Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 12.09.1985, Qupperneq 20

Helgarpósturinn - 12.09.1985, Qupperneq 20
HVAÐ SEGIR FOLK SEM HEFUR VOLD AF EINU EÐA OÐRU TAGI leftir Eddu Andrésdóltur myndir Jim Smart Helgarpóstinum og viðmælendum hans kom vissulega saman um að hugtakið „völd" væri ákaflega teygjanlegt. Það fer hins vegar ekkert milli mála að áhrifamáttur manna er jafn mismunandi. Mér þykir til að mynda trúlegt að þessar línur þættu hafa meiri þunga og vera forvitnilegri ef höfundurinn væri Albert Guð- mundsson en ekki ég! Hvað um það, og í hverju sem það liggur að einn hefur meiri áhrif en annar, þá er það einstaklingsbundið hversu eftirsóknarvert það þykir að öðlast völd. Nokkrir ganga fram hjá stig- anum og kæra sig ekkert um að klífa þrepin. Aðrir taka þátt í kapp- hlaupinu, hversu langt sem þeir nú ná. Og hverjir tróna svo efst? Sumir segja að þar séu fjármála- ráðherra, forsætisráðherra eða Jóhannes Nordal. Flestum ber að minnsta kosti saman um að mestu völdin séu hjá ráðamönnum þjóð- arinnar. Það er ekkert nýtt að bent sé á Jó- hannes Nordal sedlabankastjóra með meiru sem valdamesta mann á Islandi. Sjálfur segir hann í samtali við Helgarpóstinn að hann telji það á verulegum misskilningi byggt. En telur hann sig ekki hafa völd? „Ég get náttúrlega tekið ákvarð- anir um vissa hluti," svarar hann, ,,og ég hef áhrif, en það hafa menn að einhverju leyti yfir sínu starfs- sviði." — Nú má segja sem svo að þú haf- ir völd yfir því sem menn telja þýð- ingarmeira en margt annað í þjóð- félaginu. „Það er háð því hvað menn telja þýðingarmikið. Það er matsatriði og skiptar skoðanir á því hvort efna- hagsmál eru þýðingarmeiri en menntamál eða uppeldismál. Og læknir hefur stundum vald á lífi manna. Það er því erfitt að segja hvað skiptir mestu máli. En ef við höldum okkur við veraldleg völd, þá eru efnahagsmálin vafalaust tal- in ofarlega af mörgum. Sumir segja að þau séu of ofarlega á baugi í heiminum í dag.“ — Hefurðu sóst eftir völdum? „Nei, það hef ég ekki gert." — En vildirðu vera valdameiri en þú ert í dag? „Alls ekki á þeim vettvangi sem ég er núna. Ég tel að maður í minni stöðu eigi ekki að hafa meiri völd en ég hef í dag; það verður að taka ákvarðanir í samráði við aðra menn og innan ákveðinna leikreglna." VALDIÐ HJÁ ÞEIM SEM RÁÐA ÞVÍ VERALDLEGA „Sumir segja að efnahagsmálin séu of ofarlega á baugi í heiminum í dag,“ sagði Jóhannes Nordal. Þór- dís Mósesdóttir kennari skrifar að líkindum undir það, því spurning- unni um hvar hún teldi völdin liggja í þjóðfélaginu svaraði hún: „Örugglega ekki hjá þeim sem hugsa um andans mál. Valdið liggur hjá þeim sem ráða veraldlegum hlutum. í því sambandi iangar mig að benda á þá miklu hættu sem staf- ar af því hversu lítil virðing er borin fyrir menntun og menningu al- mennt í landinu." Menntamál og uppeldismál að hluta eru í höndum kennara. Það leikur því tæpast vafi á að í þeirri stöðu er áhrifamáttur manna mikill. 20 HELGARPÓSTURINN Jóhannes Nordal: Maður í minni stöðu á ekki að hafa meiri völd en ég hef f dag. Hefur Þórdís leitt hugann að því? „Já, og jafnframt gert mér grein fyrir því að um leið verð ég að gæta þess að vera hlutlaus, koma skoðun- um sem flestra að og vara mig á því að fjalla sérstaklega um stjórnmál eða til dæmis samninga við nem- endur mína, sem ég ætla ekki að reyna að þræta fyrir að getur verið erfitt." — Um leið ertu að segja að kenn- ari hafi völd? „Já. Hins vegar held ég að það sé mjög misjafnt hversu kennarar eru vel meðvitaðir um þetta." — Og þessi völd getur kennari misnotað? „Já, ég gæti til að mynda innrætt nemendum mínum ákveðnar póli- tískar stefnur ef ég væri mjög póli- tísk sjálf." — Völd kennarans og virðing fyrir honum heyra þá ekki fortíðinni til? „Nei, en þegar þú minnist á virð- ingu þá fara nemendur engan milli- veg í þeim efnum. Annað hvort bera þeir virðingu fyrir kennara sínum eða ekki. Nemendur vilja að kenn- ari fari eftir ákveðnum reglum og sé samkvæmur sjálfum sér. Þeir hafa mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig kennari á að vera, og ef Þórdís Mósesdóttir kennari: Gæti innrætt pólitískar stefnur ef ég væri póli- tísk sjálf. hann uppfyllir þær ekki, þá er úti um virðinguna." VIÐ HÖFUM VÖLD Æ, þessi kitlandi tilfinning að hafa völd. Að minnsta kosti hlýtur það að vera miklu þægilegra að vera þeim megin en hinum megin. Að vera valdamikill tryggir mann óneitan- lega fyrir ágangi eða óþægilegri áreitni. Menn vilja fremur vingast við þann valdamikla en gera honum eitthvað til miska. Og það er einföld speki. En í sumum tilvikum, eins og til dæmis á knattspyrnuvellinum, dugir það skammt. Að minnsta kosti ef heiðarlega er að farið. Magnús V. Pétursson knattspyrnu- dómari: „Við höfum völd, en þau takmarkast af „personality", ef svo má segja. Hins vegar erum við í þessu gagngert út af íþróttinni sjálfri og stjórnum leiknum.. — Þið eruð þá ekki íþessu til að fá útrás fyrir valdagrœðgi? „Ekki hvað mig snertir, en það er til í því að menn misskilji þetta, en þeir endast þá ekkert í þessu. Það kemur fljótt í ljós ef menn eru ekki sanngjarnir. Þetta er jú íþrótt og við erum úrskurðarvald á leikvelli. Það þýðir að við verðum að fara eftir bestu sannfæringu og vera hlutlaus- ir.“ — Annað; þegar þú blœst í flaut- una eða lyftirgula eða rauða spjald- Magnús V. Pétursson knattspyrnu- dómari: Kemur fljótt í Ijós ef menn eru ekki sanngjarnir. Ingibjörg Ásgeirsdóttir lögreglu- maður: Hugsa aldrei um völdin. inu, finnurðu þá fyrir því hversu valdamikill þú ert á vellinum? „Ja, það sagði mér gamall knatt- spyrnudómari sem dæmdi á Ólymp- íuleikunum 1928: „Keep two kilos in your hand before you make your decision". Hann vill meina við eig- um að þyngja á hendinni áður en við látum flautuna í munninn og Sigurður Helgason forstjóri Flug- leiða: Get haft töluverð áhrif. Gylfi Pálsson flugstjóri: Valdið er ótakmarkað. tökum spjald úr vasa; við höfum tækifæri til að spá í hlutina á leiðinni til þess sökótta áður en við tökum skyndiákvarðanir sem eru kannski strangar. En hvað viðkemur valdi? Jú, þetta er „publicity". Ef menn eru feimnir, þá er þetta ágætur vettvangur til að rífa hana úr sér...“ — Hefur þú sóst eftir völdum? „Nei, en ég var hins vegar spurð- ur einu sinni hvað ég mundi gera ef ég stjórnaði í einn dag. Ég sagði þá

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.