Helgarpósturinn - 02.10.1986, Page 6

Helgarpósturinn - 02.10.1986, Page 6
I YFIRHEYRSLA nafn: Jón Baldvin Hannibalsson fæddur: 21.02. 1939 bifreið: Opel frá Sambandinu staða Þingmaður, formaður Alþýðuflokks laun 80.512 kr. áhugamál Fólk, saga og pólitík heimilishagir: Kvæntur Bryndísi Schram og á með henni fjögur börn heimill Vesturgata 38 Gæti farið austur — eða vestur eftir Helgo Má Arthúrsson myndir Jim Smort Þingmenn BJ eru gengnir í Alþýðuflokk. Sögusagnir herma að verkalýðsarmur Alþýðubandalags líti nú Alþýðuflokk hýru auga — og öfugt. Flokksþing Alþýðu- flokks er haldið á morgun. Jón Baldvin ræðir þessi mál í Yfirheyrslu HP. Þú skrifaðir fyrir skömmu grein um Finnboga Rút — föðurbróður þinn — sem var allt í senn pólitiskt manífest og óður til mannsins. I greininni segist þú vera að sameina jafnaðarmenn „með bærilegri von um árangur“, en feður þínir og pólitískir áar gerðu sér. Við hvað áttu? „í fyrsta lagi það, að þrátt fyrir málefnaleg- an sigur yfir kommum, þegar Alþýðuflokkur klofnaði 1938, þá tókst þeim ekki að afstýra klofningi. Hvorki verkalýðshreyfing né Al- þýðuflokkur hafa beðið þess bætur síðan. í annan stað, þegar Hannibal tók við í Alþýöu- flokknum 1952, þá mistókst sú aðgerð. Fyrst og fremst vegna þess, að fóstbræðraiag hans og Gylfa Þ. Gíslasonar brást. Samanborið við þau tíðindi, sem nú eru að gerast, þá sérðu að þar er mikiil munur á. I fyrsta skipti er þróuninni snúið við.“ Þú gagnrýndir sem ritstjóri Alþýðu- blaðsins forseta ASÍ ótæpilega. Hvað hef- ur breyst? Forsetinn, Alþýðuflokkurinn, eða formaðurinn? „Gagnrýni mín þá var ekki persónuleg. Ég gagnrýndi, að verkalýðshreyfingin skyldi leita til háskóiamenntaðs hagfræðings og kjósa hann til forystu. Og sú skoðun mín hef- ur ekki breyst. A þessum tíma var verið að koma á bandalagi Alþýðubandalags og Sjálf- stæðisflokks í verkalýðshreyfingu til varnar liðónýtri ríkisstjórn. Nú tel ég það hins vegar Ijóst — af viðræðum mínum við Ásmund og menn í kringum hann — að þeir eru ekkert nema kratar. Það þefur breyst." Af ummælum Ásmundar Stefánssonar í Þjóðvilja í gær má ráða, að til umræðu hafi komið, að hann gæfi yfirlýsingu um inngðngu í Alþýðuflokk á afmælisþingi flokksins á Hótel Örk. Hefur þú rætt þetta við Ásmund? „Aldrei komið til greina. Hins vegar mynd- um við slá upp myndariegu partíi, ef hann léti af þessu verða. Það væri stíll yfir því.“ Eru fleiri stjórnmálamenn á leið yfir til Alþýðuflokks? Hafa t.a.m. farið fram viðræður á milli Alþýðuflokks og for- manns Verkamannasambands? Má bú- ast við því, að Guðmundi Jóhanni verði boðið til sætis í þingflokksherbergi Al- þýðuflokks í næstu viku — og honum þannig boðið afturgengnum til sam- starfs við „ísafjarðarkrata**? „Það hafa engar slíkar viðræður farið fram. En nóg er plássið." í grein þinni um þann mæta mann FRV gætir i fyrsta lagi mikillar hrifningar á manninum, og í öðru lagi á herstjórnar- list hans í pólitik. Er hann fyrirmyndin? „Nei. Hann er það ekki. Hann getur ekki verið það. Til þess eru mennirnir of ólíkir. Væri ekki nær að lýsa mér sem samnefnara Hannibals og Rúts? Þú skilgreinir þig þá ekki sem mann bakherbergja í íslenskri pólitík? „Nei.“ Þú hefur lýst því, að margir framá- menn í verkalýðshreyfingu eigi heima í Alþýðuflokki. Eftir hverju ertu að slægj- ast? „Það hélt ég að allir vissu. Markmið mitt í íslenskri pólitík er, að skapa hér í fyrsta sinn sósíaldemókratískan fjöldaflokk. Flokk, sem er jafnoki — og helst ofjarl Sjálfstæðisflokks- ins í pólitík. í þessu felst krafa um breytingu á flokkakerfi, sem er ónýtt, og í þessari bar- áttu hef ég staðið frá 1964“ Alþýðuflokkur sker sig mjög úr sam- fylkingu jafnaðarmannaflokka á Norð- urlöndum. Hefur aðra hefð. Hann er frjálslyndur hér. Miðstýrður þar. Ertu ekki með taktík þinni, að hafna hefðum Alþýðuflokks og búa til miðstýrðan fjöldaflokk með því að taka miðstýring- armenn ASÍ uppá þtna arma? „Nei. Ég er „ísafjarðarkrati". Og þeir gengu út frá því, að þeir væru meirihluta- menn ...“ Þú sækist eftir miðstýringarmönnum úr verkalýðshreyfingu, en ekki eftir stjórnmálamönnum úr Alþýðubanda- lagi á borð við þá Þráin Bertelsson og Svavar Gestsson. Af hverju? „Til hliðar við Alþýðuflokk er pólitískur dínósár — flóttamannasamtök úr fortíðinni — Alþýðubandalagið. Þetta bandalag er í - skjóli fámennisvaids of valdamikið. Fulltrúar úr verkalýðshreyfingu hafa við þær ríkjandi aðstæður, sem nú eru í landinu, málefnalega samstöðu með Alþýðuflokki. Þeir eiga því heima í flokki jafnaðarmanna. Og varðandi pólitíska forystu í Alþýðubandalagi þá segi ég þetta: Hvaða forystu eru menn að tala um? Félagi Svavar Gestsson er eins og strá í vindi. Og Þráinn Bertelsson. Hann er ágætur — og skemmtilegur kvikmyndagerðarmað- ur. Og vafalaust þægilegt að hafa hann í kringum sig. Fyrir svo utan það, að fjölmiðla- byltingin kallar á vana myndatökumenn." Hvernig hugsar þú þér samstarfið við Félag frjálslyndra jafnaðarmanna, eða BJ? Er um að ræða samkomulag forystu- manna, eða fylgja þeim Guðmundi, Kolbrúnu og Stefáni sveitir stuðnings- manna? „Félag frjálslyndra jafnaðarmanna gengur inní Alþýðuflokkinn. Ekki er um að ræða baksamninga. Þeir völdu sér þessa leið, að eigin frumkvæði. Hrossakaup eru engin. Þetta er í grundvallaratriðum öðru vísi sam- eining, en Hannibal og Gylfi Þ. reyndu 1974. Spurningunni um það hverjir fylgja þeim — henni verður ekki svarað fyrr en í næstu kosningum." En þig vantar fólk í áhrifastöður innan Alþýðuflokks — ekki satt? „Eg geri þetta vegna þess, að þetta er liður í hinni stóru hernaðaráætlun. I öðru lagi vegna þess að þær hugmyndir sem Vilmund- ur setti fram hafa verið að mörgu leyti gagn- legar. Bandalagið hefur ekki lifað til einskis. Hér er um að ræða aldurshóp. Og ef ég lít á aldursstrúktúr í alþýðuflokksfélögunum í Reykjavík, þá er Alþýðuflokkurinn veikur í þeim hópum, sem BJ var sterkt í. Hér er því um að ræða eðlilega nýliðun í flokknum." í viðtali í DV er haft eftir þér, að mistök Vilmundar væru leiðrétt með samstarfi BJ og Alþýðuflokks. Hver voru mistök Vilmundar? „Ég hef orðað þetta með eigin hendi á annan hátt. Þar tala ég um þau mistök, sem leiddu til þess, að Vilmundur varð viðskila við Alþýðuflokkinn. Þau mistök þarf ég ekki að útskýra fyrir viðmælanda mínum. Hann er gjörkunnugur þeirri sögu allri. Vilmundur átti stærstan þátt í að rífa flokkinn upp á hár- inu á árabilinu 1976—1980 og gerði hann að mögulegu stórveldi. Þá vorum við Vilmund- ur bandamenn. Og hann beitti sér m.a. fyrir ráðningu minni sem ritstjóra Alþýðublaðs- ins. Þess vegna er ég hér. Stærstu mistökin sem gerð voru er ríkisstjórnarmyndunin 1978. Hún var hrikalegt póiitískt umferðar- slys.“ Það vekur athygli, að þú leggur í und- irbúningi undir flokksþing mikla áherslu á „sögulegar sættir'* Hannibals Valdimarssonar og Gylfa Þ. Gíslasonar — holdgervingu samkomulags BJ og Al- þýðuflokksins — en enginn kannast við að þeir hafi verið uppá kant hin síðari ár. Hver er meining þín? Er fjölsky Iduerjum að ljúka, eða ertu að sýna þeim eldri hvað þeir hefðu átt að gera fyrir 34 árum? „Það er rétt hjá þér, að enda þótt Hannibal og Gylfi Þ. hafi farið sína leiðina hvor í pólitík eftir 1954, þá ieiddi það ekki til óvináttu. Það er persónulegt. Hitt er söguleg staðreynd, að þeir hófu pólitískan feril sinn sem pólitískir fóstbræður og eru afsprengi sömu andófs- manna í Alþýðuflokki. Það er mikil ógæfa fyrir íslenskt launafólk að þeir Hannibal og Gylfi Þ. skuli ekki hafa varðveitt sitt pólitíska fóstbræðralag á úrslitatímum. Pólitískur veruleiki væri ella allur annar. Það hefði ver- ið á valdi þessara tveggja manna að endur- nýja Alþýðuflokkinn. Þeim.brást bogalistin. Ég ætla að bæta fyrir það." Þú vaktir rækilega athygli á þér snemma hausts, þegar þú lýstir því yfir, að þú myndir fara fram fyrir austan — hótaðir Austfirðingum til og með fram- boði. Ertu ennþá staðráðinn í því að skella þér í framboð eystra? „Nei. Ég var aldrei staðráðinn í því. Og er það ekki. Þessi ummæli voru nákvæmlega þau, að ef heimamenn gerðu ekki að því gangskör innan ákveðinna tímamarka, að sameinast um sigurstrangiegan kandídat — heimamann — þá hótaði ég þessu. Ekki veit ég, hvort hótun mín hrífur. Það eru ákveðnir heimamenn að velta þessu fyrir sér og síðan var það auðvitað rætt við krata á Austfjörð- um, að allt málið yrði að skoða í ljósi þess, hvað gerðist í Reykjavík." Hvað áttu við? „Málið er einfaldlega þetta. Ég hef leitað fyrir mér á undanförnum tveimur árum eftir verkhögum og traustum mönnum til að sinna trúnaðarstörfum fyrir Alþýðuflokk. Og það er dæmigert fyrir íslensk stjórnmál, að það hefur ekki borið mikinn árangur. Það hlægir mig, að þegar ég hefi leitað til ungra — og við skulum segja vel menntaðra manna — þá er fyrsta svarið sem ég fæ: Ég hef ekki efni á því. Og það er út af fyrir sig rétt. Þátt- taka í pólitík skilar mönnum ekki rífandi tekjum. Og í flokki eins og Alþýðufiokknum sem er opinn, og þar sem menn verða að leggja sjálfa sig undir í opnum prófkjörum er erfitt að veita mönnum tryggingar. Við get- um ekki veitt vammlausum heiðursmönnum tryggingar. Og þeim virðist þykja það ófýsi- legur kostur. Eftir stendur, að ég sem formað- ur verð að beita mér til þess að ná inn nýju fólki. Og ef það feist í því að færa mig til — úr einu kjördæmi í annað, þá er ég til. Og þá gæti svo farið, að ég færi austur — eða vestur. Þetta kemur allt í ljós.“

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.