Helgarpósturinn - 21.01.1988, Blaðsíða 38
0
23:PQ íStokkhd
i9lín
^oon átli
síðasta orðið
» -
Island - Svíþjóð
20 : 23
í ha"dknattleik, 'eikur
í 'stokkhA JohaDneshofs-ÍÞr6ttahðli;
í 988 h mi’ sunnudaff'nn IV.
janúar
ARKEPPNIN I SVIÞJOÐ
mn
iceuArsí o
20:23.
hafnaði í fjórða sæ i
IIPPIIM TVO »TI?
* ^
— Islendingar sanna sig í handknattleik — RUV á röngu róli — Super Bowl — Þorgils í
heimslidid
\
Það er álit margra aö viö íslend-
ingar höfum fœrt okkur upp um tvö
sœti á listanum yfir bestu hand-
knattleiksþjóöir í heimi með frceki-
legri frammistööu á World Cup-
mótinu sem lauk í Svíþjóö um síð-
ustu helgi. Þar endaöi íslenska liðiö
í fjóröa sœti þegar litlu munaði aö
viö spiluöum um fyrsta sœtiö. Liöiö
átti i heild ágœta leiki. Góöan gegn
A-Þjóöverjum, frábœran gegn Júgó-
slövum, þokkalegan gegn Dönum
og frekar sljóan gegn Svíunum. Þeg-
ar haft er í huga aö þarna spiluöu
átta efstu þjóöirnar frá HM í Sviss
þar sem íslendingar enduðu í sjötta
sœti er víst hœgt aö segja aö viö höf-
um færst upp um tvö sœti. Þaö dylst
þó engum sem með handknattleik
fylgist að sex efstu liöin á þessu móti
ásamt tveimur til þremur sem voru
fjarri góöu gamni í Svíþjóð eru fœr
um aö vinna hvert annaö hvenœr
sem er og skiptir dagsformiö hvaö
mestu um úrslit leikja svo og ákveö-
iö sjálfstraust sem leikmenn bera í
misríkum mœli miöaö viö andstœö-
inga. Frammistaöan í Svíþjóö var
þó (h)rós í hnappagat piltanna og
Bogdans þjálfara.
„SVÍAFÓBÍA"
Það eina sárgrætilega við hand-
knattleiksmótið í Svíþjóð var að
vinna ekki heimamenn. Auðvitað
stóðu þeir betur að vígi með sjö þús-
und hundleiðinlega áhorfendur að
baki sér og með danska dómara sér
við hlið. Það sem þó var ömuriegast
við þennan leik var að sjá Svíana
fagna nánast hverju marki með
ákveðnum hroka og leiðindabros á
vör. Þeir vissu fyrirfram að þeir
gætu ekki tapað fyrir „eskimóun-
um” frá íslandi. Þessar setningar hér
á undan staðfesta auðvitað það sem
ég er ekki óhræddur við að segja, að
mér finnst Svíar með allra leiðinleg-
ustu mönnum í heimi. Þeir eru að
mínu mati einhverjir þeir hroka-
fyllstu gagnvart smáþjóðum og telja
sig án efa í hópi „bestu” þjóða í
heiminum, jafnt í íþróttum sem og
öðru. Hér er svo það allra leiðinleg-
asta við þetta allt saman að Svía-
skrattarnir hafa efni á því að monta
sig, sérstaklega á sviði íþrótta. Ef
taldir eru upp afreksmenn Svía í
íþróttum kemur í ljós hversu góðir
þeir eru. Svíar eru án efa bestu
tennisleikarar í heiminum í dag. Sví-
ar eru í hópi bestu handknattleiks-
þjóða í heiminum. Þeir eru með
besta fóikið í norrænum greinum
skíðaíþrótta. Þeir eru núverandi
heimsmeistarar í íshokkíi. Þeir eiga
einn besta hástökkvara í heimi. Þeir
hafa gott knattspyrnulandsliö og
mjög góð félagslið, m.a. fyrrum
Evrópumeistara. Borðtennisleikara
eiga þeir góða og m.a. fyrrum
heimsmeistara. Já, Sviar eru sterkir
á sviði íþrótta, enda öllu fleiri en við
og úr miklu að moða, þar sem jafn-
aðarstefnan í Svíþjóð hefur skilað
þeim veiferðarþjóðfélagi með
skikkanlegum vinnutíma og mikl-
um frístundamöguleikum. En samt
þoli ég ekki hrokann í Svíum og mér
lá við að tárast þegar einhver
„Jílseninn” veifaði fingri til áhorf-
enda eftir hvert mark í leiknum á
sunnudaginn. Mín eina huggun er
sú að það hlýtur að fara að koma að
því að við leggjum Svíana að velli í
handknattleik og ef ÓL í Seoul
verða sá staður sem það kraftaverk
á sér stað þá gleymi ég öllum ósigr-
um okkar gegn þeim á stundinni og
fyrirgef íslenska liðinu þó það tapi
öllum öðrum leikjum á ÓL — bara
að vinna Svíana.
ÆÆ,ÆÆ, RÚV!!!
Það hefur nú um langa hríð verið
mér og félögum mínum hin ágæt-
asta skemmtun að fylgjast með
beinum útsendingum sjónvarpsins
frá ensku knattspyrnunni á laugar-
dögum. Ekki höfum við endilega
skemmt okkur yfir góðum leik held-
ur frekar yfir því hversu ótrúlega lé-
legir þessir leikir geta verið. Sem
brjálaðir knattspyrnuaðdáendur
höfum við þó látið okkur hafa það
að fylgjast með. Ein af ástæðum
þess að íþróttaáhugamenn, og þá
sérstaklega knattspyrnufrík, fylgj-
ast með enska boltanum er vegna
þess að leikurinn er gjarnan á ís-
lenska getraunaseðlinum og eins og
getraunirnar eru reknar í dag kem-
ur það fyrir að þessi leikur getur
skipt sköpum í keppni um milljónir.
Við megum þó ekki gleyma því að
það eru 12 leikir á seðlinum og þeir
skipta allir máli. Það sem meira er
— þeir eru leiknir undantekningar-
laust á sama tíma og því liggja úrslit-
in fyrir í þeim öllum um leið og
beinni útsendingu lýkur — og þól!
Fádæma heimskuleg uppröðun
sjónvarpsins á efni á laugardögum
gerir alla venjulega íþróttaáhuga-
menn brjálaða. Fyrst er ensk knatt-
spyrna sem einhverjir hafa gaman
af og aðrir fylgjast með vegna úrslit-
anna sem aldrei birtast og síðan
kemur 10 mínútna skautadans sem
knattspyrnuáhugamenn eru senni-
lega síst ginnkeyptir fyrir og síðan
og síðan og síðan SPÆNSKU-
KENNSLA í klukkutíma. Á besta
tíma á laugardegi er SPÆNSKU-
KENNSLA nánast sett þarna inn til
að eini íþróttafréttamaður sjón-
varpsins geti skotist frá til að skrapa
saman úrslit dagsins sem nánast eru
úrelt kl. SEX. Hræðilegt og al-
heimskt að mínu viti. Bjarni Fel. kík-
ir síðan með úrslit dagsins kl. SEX
og búið. Punktur og basta. Ekkert
fyrir aðra íþróttaáhugamenn en
knattspyrnufrík — sem ég tilheyri
sem betur fer, annars mundi ég
sennilega aldrei horfa á íþróttir hjá
RÚV. Mælirinn er síðan fylltur með
Tab-stúlku sem emjar á ameríska
vísu og hvetur nokkrar hræður til
dáða í allsherjar hristingi sem á best
heima kl. TIU fyrir hádegi á laugar-
dögum eða sunnudögum. Hræði-
legt. Það kemur mér ekki á óvart þó
margir íþróttaáhugamenn séu farn-
ir að kveinka sér á laugardögum,
sem áður fyrr voru þó íþróttadagar
og eru það víða í heiminum. Laug-
ardagar eiga að vera undirlagðir
íþróttum frá TVÖ til SEX og hana
nú!!
RAUÐSKINNAR OG
VILLIHESTAR
Þegar þetta er skrifað liggur Ijóst
fyrir að það verða Denver Broncos
og Washington Redskins eða Villi-
hestarnir frá Denver og Rauðskinn-
arnir frá Washington sem leiða sam-
an hesta sína í úrslitaleik ameríska
fótboltans sem á sívaxandi vinsæld-
um að fagna hjá áhorfendum Stöðv-
ar 2. Leikurinn fer fram þann 31.
þessa mánaðar og verður því á
dagskrá Stöðvar 2 þann 7. febrúar.
Liðin sem þarna leika saman eru
ekki með öllu ókunnug því að leika
í úrslitaleik ameríska fótboltans.
Denver, sem talið er sigurstrang-
legra að margra mati, spilaði til úr-
slita á síðasta ári en tapaði þá fyrir
New York Giants en árið 1978 spil-
aði liðið til úrslita gegn Dallas Cow-
boys og tapaði þá 10—27. Villihest-
arnir frá Denver eiga því enn eftir
að vinna Super Bowl-bikarinn.
Washington er á svipuðu róli hvað
varðar ferðir í úrslitaleikinn, en liðið
hefur þrívegis spilað til úrslita. Liðið
tapaði fyrir Miami Dolphins árið
1973 en sigraði Dolphins 1983 og
tapaði síðan fyrir L.A. Raiders ári
seinna.
Eitt er það sem sennilega mun
verða þessum úrslitaleik sérstak-
lega til frægðar og það er að stjórn-
andi Washington verður að öllum
líkindum Doug Williams, sem er
svartur, en aldrei í sögu úrslitaleikja
ameríska fótboltans hefur svartur
stjórnandi komið við sögu. Hann
mun hins vegar mæta einum af allra
bestu stjórnendum í boltanum,
nefnilega John Elway, sem fótbolta-
áhorfendur sáu spila stórkostlega
gegn Houston um síðustu helgi.
Hvort það skipti síðan einhverju
máli að stjórnandi Houston í þeim
leik var Warren Moon sem er, jú,
svartur, er ekki gott að segja en það
kemur allt í ljós.
TIL HAMINGJU
ÞORGILS!
Ekki er hægt að ljúka neinum
íþróttapistli þessa vikuna án þess að
hrósa einum af handknattleiks-
mönnum okkar sérstaklega. Þorgils
Óttar, fyrirliði íslenska handknatt-
leikslandsliðsins, var valinn í heims-
liðið í handknattleik eftir keppnina
í Svíþjóð. Þetta er frábær árangur og
staðfestir að hann er á meðal
þriggja bestu línumanna í heimi ef
ekki sá besti! Þorgils hefur fórnað
ótrúlegum tíma fyrir handknattleik-
inn, sem og aðrir landsliðsmenn, og
er útnefning hans einnig rós í
hnappagat landsliðsins í heild. Til
hamingju Þorgils og þínir menn!
ÞÓRMUND
38 HELGARPÓSTURINN
•r