Helgarpósturinn - 02.10.1986, Page 23

Helgarpósturinn - 02.10.1986, Page 23
Patrik Holt, sálfræðingur: „Notum tölvur til þess að kanna hvernig fólk hugsar og skrifar og nýtum síðan vitneskjuna." ERUM EKKI AÐ SKAPA FRANKENSTEIN! Nokkrir uísindamenn, sem allir tengjast tœkniháskólanum í Shef- field í Bretlandi, hafa á undanförn- um mánuðum unnið að afskaplega athyglisverðu verkefni. Þeir eru að hanna ritvinnsluforrit, sem kennir tölvum að hugsa, og er það fyrsta tölvuforritið af því tagi sem koma mun á almennan markað. Einn þessara manna er íslenskur sálfræðingur, Palrik Holt, en hann hefur sérhœft sig á því sviði sálar- frœðinnnar sem á ensku nefnist ,,artificial intelligence" eða gervi- greind. Blaðamaður HP greip Patrik glóðvolgan í sumarleyfi hér heima á íslandi og spurði frétta af þessu vís- indaskáldsögulega verkefni í Shef- field. Patrik Holt er sonur Guðránar og Brians Holt, en faðir hans var um langt árabil breskur konsúll við sendiráðið í Reykjavík, eins og mörgum er eflaust kunnugt. For- eldrar Patriks búa á íslandi, en sjálf- ur hélt hann til framhaldsnáms í Bretlandi eftir að hafa lokið sál- fræðinámi við Háskóla íslands. Hann er kvæntur íslenskri konu, Sigríði Pétursdóttur og eiga þau tvær ungar dætur, Eddu og Önnu. Það hefur einmitt verið hlutverk Patriks nú í sumarleyfinu að hafa yfirum- sjón með dætrunum, því Sigríður hefur verið að Ijúka við magisterrit- gerð sína í sálfræði á meðan á fs- landsdvölinni hefur staðið. Einn eft- irmiðdag í vikunni tóku afi og amma hins vegar að sér barnagæsl- una og Patrik rabbaði við mig yfir kaffibollum á Hótel Borg. Það fyrsta, sem mig langaði að fá svar við, var það hvers vegna í ósköpun- um sálfræðingur væri að hanna tölvuforrit. SÁLARFRÆÐIN FJÖLÞÆTTAR! EN MARGIR HALDA „Þetta er nú ekki jafnóskylt og ætla mætti, sálarfræðin og tölvur, enda sálarfræðin margþættari fræðigrein en margir halda. Islensk- ir sálfræðingar hafa hins vegar mestmegnis sérhæft sig í klínískri sálarfræði, þ.e. að taka einstaklinga til ýmiss konar meðferðar, og minna hefur heyrst um aðrar brautir innan þessarar fræðigreinar, sem þó eru algengar erlendis. Þetta er annars svolítið að breytast á síðari árum með tilkomu vinnusálfræðinga og stjórnunarsálfræðinga, sem verið hafa að snúa aftur til íslands að loknu sérnámi." — Eru það ekki ýkjur að segja tölvur kunna að hugsa? „Hreint ekki. Þeir, sem fylgjast vel með á sviði vísindanna vita, að margt sem fólk heldur að verði aldrei til nema í vísindaskáldsögum, er að verða að veruleika." — Segðu mér nánar frá verkefn- inu. „Þetta verkefni, sem ég er að vinna að ásamt 4—5 öðrum er mjög fjölþætt. Þarna er um að ræða sam- vinnu sálfræðinga, málfræðinga og verkfræðinga og er verkið bæði styrkt af breska ríkinu og IBM-fyrir- tækinu í Bretlandi. Upphafið að þessu öllu saman var sex mánaða forrannsókn, sem við gerðum fyrir breska ríkið á síðasta ári. Hún var gerð til þess að fá úttekt á ritvinnsluforritunum á markaðn- um, með það í huga hvort hægt væri að bæta þau. Niðurstaðan var sú, að forritin sem til voru væru meingöll- uð. Þessar niðurstöður notuðum við síðan sem grundvöll að umsókn um styrk til vinnslu núverandi verkefn- is, sem felst í því að gera fullkomin ritvinnsluforrit fyrir tölvur. Forrit, sem geta átt samskipti við notand- ann.“ TÖLVAN METUR TEXTANN OG KEMUR MEÐ TILLÖGUR TIL ÚRBÓTA — Þú afsakar vonandi, en hvað hefur það með hugsun að gera? „Sjáðu til. . . Til þess að geta end- urbætt ritvinnslukerfi, þarf maður að rannsaka hvernig fóik skrifar þegar það notar þau og hvernig sú aðferð er öðruvísi en þegar menn skrifa á ritvél eða með penna. Það er þess vegna nauðsynlegt að kanna nákvæmlega texta, sem unn- ir eru á tölvur, og sjá hvaða breyting- um þeir hafa tekið í vinnslu. Fyrir þann hluta könnunarinnar er IBM fyrirtækið einmitt að borga okkur, því þetta kemur þeim að góðu við þróun eigin forrita. Það hefur komið í ljós, að menn skrifa texta yfirleitt í belg og biðu, þegar unnið er með tölvu. Síðan fara menn yfir hann á eftir og laga það sem má betur fara. Það eru á markaðnum ritvinnslufor- rit sem leiðrétta stafsetningarvillur og önnur slík einföld mistök með því að gefa frá sér hljóðmerki í hvert sinn sem eitthvað fer úrskeiðis. í ljósi notkunar fólks á ritvinnslukerf- um, er greinilegt að slík forrit eru afar truflandi og alls ekki í takt við það vinnulag, sem menn temja sér við tölvuvinnuna. Athugasemdir tölvunnar verða að koma eftir á og samkvæmt beiðni notandans. Þann- ig koma þægindi tölvuforritsins best að notum. Áhugi breska ríkisins á verkefn- inu er til kominn sökum þess að hið opinbera vill að texti, sem það send- ir frá sér, sé eins aðgengilegur og „réttur" og hægt er. Við þekkjum öll hvað það getur verið erfitt að henda reiður á máli skriffinna og annarra sérhæfðra starfsstétta, og nú vill breska ríkið sem sagt gera sitt besta til þess að kippa þessu í liðinn. Við vorum þess vegna fengnir til þess að hanna forrit til notkunar fyr- ir fólk í störfum hjá hinu opinbera. Það gerum við með því að mata tölvuna á upplýsingum um það hvernig texti af þessu tagi eigi helst að vera. Tölvan meðtekur þá fyrst þann texta, sem viðkomandi not- andi lætur frá sér fara, en kemur síð- an með athugasemdir þegar hann æskir þess. Ríkið fær þarna forrit, sem hefur að geyma ákveðnar upp- lýsingar um hvernig uppbygging texta á að vera, hvernig hann á að vera skipulagður og hvernig innihaldið á að vera. Öllu þessu hef- ur verið komið inn í minni tölvunn- ar og hún nýtir sér það við að meta texta og betrumbæta þá. Þar af leið- andi má segja að tölvan hugsi, því hún metur, lagfærir og kemur með tillögur til úrbóta." ALLAR VIÐMIÐANIR FRÁ SÉRFRÓÐUM AÐILUM — Geturðu gefið mér nánari lýs- ingu á því hvernig tölvan kemur til- lögum sínum til skila? „Já. Segjum sem svo að þú værir að skrifa biaðagrein og værir með sérhæft forrit í tölvunni. í fyrsta lagi gæti tölvan þá leiðrétt stafsetningarvillur, tvítekningar á orðum, skort á bili miili orða og allt slíkt. Það er sem sagt eins konar prófarkalestur og slík forrit eru þeg- ar á markaðnum. í öðru lagi búa blaðamennskufor- ritin yfir vitneskju um það hvernig góður texti af því tagi á að vera, en allar viðmiðanir eru fengnar hjá sér- fróðum og reyndum mönnum í við- komandi fagi. Það er t.d. búið að mata tölvuna á orðum, sem hafa óskýra merkingu, eins og ,,góður“, „fólk“, „margir" og fleiri slíkum. Hún veit einnig hver lengd setninga á helst að vera svo textinn teljist góður, og svo framvegis. Þegar þú biður síðan um viðbrögð frá tölv- unni, kemur hún t.d. með tillögur um að tekið sé nákvæmar til orða, að setningar séu lengdar eða styttar, að uppbyggingu sé breytt eða annað, í þeim dúr. Tölvan býr sem sagt yfir vitneskju um það hvernig góður texti blaða- manns á að vera og hún fer yfir greinina þína og notar þessa við- miðun til þess að meta hana. Þetta forrit má auðvitað aðlaga að hvaða textagerð sem er, því það gilda að sjálfsögðu mismunandi reglur eftir því hvert viðfangsefnið er.“ — Hafið þið ekki fengið á ykkur þá gagnrýni, að þið viljið móta alla í sama horfið? „Jú, biddu fyrir þér, og skáld fá bókstaflega áfall þegar á þetla er minnst. Það er hins vegar alls ekki meiningin að allir láti frá sér sams- konar texta, heldur er í fyrsta lagi verið að stuðla að því að fólk geti einbeitt sér að innihaldinu og látið tölvunni eftir að snurfusa próförk- ina. í öðru lagi er notendum þarna gefin viðmiðun, sem þeir geta not- fært sér í þeim tilgangi að skila betra efni en ella. Viðmiðun, sem fengin er með því að leita ráða hjá fjölda sérfróðra aðila í hverju fagi fyrir sig.“ — Verða einhver önnur not affor- ritinu? „Já, það getur líka komið að gagni við mat á því hve torskilinn ákveðinn texti er. Slíks mats er oft þörf þegar um er að ræða efni, sem koma á fyrir sjónir fjölda fólks. UNESCO, Menningar- og framfara- stofnun Sameinuðu þjóðanna, hefur t.d. þá reglu að láta ekki frá sér fara texta nema á máli, sem auðskilið er 13—14 ára unglingum. Ritvinnslu- kerfið okkar ieggur m.a. mat á það hvaða aldurshópi textinn hentar og þá vitneskju er hægt að fá fram með því að þrýsta á hnapp.“ MARGS KONAR NÝTING Á TEXTAGREININGU — Nú hafið þið unnið mikið texta- greiningarstarf við þetta verkefni, Patrik. Er ekki hœgt að nota þá vitneskju til annarra hluta en búa til ritvinnsluforrit, sem hugsar? „Það er vissulega rétt. Við höfum einbeitt okkur að því að kanna hvernig fólk hugsar og kemur síðan hugsun sinni á blað. í þessu skyni höfum við notað fólk, sem er þannig óbeint þátttakendur í rannsókninni. Það er ekki til betra tæki í dag en tölva, þegar rannsaka á hvernig hugurinn vinnur. Tilgangurinn er hins vegar að skilgreina hugsunina, ekki að skapa einhvern Franken- stein. Tölvan er einungis atvinnu- tæki okkar við rannsóknir á mann- skepnunni og við erum þarna með stórkostlegt tæki í höndunum. Forritið okkar mun eflaust geta komið að góðum notum í réttar- höldum í framtíðinni, við að sanna eða afsanna hver sé höfundur ákveðins texta og hver ekki. Við gerðum tilraun með texta eftir skáldin D.H. Lawrence og Thomas Hardy, sem við létum tölvuna greina vísindalega, og hún gat í öll- um tilvikum sagt eftir hvorn þeirra textinn var. Fram að þessu hafa ýmsir sérfræðingar verið látnir framkvæma kannanir af þessu tagi fyrir dómstólana, en tölvan mun örugglega taka algjörlega við af þeim innan skamms. Ég get sagt þér sem dæmi, að tæknideild lögreglunnar í Bretlandi hafði nýlega samband við okkur og bað um aðstoð í máli manns, sem nú afplánar langan refsidóm í fangelsi. Það var þeim áhyggjuefni hve sönn- unin um sekt mannsins var byggð á veikum rökum, en hún felst einmitt í því hvort hann skrifaði ákveðið plagg eða ekki. Nú munum við láta tölvuna gefa sitt álit. Þetta er annars trúnaðarmái enn sem komið er, því hvorki mað- urinn sjálfur né fjölskylda hans vita af því að farið er að vinna í málinu að nýju." — Einhver fleiri svona dœmi? „Ja, við munum ef til vill kanna það hvort tölvan er fær um að nema þau stílbrigði, sem talin eru að- greina texta og mál geðklofa. En þetta er nú bara tilraun og ekki vísl að neitt hagnýtt komi út úr henni. Þar að auki eru málaflokkar sem þessir óskaplega viðkvæmir, og einnig réttarrannsóknirnar. Maður verður að gæta þess aö fara ekki út á hálan ís í þessum fræðum, eins og þú skilur. Við höfum t.d. reynt að halda okkur frá öllu, sem tengst gæti stjórnmálum og hernaði. Það er alltaf áhugi á rannsóknum sem þessum hjá hernum og hann stend- ur þar að auki auðvitað að siíku sjálfur." — Verðið þið virkilega fyrstir í heiminurn tilþess að koma sérhœfð- um, „hugsandi“ ritvinnsluforritum á markaðinn? Hvað með risa eins og IBM og ATT Bell? „Eins og ég gat um, þá fáum við styrk frá IBM í Bretlandi til okkar rannsóknarstarfs, en IBM-fyrirtækið í Bandaríkjunum er hins vegar að láta vinna svipað verkefni og við. Einn þátttakandinn í mínum hópi fór í heimsókn yfir hafið í sumar og ræddi við kollegana þar. Þá kom í ljós, að þeir eiga u.þ.b. 5 ár eftir í að komast á markaðinn. Við stefnum hins vegar að því að markaössetn- ing geti orðið eftir 18 mánuði. Ég held að það hljóti að takast. Það verður reyndar að takast, því við það miðast allar fjárhagsáætlanir." leftir Jónínu Leósdóttur mynd Jim Smart HELGARPÖSTURINN 23

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.