Helgarpósturinn - 02.10.1986, Side 5
Þ
að verður spennandi að fylgj-
ast með slagsmálum þingmanns-
kandídata Framsóknar í Reykjanesi.
Þrír menn berjast aðallega um
brauðið, þeir Jóhann Einvarðsson
fv. alþingismaður úr kjördæminu,
Níels Árni Lund Tímaritstjóri og
svo nýr/gamall frammari, Már Pét-
ursson, dómari í Hafnarfirði.
Stuðningsmenn Más vilja hann að
sjálfsögðu í fyrsta sætið, kvenmann
í annað sæti og Níels Árna í þriðja
sætið. Sömu menn telja Jóhann Ein-
varðsson af. Aðrar heimildir HP
herma, að Jóhann hyggist ná sæti
sínu aftur og safni nú liði. Má er það
talið helst til kosta, að hann sé harð-
snúnari og slóttugri en þeir Níels
Árni og Jóhann, ekki saki, að hann
sé giftur inn í stóra íhaldsfjölskyldu
í Hafnarfirði, en hins vegar hafi
hann þann djöful að draga að vera
bróðir Páls á Höllustöðum. Már lít-
ur á sig sem nútíma þéttbýlisfull-
trúa, en Páll er sem kunnugt er
harðasti málsvari dreifbýlis- og
bændasjónarmiða innan Framsókn-
ar. . .
Heita vatníð
erekkl óþrjótandi nema...
Sum lífsþægindi eru svo
samtvinnuð daglegu lífi okkar
að við tökum naumast eftir
þeim. Þannig finnst okkur
heita vatnið ósköp hversdags-
legt og lítilvægt, nánast jafn-
sjálfsagt og andrúmsloftið.
Ekkert er t.d. eðlilegra en að
geta skotist í heitt og notalegt
bað hvenær sem er nema...
nema ef lokað er fyrir heita
vatnið. Þá vekur köld gusan
okkur til umhugsunar og
skyndilega er smáatriðið orðið
að aðalatriði. Allt í einu jafnast
ekkert á við heitt vatn.
Heitt vatn úr iðrum jarðar er
auðlind sem mikilvægt er að
nýta. Hitaveita Reykjavíkur
kappkostar að miðia þessari
verðmætu orku skilvíslega og
hnökralaust til notenda. Til að
það sé unnt verða orkukaup-
endur að greiða skilvíslega
fyrir þjónustuna. Hafðu hug-
fast að heita vatnið er ekki
óþrjótandi nema þú greiðir
orkureikninginn.
Láttu orkureikninginn hafa
forgang.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUDURLANDSBRAUT34 SÍMI686222
**s
IMMMp
,
MAZDA 323 4 dyra Sedan 1.3 árgerö
1987 kostar nú aöeins 384 þúsund
krónur. Þú gerir vart betri bílakaup!
Aörar geröir af MAZDA 323 kosta frá
348 þúsund krónum.
Nokkrir bílar til afgreiöslu úr viðbótar-
sendingu, sem er væntanleg eftir
hálfan mánuö. Tryggiö ykkur því bíl
strax.
Opiö laugardaga frá 1 - 5
mazDa
BÍLABORG HF
SMIÐSHÖFÐA 23, SÍMI 6&-12-99
(gengisskr. 28.8.86)
HELGARPÓSTURINN 5