Helgarpósturinn - 12.09.1985, Qupperneq 11
sömu ráðstefnu BJ, síðari
daginn, er svo ætlunin að ræða hug-
myndir manna um framboð í sveit-
arstjórnakosningum næsta vor. Fáir
telja það fýsilegt eða viturlegt. Þó
mun Þorsteinn nokkur Hákonar-
son í Njarðvíkum hafa marglýst yfir
því, að hann hyggist bjóða fram
næsta vor í nafni BJ og samkvæmt
lögum bandalagsins mun fátt geta
stöðvað hann „hvað sem hver seg-
ir“, eins og hann segir sjálfur. . .
U
ndanfarið hefur verið
fundað stíft í verkalýðshreyfingunni
vegna áforma um stofnun sameigin-
legrar útvarpsstöðvar. Á sunnudag
féll reyndar niður fundur með þeim
SÍS-mönnum, en á mánudag var
„útvarpsfundur" með fulltrúum frá
BSRB, ASÍ, BHM, Farmanna- og
fiskimannasambandinu m.a., þar
sem menn skeggræddu útvarpshug-
myndina. Raunar mun þetta enn
hanga svolítið í lausu lofti, en þó
hafa menn sett fram kostnaðartöiur
um stofnun og rekstrarkostnað út-
varpsstöðvar launþegahreyfingar-
innar fyrsta árið. Gert er ráð fyrir, að
menn þurfi að punga út með 40
milljónir króna þetta fyrsta ár, 20
milljónir fari í stofnkostnað, og ann-
að eins í rekstrarkostnað. Stofn-
kostnaðurinn verður að teljast ári
hár fyrir byrjendur í útvarpsrekstri
og augsýnilegt, að menn hugsa sér
stöðina búna fullkomnustu tækj-
um. Rekstrarkostnaðurinn er líka
gífurlega hár en það mun helgast af
því, að ekki er gert ráð fyrir auglýs-
ingum í stöðinni. Hvaðan rekstrar-
féð á að koma vitum við ekki, en
vafasamt verður að teljast að þessi
launþegafélög treysti sér til að bæta
áskriftargjaldi að útvarpi ofan á fé-
lagsgjöldin, sem mörgum mannin-
um þykja nógu há nú þegar...
Fjölmiðlun
- Framtíðarstarf
Ríkisútvarpið gegnir forystuhlutverki í fjölmiðlun á ís-
landi. Það fræðir, skemmtir og flytur fréttir í fjölbreyttri
og vandaðri dagskrá útvarps og sjónvarps. Ríkisútvarpið
beitir nýjustu tækni við gerð og flutning dagskrár til
notenda. Framundan eru þáttaskil. í nýju útvarpshúsi
verður starfað við fullkomnustu tæknileg skilyrði, sem
munu auka á gæði dagskrárefnis og bæta aðstöðu starfs-
manna.
Ríkisútvarpið vill ráða rafeindavirkja, eða aðra með
sambærilega menntun, í lausar stöður taeknimanna
hjá sjónvarpi og útvarpi, Rás 1 og Rás 2. Einnig þarf
að ráða lærðan Ijósmyndara til sjónvarpsins. Umsækj-
endur þurfa að sækja námskeið hjá erlendum útvarps- og
sjónvarpsstöðvum að lokinni þjálfun á fyrstu mánuðum í
starfi. Til greina kemur að ráða í hlutastörf, t.d. í kvöld-
og helgarvinnu.
Umsóknarfrestur er til 20. september n.k. og ber að skila
umsóknum til starfsmannastjóra Ríkisútvarpsins, Skúla-
götu 4 eða Laugavegi 176, á eyðublöðum sem fást á
báðum stöðum. IMánari upplýsingar um störfin eru veittar
á skrifstofutíma hjá útvarpi í síma 22260 og hjá sjónvarpi
í síma 38800.
RÍKISÚTVARPIÐ
ÚTVARP ALLRA LANDSMANNA
^EÍikki hefur heyrst frá BJ-urum
um hríö en fyrr í sumar birtust við
og við fréttir af ágreiningi innan
bandalagsins. Nú hefur verið ákveðið
að efna til sérstakrar ráðstefnu
dagana 5.-6. október, þar sem
ræða á þessi mál í botn. Áætlað er,
að fyrri dagurinn fari í ágreinings-
málin og sá laugardagur gæti orðið
sögulegur uppgjörsdagur hjá þess-
um ungu stjórnmálasamtökum. Nú
er svo komið, að þeir sem helst töl-
uðu og mæltu gegn miðstýringu
innan BJ eru að komast á þá skoð-
un, að nú vanti einmitt einhvern
sterkan mann til þess að taka af
skarið í þessum deilumálum og í
hnakkadrambið á deiluaðiljum.
Þannig hefur t.d. komið fram gagn-
rýni á þá Stefán Benediktsson og
Guðmund Einarsson þingflokks-
formann fyrir að stinga hausnum í
sandinn og vonast eftir sáttum af
sjálfu sér. Annars heyrum við, að
enda þótt um málefnalegan ágrein-
ing sé í raun að ræða, þá spili alvar-
lega inn í persónulegur ágreiningur
forsprakka landsnefndarinnar,
þeirra Valgerðar Bjarnadóttur og
Kristófers Más Kristinssonar og
svo „fornaldarkratanna", eins og
Kristófer kallaði gagnrýnendur
sína. . .
í barnaflokkum Þjóð-
dansafélagsins lærið
þið létta og skemmti-
lega leiki og dansa.
Innritun í símum: 43586
og 687464 frá kl. 14-19
virka daga.
Námskeiðin byrja
miðvikudaginn 25. sept. í
Gerðubergi.
Minnum á gömlu
dansana fyrir
fullorðna.
ÞJÓÐDANSAFÉLAC REYKJAVÍKUR
X s
u §
«
W) O
tí
X i
tjs-a .
'CU I -
S
HELGARPÓSTURINN 11
Vandaöar úti og innihurðir frá Snickar-Ffer og eldhúsinnréttingar frá Ballingslov.
Sendum bceklinga út á land samdcegurs._____________________