Helgarpósturinn - 12.09.1985, Page 21
og segi enn að ég mundi byrja á að
hreinsa 65% út úr Alþingi."
— Valdamesti maður á íslandi?
„Við skulum segja Albert Guð-
mundsson, hann passar kassann og
er að mínu mati frábær maður.“
VIRÐINGIN HJÁ
BÖRNUNUM OG ELDRA
FÓLKINU
í íslenskri orðabók er. til fullt af
orðum sem flokkast undir þetta um-
rædda hugtak. Tökum orðið
,,valda“, við getum bætt við það til
að mynda -aðstaða, -barátta, -fíkn,
-jafnvægi, -laus, -maður, -rán, -ræn-
ingi, -stétt, -stofnun, -streita og -taka.
Og þó svo við hlaupum ekki beinlín-
is fyrir húshorn þegar við sjáum lög-
reglumann, þá er ekki laust við að
okkur þyki lögreglan vera í því sem
kallað er valdaaðstaða.
En þykir Ingibjörgu Ásgeirsdóttur
hún hafa völd sem slík?
„Nei, ég finn ekkert sérstaklega
fyrir því. Eg leiði hugann ekki einu
sinni að því.“
— Þú hefur ekki sótt um starfid
þess uegna?
„Nei, alls ekki."
— En afstaöa fólks til þín í starfi?
„Hún er mjög misjöfn. Sumum
finnst eðlilegt að fara eftir því sem
lögreglan segir, en aðrir vilja ekki
hlusta á okkur. Ég held að það sé
ekki borin sérstök virðing fyrir lög-
reglunni. Ef einhvers staðar ber á
því, þá er það meðal barnanna og
eldra fólksins."
— Nú hefur stundum verid sagt að
menn sœki um starfí lögreglunni til
að fá útrás fyrir valdaþorsta. Hvað
heldur þú um það?
„Ég veit það ekki. Ég hef ekki
kynnst því, en ég vil ekki útiloka að
það sé til í dæminu.
En mín afstaða til þessa er sú, að
ég er hér til að vinna mitt starf, en
hugsa ekki um að því fylgi nein sér-
stök völd.“
EKKI EINRÆÐISHERRA
Sigurður Helgason forstjóri Flug-
leiða er einn þeirra manna sem
kemur upp í hugann þegar minnst
er á völd. En er hann valdamikill í
raun?
„Ég tel að ég hafi töluvert mikla
ábyrgð á rekstri fyrirtækisins," svar-
ar hann Helgarpóstinum. „En að ég
geti gert það sem mér dettur í hug
er háð ýmsum annmörkum. Þannig
að ég er ekki algjör einræðisherra.
Ég get haft töluverð áhrif en ég hef
ekki heildarvöld yfir því sem ég
vildi gera.“
— Mundirðu vilja vera valdameiri
innan fyrirtœkisins en þú ert?
„í ýmsum málum gæti komið sér
vel að hafa jafnvel meiri völd en
maður hefur. Þá er ég að tala um
verkalýðsfélög til dæmis. Okkur
hefur stundum þótt hjá Flugleiðum
að það væru ekki stjórnendurnir
sem réðu ferðinni algjörlega, heldur
að einhverju leyti verkalýðsfélögin.
Og ég vildi kannski vilja ráða meiru
í þeim efnum."
— En ertu valdagráðugur maður?
„Nei, það er ég ekki.“
— Getur þú bent mér á valda-
mesta mann á íslandi?
„Ef ég á að benda á þann sem hef-
ur mestu áhrifin á afkomu fólks al-
mennt, þá held ég að forsætisráð-
herra hafi mestu völdin."
ÓTAKMARKAÐ VALD
FLUGSTJÓRA
En tínist nú allir þessir viðmæl-
endur Helgarpóstsins upp í Flug-
leiðaþotu frá sínu daglega amstri,
þá leikur ekki nokkur vafi á því hver
fer með völdin um borð. Það er auð-
vitað flugstjórinn. Og hversu mikið
vald hefur hann?
„Það held ég að sé ótakmarkað,”
svarar Gylfi Jónsson flugstjóri.
— Þannig að þú mátt í rauninni
fara fram á hvaö sem er?
„Já, eiginlega, það er að segja, ef
manni er sýndur mótþrói eða ein-
hver óhlýðnast, þá getur maður
nánast gert hvað sem er.“
— Eru þetta ekki hœttulega mikil
völd sem flugstjóri hefur?
„Nei, þetta er alveg nauðsynlegt.
Ef liðið á að dansa rétt, þá verður
það að dansa eftir einhverju, er það
ekki?"
— Hvernig tilfinning er þetta nú?
„Ja, ég veit það ekki, ég verð
aldrei var við þetta!“
— Þið fáiö ekki mikilmennsku-
brjálœði af þessu?
„Nei, það get ég ekki ímyndað
'mér að nokkur maður fái. Enda
kemur aldrei til þess að beita þurfi
valdi. Þetta gengur allt eins og
smurð vél, menn vita nákvæmlega
hvað þeir eiga að gera. Ef menn eru
ekki sammála, þá eru málin bara
rædd.“
Vald flugstjórans nær yfir alla sem
eru um borð; áhöfn og farþega. Og
þá skiptir ekki nokkru máli hversu
valdamikill sá farþegi kann að vera
sem stígur um borð í flugvélina. En
sækja menn í flugstjórastólinn út af
þessu?
„Nei, nei,“ svarar Gylfi strax. „Ég
gerði mér ekki einu sinni grein fyrir
þessu. Maður veit ekki af þessu fyrr
en maður fer að læra og lesa lög og
reglur, þá kemur í ljós að lögin gefa
okkur mikið vald.“
HELGARPÖSTURINN 21