Helgarpósturinn - 24.10.1985, Side 12

Helgarpósturinn - 24.10.1985, Side 12
JAFN- RÉTTIS- KONUR ERU GÓÐAR ÁSTKONUR segir skólastjóri á sextugsaldri í bókinni „íslenskir elskhugar" (slenskir elskhugar nefnist viðtalsbók sem Jóhanna Sveins- dóttir hefur tekið saman og kemur út hjá Forlaginu á næstunni. I bókinni ræðir hún við átján ónafngreinda íslenska karlmenn á aldr inum 20 til 75 ára um ástir þeirra og tilfinningamál. Karlmennirnir átján eru úr ýmsum áttum. Hér tala skólapiltur, sjómaður, fram- kvæmdastjóri, bílstjóri, skáld og lögfræðingur svo nokkrir séu nefndir. Með sanni má segja að allar stéttir eigi hér fulltrúa sinn. Hér tala Einsi kaldi úr Eyjunum og Fúll á móti, hreinir sveinar og flekkaðir segja frá lífi sínu, fráskildir karlmenn og skemmtistaða- folar í kvenmannsleit, hommar og ráðsettir margra barna feður. Karlmennirnir segja frá ástum sínum og kynlífi á opinskáan hátt. Þeir lýsa ástkonum sínum og hjónabandsreynslu, sumir rekja sína leyndustu drauma um konur, aðrir lýsa ástarlífi sínu með öðrum karlmönnum. Enn aðrir játa mömmu ást sína. Allir ræða mennirnir um vanda tilfinningalífsins og lýsa óttanum við að rísa ekki undir kröfunum um karlmennsku og hörku þegar best væri að hjúfra sig að næsta barmi og gráta. Oftar en ekki lýsa þeir erfiðleikum við að mæta kröfum nútímakvenna um ný kynhlutverk. Jóhanna Sveinsdóttir ritar inrigang að bókinni og gerir grein fyrir megintilgangi hennar: að vekja hispurslausar og einlægar umræður um ástir og tilfinningar karla, efni sem íslenskir karlmenn ræða sjaldnast ódrukknir nema í tvíræðni og hálfkæringi. Hér á eftir fara sýnishorn úr bókinni birt með leyfi höfundar og útgefanda. Fjörutíu og þriggja ára, tækni- menntaður; tvífráskilinn, tveggja barna faðir. Lenti í sjálfseyðingarvíti brennivínsins strax á unglingsárunum og uppgötvaði um þrítugt að hann hefði staðið í stað tilfinninga- lega. Þá hætti hann að drekka og tók í hnakkadrambið á sjálf- um sér. „Ég held að þetta hjónasamband hafi orðið til þess að gamla þrá- hyggjan um hóruna og gyðjuna hvarf úr vitund minni — því hafði ég áður alltaf verið að hitta konur sem ég umgekkst gjörsamlega eins og kjötskrokka og síðan konur sem ég gat ómögulega haft nokkurt líkam- legt samneyti við þótt ég væri of- boðslega hrifinn af þeim. En eftir að skilnaðurinn átti sér stað fyrir nokkrum árum hef ég verið einn míns liðs, á markaðnum sem kallað er. Ég hef hugsað með mér: Allt í lagi, þessir hlutir koma hægt og ró- lega. Og vegna þess að þetta sam- band var tiltölulega hamingjusamt er ekkert ofboð í mér. Ég veit að ef það á fyrir mér að liggja að búa með konu þá gengur það. Auðvitað eru mörg ljón á vegin- um, það er svo erfitt fyrir fólk að hlúa að ástinni. Það eru nánast pólitískir flokkar í landinu sem byggja þeirri grundvallarkenn- ingu að ástin sé hlekkir. Þar við bæt- ist allt þetta tal um samfaratækni og leikfimi. Lögleiðing ástarinnar í hjónabandinu gerir manni einnig erfitt fyrir svo og kynvillufaraldur- inn. Sumar konur gerast lesbískar af pólitískum ástæðum með viðeig- andi andsvari hjá viðkvæmum karl- mönnum. Maður verður dálítið svartsýnn við þessar aðstæður." — Pú fellur samt ekki fyrir freist- ingunni og byrjar aftur aö drekka? „Þegar maður hefur einu sinni lent í því að verða alkóhólisti verður maður að forðast það að lenda aftur í skelfingum brennivínsins. Besta ráðið til þess er að rifja upp líf sitt í smáatriðum og íhuga hvað gæti hugsanlega komið manni á fyllirí. Það sem helst gæti komið mér á fyll- irí er þegar eitthvað fer úrskeiðis í ástarmálunum sem er enn ein sönn- unin fyrir því hversu mikilvæg þau eru. Ég held að ég hafi ekki komið auga á þetta fyrr en ég hafði verið edrú í mörg ár. Og þegar ég gekk í gegnum skilnaðinn varð ég einmitt hræddur um að hann myndi skapa slíka ringuireið að ég myndi detta í það. Ljóst er að eftir að ég hætti að drekka hef ég meðvitað þurft að setja alls kyns hluti .á vogarskálar sem venjulegt fólk þarf ekki að hugsa um. Allt hjálpast við að styðja venjulegan mann sem lifir ham- ingjuríku hjónalífi með konu sinni. Samfélagið samþykkir lífshætti hans: hann á börn, lifir í frjóu sam- félagi við konu sína, þau sjá árangur samverunnar í börnum sínum, ein- hvers konar sköpun hefur átt sér stað. Ástin gengur ekki nema hún sé samsæri tveggja gegn heiminum. Hún er aldrei það sama og vinskap- ur. Vinir eru kynferðislega útilokað- ir. Eins er það með mig að hafi ég átt í ástarsambandi við konu er útilok- að að hún verði vinkona mín síðar. Það er ósköp eðlilegt því ást og vin- átta eru tilfinningalega séð tvennt ólíkt. Þú getur verið vinur einhvers sem þú hittir ekki í tíu ár en ástar- samband krefst ákveðinnar nær- veru vegna þess að ástin þrífst ekki nema virkt samband sé milli elsk- endanna. Ef þú finnur ekki neitt sem vísar fram á við í ástarsam- bandinu er það dautt. Vinskapur þarf hins vegar ekki að vera frjór, hann má vera ósköp hversdagsleg- ur. Hann getur stundum verið skemmtilegur og frjór en hann get- ur líka verið hreinlega leiðinlegur. Menn geta verð saman í leiðindum sínum jafnt sem gleði." — Huers vegna finnst þér ekki ganga aö eiga vináltusamband viö fyrrverandi ástkonur? „Ég hef reynt það en komst að raun um að það var tó'mt rugl. Það yrði í besta falli til að valda hvort öðru leiðindatruflunum í ástarsam- böndum síðar meir en í versta falli endar slíkt með skelfingu. Þegar fólk sem verið hefur elskendur ár- um saman slítur samvistum þá fylgja því þvílík átök — hafi það á annað borð lagt eitthvað í samband- ið — að það tekur langan tíma að gróa um heilt og þá er fólk komið langt í burtu hvort frá öðru. Hitt er svo líka til að fólk hafi sofið saman að nafninu til í þrjú ár en verið ó- kunnugt með öllu, þá getur það kannski orðið vinir. Þetta var vin- sælt á tímabili, þá áttu allir að vera í þeim leik að vera voða góðir vinir. En ég held að það hafi verið partur af hræsni tímans." Skólastjóri á sextugsaldri, frá- skilinn, nokkurra barna faðir. Sérkennilega sjarmerandi og segir að útlitsins vegna hafi hann á tímabili orðið eins konar tískuvara hjá kvenfólkinu, honum sjálfum til mikillar undrunar. „Á vissum tímabilum var ég bein- línis í leit að ástarsamböndum. Þá er maður kominn að þessu svokallaða fjöllyndi karla sem oft er talað um, eða þörf fyrir framhjáhald. Þar finnst mér oft að hlutirnir séu mis- skildir. Fjöllyndi giftra karla er oft túlkað á þann veg að þeir séu orðnir leiðir á kerlingunni sinni og langi í eitthvað yngra, að minnsta kosti eitthvað nýtt. Þessu er áreiðanlega oft þveröfugt farið, nefnilega þannig að hún er orðin kynferðislega leið á honum eða það finnst honum að minnsta kosti. Þetta getur bæði komið fram í stóru og smáu. Til dæmis hættir hún að svara kossum umhugsunarlaust utan fjögurra veggja. Þá fer hún að líta í kringum sig og athuga hvort einhver sjái til og því um líkt. I stað þess að vera til í kynmök nánast hvar sem er og hvenær sem er finnast alls konar meinbugir varðandi tíma og að- stæður: það er of kalt, það er of þröngt, það þyrfti að fara í bað áður og svo framvegis." — Lentiröu illþyrmilega í þessu í hjónabandinu? „Nei, ekki svo. Þessi tilfinninga- kuldi á síður við um fyrrverandi eig- inkonu mína en sumar aðrar. En það skiptir ekki máli hvaða kona á í hlut, maður veit alltént af fyrri reynslu að þetta er ekki annað en fyrirsláttur. Þetta getur verið einna lakast þegar hvorki er hægt að finna neitt að tíma né aðstæðum. Það er orðið hálfdapurlegt þegar þarf langan tíma til að velgja þá konu upp sem áður bráðnaði á augabragði í fang- inu á manni. Svo er það blátt áfram átakanlegt þegar blessuð konan er öll af vilja gerð en langar ekki sjálfa. Það dregur úr manni allan mátt. Það getur verið allt í lagi að eiga þannig kynmök í nokkur skipti ef maður er bara að svala fýsn sinni og er tiltölulega sama um konuna. En það er illþolanlegt til lengdar, sér- staklega ef maður elskar konuna og er meðal annars sólginn í þá ástúð sem er fólgin í gagnkvæmri kyn- nautn með henni. Það veldur bara sálarkreppu. En það er ekki hægt að álasa kon- unni fyrir þetta. Hún er einfaldlega hætt að hafa gaman af þessu líkam- lega á sama hátt og áður þótt henni geti þótt vænt um mann að öðru leyti og vilji halda í mann. Það er áreiðanlega illmögulegt fyrir konu að gera sér upp ástleitni, að minnsta kosti gagnvart þeim sem þekkir hana og man hvernig hún var þegar hún var ástfangin. Hitt er svo annað mál að ekki eru allar konur ástleitn- ar eða virkar þótt þær séu ástfangn- ar. Mér finnst óframfærni og skortur á frumkvæði algengustu gallar kvenna hvað kynlíf varðar. Ég verð þó að segja að jafnréttissinnaðar konur eru samt öðrum skemmti- legri að þessu leyti." — Og þú hefur þá væntanlega fremur dregist aö þeim en öörum konum? „Já, ég hef alltaf dregist meira að sjálfstæðum konum og hef alltaf verið fremur hlynntur jafnréttisbar- áttunni ef hún er ekta eins og ég kýs að orða það. Enda lá við að hún bjargaði hjónabandi mínu fyrir horn. Konan mín þáverandi varð nefnilega svo miklu betri í skapinu og ánægðari með sjálfa sig eftir að hún fór að finna mátt sinn í þessari baráttu. Og reynsla mín er sú að raunverulegar jafnréttiskonur séu yfirleitt ljómandi góðar ástkonur. En þegar maður er í sambandi við konu og hefur lengi farið á mis við ástleitni hennar þá byrjar maður smám saman að venjast undan ef svo má segja, eins og lamb undan á. Þessi svokallaða sálarkreppa getur jafnvel valdið þvð að maður verði getulítill, geti illa stjórnað sér við kynmök, þá sjaldan þau eiga sér stað. Þá verður konan eðlilega fúl þegar hún ætlar að fá eitthvað út úr þessu. Svo lenda hjónin í vítahring og byrja að fælast hvort annað. Svo hættir maður að standa í þessu. Og þegar ég hitti síðan konu sem girnist mig og vefur sig næstum um mig eins og slanga, þá er það eins og endurnýjun lífdaganna. Maður var jafnvel búinn að gleyma hvernig það var að vera elskaður. Ef þessi kona er þar að auki skemmti- leg og hefur svipað skopskyn og maður sjálfur getur það leitt til þess að maður verður ástfanginn. Þá fer ýmislegt að gerast: snerting lófanna verður eins og ráfstraumur og munnvatnið verður sætt. Ég tel víst að karlmenn séu afar tregir til að játa það fyrir sjálfum sér, hvað þá öðrum, að þetta ástúðar- leysi eiginkonunnar sé ástæðan fyr- ir framhjáhaldi þeirra. Það verkar voðalega særandi fyrir stoltið. I stað þess taka þeir beint eða óbeint und- ir gömlu tugguna um fjöllyndið. Það er ugglaust stundum rétt en ég hef grun um að hitt sé algengara. Það er ekki svo að skilja að ég hafi lent illa í þessu sjálfur en þó hef ég kynnst þessu nógu vel til þess að ég þykist skilja þetta. Eftir að þetta kom fyrir mig fór ég að skilja ýmsar hálf- kveðnar vísur sem ég hafði heyrt frá mörgum karlmönnum og ég hafði bókstaflega ekki skilið hvað þeir áttu við.“ 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.