Helgarpósturinn - 24.10.1985, Side 3
að utan sem ég hef rannsakað vís-
indalega og aðlagað íslenskum að-
stæðum. Eg nota þessi kerfi til skipt-
is, þau henta misjafnlega vel eftir
því hvernig leikirnir raðast niður á
seðlana. Ef ég tel til'dæmis fá úrslit
vera örugg þá vei ég jafnan kerfi
sem er með mörgum merkjum en
minni líkum...“
— Þaö er greinilega sérstakt
tungumál notad af tippurum?
„Já. Það er alveg sérstakt."
— Heldurdu med liði í þeirri
ensku?
„Ég hef verið skráður félagi í að-
dáendaklúbbi Manchester United
EIRÍKUR JÓNSSON
SAFNSTJÓRI Á DV
frá árinu 1971. Ég hef skírteini upp
á það.“
— Ertu ekki þar med hlutdrcegur
þegar þú ert aö tippa?
„Það hefur nú ekki verið mikil
áhætta fyrir mig að halda með mínu
liði það sem af er keppnistímbilinu,
en alla jafna; nei, ég reyni að forðast
að láta aðdáun mína á United koma
mér úr jafnvægi á seðlinum. Því
miður hef ég samt staðið sjálfan mig
að því að láta fastmótaðar hug-
myndir um ákveðin lið leiða mig á
villigötur. Maður vill gleyma því að
það getur allt gerst í fótbolta — og
þar með á seðlinum."
„Þetta hefur staðið undir sér þau sex-
tán ár sem ég hef staðið í þessu..."
„Ég set vinnuna mína, fjölskyldu
og tippið í fyrsta sæti yfir mín dýr-
mætustu hugðarefni, allt saman í
fyrsta sæti...“
— / þessari röö sem þú nefndir?
„Ja, ég segi nú kannski ekki að
tippið detti ekki niður í annað sæti
ef maður myndi lenda í einhverjum
fjárhagsörðugleikum. Maður fer
náttúrlega ekki að tippa öllu sem
maður á upp á von og óvon, þegar
og ef að kreppir.
Hinsvegar er ég alveg til í að fella
niður heimsóknir til vinafólks ef ég
á eftir að setja inn á eitt 2900 raða
Set vinnuna, fjölskylduna og tippið I
fyrsta sæti yfir dýrmætustu hugðarefn-
in..."
ÓSKAR GUÐMUNDSSON
FISKSALI í SÆBJÖRGU
kerfi. Ég viðurkenni alveg að get-
raunirnar sitja fyrir öllu svoleiðis
nokkru.“
— Er tímafrekt aö tippa fyrir sjö-
þúsund kall á viku?
„Já, það tekurjjó nokkurn tíma
skal ég segja þér. 1 mínu tilviki — ég
veit ekki um aðra sem tippa fyrir
svipaða upphæð — tekur þetta um
fjóra tíma í beina vinnu á viku. Fyrir
svo utan alla kaffitímana, en þeir
fara náttúrlega í endalausar disku-
sjónir um leikkerfi, möguleika liða
og hvað þetta nú allt saman snýst
um."
um loknum. Mér finnst til dæmis
geypilega gaman að ræða stöðu
leikjanna í hálfleik við einhverja
vini mína, fylgjast með tölunum
hvað ferskustum. Maður er oft með
tóif rétta í hálfleik, sem verða svo
eitthvað allt annað þegar yfir líkur.
En fimm réttir í hálfleik geta nú líka
orðið tólf réttir á endanum!“
— Mestu tippararnir nota kerfi,
oft samin af þeim sjálfum. Fara
menn ekki meö þetta eins og „ríkis"
leyndarmál?
„Það held ég hljóti að vera, enda
eru menn yfirleitt búnir að leggja
óhemjumikla vinnu í þessi kerfi og
því leiðinlegt að missa þau í hendur
„Maður er oft með tólf rétta I hálfleik,
sem verða svo eitthvað allt annað á end-
anum..."
EIQUR GUCJOHNSEN
MÚRARAMEISTARI
annarra."
— Veistu til þess aö kerfum hafi
veriö stoliö?
„Nei. Við verðum að hafa í huga
að það er ekki nóg að eiga kerfi.
Maður verður líka að kunna að nota
það, vita um veikleika þess og styrk.
Oft getur það verið svo að óvið-
komandi áttar sig ekkert á kerfi sem
annar hefur samið. Reyndar er þetta
fræðigrein. Mér finnst það.“
— Notar þú mörg kerfi?
„Ég er með eitt gott kerfi sem hef-
ur skilað mér dágóðum skilding.
— Ertu til í aö selja mér þaö?
„Nei.“
Hvað hafa launin
þín hækkað á
kvennaáratugi?
Þórunn Gestsdóttir blaðamaður
„I upphafi kvennaáratugar var ég heimavinnandi."
— En svo fórstu út að vinna?
„Segjum bara um 100%!"
— Er það ekki góður árangur?
„Það er mjög góður árangur í mínu tilfelli".
— Kvennaáratugur hefur sum sé verið mjög þarfur
og árangursríkur fyrir konur?
„Hann hefur verið það, alveg hiklaust, í flestum tilvikum, en
það á þó ekki almennt við um launamál. Það hafa ekki allar náð
jafn góðum árangri og ég."
— Og hverju er um að kenna?
„Konum sjálfum".
— Er baráttunni lokið?
„Nei, barátta íslenskra kvenna hófst um landnám."
— Og hvað lekur við nú?
„Konur, hvað nú? Konur verða að bretta upp ermarnar og
taka sjálfar til hendinni. Atvinnuþáttaka kvenna hefur aukist
gífurlega, þær hafa menntað sig í miklu rheira mæli en áður.
Það hefur orðið hugarfarsbreyting, það hafa verið sett jafnrétt-
islög, en það er enn ekki staðreynd að sömu laun séu greidd
fyrir sömu vinnu. Það er lokaátakið; sömu laun fyrir sömu
vinnu, að það verði ekki innantómur frasi."
— Sérðu það fyrir í náinni framtíð?
„Auðvitað sé ég það. Ég treysti konum til að taka til hend-
inni."
— Annað; nú gerast þær fleiri og háværari raddirnar
sem segja að þetta kvennakjaftæði sé orðið svo þreyt-
andi. . .
„Þetta er bráðum búið...!"
— Þið hafið heyrt þetta?
„Já, mikil ósköp."
— En er þetta ekki hættulegt?
„Nei, þetta er umræða. Folk er orðið þreytt á þessum
kvennaáratug af þvf umræðan hefur verið mikil, en allir hinir
áratugirnir hafa verið karla."
— En þú segir að þetta sé að verða búið?
„Kvennaáratugnum er að Ijúka, en baráttan fyrír launajafn-
rétti heldur áfram."
— Þú skrifar ekki undir að þetta sé aðskilnaöar-
stefna, t.d. kvikmyndahátfð kvenna, listahátíð kvenna
o.s.frv.?
„Nei, — hvað gerum við án karlanna? Við getum ekkert
verið án þeirra, við viljum hafa þá við hliðina á okkur — hlið við
hlið."
— En af .hverju þá ekki sameiginlegar sýningar og
uppákomur?
„Þær hafa verið."
— Hver er tilgangurinn með þessu — mundir þú
segja?
„Hver er tilgangurinn með að hafa næsta ár „Ár útflutnings-
ins?"
— Ef þú mættir ráða hverjum næsti áratugur verður
tileinkaður, hver yrði þá fyrir valinu?
„Ég mundi tileinka hann okkur öllum."
— Hvað gerist svo á fimmtudaginn 24. október?
„Um morguninn opnar kvennasmiðjan í Seðlabankanum,
loksins hafa konur lyklavöldin í Seðlabankanum. Þar verður
aðal áhersla lögð á launakjör kvenna, slagorðið er: konan, vinn-
an, kjörin."
— Aðrar aðgerðir?
„Útifundur þar sem verða fjórir ræðumenn og allar ræðurnar
verða um launamál kvenna."
— Hvað ætlar þú að gera?
„Ég ætla að mæta í Kvennasmiðjuna þar sem ég verð senni-
lega við útgáfustörf."
— Ertu nokkuð orðin þreytt sjálf?
„Nei, nei, en ég vildi ekki vinna alla tíð bara með konum. Eins
og ég sagði áðan, við viljum hafa karlana við hliðina á okkur.
Þetta eru ákveðin vinnubrögð sem hægt er að viðhafa í vissan
tíma, en auðvitað eru allir orðnir leiðir, við erum sjálfar farnar
að auglýsa; kvenna hvað...???"
— Nokkuð að lokum Þórunn?
„Bara áfram stelpur!"
Þórunn Gestsdóttir blaðamaður er einn fulltrúa I 85-nefndinni sem
hefur það hlutverk með höndum að stjórna aðgerðum (tengslum við
24. október, en þá eru tfu ár liðin frá kvennafrídeginum sem vakti
heimsathygli. 31. desember lýkur hinum svonefnda kvennaáratug, og
ítilefniþessslógum viðáþráðinn til Þórunnar. Ekki hvaðsfsthafalauna-
mál kvenna verið til umræðu nú í seinni tfð...
HELGARPÓSTURINN 3