Helgarpósturinn - 24.10.1985, Side 28
Talið er nær frágengið að Frid-
jón Guðrödarson sýslumaður á
Höfn Hornafirði, taki við sýslu-
mannsembættinu á Hvolsvelli, sem
dómsmálaráðherra, mun senn
veita. Hér er um að ræða embætti
það, sem Böðvar Bragason, hinn
nýi lögreglustjóri Reykvíkinga,
gegndi. Reiknað er með því að fleiri
verði um Hvolsvallarembættið, en
kunnugir telja að Friðjón hljóti nær
örugglega hnossið, er framsóknar-
maður og í ofanálag vel látinn
embættismaður eftir langa og góða
þjónustu á suðausturhorni lands-
ins...
D
■■^eilurnar 1 Bandalagi jafnað-
armanna hafa verið allharðar upp á
síðkastið og deilumenn talað út í
fjölmiðlum. Núna bregður hins veg-
ar svo við, að deilurnar í BJ virðast
hafa vikið fyrir nýjum deilum, nefni-
lega deilum í Félagi jafnaðarmanna,
félagi „fornaldarkratanná', eins og
Kristófer Már Kristinsson kallaði
andófshópinn. Þannig virðist t.d.
Kolbrún Jónsdóttir þingmaður
vilja halda friðinn í þingflokki BJ en
félagar hennar í Félagi jafnaðar-
manna ekki. Hins vegar bíða menn
nú spenntir eftir því hvort þær stöll-
ur Kolbrún og Kristín Kvaran
muni ganga til liðs við hina eigin-
legu krata á þingi. Sagan segir, að
Jón Baldvin myndi svosem
„þiggja" þær sem liðsmenn í þing-
flokkinn, en ekki meir. Þannig sé
það fyrirfram ljóst, að þær fengju
aldrei að fara í framboð fyrir AI-
þýðuflokkinn...
S__™...............
fólks — Byggung — hefur boðið
fólki 30% ódýrari íbúðir en gengur
og gerist á markaðnum. Nú mun
fyrirtækið hins vegar vera komið í
mikla greiðsluerfiðleika og heyrum
við að skuldir Byggungs nemi tug-
um milljóna króna. Ennfremur er
því fleygt að fyrirtækið muni fara
fram á greiðslustöðvun í náinni
framtíð. ..
D
■ mannsókn FMC, Federai
Maritime Commission, í Washing-
ton D.C. í Bandaríkjunum á í hugs-
anlegum ólöglegum viðskiptahátt-
um íslensku skipafélaganna miðar
hægt og langt í að niðurstöður liggi
fyrir. Hins vegar hefur HP öruggar
heimildir fyrir því, að þegar hafi
rannsóknarmenn FMC komist á
snoðir um lögbrot a.m.k. eins skipa-
félaganna og er um að ræða óleyfi-
legan afslátt af skráðu farmgjaldi.
Ólíklegt er talið, að farið verði í mál
vegna þessa atriðis. Skipafélagið,
sem mun hafa brugðið út af settum
reglum er Hafskip. ..
A
IUJ lAlbcrt Guðmundsson er
ekki á því að láta neitt það af hendi,
sem hann hefur einu sinni náð að
festa. Þannig lét hann aldrei fjár-
málaráðherrastólinn ganga til eftir-
manns síns t embættinu, Þorsteins
Pálssonar, heldur flutti stólinn með
sér yfir í iðnaðarráðuneytið. Og
meira um stólamál Alberts. Nú hafa
þingmenn tekið eftir því að Albert
situr sem fastast í sínum gamla fjár-
málaráðherrastóli í þinginu, en ráð-
herrastólum þar er raðað eftir virð-
ingarsessi þeirra. Þorsteinn verður
hins vegar að blta í það súra epli að
vera settur á ysta bekk. Nei, Albert
gefur sig ekki fyrr en í fulla hnef-
ana...
Við rýmum fyrir nýjum birgðum.
Og þess vegna er lambakjöt ennþá
fáanlegt á gamla verðinu.
Á meðan birgðir endast gefst þér
tœkifœri til þess að fylla frystihólfin
af úrvalskjöti á einstœðu verði.
Það er góð búmennska!
Líttu við í nœstu verslun.
Látt’ekki gott
úr greipum renna!
**$£$**&
28 HELGARPÓSTURINN