Helgarpósturinn - 12.09.1985, Blaðsíða 10
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
HP
HELGARPÖSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Elln Edda
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Jakob Þór Haraldsson
Innheimta:
Garðar Jensson
Afgreiðsla: Guðrún Hásfer
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
í leit að
fjandmanni
Hjá Alþýðubandalaginu hafa
óveðursský hlaðist á loft og ber-
sýnilega erfiðir tímar framundan
hjá bæði virkum flokksmönnum og
svo forystuliðinu. Eftir að Helgar-
pósturinn birti leyniskýrslu
„mæðranefndar" framkvæmda-
stjórnar bandalagsins var bæði for-
manninum og helstu stuðnings-
mönnum hans í flokknum brugðið.
Svavari Gestssyni var að vísu löngu
Ijóst, að hann ætti erfitt verk fyrir
höndum sem mannasættir og sætt-
ir ólíkra sjónarmiða verkalýðsarms-
ins, unga fólksins, kvennaliðsinsog
svo Þjóðviljamanna.
Hins vegar má fullvíst telja, að
Svavar hafi ekki gert sér grein fyrir
því, að undir niðri kraumaði and-
streymi gegn honum sem for-
manni, a.m.k. ekki í þeim mæli sem
fram kemur í skýrslunni og komið
hefur upp á yfirborðið í umræðum
manna um Alþýðubandalagið frá
því skýrslan birtist.
Nú er staðan sú, að vangaveltur
manna snúast annars vegar um
nýtt og ferskt Alþýðubandalag, nýj-
an formann og betri tíð í framhaldi
af því eða þá óhjákvæmilega
strandsiglingu flokksins með af-
leiðingum, sem enginn getur séð
fyrir.
Það grátbroslega við þessar póli-
tísku erjur í Alþýðubandalaginu
núna snýst um þá staðreynd, að
enda þótt menn sjái ýmsa galla á
Svavari Gestssyni sem formanni,
þá eru þeir harla margir, sem viður-
kenna um leið, að í raun sé enginn
fær um að taka við sætinu af hon-
um. Alþýðubandalagið hafi ekki á
að skipa jafn kröftugum, mælskum
og útsjónarsömum forystumanni
og honum. Sumir gæla við hug-
myndina um Ólaf Ragnar Grímsson
í stað Svavars og það kann vel að
vera, að Ólafur Ragnar sé prýddur
nauðsynlegum hæfileikum til
starfsins. Hins vegar er hann um-
deildur ( Alþýðubandalaginu og á
slíkum tímum sem nú hefur flokk-
urinn ekki efni á umdeildum for-
manni.
Annars verður að segjast eins og
er, að atlagan gegn Svavari minnir
einna helst á skólabókardæmi um
ráðvillt fólk, sem á erfitt og verður
sér til sálusorgar að finna einhvern
blóraböggul sjálfum sér til andlegs
og et.v. pólitísks léttis.
„Mæðranefndin" er fulltrúi hinna
ráðvilltu, Svavar er blóraböggull-
inn.
Á landsfundi Alþýðubandalags-
ins sjöunda næsta mánaðar kemur
( Ijós hvernig forystumál Alþýðu-
bandalagsins verða leyst. Uppi eru
kenningar um það, að Svavar sé
„búinn", vandi flokksins sé slíkur
og þessi vandi sé stður en svo ein-
angraður við klikuna i kringum for-
ystuna i Reykjavík. Aðrir segja, að
Svavar gefist ekki svo léttilega upp
og hann veröi áfram formaður.
En það sem gerir Svavari erfiðast
fyrir þessa dagana er aö hann sár-
varrtar sjáanlegan óvin. „Mæöra-
nefndin" telst þrátt fyrir allt til
stuðnings- eöa samúðarliðs Svav-
ars. Óvinurinn sem Svavar þarf á að
halda er raunverulegt formannsefni
gegn honum. Þá fyrst getur Svavar
Gestsson farið aö munda sveröiö.
Um Samstarfs-
nefnd um ferda-
mál í
Reykjavík
Hr; ritstjóri.
í smáfrétt í Helgarpóstinum 22.
ágúst sl. er rætt um starfsemi Sam-
starfsnefndar um ferðamál í Reykja-
vík.
Þar sem nöfn undirritaðra voru
nefnd i umræddri frétt viljum við
koma á framfæri við yður, hr. rit-
stjóri, upplýsingum um þær útgáfur
sem unnið hefur verið að á sl. mán-
uðum fyrir ferðamenn sem til
Reykjavíkur koma, en það er m.a.
eitt af hlutverkum nefndarinnar.
A. Söfn. ?cga og sýningar, upplýs-
ingarit á íslensku um söfn og
fleiri áhugaverða staði í Reykja-
vík.
B. Museums, Art Galleries, Histori-
cal Buildings. Samskonar rit og
getið er í A lið, en á ensku.
C. Lítil upplýsingarit á íslensku,
ensku, dönsku og þýsku um
Reykjavík. (Tölulegar upplýsing-
ar o.fl.)
D. Reykjavík — General Informa-
tion. Upplýsingarit á ensku um
söfn, veitingastaði, hótel, bíla-
leigur, verslanir, ferðaskrifstofur,
flugfélög og fleira.
E. Kynningarbœklingur á ensku,
um Reykjavík, prýddur fjölda lit-
mynda. Aðallega œtlaður til
dreifingar erlendis.
E Kynningarplakat með stórri lit-
mynd af Reykjavík ætlað til
dreifingar innanlands og erlend-
is.
G. Götukort af Reykjavík ætlað
ferðamönnum. Kortið er skrýtt
teikningum af sögufrægum
byggingum og öðrum áhuga-
verðum stöðum og kennileitum í
Reykjavík. Upplýsingar eru á
ensku og íslensku.
H. Gestakort fyrir ferðamenn sem
gildir fyrir einn, tvo eða þrjá
daga og veitir aðgang að strætis-
vögnum, sundstöðum, Árbæjar-
safni og Ásmundarsafni.
Auk þessa hefur verið unnið að
ýmsum öðrum málum og má þar
m.a. nefnabætta þjónustu við ferða-
menn vegna gjaldeyriskaupa, upp-
lýsingamiðstöð, kynningarkvik-
mynd um Reykjavík ætlaða til sýn-
ingar erlendis.
Um Samstarfsnefnd um ferðamál
í Reykjavík má segja að aðalstarf
nefndarinnar fari fram yfir vetrar-
mánuðina, þ.e.a.s. fyrir utan hinn
BÍlALilGA
REYKJAVÍK: 91-31815/686915
AKUREYRI: 96-21715/23515
BORGARNES: 93-7618
VÍÐIGERÐI V-HÚN.: 95-1591
BLÖNDUÓS: 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: 95-5884/5969
SIGLUFJÖRDUR: %-7l498
HÚSAVÍK: 96-41940/41594
EGI1.STAÐIR: 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: 97-3145/3121
SEYÐISFJÖRDUR: 97-2312/2204
FÁSKRÚÐSFJÖRDUR: 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRDl: 97-8303
interRent
hefðbundna ferðamannatima, og
hefur þá fyrst og fremst verið unnið
að undirbúningi útgáfustarfsemi og
kynningu á höfuðborginni í blöðum
og tímaritum.
Samstarfsnefnd um ferðamál í
Reykjavík er ávallt reiðubúin að
veita Helgarpóstinum upplýsingar
um starfsemi nefndarinnar á hverj-
um tíma. Ef Helgarpósturinn gefur
út kynningarblað um Reykjavík
eins og gert hefur verið á myndar-
legan hátt um landsfjórðungana er
nefndin reiðubúin að aðstoða yður
á allan hátt við efnisöflun og veita
upplýsingar eins og frekast er kost-
ur um ferðamál í Reykjavík.
Júlíus Hafstein,
formaður
É^ólabókarfrétt: Á næstunni er
loks væntanleg á markaðinn fjórða
bók Péturs Gunnarssonar í ritröð-
inni um þroskasögu Andra. Fjórða
og síðasta bókin í þessum flokki
Péturs kemur í framhaldi af Punktur,
punktur, komma, strik, Ég um mig
frá mér til mín og Persónum og leik-
endum. Útgefandi er Punktar, út-
gáfufyrirtæki Péturs sjálfs. . .
Omar Einarsson,
framkvœmdastjóri
HELGARPUSTURINN
Ölsúpa
Þegar ráðherralíkið Jón fékk súpudiskinn sagð'ann:
„Sopinn er víst góður, en ég má ekki bragða hann.
Mikinn öldunk höfum vér að velli lagðan."
Niðri.
Dansinn er holl hreyfing
fyrir alla aldurshópa, börn,
ungiinga og fulforðna.
Aldur er aukaatriði.
Viö kennum alla almenna
samkvæmisdansa, fyrsta
flokks tilsögn.
Innritun er hafin.
Hringið og leitiö nánari
upplýsin ga.
DANSSKOU
SIGURÐAR HÁKONARSONAR
AUÐBREKKU17. KDPJWOGI SlMl 40020
FÍD
Félag islenskra danskennara
FALCONCREST
Frábærir framhaldsmynttaþxttir
2 nýir þættir koma á hverjum
fimmtudegi
Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins
Dreífing: MYNDBOND HF.
Skeifunni 8. Símar 686545 — 687310.
10 HELGARPÓSTURINN