Helgarpósturinn - 19.06.1986, Síða 31
FRÉTTAPÓSTUR
Flugslys á Flúðum
Einn fórst og annar liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild
eftir að flugvélin TF-MOL hrapaði í aðflugi skammt frá flug-
brautinni á Flúðum um klukkan 22.00 á þriðjudagskvöld.
Blíðskaparveður var er flugslysið átti sér stað. Flugvélin var
í aðflugsbeygju inn á flugbrautina á lítilli ferð er hún féll
skyndilega niður og hafnaði í vegarkanti.
Rannsókn flugslysanefndar
Við rannsókn flugslysanefndar á ástæðum þess að litlu
munaði að tvær farþegaþotur rækjust saman yfir Austfjörð-
um hefur komið í ljós að misskilnings og ónákvæmni gætti
í samskiptum tveggja deilda er stjórna flugumferð kringum
landið. Það var í samskiptum innanlandsdeildar, sem sér
um allt flug yfir landinu, og úthafsdeildar sem misskilning-
ur átti sér stað. Rannsókn flugslysanefndar er ekki enn að
fullu lokið.
Vinstri sósíalistar
Stofnfundur nýrra samtaka sem kalla sig Vinstri sósíal-
ista var haldinn á laugardaginn var. í stefnuyfirlýsingu
samtakanna segir að samtökin muni beita sér fyrir nýrri
forystu í verkalýðshreyfingunni, meiri almennri virkni og
meira almennu lýðræði innan hennar. Um er að ræða al-
hliða stjórnmálasamtök sem ekki einangra sig við verka-
lýðs- og launamál. Ekki mun vera um klofning frá Alþýðu-
bandalaginu að ræða.
Þjóðviljamálið
Mikið var um það rætt í fréttum í síðustu viku að Svavar
Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, yrði þriðji rit-
stjóri Þjóðviljans. Á fyrsta fundi nýrrar útgáfustjórnar
Þjóðviljans á mánudaginn var lýsti Svavar því hinsvegar yfir
að hann sæi sér ekki fært að verða við áskorunum um að
taka að sér starf ritstjóra Þjóðviljans við hlið Össurar Skarp-
héðinssonar og Árna Bergmanns vegna anna sem fylgdu
starfi formanns. Samþykkt var að stefna að því að ráða
þriðja ritstjóra sem víðtæk samstaða gæti náðst um.
Þorgeir dæmdur
„Ef þessi dómur fær að standa, þá er ekkert ritfrelsi í
landinu," sagði Þorgeir Þorgeirsson rithöfundur en undir-
réttur dæmdi hann til að greiða 10.000,- krónur til ríkis-
sjóðs auk málskostnaðar vegna ákveðinna ummæla um lög-
regluna í tveimur greinum eftir Þorgeir sem birtust í Morg-
unblaðinu í desember 1983. Greinar þessar birtust í kjölfar
Skaftamálsins svokallaða og fjölluðu um ofbeldi lögregl-
unnar gegn borgurum landsins.
Flugleiðir semja við flugliða
Flugleiðir hafa undirritað nýja samninga við stéttarfélög
flugmanna, flugfreyja og flugvirkja sem veita þessum
starfshópum um 26% kauphækkun á þessu ári. Samningar
þessara félaga hafa verið iausir frá síðustu áramótum. Nýju
samningarnir eru afturvirkir til síðustu áramóta Og gilda til
næstu áramóta.
Kosningar
Á laugardaginn var var kosið í 163 hreppum landsins. Á
kjörskrá voru 18.768 og var kjörsókn 75,2%. Listakosning
var í 24 hreppum og þar af var sjálfkjörið í þremur. Konum
í sveitarstjórnum fjölgaði nokkuð frá síðustu kosningum.
Fréttapunktar
• Göngubrú yfir ána Krossá i Þórsmörk var formlega tekin
í notkun síðastliðinn sunnudag að viðstöddum hátt á þriðja
hundrað manns.
• Hvalveiðar hófust á sunnudaginn var og að þessu sinni er
áætlað að veiða 80 langreyðar og 40 sandreyðar en það eru
tæplega helmingi færri dýr en veidd voru í fyrra.
• Þau undur og stórmerki gerðust á bænum Miðbæ í Norð-
firði fyrir skemmstu að fressköttur tók upp á því að bólgna
út. Skúli Hjartarson bóndi er þess fullviss að fresskötturinn
sé kettlingafullur og tvíkynja.
• Guðmundur Svavarsson, málarameistari á Eskifirði,
bjargaði frá drukknun manni sem hafði falliö á milli skips
og bryggju. Guðmundur lá í rúmi sínu er hann heyrði neyð-
aróp mannsins, hann klæddi sig í snatri og bjargaði mann-
inum.
• Alþýðusamband íslands ætlar að kæra til Rannsóknar-
lögreglu ríkisins fyrirtæki sem ekki hafa staðið í skilum
með skyldusparnað launafólks.
• Hraðfrystihúsið á Patreksfirði skuldar Orkubúi Vest-
fjarða verulega upphæð og var raforkusölu til fyrirtækisins
hætt á föstudaginn var.
• Stærsti lax sumarsins til þessa veiddist í Laxá í Aðaldal
fimmtudaginn 12. júní. Var það 22 punda hængur.
• Valgerður Backman, 19 ára Reykjavíkurmær, var valin úr
hópi sex stúlkna til að fara fyrir íslands hönd vestur til
Bandaríkjanna og taka þar þátt í keppni svonefndra Ford-
módela.
Arsrit
KVENRÉTTINDAFÉLAGS
ÍSLAIMDS
19. JÚNÍ
ER KOMIÐ ÚT
VERÍJ. Kft, Í20
ARSRIT KVENRETTINOAFÉLAÖSIStAHOS 1986
HVAÐ SEGJA ÞEIR UM JAFNRÉTTIÐ?
rÓRARfNN ELDJÁRN
HEIÐAR 1ÓNSS0N
, ÆVAR KJARTANSSON
AÐ SLÁ í SUNDUR RJÓNARÚMIÐ
mftNNINGALÍF KARLA
ÁRIÐ 1985 ÍMÁUOG MYNDUM
:ru komnir brestir
í KARLMENNSKU-
k ÍMYNDINA?
Eru karlar líka menn?
Kvenfrelsast karlar?
Hvernig eru mjúkir
karlmenn? Ég ætla sko
að lesa um þetta allt í
19. júní — sérstaklega
þessa mjúku!
Tilfinningalíf karla?
umhum. Lesið 19. júní
og frœðist um sálarlíf
karla.
Hefur kynhlutverkið
breyst? Hvað segja þeir
um jafnréttið? Ævar
Kjartansson, Þórarinn
Eldjárn og Heiðar
Jönsson velta upp
ýmsum hliðum í 19.
júní.
Fæst í
bókaverslunum og
hjá kvenfélögum
um land allt.
LADY OF PARIS
Laugavegi 84 (2. hœö) - Sími 1 28 58
HELGARPÖSTURINN 31