Helgarpósturinn - 02.10.1986, Síða 37

Helgarpósturinn - 02.10.1986, Síða 37
eftir Jónínu Leósdóttur myndir Jim Smart o.fl. i,EGASTAR Á ÍSLANDI í LAUFLÉTTRI SKOÐANAKÖNNUN HP OG VIGDÍS FORSETI" SLENSKRA KARLA STJÓRNMÁLAKONUR, SJÖNVARPSSTJÖRNUR OG SÖNGKONUR Greinilegt er, að íslenskum karlmönnum verður hugsað til stjórnmálaheimsins, þegar þeir velta fyrir sér frambærilegum konum. Varaformenn Aiþýðuflokksins og Alþýðu- bandalagsins, þær Jóhanna Siguröardóltir og Kristín A. ólafsdóttir, voru meðal þeirra sem tilnefndar voru. Einnig Sigríöur Dúna Krist- mundsdóttir, alþingismaður, Sólveig Péturs- dóttir, prófkjörsframbjóðandi í Sjálfstæðis- flokknum, Ragnheiöur Björk Guömunds- dóttir, Bryndís Schram og Maríanna Friö- jónsdóttir, alþýðuflokkskonur. Kvenfólk, sem töluvert hefur sést í sjón- varpinu, var karlmönnum einnig minnis- stætt, þegar þeir áttu að nefna myndarlegar íslenskar konur. Edda Andrésdóttir, frétta- maður, fékk nokkurn fjölda atkvæða. Einnig Arnþrúöur Karlsdóttir, fréttamaður í Noregi, Kristín G.B. Jónsdóttir, þula, Unnur Ólafs- dóttir, veðurfræðingur, Sigurveig Jónsdóttir, fréttamaður, og „stelpan í Dílettóauglýsing- unni“, eins og það var orðað. Söng- og leikkonur komust líka á blað í könnun okkar á myndarlegustu og fram- bærilegustu konum á íslandi. Úr þeim hópi var aðallega minnst á Ragnhildi Gísladóttur, Eddu Heiörúnu Backmann og Diddú — alias Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. Þar að auki fékk Kolbrún Halldórsdóttir, leikkona og dag- skrárgerðarmaður á rás 2, atkvæði nokkurra karlmanna. Þótti sumum þeirra hún hafa Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, hefur sungið sig inn í hug og hjörtu íslenskra karlmanna. Maríanna Friðjónsdóttir, starfsmaður sjónvarpsins og varaþingmaður Alþýðuflokksins, var nefnd til sög- unnar. staðið sig einstaklega vel í sjónvarpsþætti um fjölmiðlun í síðustu viku. FEGURÐARDROTTNINGAR OG FLEIRI Auðvitað varð körlunum einnig hugsað til ýmissa fegurðardrottninga, sem unnið hafa til verðlauna á síðari árum. Þeirra vinsælust var án nokkurs vafa Unnur Steinsson, sem nýverið var ráðin fréttamaður á Stöð 2. Þeim sjónvarpsfélagsmönnum er greinilega mikill fengur í nýja fréttamanninum, sem á sér þegar stóran aðdáendahóp. Aðrar fegurðardísir, sem hlut náð fyrir augum karlanna, voru t.d. Snœfríöur Bald- vinsdóttir, Stephanie Sunna Hockett, Anna Margrét, Halla Bryndts og „nýja ungfrú ísland“, svo einhver nöfn séu nefnd. Þegar um fegurðardrottningar var að ræða, höfðu karlmennirnir oft ekki föðurnöfn þeirra á takteinum og stundum ekki einu sinni nöfn þeirra stúlkna, sem þeir vildu tilnefna. Urðu þá til margar mergjaðar lýsingar og ekki allar frá hjartanu, heldur einhverju allt öðru líffæri — eftir því sem næst varð komist. Reyndar var þessi neðan-mittis-afstaða alveg ótrúlega algeng, sérstaklega þegar mennirnir veltu fyrir sér hvaða merkingu þeir legðu í orðin ,,myndarleg“ og „fram- bærileg". Komu karlarnir gjarnan með yfir- lýsingar um það hvernig konur ættu að vera til þess að vera spennandi hjásvæfur. Þekktur ritstjóri hér í bæ sagði t.d.: „Hún á að vera þannig, að mig langi til að sofa hjá henni og tala við hana í fimm mínútur á eftir.“ Jammm.... Ekki skal dæmt um tilhneigingar þeirra fimm manna, sem nefndu ákveðinn karl- mann þegar þeir voru beðnir um að tilnefna myndarlegasta og frambærilegasta kven- fólkið á Islandi. Allir unnu mennirnir á sama vinnustað og fannst þessi uppástunga sín greinilega bráðsnjöll. Þar sem búast má við að um hafi verið að ræða einhvern hrekk- lausan vinnufélaga þeirra, skal hans ekki getið með nafni. Tvær röggsamar konur í stjórnunarstörfum fengu atkvæði aðspurðra karla í þessari könnun. Það voru þær Herdís Þorgeirsdóttir, ritstjóri Heimsmyndar, og Lára Ragnars- dóttir, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags- ins. Færri þekkja hins vegar Kolbrúnu Hauks- dóttur, sem starfar á Morgunblaðinu sam- kvæmt upplýsingum þess sem greiddi henni atkvæði. Karlmenn á Patreksfirði litu sér nær, þegar þeir tilnefndu Kolbrúnu Sigmars- dóttur og Jóhönnu Helgadóttur. Báðar eru þær búsettar fyrir vestan og mun Jóhanna vera skólastjórafrú í Krossholti, að því er eldhressir karlmenn á Patró tjáðu okkur. Enn aðrir þátttakendur í könnun HP að þessu sinni áttu erfitt með að nefna nöfn, þó þeir vissu svo sem innst inni hvaða eigin- leikum hinar myndarlegu og frambærilegu konur væru búnar. Þegar þeir voru spurðir, fékk blaðamaður svör eins og „Ég er enn að leita, manneskja", „Ég var einmitt á hött- unum eftir þessari konu núna um helgina", „Hún á að vera þrifaleg, Ijóshærð og lítil“ og annað í þessum dúr. GLEYMUM ÞEIM STRAX Það sem stendur eftir að lokinni þessari óformlegu könnun, er ekki ágreiningur karl- manna um hvaða konur þeim þykja fram- bærilegastar á landi hér. Langmest áberandi var mismunurinn á viðbrögðum karla og kvenna, þegar þau voru beðin um að taka afstöðu til myndarlegra einstaklinga af gagn- stæðu kyni. Það kom blaðamanni sem sagt stórkostlega á óvart hve erfitt karlmennirnir áttu með að svara spurningunni, svo ekki sé meira sagt. Þeir þurftu hreinlega að rembast við að kalla fram í hugann myndir af fram- bærilegum konum. Þegar mennirnir voru síðan spurðir að því, hvers vegna þeir héldu að þetta gengi svona stirðlega hjá þeim, voru svörin yfir- leitt á sömu lund. Þeir sögðust vissulega horfa á kvenfólk og taka eftir framkomu þess og öðru atgervi, en það hyrfi einfald- lega úr huganum um leið og eitthvað annað bæri fyrir augu. Sem sagt „out of sight, out of mind“, eins og Bretar myndu segja. En síðasta orðið fær karlmaður á besta aldri, sem tjáði sig einmitt um þetta atriði: „Maður verður kannski fyrir miklum áhrifum af konu, sem maður sér í sjónvarp- inu, og finnst hún stórkostleg. En um leið og t.d. Bleiki pardusinn er kominn á skjáinn í hennar stað, er maður búinn að steingleyma henni!“ Edda Andrésdóttir, fréttamaður. „Afskaplega fram- bærileg og röggsöm," sagði einn. Arnþrúður Karlsdóttir, fréttaritari í Noregi, stendur karlmönnum á íslandi greinilega fyrir hugskotssjón- um þó hún sé handan hafsins. Edda Heiðrún Backmann var ein af fáum leikkonum, sem komust á blað. Unni Steinsson, fyrrum fegurðardrottningu og tilvon- andi fréttamann, mun örugglega ekki skorta áhorf- endur, þegar hún tekur til starfa á Stöð 2. Stephanie Sunna Hockett. „Fegurðardís í sérflokki." Herdís Þorgeirsdóttir hefur gert marga góða hluti í blaðaheiminum og á aðdáun ýmissa af gagnstæða kyninu. HELGARPÓSTURINN 37

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.