Helgarpósturinn - 24.10.1985, Page 11

Helgarpósturinn - 24.10.1985, Page 11
HP ræðir við Önnu á Hesteyri sem lengst af hefur slegið með orfi og ljá, rakað með hrífu, og lifað við olíuljós, kolaeldavél og kolaofn Nei, ég man ekki eftir að þetta hafi verið erfitt „Eruð þið nokkuð á hraðferð?" — Neei, e, — við komum nú eigin- lega til að hitta ... ,,Já, getiði ekki hjálpað mér að taka upp það sem er eftir hérna af heyi? Það eru hrífur þarna." Viðmælandi okkar er lítið eitt óðamála, — enda sýnist rigning í að- sigi og þá er um að gera að ná því heyi sem þurrt er í sátur. Blaða- menn Helgarpóstsins eru í heim- sókn hjá náttúrubarninu Önnu Guð- mundsdóttur á Hesteyri við Mjóa- fjörð. Anna er bóndi í einni afskekktustu byggð landsins, Mjóafirði sem sker landið milli Norðfjarðar og Seyðis- fjarðar. Þetta er kona sem fyrst tók rafmagnið í þjónustu sína fyrir 10 árum og dráttarvél fékk hún um líkt leyti. Hún segir sjálf að hún sé ekki mikill bóndi, býr aðallega vegna þess að henni þykir vænt um skepn- urnar, — „ekki upp á hagkvæmasta rnáta," og hlær. UNDIR SÁTU LIGGUR GAMALL MAÐUR í blettinum þar sem við keppumst nú við að raka með Önnu eru nokk- ur heysæti og milli þeirra traktor með múavél aftan í. Undir einni sát- unni situr, eða nær því liggur, gam- all maður flötum beinum. Hann er grannur og máttlítiil að sjá en horfir kankvíslega til gestanna. Þessi blett- ur verður okkur, sem komum að sunnan, eins og utan úr öðrum heimi. „Jón Daníelsson hér.“ Sá gamli kynnir sig og stendur hægt og sein- lega á fætur. Hann er máttlaus i vinstra fæti og gengur við hækjur. Eftir að hafa rabbað við okkur góða stund bröltir hann með hjálp Ónnu upp í traktorinn og hefur stöng til þess að geta beitt hendinni á kúpl- inguna. Hann er kominn á níræðis- aldur, þessi karl, og spyr ekki að því hvort hann hafi heilsu til þess að standa í heyskapnum með Önnu. Þegar hann bröltir niður úr dráttar- vélinni er eins víst að máttlausa löppin hrökkvi úr liði. „En ég lem henni þá bara í aftur,... nei, nei, það er ekki svo sárt, — eða maður venst því.“ Hann segir okkur að hann sé upp- runninn að norðan og hafi lengst af átt heima á höfuðborgarsvæðinu. Þegar svo íbúðarhúsið brann að Hesteyri og þær mæðgur, Anna og móðir hennar, stóðu húsnæðislaus- ar uppi birtist karli draumkona hans og sendi hann yfir í þessa afskekktu og ókunnu byggð, að hjálpa mæðg- unum á Hesteyri sem hann hafði aldrei heyrt nefndar. Þetta var 1977 og síðan þá hefur Jón verið hjá Önnu, hjálpað til við búskapinn og vélahaldið. Og ekki hvað síst stytt Önnu stundir eftir að móðir hennar lést í hárri elli árið 1979. Þó Jón gamli ^virðist bæði slitinn og fúinn á líkama þá aftrar það hon- um ekki í björtum fyrirætlunum. Hann segist hafa fyrir því áreiðan- legar heimildir að hann eigi eftir að hlaupa. Það og margt annað í vit- und þessa gamla manns kemur úr heimi sem er okkur framandi og ekki á okkar færi að rengja. Með vorinu ætlar Jón að festa kaup á bíl sem þau tvö geta þá notað sér til ferðalaga að sumarlagi. Helst segist hann vilja að Anna taki bílpróf og sjálf tekur hún ekki illa í það. VIGDÍS FÉKK MYND FRÁÖNNU Við erum komin inn í stofu til Önnu, í litlu timburhúsi sem reist var að Hesteyri eftir að íbúðarhúsið á bænum brann fyrir nokkrum ár- um. Anna er ekki að afsaka neitt þegar hún segir okkur að það hafi verið í nógu öðru að snúast en til- tektum innanhúss að undanförnu; heyskapurinn hafi tekið mikinn tíma í þeirri leiðindatíð sem verið hefur og þessutan sé hún byrjuð á síldveiðum. Síldin gengur hérna inn Mjóafjörðinn og þarf ekki annað en leggja net rétt úti fyrir landi og vitja um með árabát. En þrátt fyrir fáar stundir til til- tekta, þannig að á borði sem þjónar jafnt sem borðstofu- og sófaborð ægir öllu saman, þá er heimilislegt og hlýlegt að koma á þennan stað. Þarna er eitthvað af bókum, flösk- um, matarílátum og einhverstaðar til hliðar við sjónvarpstæki á enda borðsins vex gróskumikil potta- planta. Glugginn sem snýr niöur að firðinum er sömuleiðis fullur af blómum en fyrir innan hann hefur Jón komið upp litlu smíðaborði fyrir tilfallandi viðgerðir. Á veggjum hanga myndir í fagurlega skreyttum kuðungarömmum sem húsfreyjan og bóndinn hefur sett saman sjálf úr efnivið sem hún tínir úr eigin fjöru. Þegar Vigdís forseti var á sínu Aust- fjarðaferðalagi í vor, vottuðu Mjó- firðingar henni vináttu með mynd frá Önnu. Sjálf á hún aðra sömu gerðar og nú hangir væntanlega uppi á Bessastöðum. Ljósmyndina tók hún sjálf og lét stækka af fossi sem fellur innarlega í Mjóafirði en ramminn er að sjálfsögðu úr Mjóa- fjarðarkuðungum. Anna segir okkur að hún sé fædd 1929 og var einkabarn foreldra sinna sem bjuggu alla sína búskap- artíð á Hesteyri. Þegar Anna var að alast upp var Hesteyri líflegri staður en nú er. Þá var bújð á þremur bæj- um þar sem Hesteyri er núna og að minnsta kosti tvíbýli á einum þeirra. Aðeins skotspöl frá Hesteyri er svo Brekkuþorpið þar sem enn er nokk- ur byggð, en þó lítil miðað við það sem var. TÍMDI EKKI AÐ FARA í SKÓLA „Það var barnaskóli út frá, að Brekku, en ég vildi ekki fara í hann og það fór því þannig að mamma kenndi mér heima og svo fór ég í prófin," segir Anna þegar við spyrj- um út í skólagönguna. í fyrstu gekk henni námið ekkert alltof vel, segist sjálf ekki hafa nennt að læra. Þegar henni var þá sagt að hún yrði að fara í skólann ef henni færi ekki að ganga betur þá rættist úr því. „Þau vildu svo koma mér til mennta, mamma og pabbi, en ég spyrnti við með öllum ráðum og þá varð það svo að vera, þó þeim líkaði ekki vel.“ — Og þú sérð ekki eftir því núna aö hafa ekki gengið menntaveginn? „Nei, það hefi kostað svo margt annað sem ég hefði orðið að fórna vegna menntunarinnar að ég hefði ekki tímt því.“ Anna verður alvöru- gefin þegar þessa hluti ber á góma en þegar líf okkar sem búum fyrir sunnan kemur til tals má heyra að henni er fyllilega ljóst hvað það er sem hún hefur farið á mis við í þæg- indasnauðu og oft á tíðum harðn- eskjulegu lífi austur í Mjóafirði „Já, það hefði orðið erfiðara að búa hér áfram ef þetta hefði átt að vera eitthvert nám að gagni.“ Og seinna um kvöldið þegar blaðamaður gengur með bóndan- um í útihúsin og búskapurinn er í al- gleymingi segir Anna: „Þegar maður kemur á veturna í snjóhríð og gefur á garðann í fjárhúsunum, fer svo út og hóar saman kindunum inn í hlýjuna og kemur svo sjálfur kaldur og hrímugur... Ég vildi ekki fórna því fyrir mörg lífsþægindi sem hægt væri að fá ef maður ynni á skrifstofu." — Þetta er allt annað Itfsviðhorf en flest okkar hinna höfum! Og Anna jánkar því og út úr svari hennar sem ekki varð fest á blað i náttmyrkrinu í Mjóafirði má á ein- hvern hátt lesa að þessi kona hefur náð að skilja okkar viðmiðanir og viðhorf en um leið gert sér grein fyrir að við getum aldrei skilið hennar. Hún er náttúrubarn sem veit að feti hún einu sinni út af þeim þrönga stíg, — eins og með skóla- göngu, — þá verður tæpast aftur snúið. SLÁTRAR ÁNUM SJÁLF „Erfitt, nei, ekki fannst mér það, helst það að maður er farinn að bila í bakinu," segir Anna þegar við spyrjum út i búskapinn sem lengst af fór fram með sömu tækni og hefur verið notuð í Mjóafirðinum og ann- arstaðar' um aldir. Tún og engjar slegin með orfi og ljá, rakað með hrífu og heyið svo flutt með hestum þegar fólk bar það ekki sjálft á bak- inu. Heima á bæ var svo olíuljós og kolaeldavél og kolaofn, allt þangað til fyrir tæpum áratug. Nei, Anna man ekki að þetta hafi verið erfitt, enda ekkert annað þægilegra á boð- stólum. Faðir hennar dó 1968 en þær héldu búskapnum áfram, Anna og móðir hennar. Á þessum árum var ekki mikið um ferðalög, en Anna hafði samt komið í kaupstaði á Aust- fjörðunum og einu sinni suður til Reykjavíkur sem barn. Að sumar- lagi segist hún hafa farið nokkrum sinnum upp á Hérað og meðal ann- ars sótt þjóðhátíðina á Eiðum 1974. Að vetrarlagi er lítið um ferðalög úr Mjóafirðinum, enda er fjörðurinn þá ekki í neinu vegasambandi. Helst að það sé skroppið með póstbátnum á Norðfjörð fyrir jólin. En Anna seg- ist hafa farið að stunda svolítið ferðalög eftir að móðir hennar dó 1979. „Þá varð allt svo leiðinlegt að ég fór til þess að hrista það af mér, — annars hef ég alltaf verið heima- kær.“ Síðustu sumur hafa þau Jón Dan flakkað lítillega, komu meðal annars suður á Þingvöll í sumar og Anna á mýndir sem hún tekur sjálf úr öllum þessum ferðalögum. Það dylst engum sem talar við Önnu að hún og móðir hennar hafa verið afskaplega samrýndar og enn- þá minnist hún gömlu konunnar með söknuði. Hún segir sjálf að lífið hafi verið sér erfitt fyrst eftir að móðir hennar dó, — „og hefði alls ekki verið búandi hérna ef hann væri ekki,“ segir hún og lítur til Jóns Dan. „Þeir gerðu manni svolítið erfitt fyrir árið 1978. Þá fóru þeir að amast við sláturhúsinu hér og skylda okkur til að slátra á Norðfirði." Við erum farin að tala um búskapinn, kindurnar sem eru líf og yndi þessa sérstæða náttúrubarns. Önnu og ekki síður móður hennar líkaði það afar illa að þurfa að setja lömbin á þvæling með bát til Norðfjarðar, í stað þess að þær höfðu áður getað fylgt þeim yfir í sláturhúsið á næsta bæ. „Ég skrifaði yfirdýralækni, ef það mætti fást undanþága á einhvern máta, en það var ekki hægt. Pabbi hafði sagt að mömmu myndi líka það illa ef svona færi. Hún myndi þá ekki lifa lengi eftir þetta og það stóð heima. Hún hætti að vera með kind- tir sjálf og þá var stutt eftir." Leyfisveitingar kerfisins eru Önnu framandi og henni þykir skrýtið að kjöt sem var gott eitt árið þannig að allir sóttust eftir því, var nú orðið næstum því eitrað. Þó svo að Anna hafi neyðst til þess að senda lömbin með bát til slátrunar þá neitar hún alveg að fara þannig með fullorðnar ær. Þeim slátrar hún sjálf, handa sjálfri sér og kunningjum sem rétta að henni soðningu eða annað í stað- inn, þannig að það eru kaup kaups. Og Anna er ekki eini dýravinur- inn í fjölskyldunni. Hún segir okkur hróðug frá því að afi hennar, sem einnig bjó á Hesteyri, hafi einu sinni farið með kindur til Seyðisfjarðar til þess að selja þær til Englands — þangað sem féð var flutt með skip- um á fæti. En þegar gamli maðurinn kom aftur þá sagði hann sjálfur að þetta myndi hann aldrei gera aftur. Það hefði verið sér ofraun að horfa á eftir skepnunum í þennan velting. GET ORÐIÐ EINSETU- KERLING ÚR ÞVÍ SEM KOMIÐ ER Eiríkur föðurbróðir Önnu var svo einn sá fyrsti sem barðist fyrir því að kindur væru skotnar en ekki skorn- ar. Eiríkur þessi dó ungur og ókvæntur úr berklum en hafði þá áður byggt steinhús það sem Anna og foreldrar hennar bjuggu lengst af í. Nú standa þar brunarústir eftir eldsvoða árið 1977. Anna var þá stödd í fjárhúsunum og tókst við ill- an leik að bjarga móður sinni út en inni brann allt sem brunnið gat. Þeir sem komu í heimsókn í gamla húsið að Hesteyri lýsa því sem heimsókn inn á sérkennilegt aldamótaheimili, ferð inn í löngu liðinn tíma. Önnu kemur þetta í fyrstu svolítið spánskt fyrir sjónir þegar við berum þetta undir hana, en segir svo að allt hafi verið líkt því og Eiríkur frændi hennar skildi við það þegar hann dó 1920. En Eiríkur þessi hefur um margt verið sérkennilegur maður, því auk þess að vera dýravinur var hann mikill áhugamaður um blómarækt og hafði garð við húsið. Mörg blóm- anna tók hann svo inn yfir vetrar- mánuðina. „Nei, það var alls ekki al- gengt þá að fólk væri með hlóm, — og alls ekki algengt með karlmenn," segir Anna og talar af virðingu um þennan frænda sinn sem var ungur að árum þegar berklarnir tóku hann eins og fleiri áður fyrr. En líklega má að einhverju leyti rekja það til Eiríks að ennþá er stofan á Hesteyri þakin suðrænum blómum. Við endum spjallið við Önnu með því að skyggnast inn í framtiðina og spyrja þennan síðasta bónda á Hest- eyri hvort hún reikni með að bera beinin hér í Mjóafirði og hvíla meðal forfeðra og frænda í fjölskyldugraf- reit ofan við bæinn. „Maður veit aldrei hvað lífið ber í skauti sér. Nei, mig langar ekki í burtu og kannski getur maður alveg orðið einsetukerling, úr því maður er kominn yfir það versta. Nú, og svo veit maður aldrei nema þeir sprengi þetta allt saman í loft upp og þá verður nú hver kyrr þar sem hann er.“ HELGARPÓSTURINN 11

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.