Helgarpósturinn - 19.06.1986, Síða 21

Helgarpósturinn - 19.06.1986, Síða 21
eða hvað? Þegar að stundinni hátíð- legu kom voru allir, utan þrír yfir- verkstjórar og forstjóri Hagvirkis, beðnir að yfirgefa svæðið fyrir til- tekinn tíma. Verkamennirnir, sem höfðu lagt svona hart að sér við framkvæmdirnar, þóttu semsagt ekki nógu fínir í veisluna — þar enda mættir fínir toppar sem ekki mega vamm sitt vita ... s_ _ « Mogginn frásögn af þremur íslensk- um systrum, Wathne-systrum, sem eru orðnar umsvifamiklar athafna- konur í Bandaríkjunum. Jafnframt voru birtar myndir af tveimur opn- um úr tímaritinu Town and Country sem hinn frægi ljósmyndari, Norm- an Parkinson, tók af þeim systrum hér á landi. Frásögn þessi þótti at- hyglisverð því fáir höfðu haft af þeim systrum spurnir. Nú höfum við heyrt að landsmenn fái enn frekar af þeim að frétta, því tímaritið Mannlíf var víst fyrir alllöngu búið að verða sér úti um einkarétt á birtingu þess- ara mynda Parkinsons og munu þær birtast í næsta hefti tímaritsins, auk frásagnar af þeim systrum. Þá má geta þess að í sama tímariti mun verða fjallað um Sallý Magnússon, dóttur hins landskunna fréttamanns BBC, Magnúsar Magnússonar. Hún fetar í fótspor föður síns og er orðin skær stjarna hjá morgunsjónvarpi Breta. að hefur vakið athygli að deilurnar á Þjóðviljanum komu upp á yfirborðið daginn eftir að fulltrúi blaðamanna í útgáfustjórn, Mörður Árnason, fór í sumarfrí til Rimini. Mörður er annálað hörkutól í samn- ingum, hefur meðal annars gegnt ótal trúnaðarstörfum fyrir Blaða- mannafélagið. Er það mál manna að Flokkseigendaklíkan hafi ekki lagt í orrustuna fyrr en tryggt væri að Mörður væri kominn í flugvélina og floginn burt. . . H I örð samkeppni í tímaritaút- gáfu er alls ekki ný tíðindi. Þannig fréttum við að í veiðigeiranum sé nú harðar barist en oft áður. Sport- veiðiblaðið, sem Gunnar Bender og félagar standa að, hefur nú kom- ið út í 5 ár og hefur sjaldan verið eins veglegt. Þegar útgáfa blaðsins hófst voru fáir sem spáðu því löngum líf- dögum í samkeppni við Veiði- manninn, sem komið hafði út í nær 40 ár og unnið sér hylli íslenskra veiðidellumanna. Nú er svo komið að Sportveiðiblaðið er gefið út í um 4500 eintökum en Veiðimaðurinn ekki nema 3500. Þriðja blaðið í þessum geira er gefið út af Frjálsu framtaki og heitir Á veiðum. Fyrir- hugað var að blað Framtaksins kæmi út í byrjun apríl og annað fyrst í júní en ennþá hefur ekkert tölu- blað sést í hillum blaðsöluturna. Því er þó spáð að blaðið sé á leiðinni og þess má geta að talið er að Á veiðum sé gefið út í svipuðu upp- lagi og Sportveiðiblaðið. Það er þannig vel pláss fyrir þrjú veiðiblöð í samfélagi veiðidellukarla sem að- eins telja nokkur hundruð... V ið vorum ekki þar til að sjá það með eigin augum, en okkur er sagt að pilsvargur nokkur, sem kall- ar sig Henríettu Hæneken, hafi lokað þeim nafntogaða skemmti- stað, Klúbbi Listahátíðar, með mikilli sæmd. Nú, hvað gerði Henrí- etta? Jú, lokakvöldið, þegar stemmningin var sem mest, lét hún kalla fram alla stjórnarmeðlimi Listahátíðar, svo klúbbgestir gætu sjálfir sýnt þeim þakklæti sitt, sem þeir og gerðu með beljandi lófataki. Hængurinn var bara sá að enginn stjórnarmaður var á staðnum (frekar en endranær), ekki Hrafn, ekki Birgir, ekki Kristín, ekki Kristinn. Lófatakið varð samt ekki minna fyrir vikið, enda þótt Henrí- etta barmaði sér yfir því að enginn stjórnarmaður hefði komið til að færa henni kampavín, krans eða konfekt, og líka yfir því að sér hefði ekki verið boðið í lokapartí Lista- hátíðar, sem náttúrlega var hatdið á allt öðrum stað í bænum en téðum klúbbi. Stjórnin var víst löng búinn að missa áhugann á honum... jyg ■ W Hikiil skjálfti mun nú vera í Pan, Hauks megin. Enda ekki aldeilis gaman þegar ljótir og vond- ir blaðamenn gera allt hvað þeir geta til að koma höggi á annars blómlega starfsemi og hindra menn í að verða sér úti um skjótfenginn gróða. Þannig munu krakkarnir í sýningarhópnum hafa verið send út af örkinni til að fá viðtöl í hinum og þessum blöðum í þeim tilgangi að mótmæla því sem birst hefur nei- kvætt í blöðum um vændi og eitur- lyfjaneyslu, en það mun vera heldur seint í rassinn gripið þegar lögregl- an sjálf er komin á sporið. . . u m daginn, reyndar alveg ný- skeð, mátti sjá í sjónvarpinu svip- myndir frá formlegri opnun fiskeld- isstöðvar fyrirtækisins íslandslax, en það er í eigu Sambandsins og norskra aðila. Tugir verkamanna höfðu unnið alla daga vikunnar og jafnvel hátíðisdaga til þess að hátíð- in gæti farið fram á tilsettum tíma. Verkamenn þessir eru nú aldeilis æfir og ástæðan er ósköp skiljanleg, REYKJAVIK: AKUREYRI: BORC'.ARNES: VÍDIGERÐI V-HÚN.: BLÖNDUÓS: SAUDÁRKRÓKUR: SIGIUFJÖRDUR: HÚSAVÍK: EGII.STADIR: VOPNAFJÖRDUR: SEYDISFJÖRDUR. FÁSKRÚÐSF.IÖRDUR: HÖFN HORNAFIRDI 91-31815/686915 96-21715/23515 93-7618 95-1591 95-4350/4568 95-5884/5969 96-71498 96-41940/41594 97-1550 97-3145/3121 97-2312/2204 97-5366/5166 97-8303 interRent -ANÞESS AÐKORTSESYNT Til þæginda fyiir viðskiptaviiii og afgreiðslufólk ábyrgist Iðnaðarbankiim alla tékka að upphæð allt að 3.000 krónum sem útgefnir eru á tékkareikninga í Iðnaðarbankanum af reikningseigendum. Ábyrgðin er gagnvart þeim sem taka við tékkum frá reikningseigendum í góðri trú og framselja bönkum eða sparisjóðum. Iðnaðarbankinn kappkostar að þeir einir hafi tékkareikninga hjá bankanum sem eru trausts verðir í viðskiptum og treystir því jafnframt að afgreiðslufólk sýni eðlilega varkámi við mótttöku tékka. iðnaðarbaninn -niHPim fanki HELGARPÓSTURINN 21 CíB AUGtySINGAÞJONUSTAN SIA

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.