Helgarpósturinn - 19.06.1986, Side 11
menntamálaráðuneytið og hrepps-
yfirvöld vestra ekki vitað um brúar-
byggingu sem stóð ekki einu sinni til
þegar skólinn var byggður, og hana
nú. . .
A
enn einum stað á Vestfjörð-
um eru menn ríkir af skólum. Það er
í Kaldrananeshreppi á Ströndum
(næstur sunnan við Árneshrepp).
Þar eru tveir skólar, annar í byggða-
kjarnanum að Drangsnesi og hinn
í Bjarnarfirði. En kunnugir segja
okkur að þetta sé næsta eðlilegt —
í almennilegum vetri sé allt kol-
ófært innan sveitarinnar og alveg
vonlaust mál að komast út úr
henni...
l blaðinu í dag er fjallað um
skólabyggingar og fáránleika við
byggingu margra þeirra. Sá pottur
er samt engan veginn þurrausinn.
Þannig hefur HP verið bent á barna-
skólabyggingu að Núpi í Dýrafirði
sem sumum heimamönnum, og
öðrum sem til þekkja, hefur þótt
einkennandi fyrir bruðl og vitleysu
í arkitektúr. I hreppnum eru börn á
barnaskólaaldri innan við tíu og því
sýnt að ekki þyrfti stóran skóla. Áft-
ur á móti þurfti veglegan skóla-
stjórabústað og var hann byggður
ofan á skólann, gólfflötur miklu
stærri en á neðri hæðinni og að
hluta til haldið uppi með miklum
súlum. Já, veglegt slot það. Nú, eftir
að Héraðsskólanum að Núpi hefur
verið lokað dettur mönnum í hug að
þá þróun hefði mátt sjá fyrir þegar
barnaskólinn var byggður fyrir par
árum og þá kannski reyna að hýsa
þessi örfáu börn í vannýttu héraðs-
skólahúsi. En það var bara ekki
gert. . .
A
i^^T^nnar staður, þar sem sum-
um finnst skólabyggingum ofaukið,
er við Önundarfjörð. Þar var til
skamms tíma um langan veg að fara
milli barnaskólans að Holti og Flat-
eyrar þar sem annar skóli er. Því
var byggður nýr skóli fyrir ekki
mjög löngu. Svo kom brú innst á
Önundarfjörðinn þannig að vega-
lengdin milli þessara skóla er hreint
ekki neitt. En sveitakrakkarnir eru í
Holti og tómthúsmannabörn á Flat-
eyri. Þetta þykir þó ekki sæta neitt
mikilli furðu því eðlilega gat
o
^^^g af kosningum. I útvarpi
var sagt frá því að hvergi væru færri
á kjörskrá en í Múlahreppi og er
vafalaust rétt. Þar voru 10 á kjör-
skrá, 16 íbúar (semsagt 6 börn) og
enginn sem hefur haft vetursetu
undanfarin 10 eða 12 ár. Aftur á
móti er einn hreppur fámennari, sé
farið eftir því hvað manntalsbækur
segja. Það er Selvogurinn. Þar eru
aðeins skráðir 12 íbúar en þeir voru
líka allir á kjörskrá og þar er búið
allan ársins hring. Líklega er ekki
dýrt skólahaldið á þeim bæ. . .
ið vitum svo að næstu sveit-
arstjórnarkosningar verða alls ekki
eins skemmtilegar og þessar núna
því þá verður búið að útrýma öllum
litlu hreppunum. Þingmennirnir
fyrir sunnan hafa semsagt samþykkt
að allir hreppar þar sem búa færri
en 50 verði sameinaðir öðrum
hreppum. Þannig verður Múla-
hreppurinn sameinaður Gufu-
dalshreppi ef þeir verða þá ekki
búnir að sameina Gufudalshrepp
Reykhólahreppi áður, en aðeins
43 bjuggu í Gufudalshreppi um síð-
ustu áramót. Og um daginn flutti
gamli oddvitinn, Reynir í Gufudal
suður, svo að Gufudalssveit og Múla-
sveit þurfa á öllu sínu að halda til
þess að standa sem einn hreppur.
Það verður þá líklega Múladals-
sveit eða bara Múlagufa. Nú, ef
Reykhólasveit verður líka með þá
verður það kannski Reykhólamúla-
gufan. . .
BILALEIGAN
Langholtsvegi 109
(í Fóstbræðraheimilinu)
Sækjum
og sendum
Greiðslukorta
þjónusta
Sími 688177
ÞtTTAER
PEX fargjald,
kr. 13.940
Flogið alladaga vikunnar
FLUOLEIDIR
@ Skemmtanalífið er kyndill menningar
London: leikhús, tónleikar, kvik-
myndahús, pöbbar, diskótek og.. .
þú.
London frelsar þig frá áhyggjum og
stressi.
KYNNINGARAFSLÁTTUR AF
VEIÐIVÖRUM
■Á*M
5PORTUF
EIOISTORGI13-SÍMI 611313
HELGARPÓSTURINN 11