfi. Pilturinn var meó ávísun upp
á 3000 krónur, sem var snyrtilega útfyllt af móður hans
— aó hans sögn. Hann fór út með hlutinn og hafói fengió
tvö þúsund og tvö hundruð krónur til baka. En ávísunin
var fölsuó.
11. Og svo eru þeir sem fara á milli verslana, kaupa eitt og
annaó fyrir falsaöa ávísun, og fara út meö vaming og
pening. Varninginn gefa þeir kannski næsta manni, eöa
fleygja honum í tunnuna. Þess eru dæmi um aó farió hafi
verió með tíu þúsund króna ávísun inn í búó, keyptur
hlutur fyrir eitt þúsund og síóan hefur viókomandi
gengiö út níu þúsund krónum ríkari. Bókstaflega.
Þaó er sammerkt öllum þessum dæmum, aó ekki var beó-
ió um skilríki vió framsal. Hefói þaó verió gert, hefói trúlega
ekki tekist aó selja neina þessara ávísana.
Rannsóknarlögreglan:
Óútfyllt ávísanaeyðublöð
ganga kaupum og sölum
„Ávísanafals hefur stórlega auk-
ist síðustu mánuði. Það er auð-
veldasta leiðin til að komast yfir
peninga. Á einum degi geta menn
svikið út stórfé á þennan máta.
Svo virðist sem hvaða pappírs-
snepill sem er sé gjaldgengur, ef
hann aðeins líkist ávísun. Daglega
fáum við urmul af slíkum málum í
hendur. Dæmin eru hreint ótrú-
leg. Við höfum fregnað að óútfyllt
ávísanaeyðublöð gangi nú kaup-
um og sölum; fimm blöð fyrir eina
flösku af áfengi."
Þetta kom fram í samtali HP við
Helga Daníelsson yfirlögreglu-
þjón Rannsóknarlögreglu ríkisins
og Jónas Bjarnason lögreglufull-
trúa.
Ávísanaheftunum er í flestum
tilvikum stolið. Mun algengara er
að hefti hafist upp úr krafsinu í
innbrotum en beinharðir pening-
ar. Auk þess er stolið úr vösum
fólks, t.d. á skemmti- og veitinga-
stöðum eða vinnustöðum. Aðrir
komast yfir hefti í bönkum. Þar
hafa átt sér stað slys, að sögn Jón-
asar og Helga. Bankarnir hafa ein-
faldlega ekki farið eftir eigin regl-
um. Menn hafa fengið hefti í hend-
ur án þess að sýna skilríki. Jafnvel
með því að sýna fölsuð skilríki.
„Það virðist vera óskaplega
hörð samkeppni á milli bankanna
um kúnnana," segir Helgi. „Það er
ómögulegt annað að segja. Þess
eru mörg dæmi, að menn með
vafasaman feril að baki hafi opnað
reikninga og dæit út á mjög
skömmum tíma Jórum upphæð-
um. í sumum tilvikuin fara menn á
milli banka á höfuðborgarsvæð-
inu, eftir að hafa opnað hefti í ein-
um þeirra. Síðan selja þeir ávísun
í hverju útibúinu á fætur öðru á
hluta úr degi, og ná þannig út tug-
um, jafnvel hundruðum þúsunda.
Þetta gerist allt svo hratt, að kerfið
tekur ekki við sér strax.
Ávísanafals hefur alltaf verið til,
en það hefur aukist gífurlega.
Undanfarna mánuði hefur nánast
verið flóð. í kringum áramótin
vissum við til dæmis um falsaðar
ávísanir í gangi, úr á annað hundr-
að heftum."
— Af hverju þessi aukning?
„Ætli það sé ekki farið að
harðna á dalnum hjá fólki sem
stendur í þessu. Það er erfiðara að
komast yfir peninga nú en áður.
Þessi leið virðist hins vegar mjög
auðveld. Að öðrum kosti fengist
ekki svona stór hópur við ávísana-
fals.“
— Hverjir fásl við það?
„Stærsti hópurinn er ungt fólk
og unglingar. Þó kemur fólk á öll-
um aldri við sögu. Flesta vantar
peninga fyrir áfengi og vímugjöf-
um. I einu tilviki var þó um að
ræða níu ára ávísanafalsara. Hann
seldi ávísun upp á nokkur hundr-
uð, sem var svo fáránlega útfyllt,
að það er óskiljaniegt að nokkrum
skyldi detta í hug að taka við
henni. Ávísanafalsið nær því til
barna líka. Annars er talsvert um
að sama fólkið sé tekið aftur og
aftur fyrir þetta.“
— Hvernig gengur að upp-
lýsa þessi mál?
„Við þurfum líklega ekkert að
skammast okkar fyrir frammistöð-
una í því. Flest þessara mála eru
upplýst, en það kostar óhemju
vinnu. Látum það liggja á milli
hluta. Það sem skiptir máli er að
árlega tapast verulegar fjárhæðir
vegna fölsunar. í 99% tilvika er
það glatað fé. Þó okkur takist að
ná í ávísanafalsarann er ekkert á
því að græða. Hann greiðir ekki
sína skuld. Sá sem keypti ávísun-
ina situr uppi með skaðann. I lang-
flestum tilvikum þeir sem selja
vörur og þjónustu af einhverju
tagi. Reyndar skiptir varan ávís-
anafalsarann engu máli, heldur
peningurinn sem hann fær til
baka. Hann reynir þó gjarnan að
kaupa eitthvað trúverðugt, svo
sem mjólk, kaffi eða eina málning-
ardós, en kastar því svo í næstu
ruslatunnu. Tilganginum er náð;
að koma pappírnum í verð og fá
pening til baka.“
— Skilríki?
„Það er nú kjarni málsins. Það
mætti nefnilega komast fyrir obb-
ann af ávísanafalsi ef krafist væri
framvísunar skilríkja. Og þá erum
við komin að samspili banka,
þjónustufyrirtækja og neytenda.
Æskilegast væri að hver sá sem
opnar ávísanareikning í banka
fengi í hendur sérstakt skírteini
með hefti og yrði síðan að sýna
það í hvert skipti sem hann seldi
tékka. Auk þessa þyrftu bankar að
gangast í fjárhagslega ábyrgð að
vissu marki hjá hverjum viðskipta-
vina sinna. I framhaldi af þessu
mætti að sjálfsögðu ekki verða á
því misbrestur að afgreiðslufólk
krefji menn um skilríki. Neytend-
ur verða að taka því með þolin-
mæði.“
— Gera þeir það ekki?
„Einhverjir kannski, en alltof
margir virðast álíta það móðgun
að vera beðnir um skilríki. Maður
veit dæmi þess í kjörbúðum, áð
fólk sem hefur verið beðið um skil-
ríki hefur ýtt frá sér fullum vögn-
um af vörum og haft á orði að það
komi aldrei aftur í viðkomandi
verslun, þar sem því er sýnd önn-
ur eins móðgun og tortryggni. Er-
lendis mundi sama fólk óumbeðið
leggja fram öl! sín skilríki ef því
væri að skipta.
Á íslandi virðist það lenska að
biðja menn ekki um skilríki. Af-
greiðslufólk hefur hreinlega veigr-
að sér við því, vegna harkalegra
viðbragða. Sumir segjast ómögu-
lega geta beðið viðskiptavini sína
um skilríki; þeir þurfi ekki að sýna
þau í næstu verslun, og sú hætta sé
þess vegna fyrir hendi að við-
skiptavinir tapist. Þess í stað er
möguleikinn á fölsuðum ávísun-
um galopinn.
Það er hreint ótrúlegt hvað við-
gengst. Sumar ávísanir eru þann-
ig, að ómögulegt er að lesa skrift-
ina. Á öðrum er ósamræmi í upp-
hæðum, nafnnúmer í stað reikn-
ingsnúmers og annað eftir því. í
sumum tilvikum er beðið um
framsal, en oft er engin þörf talin
á því. í því sambandi má geta þess,
að sumir ávísanafalsarar framselja
með sínu rétta nafni. Þeir vita sem
er, að þeir fá sinn dóm í fyllingu
tímans, en þurfa ekki að standa
skil á upphæðinni. Algengast er
þó að seljandi ávísunar sé ekki
beðinn um nokkurn skapaðan
hlut. Það viðgengst allt of mikið
kæruleysi."
— Miðad við ástandið í dag:
Hvað er heillavænlegast?
„Að Kaupmannasamtökin upp-
lýsi sitt fólk og hvetji það til að
sýna árvekni. Samkeppnin má
ekki verða svo mikil, að menn
hugsi um það eitt að selja. Með
nægu eftirliti og framvísun skil-
ríkja má draga stórlega úr ávís-
anafalsi. Það er auðvitað þjón-
ustufyrirtækið sem situr uppi með
skaðann, og oft er um að ræða
glettilega háar upphæðir. Það á að
vera auðvelt að koma í veg fyrir
fals ef viljinn er fyrir hendi.
Öllu erfiðara er hins vegar að
verjast innstæðulausum ávísun-
um, sem í mörgum tilvikum geng-
ur illa að innheimta. Sömu sögu er
að segja um misnotkun eigenda
kreditkorta. Það er annar hand-
leggur, en hins vegar er líka farið
að bera á stuldi kreditkorta. Það er
sama upp á teningnum þar; allt of
lítið eftirlit. Menn komast upp
með það að undirrita allt annað
nafn en það sem stendur á kortinu
sjálfu.
Okkur er það hreinlega til efs að
ástandið í þessum málum sé nokk-
urs staðar jafn slæmt og hér. Þess
vegna hljótum við að hvetja menn
til að stemma stigu við falsi af
þessu tagi. Eins og fram kom hér
áðan, teljum við auðvelt að breyta
þessu til betri vegar. Fyrsta skil-
yrðið hlýtur að vera að krefja
menn um skilríki við framsal ávís-
ana.“
8 HELGARPÖSTURINN