Helgarpósturinn - 24.10.1985, Page 20

Helgarpósturinn - 24.10.1985, Page 20
LEIKLIST Lesfluttar valkyrjur Þjódleikhúsið, Litla sviðið: Leiklestur á Listahátíð kvenna. Valkyrjurnar eftir Huldu Ólafsdóttur í leikstjórn höfundar. Flytjendur: Edda Þórarinsdóttir, Randver Þorláksson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Herdís Þorvalds- dóttir, Baldvin Halldórsson. Það var skemmtileg nýbreytni sem Þjóð- leikhúsið bryddaði uppá í síðustu viku, að láta lesa leikrit í Leikhúskjallaranum. Reyndar hefur þetta verið gert einusinni áður fyrir nokkrum árum, en ekki var fram- hald á þvi þá. Leiklestur veitir tækifæri til þess að flytja ný eða forvitnileg leikrit, án þess að leik- húsið kosti öllu því til sem þarf við uppsetn- ingu heils leikrits. Leikrit geta vissulega vg'- ið forvitnileg, þó svo að þau þyki ekki sér- lega girnileg til uppsetningar. Leiklestur gæti því vel verið fastur liður í fjölbreyttri leikhús- starfsemi. Hæpið er reyndar að þessi flutn- ingsmáti eigi sér mjög stóran áheyrendahóp, en nægjanlegur ætti hann þó að vera, ef efn- ið er vel valið, til þess að lesa megi nokkrum sinnum. Leikritið sem upp var lesið er eftir höfund sem ekki hefur áður kvatt sér hljóðs á þess- um vettvangi. Eins og nafnið bendir til fjallar verkið mest um konur. Það eru liðin tíu ár síðan vinkonurnar stofnuðu kvennabaráttu- klúbbinn Valkyrjurnar. En það gerist margt á skemmri tíma og margar vinkvennanna hafa horfið sjónum en klúbburinn þróast í að verða venjulegur saumaklúbbur (kjafta- klúbbur). Ein af þeim gömlu sem horfin var úr klúbbnum, en er orðin þingmaður, kemur óvænt til að minna á afmælið, sem hinar voru búnar að gleyma og spinnst út frá því mikil orðræða um upphaflegan tilgang klúbbsins, um kvennabaráttuna og þau mis- munandi viðhorf sem vinkonurnar hafa nú. Reyndar sýnast þær allar vera í nokkurri andstöðu við þingmanninn og finnst óþægi- legt að láta minna sig á baráttumálin. 1 þessu efni er vissulega margt sem skoð- unar er vert og gefur tilefni til að skoða fortíð og nútíð. Myndin sem sýnd er sýnist eitthvað á þá leið að flestar hafi vinkonurnar gleymt baráttumálunum en séu nú á fullu í lífsgæða- kapphlaupinu. Þetta má vissulega allt til sanns vegar færa, en ég held að þessi saga, eða saga af þessu tagi, verði varla sögð á sviði nema að hún kristallist með skýrum hætti í örlögum þeirra persóna sem við sögu koma. Við fáum ósköp lítið að vita um þessar konur, nema eina, þá sem heldur boðið, en það er of lítið til þess að sagan verði virk á sviði. Það er einnig fremur klén leið að segja þessa sögu í orðræðu eina kvöldstund, án neinnar framvindu sem snertir þessar per- sónur á sviðinu. Areksturinn sem verður á sviðinu er uppgjör á milli mæðgna, þeirrar sem heldur boðið og mömmu hennar, en mamman hefur allt í einu fundið nýjan mann og yfirgefið pabba fyrir austan, en það þolir dóttirin alls ekki, þrátt fyrir allt frjálslyndis- tal. En þessi árekstur nær ekki að bera uppi umræðuna sem á undan er farin, þó þar sé vissulega efni á ferðinni sem gera má sér mat úr. Það eru mörg ágæt móment í verkinu sem mætti gera sér góðan mat úr á sviði og nutu þau atriði sín ágætlega í lesflutningiium, sem var í heildina lifandi og skemmtilega fram borinn. POPP Óskabörn blaðamanna FABLES OF THE RECONSTRUCTION - R.E.M. Útgefandi: IRS/Steinar. R.E.M. er hljómsveit, sem er allrar athygli verð. Nokkrir kunningjar mínir hafa haldið nafni hennar alllengi á lofti og ekki sparað bestu lýsingarorðin, þegar nafnið R.E.M. bar á góma. Sannast að segja skildi ég ekki þessa taumlausu aðdáun fyrr en nú fyrir stuttu, þegar ég gaf mér loks almennilegan tíma til að hlusta á plötuna, sem er hér til umfjöll- unar. Það er sumsé ekki nóg að setja plötu með R.E.M. á fóninn og láta hana svo ganga. Það verður að leggja almennilega við hlust- irnar líka. Það eru ekki aðeins nokkrir kunningjar mínir úr plötusnúðastétt, sem hafa komið auga á kosti tónlistar R;E.M. (ef svo aulalega má að orði komast). Úrvalslið bandarískra tónlistarblaðamanna hefur marglýst yfir hrifningu sinni, og meira að segja hefur einn og einn Breti haft í frammi ástarjátningar. Og þá er nú oft eitthvað vafasamt á ferðinni, þegar þeir hrósa amerískri tónlist. Þrátt fyrir allan hrósyrðaflauminn í virtum blöðum jafnt sem ómerkilegum, hefur al- menningur enn ekki tekið almennilega við sér. Plötur R.E.M. seljast þokkalega, en ekk- ert meira. Enn er Iangt í, að fyrsta platínu- platan verði negld upp á vegg hjá liðsmönn- um hljómsveitarinnar. Því miður er ég smeykur um, að Fables Of The Reconstruc- tion eigi ekki eftir að laga stöðuna að neinu ráði. Strákarnir í R.E.M. láta sér vinsældir eða óvinsældir í léttu rúmi liggja. Þeir Michael Stipe, Peter Buck, Mike Mills og Bill Berry frá Aþenu í Georgíu eru bara að skemmta sjálf- um sér. Það er svo sem ekkert verra, að skemmtunin gefi eitthvað af sér í aðra hönd, en ekkert aðalatriði heldur. R.E.M. er aðeins fimm ára gömul, — stofn- uð að vori 1980. Peter Buck hafði skömmu áður keypt sér fyrsta gítarinn, svo að leikur hans var ekki burðugur framan af. Á þessum fáu árum, sem liðin eru, hefur pilti þó farið heldur betur fram. Eitt helsta einkenni tón- listar R.E.M. er einmitt „þykkt lag“ gítar- leiks, bæði rafmagnaðs og órafmagnaðs. Michael Stipe söngvari setur einnig svip á tónlist R.E.M. Söngurinn er reyndar daufur á köflum og hljóðblandaður svo aftarlega, að orðaskil greinast varla. Raddbeitingin er einnig sérstök og tilviljunum háð. Einna helst dettur manni í hug, að hún fari eftir því, í hvaða skapi Stipe sé, þegar hann syngur þetta eða hitt lagið. — Þessi lýsing á tækni söngvara R.E.M. gæti hljómað sem argasta last, en er síður en svo ætlað að vera það. Stipe kann Iagið á að beita einhverjum sjarma, sem fellur prýðilega að tónlist félaga hans. Michael Stipe semur einnig texta við lög hinna. Ég reyndi að hlusta eftir þeim, en skildi ekki ýkja mikið. Aðdáendur R.E.M. og ýmsir gagnrýnendur hafa hrósað textum Stripes í hástert, liðsmönnum hljómsveitar- innar til óblandinnar kátínu. Oft á tíðum segja þeir ekki neitt og eru aðeins uppfylling til þess að tónlistin sé ekki instrumental. Sem eitt hljóðfærið í viðbót hljómar rödd Stripes því ágætlega í heildarmyndinni. Ekkert laganna ellefu á Fables Of The Reconstruction á eftir að komast hátt á vin- sældalista. Þau eru svo sem ekkert verri fyrir það. Laglínur eru eiginlega hvorki ómþýðar né -stríðar, heldur einhvers staðar mitt á milli. — Tónlist R.E.M. til þessa hefur verið mun poppaðri en á nýju plötunni. Útsetn- ingar eru hins vegar með ágætum. Fiðlur, selló og blásturshljóðfæri eru sparlega notuð, en setja fágaðari svip á tónlistina en ella hefði orðið. Sé Fables Of The Reconstruction borin sam- an við það, sem ég hef heyrt af eldra efni með R.E.M., þá heyrist mér skrattakollunum fjórum vera meiri alvara nú en nokkru sinni áður. Við skulum bara vona, að þeir fari ekki að taka sig of alvarlega. Þá er fjandinn laus. JAZZ Kunstmaler Ólafsson og Montmartre Kaupmannahöfn í september og Jazzhus Montmartre opið á hverju kvöldi. Rétt áður- en ég kom til Hafnar léku George Adams og James Blood Ulmer þar og rétt eftir að ég yf- irgaf borgina komu góðvinir íslenskra djass- geggjara í bæinn: John Scofield og Steve Swallow. Samt var af nógu að taka og fyrsta kvöldið hélt djassfjölskylda Linnets og Ólafs- sonar í Montmartre að hlýða á Jazzvél trommarans Elvin Jones, eftir að hafa gætt sér á þjóðfrægum rétti kunstmalerens í Stampesgade. Sá birtist í Helgarpóstinum á sinni tíð: djasskrydduð svínarif með íslensk- um rauðum. Elvin Jones er einn af höfuðsnillingum djasstrommunnar og verk hans með kvart- etti John Coltranes aldrei fulllofuð. Trommu- leikur meistarans sveik þó engan en það gerði hljómsveitarstjórn hans. Pat La- Barbera og Sonny Fortune blésu í saxana, Fumio Itabashi sló píanóið einsog Don Pullen á vitlausum hraða, enda flest undar- legt á þeim japanska bæ. Bassaleikari var Chip Jackson og meir er ekki um það að segja. LaBarbera hefur aldrei höfðað til mín en hart boppið hans er kunnáttusamlega blásið. Þetta kvöld breytti engu þar um. Aft- urá móti bætti Sonny Fortune nýjum drætti í þá mynd sem ég hafði gert mér af honum. Ljóðrænt næmi hans og frjór spuni var and- hverfa hinna einleikaranna. Elvin nálgast brátt sextugt og þyrfti að komast í hljómsveit hjá einhverjum stórsnillingnum áðuren yfir lýkur. Ágætir vinir okkar voru ekki að spila þá viku er ég dvaldi í Höfn. Niels-Henning hafði sent frúna til London og gætti bús og barna og leitaði lækninga við bágu hnéi — þó bú- inn að ná sér eftir afmæli Jazzvakningar. Ole Kock og Etta Cameron æfðu stíft fyrir kirkju- tónleika og Óli búinn að fá nýja hugmynd um íslensku þjóðlögin. Þau skal hljóðrita með djasstríóinu auk tvöfalds strengjakvartetts. Vonandi fást bæði danskir og íslenskir styrk- ir til þess verks! Afturá móti var Jens Winther að leika á Montmartre með kvintett sínum: Jens Winther/Tomas Frank Kvintet. Tomas er tenóristi og lítur út einsog sá ágæti mynd- listarmaður Örn Karlsson. Voldugur á sviði sem í blæstri. Píanistinn var Ben Besiakov, kraftmikill gosstílisti. Afturá móti var rýþmi Niels Guffi Pallesens og Soren Christiensens heldur máttvana í það minnsta ef maður minntist Péturs Östlunds er djammaði með Winther hér á klakanum þegar djassfestí- valið geysti. Allt er þegar þrennt er og þriðjudaginn 1. október var fríður flokkur Islendinga mætt- ur í Montmartre til að hlusta á altistann Richie Cole. Þetta var fyrsta heimsókn hans til Kaupmannahafnar og hefði húsfyllir varla komið á óvart. Svo var þó ekki enda Danir kannski ekki eins handgengnir altistanum og íslenskir er tvívegis hafa barið djassþátt með honum augu í elsku sjónvarpinu. Richie Cole er hressilegur bíboppari. Leikgleðin er aðal hans, krafturinn og lífsfjörið. Með hon- um voru píanistinn Richard Hindman af Petersonættinni, bassistinn Paul Warburton og trommarinn Colin Bailey. Það var mikill munur á sveitum Elvin Jones og Richie Coles Þeir Colebúar voru ekki betri hljóðfæraleik- arar nema síður væri, en þeir elskuðu að spila, þreytuna var hvergi að finna, hvert verk var ný upplifun og leikgleðin smitaði hlustendur og brátt var einsog hálftómur sal- urinn væri pakkaður. Þeir Richie og Pat La- Barbera léku saman í Buddy Rich bandinu þegar Bob Magnusson var þar á bassa. Þá var líka þúsundsinnum meiri kraftur í Richie en Pat. Að konsert loknum stóðu piltarnir veglausir uppi. Þeir voru svangir og vissu ekkert hvert halda ætti. En enginn er settur á guð og gaddinn þegar kunstmaler Ólafsson er nærstaddur og innan tíðar sátum við ís- lenskir og bandarískir í góðum fagnaði, borðandi pizzu og drekkandi bjór. Og heimurinn er lítill. Allir þekktu þeir Bob Magnusson og trommarinn gráhærði hafði leikið með Árna Egilssyni. Vonandi á Richie Cole eftir að heimsækja ísland. Hann fílar örugglega íslenska djassgeggjara og þeir hann. Stundum eru fréttir lengi að berast — meirað segja á fjölmiðlaöld. Ég frétti ekki fyrren októberheftið af down beat að altó- saxafónistinn Chris Woods væri látinn. Hann dó þann 4. júlí sl. úr krabbameini aðeins 59 ára gamall. Chris er okkur íslenskum djass- geggjurum að góðu kunnur því hann kom tvívegis hingað: í fyrra skiptið með stórsveit Clark Terrys og í seinna skiptið ásamt konu sinni Lynnet Woods, sem sló trommur. Þau eftir Vernharð Linnet léku ásamt Guðmundi Ingólfssyni og Arna Scheving svoog Kristjáni Magnússyni á Hótel Sögu. Chris Woods var minnisstæður í Clark Terry bandinu. Þar var hann fremstur ein- leikara ásamt hljómsveitarstjóranum og þeir fóru oft á kostum. Það var einsog tónlistin lyftist á æðra stig þegr Chris blés sólóa sína eða blés dúetta með Clark Terry. Chris var mikill stórsveitargaur og fyrir ut- an að leika í sveit Clark Terrys lék hann með Dizzy Gillespie og Count Basie. Hann dvald- ist löngum í Evrópu og þar fékk hin ljóðræna náttúra hans að blómstra og þá greip hann gjarnan til flautunnar. En það hafa fleiri djassmenn kvatt okkur undanfarið og meðal þeirra þrjú stórstirni: trompetleikarinn Cootie Williams er lést 15 september og trommararnir Jo Jones er lést 3. september og Philly Joe Jones er lést 30. ágúst sl. Cootie var löngum höfuðeinleikari DukesEllingtons og eitt frægasta verk meist- arans var skrifað fyrir hann: Concerto for Cootie, sem frumflutt var 1940. Jo Jones var trommari Count Basie frá 1935 til 1938 og var ekki síst ábyrgur fyrir sveiflunni í Sveiflu- vélinni miklu einsog Basie bandið var kallað — Elífðarvél sveiflunnar, sagði Jón Múli. Ætli önnur eins hrynsveit hafi nokkru sinni leikið saman einsog Count, Jo, Freddie Green og Walter Page. Philly Joe Jones var það fyrir nútímadjassinn sem Jo Jones var fyrir sveifl- una og best munum við hann í hljómsveitum Miles Davis. Eitt af nýjustu verkum hans var stórkostleg breiðskífa með ópusum Tad Damerons. 20 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.