Helgarpósturinn - 19.06.1986, Qupperneq 32
A
J^^miaballar hafa tímann fram
á haust til að finna nýjan ritstjóra, úr
því að ekki náðist samkomulag um
flokksformanninn. Mikil þörf mun
vera fyrir ritstjóra, en eins og fram
hefur komið er erfitt að finna mann
sem allir geta sætt sig við. Þó hefur
nú heyrst að Flokkseigendaklíkan,
með Ragnar Arnason nýkjörinn
formann útgáfustjórnar, hafi nú
þegar augastað á manni sem hugs-
anlega gæti skotið rótum á ritstjórn-
arskrifstofum Þjóðviljans. Það er
Engilbert Guðmundsson, kenn-
ari á Akranesi, sem nú dvelst reynd-
ar um hríð í Tanzaníu. Engilbert er
tengdasonur Jónasar Arnasonar
rithöfundar og talinn sæmilega holl-
ur flokknum og þá sérstaklega
ákveðnum aðilum innan hans.. .
A
yfirborðinu er latið i það
skína að sættir hafi tekist í Þjóðvilja-
deilunni. Þjóðviljinn birtir í þjóð-
hátíðarblaði sínu frétt undir fyrir-
sögninni „Friðsæll fundur" og
Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, kom fram í sjón-
varpi til að gera lítið úr rifrildinu. En
í sjónvarpinu kom einnig fram
blaðamaður Þjóðviljans, Lúðvík
Geirsson, sem sagði að ritstjórn
Þjóðviljans hefði farið með sigur af
hólmi og bætti því við að nú væri
hægt að vinna af viti, að minnsta
kosti í sumar, en ráða nýjan rit-
stjóra í haust. Þessi ummæli féllu
ekki beinlínis í góðan jarðveg, því
þau jafngilda því auðvitað að segja,
að úr því að Svavar formaður varð
ekki að ritstjóra þá væri hægt að
vinna af viti. . .
iðinn við að endursýna gamlar af-
urðir sínar; fornfáleg sjónvarpsleik-
rit, og ekki síður þætti sem vinir
hans og góðkunningjar hafa gert í
gegnum tíðina — nefnum Egil
Eðvarðsson og félaga úr þeim hópi
sem kalla sig Stuðmenn. í útvarps-
ráði ráða menn nú ráðum sínum,
höfum við frétt — Arni Björnsson,
fulltrúi Alþýðubandalagsins, mun
hafa óskað eftir skýrslu um endur-
sýningar á innlendu efni í sjónvarp-
inu, og í sama streng tók víst Eiður
Guðnason, fulltrúi Alþýðuflhokks-
ms. Það fylgir sögunni að Markús
Örn Antonsson útvarpsstjóri sé
heldur ekki afhuga því að slík könn-
un fari fram. . .
G
uðmundurJ. Guðmunds-
son er fátækur maður, sagði
Albert Guðmundsson iðnaðarráð-
herra nýverið þegar hann var
spurður hvers vegna hann hefði lát-
ið Guðmund fá 120—130 þúsund
krónur fyrir heilsubótarferð til Flór-
ída. Vitaskuld eru þetta ærnir pen-
ingar fyrir fátæka menn, um það bil
fimm mánaðarlaun verkamanna.
Sjálfsagt miðar Albert við sjálfan sig
þegar hann kallar Guðmund fátæk-
an. Lesendur Helgarpóstsins minn-
ast þess hins vegar vafalaust að
blaðið gerði í mars síðastliðnum út-
tekt á launum verkalýðsforingjanna
og kom þá í ljós að Guðmundur var
með mánaðarlaun á bilinu 108—118
þúsund krónur. Auðvitað er þetta
allt afstætt. Þessir peningar sam-
svara hjá verkamönnum hátt í hálfs
árs dagvinnu, en hjá Guðmundi
rúmlega mánaðarvinnu. Hvað
skyldi svo Albert vera lengi að
vinna fyrir þessari upphæð? Eða -
Hafskip...
ö
^^^g aftur af Hrafni Gunn-
laugssyni. Á fyrstu mánuðunum
sem hann starfaði á sjónvarpinu
þótti mönnum hann ausa býsna
ótæpilega af ódigrum sjóðum stofn-
unarinnar. Til dæmis þóttu þættirn-
ir Á líðandi stundu fram úr hófi dýr-
ir, og er þá fátt eitt nefnt. í framhaldi
af þessu heyrast innan sjónvarpsins
raddir um að eitthvað hafi slest upp
á vinskapinn milli Hrafnanna
tveggja, Hrafns Gunnlaugssonar og
Ingva Hrafns Jónssonar — sumsé
dagskrárgerðardeildarinnar og
fréttadeildarinnar. Þeir á frétta-
deildinni hafa nefnilega áttað sig á
því að Hrafn hefur verið að eyða öll-
um peningunum sem þeir ætluðu
að nota til að búa til góðar fréttir,
enn betri fréttir og efni sem tengist
fréttum. Það er ekki stríð ennþá, en
þegar það skellur á er sagt að það
verði kalt. . .
Ef viðskiptavinur greiðir fyrir vöru eða þjónustu með tékka
skal hann útfylla tékkann í þinni viðurvist
og framvísa bankakortinu ásamt tékkanum.
SPARIBANKINN
v
REIKNINQS
NÚMER
■ ~~C - f?
SPARIBANKINN
Þu athugar;
O hvort bankakortið sé frá sama banka og tékkinn
0 að gildistími kortsins sé ekki útrunninn
© fæðingarár með tilliti til aldurs korthafa
o hvort undirskrift á tékka sé í samræmi við rithandarsýnishorn á bankakorti.
Séu ofangreind atriði í lagi
© skráir þú númer bankakortsins (6 síðustu tölurnar) neðan við undirskrift
útgefanda tékkans. Petta gildir um alla tékka, óháð upphæðinni.
l síðasta Helgarpósti gerðum við
allrækilega úttekt á Hrafni Gunn-
laugssyni, völdum hans og ítökum
í íslensku menningarlifi. Ekki komu
þó öll kurl til grafar fremur en fyrri
daginn. Til dæmis gleymdum við
því að í útvarpsráði mun nú vera
talsverð ókyrrð vegna endursýn-
inga í sjónvarpinu þessa mánuði
sem Hrafn hefur verið yfirmaður
innlendrar dagskrárdeildar. Þykir
mönnum að Hrafn hafi verið býsna
Bankakortið - tákn um traust tékkaviðskipti
Alþýðubankinn - Búnaðarbankinn - Landsbankinn - Samvinnubankinn
Útvegsbankinn - Verzlunarbankinn - Sparisjóðirnir
32 HELGARPÓSTURINN