Helgarpósturinn - 02.10.1986, Side 33

Helgarpósturinn - 02.10.1986, Side 33
„islenskt landslag er svo dásamlega afstrakt og timinn svo eillfur. Þá fer vel á því að vinna tímafrek verk," segir Erla Þórarinsdóttir sem sést hér við verk sitt „Bon voyage". Erla Þórarinsdóttir sýnir á Gallerí Borg: • • Oskurhólshver, hvalir og kjarnakvendi ,,Það fer mikið eftir efnum og að- stœðum hvað ég bý til og úr hverju," segir Erla Þórarinsdóttir sem opnar sýningu á olíumálverkum og teikn- ingum á Gallerí Borg kl. 17 í dag, fimmtudag 2. okt. „Stundum hefég málað á stóra sekki undan kaffi, einu sinni málaði ég stóra mynda- syrpu á frönsk dagblöð í París, aðra á auglýsingatöflur sem vöru til stað- ar þegar ég flutti inn í stúdíó í Stokk- hólmi. Svo rekst maður oft á undar- lega hluti sem maður veit ekki hvaða tilgangi hafa þjónað. Þá er upplagt að nota þá í skúlptúra." Erla, sem er fædd 1955, flutti heim til íslands í fyrra, að minnsta kosti í bili, eftir langa dvöl erlendis. Fyrst við nám í Konstfackskolan í Stokkhólmi 1976—81 með misseris- viðkomu á Rietweld Akademie í Amsterdam. Að námi loknu hefur hún unnið í Stokkhólmi, París, Bandaríkjunum og víðar. Áður en hún kom heim í fyrra hafði hún dvalist um eins og hálfs árs skeið í New York. Hún segir að myndirnar á þessari sýningu séu meira og minna framhald af vinnu hennar þar. ,,En að þessu sinni hafði ég virki- lega þörf fyrir að mála olíumyndir frekar en t.d. búa til skúlptúra úr málningardollum og púströrum," segir hún. „Flestar myndanna á þessari sýningu hef ég málað hér heima í vor og í sumar. ísland verð- ur æ áþreifanlegra í myndmálinu. Ég gerði margar skissur úti á landi sem ég málaði síðan út frá. Lands- lagið hér er svo dásamlega afstrakt! Hér er tíminn líka svo eilífur, hér er svo rólegt. Það gerist lítið frá degi til dags og þess vegna getur maður haldið sama hugarástandinu í lengri tíma. Þá fer vel á því að vinna tíma- frek verk. En ef mikill hamagangur er í kringum mig hentar mér betur að vinna verk í'striklotu. Kaffipoka- sýninguna vann ég t.d. á tveimur dögum. En verkin þurfa alls ekki að vera verri þótt þau séu unnin með hraði," segir Erla. Erla bætir við hlæjandi að efnivið- ur verkanna virðist þó skipta máli fyrir marga kaupendur, svo og stærð: „Þannig runnu myndirnar sem ég málaði á auglýsingatöflurn- ar stóru út eins og heitar lummur. Og yfirleitt seljast stóru verkin alltaf fyrst." Erla hefur sýnt víða ein eða með öðrum, hélt síðast einkasýningu hérlendis í Nýlistasafninu '83. „Þá keypti Reykjavíkurborg af mér einu eldfjallamyndina!“ segir hún. „Það er eins og fólk sé meira fyrir að kaupa myndir með kunnuglegu myndefni." Og á sýningu Erlu á Gallerí Borg ætti að vera ýmislegt sem kemur ís- lendingum kunnuglega fyrir sjónir: hvalir, eldfjöll og hverir. í sumar málaði hún t.d. Öskurhólshver á Hveravöllum, skammt frá eldhúsi þeirra Fjalla-Eyvindar og Höllu sem hún segir að sé alveg makalaust absúrd fyrirbæri: minieldfjall með tveimur opum, og út úr öðru kemur gufa en blístur út úr hinu. Þá málar Erla mikið frummyndir, bæði af persónulegum toga og aðr- ar táknrænar út frá gömlum menn- ingarsamfélögum. Til dæmis vúdú. „Margar táknmyndanna koma upp í huga mér aftur og aftur. Þær hljóta því að vera mikilvægar á einhvern hátt. Sumar eru draumkenndar enda trúi ég á uppfyllingu draums- ins,“ segir hún. „Space-prinsessur, „superladies", hvalir, eldfjöll og kúltúrinn sem dregur fiskinn á land eru meðal við- fangsefna Erlu á þessari sýningu á Gallerí Borg sem er opin frá 10—18 virka daga en 14—18 um helgar.-75 Sovéskir dagar MÍR 1986 Dagana 2,—12. okt. efnir félagið MÍR, Menningartengsl íslands og Ráðstjórnarríkjanna, til Sovéskra daga á íslandi í ellefta sinn og kynn- ir nú sérstaklega þjóðlíf, þjóðmenn- ingu og listir í einu af Miðasíulýð- veldum Sovétríkjanna, Úzbekistan. Af þessu tilefni kemur hingað til lands hópur listamanna frá Úzbe- kistan og meðal þeirra eru 20 félag- ar í Söng- og dansflokknum „Lazgt'", einum kunnasta þjóðdansaflokki lýðveldisins. Einnig hefur borist til íslands margvíslegt sýningarefni frá Úzbekistan, svo sem myndlistar- verk, sýnishorn af þjóðlegri nytja- list, barnateikningar, ljósmyndir, bækur, kvikmyndir o.fl. Listafólkið kemur fram á tónleik- um og danssýningum í Þjóðleikhús- inu sunnudaginn 5. okt. kl. 14, á Vestfjörðum 6.-8. okt., í Hlégarði, Mosfellssveit, föstudagskvöldið 10. okt., og víðar. Einnig flytur hópur- inn brot úr efnisskrá tónleikanna við opnun sýninga í húsakynnum MÍR að Vatnsstíg 10 föstudaginn 3. okt. kl. 20.30 og að Kjarvalsstöðum laugardaginn 4. okt. kl. 14. í húsi MÍR verður sýning á svartlist frá Úzbekistan, ljósmyndum, barna- teikningum og bókum. Einnig verða þar sýndar kvikmyndir. Á sýningunni að Kjarvalsstöðum verða ýmskonar listmunir, sem hóp- urinn kemur með frá Úzbekistan og tekur aftur með sér utan. Þetta eru ofin og saumuð teppi, leirmunir, munir skornir í tré, málmhlutir o.fl. NÝR MYNDAFLOKKUR Á nms ,u» * » I ntilM »'* V1 tutt* * w«t» t* > spólum Fæst á flestum mynd bandaleigum lands- ins. Aðalhlutverk: Sam Neil (Kane and Able). Dreifing: Myndform ATIAST-AIWOVIE AS BUi ASTHE LKUKIMD SAM NEIIL in **$fi%'«***H HMISIUtlttV. I « l»l I R -< IIKtsiOflil K< I T*l/ \»*Í 11 <m i.is si sn i imh w w itntm i mi' Kl tl\ .HM MtMI MS MOHI KI I.RI HK l'KOUI IHMD J<H h»i »IK i tt H Mt hlStltSMtU imttl »»l HHtHIII S tl «1 Kmsl UIIH «<»\t HOKfMI I I Sími 651288. Þættir sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. HELGARPÓSTURINN 33

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.