Helgarpósturinn - 19.06.1986, Qupperneq 3
FYRST OG FREMST
ÞAÐ mun vera mikil tíska að
halda keppnir til að velja hin og
þessi andlit og meta vaxtarlag
kvenna og hæfni til að standa fyr-
ir framan myndavélar, en lengst af
hefur vinstri mönnum þótt allt
slíkt hinn aumasti hégómi, og
kvenfyrirlitleg iðja. Meira að segja
var svo fast kveðið að í andstöð-
unni gegn svona keppnum hér í
den að sagt var að stúlkurnar sem
tækju þátt í slíku væru aum verk-
færi gróðaaflanna og kapítalist-
anna. En nú ber svo við að dætur
nokkurra vinstri manna eru meðal
stúlkubarnanna sem taka þátt í
Ford- og Elítukeppnum. Má þar
m.a. nefna Valgerdi Backmart,
annan sigurvegara í Fordkeppn-
inni en hún er dóttir Arnmundar
Backmans lögfræðings og Val-
geröar Bergs myndlistarkonu. Eitt-
hvað hefur maður því á tilfinn-
ingunni að pólitískt uppeldi á
þeim bæ hafi skolast til.. .
AF fleiri börnum vinstri
manna í svona fegurðarkeppnum.
Snœíríður heitir dóttir Jóns krata-
kóngs Balduins og Bryndísar og
hún tekur þátt í svokallaðri
„Elítu-keppni, þó ekki menn-
ingar-„elítu-keppni heldur feg-
urðar-„elítu-keppni. En þar
bregður þeim sem óvinveittir eru
fegurðarsamkeppnum ekki eins
mikið því eins og öll þjóðin veit
var Bryndís á sínum tíma fegurð-
ardrottning íslands en fékk að vísu
skömm í hattinn frá vinstrisinn-
uðum vinum sínum, m.a. Ragnari
Arnalds sem sagði henni að
skammast sín...
ÍÞRÓTTAFRÉTTA
mönnum Dagblaðsins hefur orðið
býsna tíðrætt um tengsl íþrótta, og
þá einkum fótbolta, við hinn
háskasamlega heim stjórnmál-
anna. Þessi vandi hefur greinilega
vafist svolítið fyrir hinum ágætu
íþróttaskríbentum Dagblaðsins, en
nú hafa þeir greinilega komist að
niðurstöðu (kannski með hjálp
Ellerts B. Schram ritstjóra, for-
manns Knattspyrnusambands
íslands, alþingismanns og fyrr-
verandi fótboltahetju). Fyrir fá-
einum dögum mátti til dæmis lesa
í Dagblaðinu þessa athyglisverðu
niðurstöðu: ,,.. . öllum landsliðs-
mönnum Brasilíu hefur verið
bannað að tala um stjórnmál en
eins og allir ættu að vita þá fara
stjórnmál og íþróttir ekki saman."
Undir þetta skrifar íþróttafrétta-
maður sem skammstafar sig SK„
og kollegi hans; hsím, er greinilega
á sama máli, því í Dagblaðinu á
miðvikudag hampar hann þessari
sömu skoðun — að stjórnmál og
knattspyrna eigi ekki samleið. Það
er kannski ein af þessum skrítnu
tilviljunum að tveir síðustu for-
menn Knattspyrnusambandsins
hafa verið þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, og reyndar hafa tveir
síðustu formenn íþróttasambands
íslands verið borgarfulltrúar þess
sama flokks ...
ÞETTA ER Ragnar Árnason,
formaður stjórnar Útgáfufélags
Þjóðviljans. Honum var ekki vel
við að teknar væru myndir af
stjórn Útgáfufélagsins fyrir fyrsta
fund nýrrar stjórnar mánudaginn
16. júní. Össur Skarphéðinsson
hafði leyft töku myndar af öllum
hópnum saman. Og af orðum
Svavars Gestssonar, formanns Al-
þýðubandalagsins, var ekki annað
að skilja en í lagi væri að taka
mynd af útgáfustjórninni.
SÁ ÁGÆTI klúbbur Lista-
hátíðar var mjög í sviðsljósinu í
síöasta Helgarpósti, enda gekk þá
á ýmsu á þeim bæ, þar völsuðu
um löggæslumenn sem hikuðu
ekki við að reka menningarvita og
listaspírur á dyr, sumar hverjar
algjörlega þurrbrjósta. Listahátíð
vildi sumsé reka næturklúbb með
tilheyrandi áfengisþambi, en
yfirvöld vildu ekki leyfa Listahátíð
að hafa næturklúbb. Því stakk
Helgarpósturinn upp á þvi í
síðasta blaði að réttir aðilar kipptu
í rétta spotta svo allt gæti farið
sem réttast fram. Við báðum
Hrafn Gunnlaugsson að hringja í
Davíð sem síðan hringdi í Þorstein
Pálsson sem aftur hringdi í
Steingrím sem hringdi í Jón
Helgason dómsmálaráðherra sem
tæki upp símtólið og hringdi í
flokksbróður sinn lögreglustjóra.
Þessi hugmynd virðist hafa verið
gripin á lofti því á fimmtudags-
kvöldið, sama dag og Helgar-
pósturinn kom út, var óvenju
blómleg starfsemi í klúbbi
Listahátíðar, opið til þrjú og
barinn líka. Segiði svo að maður
hafi ekki áhrif. . .
HELGARPUSTURINN
Kafskip
Rannsóknarlögreglan hefur í hótunum,
Hafskipsbókhaldio kannar fró rótunum,
stjórnin er orðin óstyrk ó fótunum,
því iðnaðarróðherra er með ó nótunum.
Niðri
UMMÆLI VIKUNNAR
tilefni dagsins œtla ég aö fjalla um stjörnukort lýð-
veldsins Islands. Til er sú tegund stjörnuspeki sem
fjallar um þjóðfélög... Þegar á heildina er litið er kort
lýðueldisins fslands kraftmikið og stórhuga. Undirrit-
aður vill óska Islendingum til hamingju með daginn."
- „STJÖRNUSPEKINGUR" MORGUNBLAÐSINS,
GUNNLAUGUR GUÐMUNDSSON, I DÁLKI SÍNUM SEM
BIRTIST Á SAUTJÁNDA JÚNi.
SMARTSKOT
Ertu ekki orðinn
spenntur?
Bjarni Felixson, íþróttafréttamaöur og
íslandsmeistari í beinum útsendingum
„Jú, jú, ég er orðinn þrælspenntur."
— Er þetta ekki ansi lýjandi svona dag eftir dag (fyrir-
spyrjandi hafði vakið Bjarna)?
„Jú, þetta er lýjandi. Maður reynir að leggja sig svona
klukkutíma af og til. Maður verður að vera stöðugt í gangi og
tímamismunurinn er ansi slæmur. Ég nýt aðstoðar Dana í þessu
og þar á milli er tveggja tíma munur í aðra áttina, en sex tíma
munur í hina áttina, til Mexíkó. Þetta er stundum erfitt."
— Þú hefðir sjálfsagt kosið að lýsa beint frá Mexíkó?
„Nei. Ætli ég hefði ekki bara fengið magakveisu þar eins og
svo margir. Mér líst betur á að vera hér í þuluherbergi en að vera
á klósetti í Mexíkó. Svo eru fjarlægðirnar svo miklar að ég hefði
sennilega ekki komist yfir þetta."
— Nú á að fara að kanna hversu margir horfa á beinu
útsendingarnar frá Mexíkó. Óttast þú nokkuð niður-
stöðurnar?
„Nei. Ég fylgist reyndar ekki með hversu margir horfa á
þetta, en maður heyrir að þeir muni vera fjölmargir og ég held
reyndar að það fari ekki á milli mála."
— Er fjöldi auglýsinga kannski einhver vísbending?
„Auglýsendur hafa verið seinir að taka við sér, kannski of
seinir. Nú eru þeir eitthvað að knýja á um að komast að, en þetta
þarf auðvitað sinn fyrirvara. Ég get nefnt að síminn hefur hringt
villt og galið í morgun, menn sem vilja auglýsa þegar Danir
leika."
— Er fyrir hendi nokkur tregða hjá forráðamönnum
Ríkisútvarpsins að fara út í svona prógramm?
,Já. Ég skal ekkert fullyrða um ástæðuna, sennilega telja
þeir þetta of tímafrekt. Ég segi eins og er að það sem hefur
þreytt mig hvað mest er að reyna að koma þessu til skila. Þeir
virðast ekki hafa trú á vinsældum þessa efnis. Ég vona þá að
þessi könnun leiði í Ijós sannleikann um að þetta er mesta sjón-
varpsefnið á þessu ári. Úr því að það er tæknilega mögulegt að
sinna þessu þá ber hiklaust að gera það."
— Hvernig hefur þér þótt knattspyrnan á mótinu?
„Hún hefur verið misjöfn. Þó er maður þarna að sjá knatt-
spyrnu sem er hin besta í heiminum og hún hefur að mér finnst
batnað talsvert eftir að riðlakeppninni lauk og sextán liða úrslit-
in hófust. í riðlakeppninni voru liðin of varkár, hugsuðu rnest
um að tapa ekki, en nú vita þau að ekki dugir annað en að
vinna. Þetta hefur sem sagt verið misjafnt, en ég vil svo nefna
að mér hefur fundist of mikil harka vera í þessu á köflum."
— Hverjir heldur þú að sigri?
„Nú veit ég ekki, ég hef lengi haft trú á Brasiku og ég hygg
að þeir komist í úrslit, þeir hafa enn ekki sýnt hvað raunverulega
býr í þeim. Frakkar eru reyndar til alls líklegir, en þessi lið leika
saman næst þegar þau keppa og verða því ekki í úrslitaleikn-
um. Nú, ég held að það fari ekki á milli mála að Danir eru með
mjög skemmtilegt lið, hið lang skemmtilegasta að mínu mati.,
Við getum sagt að óskaúrslitaleikurinn hjá mér sé Brasilía á
móti Danmörku."
— Hvaða mörk hafa verið fallegust hingað til? Hvaða
leikmenn hafa staðið upp úr?
„Ég víl fyrst nefna mark Josimars hins brasilíska gegn
Norður-irum í riðlakeppninni; mér hlýnar alltaf um hjartarætur
þegar ég sé bakverði skora falleg mörk. Það er af nógu að taka,
ég nefni fyrstá mark Sovétmannsins Belanov gegn Belgíu,
mark Negreta hjá Mexikó gegn Búlgörum og loks mark Step-
han de Mol hjá Belgíu gegn Sovétríkjunum. Þeir leikmenn sem
hafa staðið upp úr eru helst Maradona, að sjálfsögðu, Platini,
Cesar hjá Brasilíu og hægri bakvörður Vestur-Þjóðverja,
Thomas Berthold."
— Að lokum Bjarni, þú þykir ekki fþróttamanna líf-
legastur í útsendingunum, þér hefur ekki dottið í hug
að sækja sérstök námskeið?
„Nei, þaðhefur mér ekkidottið íhug. Ég tek þessum útsend-
ingum ekki sem gríni, heldur alvöru. Ég er ekki skemmtikraftur,
heldur bara aðstoðarmaður í aukahlutverki og mér dettur ekki
í hug að draga athyglina frá leikjunum sjálfum, þá væri ég að
fara út á hálan ís."
Bjarni Felixson er sennilega mest áberandi af sjónvarpsmönnum um
þessar mundir. Dag eftir dag færir hann okkur heim í stofu hitann
og svitann frá Mexíkó, þar sem rúmlega 500 knattspyrnumenn hófu
úrslitamót heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Þetta kunna senni-
lega flestir vel að meta, en þó eru forráðamenn Ríkisútvarpsins eitthvað
efins, því nú ætla þeir að efna til sérstakrar könnunar á því hversu margir
horfa á beinu útsendingarnar. Við tókum, Bjarna tali.
HELGARPÓSTURINN 3