Helgarpósturinn - 12.09.1985, Page 14

Helgarpósturinn - 12.09.1985, Page 14
SÆKIST EFTIR t>að var í eina tíö, aö þeir Ólafur Thors og Gunnar Thoroddsen gengu saman upp eftir Garðastrætinu í Reykjavík, áleiðis aö húsinu númer 41. Þangað komnir héldu þeir inn á skrifstofu þess fyrrnefnda, með útsýni austur yfir gróðursælan borgarhlutann. Ólafi þótti við hæfi að bjóða Gunnari hressingu að aflokinni göngu; gekk að stóru málverki af Ingibjörgu konu sinni sem hékk á vegg, færði það frá og fitlaði við glerílát á bak við. Spurði síðan flokksbróður sinn hvað hann vildi drekka. Gunnar þáði viskí. Ólafur hellti í glas, en sjálfur fékk hann sér gin- blöndu. Þetta kom Gunnari nokkuð á óvart, því Ólafur var þekkur fyrir að hafa dálæti á viskí, og spurói hverju sætti. Sá síðarnefndi var fljótur til svars; þetta gerði hann einfaldlega til þess að Ingibjörg kona sín sæi ekki hversu sterk bland- an væri. . .! VILHJÁLMUR EGILSSON HAGFRÆÐINGUR OG FORMAÐUR SUS í HP-VIÐTALI UM SJÁLFAN SIG OG PÓLITÍKINA Og nú sit ég inni á þessari sömu skrifstofu og helli kaffi úr brúsa í bolla, á meðan Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur Vinnuveitendasam- bandsins og nýkjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna segir mér þessa sögu. Hefur þó allan vara á; segir söguna margfrægá og oft sagða af Gunnari sjálfum. Málverkið af Ingibjörgu er löngu horfið, og hillurnar á veggnum sjáanlegar hverjum sem vill; fullar af bókum og plöggum hagfræðings- ins. Undir er arinn og minnir á gamla tíð. Þó svo að Vinnuveitendasambandið hafi keypt húsið af að minnsta kosti einum millilið frá því Olafur átti húsið og byggt við það, er skrifstofan söm við sig og full af andagift, eins og Vilhjálmur orðar það sjálfur. Þó hefur hann aðeins helming hennar til umráða, því steyptur veggur hefur skipt henni í tvo hluta frá því sem upprunalega var. Aðstaða hagfræðingsins er laus við allan íburð; mest ber á tölvuskermi á borði, og þrem- ur mannamyndum fyrir ofan; andlitsmynd af Þorsteini Pálssyni, skopteikning af Friðrik Sop- hussyni og víðfræg mynd af Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, þar sem hann gægist fyrir hornið á Alþingishúsinu á meðan á fjöldafundi BSRB stóð á Austurvelli í fyrrahaust. Vilhjálmur sjálfur í gráum buxum og hvítri stutterma skyrtu með bindi. Dökkblár blaser- jakki á stólbaki. HEIMINUM BREYTT MEÐ RÖKUM OG TILFINNINGUM Sennilega værum við enn að tala saman, ef hann hefði ekki staðið upp og kallað fram, að hann vildi fá stutt frí frá símanum. Hann hringdi látlaust. Vilhjálmur segir að stór hluti af starfi hans fari fram í gegnum síma. Ég segist halda, eins og fleiri, að það hljóti að vera hræðilega leiðinlegt að vera hagfræðingur; að fást við tölur daginn út og inn. „Það getur verið það,“ segir hann. ,,En það getur líka verið ákaflega lifandi starf. Það sem gerir þetta skemmtilegt, er að spá í framtíðina, hvernig hlutirnir koma til með að þróast og verða á hverjum tíma fyrir sig, og fá um leið að vera beinn þátttakandi í því. Mér þykir líka mjög áhugavert að taka þátt í samningum og þessu starfi í Sjálfstæðisflokknum. Nú, svo gæti maður náttúrlega líka verið lok- aður inni í einhverri kompu, alltaf með reikni- vélina að reikna út — sumir hafa mestan áhuga á því...“ — Maöur gœti haldiö að hagfrœöingar vœru rnjög yfirvegaðir menn, sem geröu aldrei neitt vanhugsað? „Nei, nei.“ — Eru þeir mannlegir þegar öllu er á botninn hvolft? ,,Já, ég held að þeir séu mjög mannlegir. Ég held að það sé með hagfræði, eins og aðrar vís- indagreinar, að þar sé mikið svigrúm fyrir deilur og alls konar ólík sjónarmið og kenningar. Þar er engin ein stefna. Enda ná menn líklega mest- um árangri við að breyta heiminum, þegar þeir geta blandað saman rökum og tilfinningum" — Ert þú tilfinningamaöur? „Ég mundi segja það, en það eru nú kannski ekki allir sammála mér í því.“ EINN AF FIMM SEM HLUSTA Á AMERÍSKAN FÓTBOLTA Vilhjálmur verður 33ja ára í desember. Konan hans heitir Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir og er heimavinnandi. Þau eiga þrjú börn; tíu ára telpu, strák sem verður sjö ára í nóvember og annan lítinn sem kom í heiminn fyrir aðeins þremur vikum. Dagurinn er tekinn snemma, og Vilhjálmur er mættur til vinnu ekki síðar en hálfníu á morgnana. Hversu mikið teygist úr deginum fer eftir ýmsu. ,,i samningum getur hann staðið sólarhring- um saman," segir Vilhjálmur, ,,en venjulega er ég kominn heim um klukkan hálf sjö.“ Og í framhaldi af því spyr ég um áhugamál. ,,Eg er náttúrlega hagfræðingur og hef mikinn áhuga á því. Svo hef ég áhuga á pólitík, — ég lít fyrst og fremst á pólitík sem áhugamál. Auk þess hef ég mjög gaman af íþróttum." — Ertu íþróttamaöur? „Ekki mundi ég segja það, en ég var í fótbolta í gamla daga á Króknum." — Feröu á völlinn? ,,Já, sérstaklega þegar Valur og KR keppa. Það eru hæg heimatökin að sjá KR-leiki, því ég bý rétt hjá vellinum." — Er KR þá þitt liö? „Nei, ég hef nú aðallega haldið með Tinda- stóli á Sauðárkróki!" — Tekuröu virkan þátt í leiknum; ég á við meö hrópum og köllum á áhorfendapöllum? „Nei, ég horfi svona á þetta með stóískri ró. . . Annars hefur mér þótt skemmtilegast að horfa á amerískan fótbolta. Það er miklu meiri hraði í honum, og leikir fara ekki núll - núll. Það var sérstaklega gaman að fara og horfa á háskóla- leiki, ég gjörspilltist af þessu þegar ég var úti í Ameríku. Ætli ég sé ekki einn af fimm á íslandi sem hlusta á amerískan fótbolta í kananum!" VILLI BÓNDI Á GLERÁ Fæddur og uppalinn á Sauðárkróki, af Skag- firðingum kominn. Foreldrar Vilhjálms eru Egill Bjarnason landbúnaðarráðunautur og Alda Vil- hjálmsdóttir. Það var þess vegna ekki alveg út í loftið að menn höfðu Vilhjálm grunaðan um að hafa dæmt dreifbýlinu í hag í fótboltaleik hér á dögunum. A lokadegi SUS-þingsins á Akureyri í upphafi mánaðarins, brugðu menn undir sig betri fæt- inum og spiluðu fótbolta. Vilhjálmur dæmdi leikinn á þann veg sem fyrr segir. „Það er náttúrlega hreinn áróður,“ segir Vil- hjálmur með þessari „stóísku ró“, þegar ég spyr um ætlun manna, að hann hafi reynst dreifbýl- inu vilhollur. En það breytir því ekki, að þarna fyrir norðan bjuggu menn á heimavist, og herbergið sem Vil- hjálmur gisti í heitir Glerá. Flokksbræðrum hans, þeim Geir Haarde og Einari Guðfinnssyni, þótti nú ærin ástæða til að koma saman vísu um nýja formanninn, og höfðu fótboltaleikinn að yf- irskini. Og þannig hljóðar vísan: Dreifbýlinu lagði lið lét þó engu ber’á hefur komið víða við Villi bóndi á Glerá. Vilhjálmur getur ekki varist hlátri, þegar ég ber vísuna undir hann, en svarar fljótt: „Ég held því fram að þeir liafi ort vísuna aftan frá, og haft síðustu hendinguna klára áður en þeir svo mikið sem byrjuðu á vísunni. Þeim þótti skemmtilegt að herbergið heitir Glerá, og síð- asta hendingin varð því að hljóða: Villi bóndi á Glerá.. —■ Það er þá slegið á létta strengi á svona þingum? „Já, já.“ Og Vilhjálmur kímir: „Annars fengist enginn til að mæta. — Þetta skiptist nokkurn veginn jafnt; gaman og alvara." ÁRIN SEM ÉG LÆRÐI AÐ TAPA Að loknu viðskiptafræðiprófi í Háskóla Is- lands, hélt Vilhjálmur út til Los Angeles í fram- haldsnám við University of Southern California. Að fimm árum liðnum kom hann aftur heim með doktorsgráðu upp á vasann, ráðinn hag- fræðingur hjá Vinnuveitendasambandinu af Þorsteini Pálssyni. En aftur í tímann; elstur fjögurra systkina hleypti Vilhjálmur heimdraganum 15 ára og settist á skólabekk í Menntaskólanum á Akur- eyri. — Hvernig voru þau ár? „Mjög skemmtileg. Þetta var á árunum 1968 til 1972, og þá voru vinstri menn í mikilli sókn. Það má segja sem svo að skólaár mín á Akureyri hafi verið árin sem ég lærði að tapa!“ — Aöhylltistu aldrei vinstri stefnu? Efaöistu aldrei? „Nei, ég hef alltaf haft mitt á hreinu.“ — Hvenœr fórstu aö skipta þér af pólitík? „Ég gekk fjórtán ára í Víking, félag ungra sjálf- stæðismanna á Sauðárkróki. Nokkrir vinir mín- ir á Króknum voru í þessum sjálfstæðishópi, þar á meðal Jón Ormur Halldórsson. Svo átti ég vini í kringum fótboltann, sem ekki var á pólitískum basis. Hins vegar verða margir fyrr eða síðar fyr- ir einhverri reynslu, sem leiðir til þess að þeir halda áfram, eða snúa baki við því sem þeir höfðu áhuga á. Það er sama í hvaða flokki það er. Menn taka afstöðu án þess að vita hvað þeir eru að gera, og lenda í því þegar þeir eru komnir til vits og ára, að þessi heimsmynd gengur ekki upp. Ýmsir félaga minna, sem voru með mér á þessum árum í Víkingi, urðu síðar fyrir margs konar áhrifum. Jón Ormur er einn þeirra, og fleiri; einn er nú yst á vinstri vængnum, annar fór í Bandalag jafnaðarmanna, en svo eru aðrir enn innan Sjálfstæðisflokksins." loftir Eddu Andrésdóttur mynd Jim Smart

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.