Helgarpósturinn - 02.10.1986, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 02.10.1986, Blaðsíða 13
SSlnda þótt Bandalag jafnaðar- manna sé enn til að formi eru stoðir þess farnar yfir í krataflokkinn. Póli- tískir pælarar eru nú komnir á fuilt í vangaveltum um það hvernig þeir Guðmundur Einarsson (Reykja- nesi) og Stefán Benediktsson (Reykjavík) muni pluma sig í próf- kjöri hjá krötum. Flestir eru sam- mála um, að þeir eigi góða mögu- leika á „öruggum" sætum miðað við skoðanakannanir um fylgi Alþýðu- flokksins undir forystu Jóns Bald- vins. Hins vegar vilja sumir halda því fram, að Jón sé ekki búinn að spila öllum spilunum út. Þannig geti margt gert Stefáni erfitt fyrir í Reykjavík. Enn er t.d. gert ráð fyrir þeim möguleika, að Ásmundur Stefánsson kjósi að fara á þing með krötum og Reykjavík sé eina kjör- dæmið, sem hann geti farið fram í. Þá eru þeir orðnir tveir um þriðja sæti krata í Reykjavík á eftir Jóni Baldvin og Jóhönnu Sigurðar- dóttur. Þá tengjast þessu vangavelt- ur um það, að Guðmundur Joð, sem ekki hefur setið þingflokks- fundi allaballa um hríð, muni taka þátt í þingflokksstörfum krata í vet-_ ur og hætta síðan þingmennsku. I Reykjanesi ætti Guðmundur Einars- son að vera nokkuð öruggur. í þriðja sæti síðast var Kristín Tryggva- dóttir, vel liðin og ágæt kona, en varla jafningi Guðmundar í pólitísk- um slag... o skipta athygli hefur það vakið, að Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra, er lagstur í ferðalög. Fyrst fór hann til Græn- höfðaeyja, síðan íil Senegal. Þá fer hann utan til Svíþjóðar — og í leið- inni á þing alþjóðasambands frjáls- lyndra flokka, sem haldið verður í Þýskalandi. Heimkominn úr þess- um stuttu ferðum heldur forsætis- ráðherra tii Kína — með konu sína — og frítt föruneyti. Margir fram- sóknarmenn eru orðnir langþreyttir á ferðalögum formannsins og þar á bæ taka menn ferðalögin til merkis um það að Steingrímur hafi gefist upp í pólitík. Og að hann geri ekki ráð fyrir vegtyllum á borð við ráð- herradóm í næstu, eða næstu ríkis- stjórnum... o g annar vinkill á ferðir Steingríms Hermannssonar. Ríkis- fréttamenn eru jafnan í fylgdarliði forsætisráðherra. Varafréttastofu- stjóri Sjónvarps, Helgi H. Jónsson, var, eins og alþjóð er kunnugt um, í föruneyti Steingríms, og nú hefur heyrst, að Atli Rúnar Halldórsson hafi verið valinn til að senda fréttir af Steingrími frá Kína. Sannkallaðir ríkisfréttamenn þeir félagar. .. tes n OG HORNSÓFAR í MIKUJ ÚRVALI V- í:í' i 11 i • ' L - "'j- ] b l, , m ' œ 2® IpiÉL ÁRMÚLA 8, SÍMAR 685375 - 82275. BRAGÐMIKIL NÝJUNG ^NAR BAUN" SMÁAR utian sætan mjúkan góóar Fást í heilum, hálfum og 1/4 dósum í næstu verslun. HELGARPÓSTURINN 13

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.