Helgarpósturinn - 03.03.1988, Page 8

Helgarpósturinn - 03.03.1988, Page 8
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar STYRJÖLD UM EIGNIR FÉLAGSINS Formaður STRV sakar útgönguhópa um arðrán og grœðgi. Hann á móti sakaður um alvarlegt hlutleysisbrot Grimmt er nú smalað á aðalfund Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar (STRV), sem haldinn verður í Tónabæ á laugardag. Astœðan er mjög umdeildar breytingatil- lögur við lög félagsins, sem samþykktar hefðu í för með sér, að einstakir hópar og félög sem vilja segja sig úr starfsmannafélaginu ogstofna sjálfstœð félöggætu tekið með sér ákveðinn hluta af sjóðum og öðrum eignum STRV. Formaður STRV talar um siðlausa eignaupptöku en fylgismenn breytinganna um félagslegt réttlœti og sanngirni. Þarna á milli er óbrúanlegt bil og stefnir í harkalegt uppgjör í Tónabœ. EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON MYNDIR JIM SMART Með samningsréttarlögum opin- berra starfsmanna, sem tóku gildi 1986, varð sú grundvallarbreyting að hópar og félög innan heildarsam- taka geta stofnað sérstök stéttarfé- lög með eigin samningsrétti. Á aðal- fundi STRV í fyrra var sett á laggirn- ar nefnd þriggja manna til að fjalla um breytingar á lögum félagsins og skipulagsskrám hinna ýmsu sjóða þess. Nefnd þessi klofnaði í afstöðu sinni. Gudmundur Vignir Óskars- son og Sesselja Hauksdóttir mynda meirihluta um að lögum félagsins verði breytt þannig, að félagsmenn, sem ganga úr STRV til að stofna eða ganga í nýstofnað stéttarfélag með samningsumboði, eigi tilkall til hluta í eignum félagsins, í sjóðum þess, fasteignum og lausafjármun- um, sé þess óskað. A móti þessu var nefndarmaðurinn Oskar Magnús- son héraðsdómslögmaður, sem tel- ur slíkar breytingar stangast á við félagslega og lagalega uppbyggingu STRV og BSRB. 9 af 11 stjórnar- mönnum, með formanninn, Harald Hannesson, í fararbroddi, eru ein- dregið á móti þessum breytingum og er Haraldur mjög óvæginn í gagnrýni sinni á breytingatillögurn- ar. EIGNAUPPTAKA OG ARÐRÁN? Leiðari Haralds í nýjasta hefti fréttabréfs STRV hefur vakið athygli og mikla reiði innan raða breytinga- sinna. Þar segir Haraldur meðal annars: „Með lagabreytingum byggðum á hugljómun hyggst þetta fólk sópa til sín húseignum, orlofs- heimilum og sjóðum félagsins sem fórnfúsar hendur félagsmanna í STRV hafa byggt upp á 62 árum. Undir yfirskyni samstöðu og bræðralags ætla þau síðan að deila þessum feng sínum með öðrum sem kynnu að freistast til að stofna með þeim landsfélag... eignaupptaka með þessum hætti hefur ekki þekkst á íslandi fremur en annars staðar á Norðurlöndum síðan á vík- ingaöld." Kallar Haraldur á hinn al- menna félagsmann að mæta á aðal- fundinn til að veita þessu fólki ,,þá leiðsögn í góðum siðum að þau megi verða virkir félagshyggju- menn að nýju"! Auk þess að leggja svo línurnar í forystugrein sameiginlegs blaðs allra félagsmanna komu áðurnefnd- ir 9 stjórnarmenn saman 25. febrúar og samþykktu ályktun gegn breyt- ingunum og sendu félögum bréf í nafni félagsins, með áskorun um að fella tillögurnar, sem væru ,,slys“ er fæli í sér „arðrán", sérstaklega gagn- vart elstu félögunum. Á þennan fund voru ekki boðaðir þeir stjórn- armenn sem hlynntir eru breyting- unum. Þeir eru æfir yfir þessu „al- varlega hlutleysisbroti forystunnar" og á stjórnarfundi á mánudag létu þeir bóka óánægju sína og fyrirætl- an um að kynna tiliögurnar á hvern þann hátt sem þeim þætti við hæfi. FÓSTRUR ÆTLA ÚT í raun á þetta mál sér nokkurn að- draganda í þróun heildarsamtaka verkalýðshreyfingarinnar hin síð- ustu ár, sem kristallaðist meðal ann- ars í úrsögn kennara úr BSRB á sín- um tíma. Vendipunkturinn var verkfallið 1984. Eftir það tóku ein- stök félög og hópar að sækja í að fá samningsumboð í eigin hendur. f STRV eru nú alls 3.070 félagar í 14 „deildum". Á dögunum fór fram skoðanakönnun á félagsfundi með- al fóstra um úrsögn og stofnun stétt- arfélags og var mikill mejrihluti þeirra hlynntur þessari leið. í STRV eru rúmlega 300 fóstrur en væntan- legt félag yrði þó landsfélag. Af öðr- um hópum sem orðað hafa stofnun stéttarfélags má nefna rúmlega 200 sjúkraliða félagsins og á fjórða tug meinatækna, en ennfremur hafa raddir í þessa veru heyrst innan raða röntgentækna, strætisvagna- bílstjóra og brunavarða. Þessir hóp- ar eru alls um fjórðungur félags- manna STRV. Auk þess að benda á breytingarn- ar sem siðlausa eignaupptöku vilja andstæðingarnir meina að þær séu fordæmislausar og óframkvæman- legar í raun. Sjöfn Ingólfsdóttir, varaformaður STRV, telur og að þær færi með sér sundrungu: „Samtök launafólks urðu til vegna þess að samstaða borgaði sig. Ef þessar til- lögur meirihlutans (í nefndinni) verða samþykktar þá stuðla þær fyrst og fremst að því að leysa verka- lýðsfélög upp í frumeindir sínar." Og stjórnarmaðurinn Þórhallur Hall- dórsson telur óeðlilegt ,,að verð- launa starfshóp sem óskar eftir að yfirgefa stéttarfélag með því að af- henda honum hlut af sameiginleg- um sjóði þess". ÚR ÁLÖGUM FORTÍÐAR Þetta síðast talda telja fylgismenn breytinganna þvert á móti sann- gjarnt og eðlilegt, að eignauppgjör fari fram sem skili nýstofnuðu stétt- arfélagi hluta af því sem byggst hef- ur upp gegnum tíðina og viðkom- andi hópar hafa lagt til með fram- lagi sínu. „Skiljanlega virðast þess- ar tillögur róttækar en þær eru engu að síður mjög mikilvægar í því tilliti að auðvelda starfshópum að ganga í gegnum þær umbreytingar sem þeir hugsanlega kjósa sér sjálfir. Þessar tillögur eiga eingöngu við um nýstofnun stéttarfélaga og eignatilfærslu af þeim sökum en ekki einstaklinga einn eða fleiri sem ganga milli starfandi félaga," segir Guðmundur Vignir. Hlíf Geirsdóttir, aðaltrúnaðarmaður sjúkraliða á Borgarspítalanum, segir: „Það væri fráleitt ef hópar sem uppfylla öll skilyrði samkvæmt samningsréttar- lögunum til að mynda stéttarfélag með sjálfstæðan samningsrétt ættu að fara út úr sínu gamla félagi slypp- ir og snauðir, það lýsti lítilli sann- girni af hálfu þeirra sem eftir sætu í félaginu. Það yrði einnig mjög erfitt fyrir hin nýstofnuðu stéttarfélög að byrja að berjast fyrir bættum kjör- um við slíkar kringumstæður." Fylgismenn breytinganna telja að þær færi kjarabaráttuna „úr álögum fortíðar og óvirkni" inn í framtíðina. Ljóst er að hart verður deilt á aðalfundinum á laugardag. Á aðal- fundinn í fyrra mættu aðeins liðlega 100 af 3.000 félögum STRV eða 3—4% félagsmanna. Búast má við því að nú muni Tónabær fyllast og víst er, að STRV verður varla hið sama á eftir, hvernig sem atkvæða- greiðslan um tillögurnar fer. Þannig er vitað, að fóstrur muni samþykkja að ganga úr STRV, hvernig sem fer. Dómsmál í héraði EINVELDI AFLAGT Nefnd leggur til aðskilnað dómsvalds og stjórnsýsluvalds Miklar breytingar hafa nú verið lagðar til á alda- gamalli meðferð dómsmála í héraði. Dómsvald og um- boðsvald verða aðgreind að fullu og Ijóst er að töluverð valdatilfœrsla mun eiga sér stað. Slíkar breytingar eru fyrir löngu um garð gengnar í nágrannalöndunum en því hefur jafnan verið borið viö hér á landi að kostnaður væri of mikill. Það að íslendingar eiga yfir höfði sér dóm fyrir mannréttindabrot hjá Mannréttindadómstól Evr- ópu, vegna núverandi fyrirkomulags, ýtir á málið hér heima. EFTIRJÓNGEIR ÞORMAR I stjórnarsáttmála núverandi ríkis- stjórnar er kveðið svo á að hún muni beita sér fyrir endurskoðun á meðferð dómsvalds og stjórnsýslu- valds í landinu. í samræmi við þetta skipaði dómsmálaráðherra nefnd í lok september á síðasta ári sem fékk það hlutverk að semja frumvarp til laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði. I nefndinni sitja 9 menn, Björn Fridfinnsson adstodarmadur dóms- málaráöherra, sem jafnframt er for- madur, Magnús Torfason f.u. hœsta- réttardómari, Pétur Hafstein sýslu- maöur og bœjarfógeti á ísafirdi, Bogi Nilsson rannsóknarlögreglu- stjóri, Ólöf Pétursdóttir héradsdóm- ari, Eiríkur Tómasson hœstaréttar- lögmaður, Friðjón Guðröðarson sýslumaður, Markús Sigurbjörnsson borgarfógeti og Guðmundur Einars- son framkuœmdastjóri. Nefndin skilaði af sér drögum að frumvarpi nú fyrr í þessum mánuöi. Þau hafa nú verið send út til um- sagnar, en umsagnaraðilar varðandi drögin eru réttarfarsnefnd, Lög- mannafélag Islands, sérstök nefnd sem sýslumannafélagið hefur kosið, Dómarafélag íslands og Dómarafé- lag Reykjauíkur. Þegar þessir aðilar hafa skilað af sér athugasemdum og ábendingum mun nefndin koma saman á ný og meta hvort frum- varpsdrögunum skuli breytt í sam- ræmi við þær. Að því búnu skilar nefndin af sér frumvarpi til dóms- málaráðherra sem hann leggur fyrir Alþingi. SAMI MAÐUR í MÖRGUM HLUTVERKUM Það var ekki fyrr en á einveldisöld að sýslumenn fengu bæði dómstörf og umboðsstörf á sína könnu. Fyrir þann tíma höfðu þeir með umboðs- störf að gera í nafni konungs og nefndu enn fremur menn til setu í dómum en dæmdu ekki sjálfir. En á þeirri tíð þegar einveldi var alls ráð- andi í Evrópu og konungur æðsti handhafi löggjafarvalds, fram- kvæmdavalds og dómsvalds þótti ekkert eðlilegra en umboðsmenn konungs, sýslumennirnir, færu bæði með dómstörf og umboðsstörf. Þegar hugmyndir um greiningu ríkisvaldsins í þrjá þætti náðu yfir- hendinni á Vesturlöndum þctti um leið óeðlilegt að sami maður hefði með fleiri þætti þess að gera. Breyt- ingar vegna þessa áttu sér stað í Danmörku og Noregi snemma á öldinni en hugmyndir um fullan að- skilnað dómsvalds og umboðsvalds hér á landi lognuðust út af á Alþingi. Á sviði einkamála í héraði hefur sami maður dæmt i málinu og síðan fylgt dóminum eftir með fullnustu- gerð, t.d. er fógetarétti ekki einungis ætlað að kveða á um ákveðin rétt- indi heldur og að fylgja eftir úr- lausninni með valdbeitingu, ef þörf krefur. Staðan í opinberum málum (saka- málum) úti á landi hefur því verið sú að sýslumenn og bæjarfógetar hafa í hlutverki lögreglustjóra tekið menn fasta, grunaða um afbrot. Þeir hafa síðan rannsakað málið og ákært. Sami maður hefur að því búnu dæmt málið sem dómari og að lokum framfylgir hann dóminum í hlutverki lögreglustjóra. Þarna er rannsóknarréttarfarið, ættað frá kaþólsku kirkjunni, enn við lýði. Gagnrýni á þetta fyrirkomulag beinist eðlilega að því að réttarör- yggi þegnanna sé skert með því að málið sé alfarið á hendi eins manns. Enginn sé við meðferð málsins í héraði í aðstöðu til þess koma í veg fyrir hugsanlegt ofríki sýslumanns. Það sem hins vegar hefur haldið þessu fyrirkomulagi við lýði er að mönnum hefur vaxið í augum kostnaðurinn við að aðskilja dóms- vald og umboðsvald til sveita. Auk þess er langoftast hægt að áfrýja málum úr héraði til hlutlauss æðra dómstóls, Hœstaréttar. Einnig er það að hin stærri opinberu mál eru oftast fengin ríkissaksóknara í hendur og flutt af honum suður til Reykjavíkur, til dóms þar. Þess má að lokum geta í þessu samhengi að við hin umfangsmeiri embætti sýslumanna og bæjarfógeta úti á landi hafa verið skipaðir sérstakir héraðsdómarar sem starfa sjálfstætt að dómstörfum, þó að yfirstjórn embættisins sé í höndum sýslu- mannanna og bæjarfógetanna. Ástandið er því ekki eins slæmt og virst gæti við fyrstu sýn. Aftur á móti hefur i Reykjavík ver- ið um verulegan aðskilnað dóm- starfa og umboðsstarfa að ræða. Sérstakur lögreglustjóri og tollstjóri fara með störf sem teljast til um- boðsstarfa og héraðsdómstólnum í Reykjavík er skipt í þrjú embætti, þ.e. sakadómaraembœtti, borgar- dómaraembœtti og embœtti borgar- fógeta. Dómstólarnir fara enn með nokkuð af umboðsstörfum, sérstak- lega borgardómara- og borgarfó- getaembættið. Einnig hefur verið horfið að verulegu leyti frá rann- sóknarréttarfari til ákæruréttarfars í opinberum málum með stofnun embættis ríkissaksóknara og rann- sóknarlögreglunnar. Þó hafa saka- dómarar enn nokkra rannsóknar- skyldu í sakamálum og stóðu deilur um hana á síðasta ári vegna bréfs 5 sakadómara, þar sem þeir túlkuðu dóm Hæstaréttar í máli nokkru á þann veg að þessi rannsóknar- skylda væri aflögð. 7 HÉRAÐSDÓMSTÓLAR í tillögum nefndarinnar eru lögð drög að veigamiklum breytingum á núverandi skipan mála. Lagt er til stofnaðir verði í landinu 7 héraðs- dómstólar sem fari með opinber mál jafnt sem einkamál, þar á með- al dómstörf við skipti, fógetagerðir og uppboð. Lögsagnarumdæmi dómstólanna fylgja kjördæmum að mestu, nema að Norðurland er eitt umdæmi og hluti af Reykjaneskjör- dæmi, þ.e. Seltjarnarneskaupstaður, Mosfellsbær, Kjalarnes- og Kjósar- hreppur, tilheyra umdæmi Reykja- víkur. Samkvæmt þessu verða borgar- dómaraembættið og sakadómara- embættið í Reykjavík lögð niður ásamt sakadómi í ávana- og fíkni- efnamálum og þeir dómarar sem þar starfa verða sjálfkrafa héraðs- dómarar í Reykjauík. Yfirborgarfóg- etinn í Reykjauík verður sjálfkrafa sýslumaðurinn í Reykjauík og borg- arfógetar verða ýmist héraðsdóm- arar eða starfsmenn sýslumanns. Dómsmálaráðherra getur með reglugerð skipt lögsagnarumdæm- um í fleiri þinghár með föstum þing- stöðum, þar sem þingað skal reglu- lega. Gert er ráð fyrir að þinghárnar fylgi umdæmaskiptingu sýslu- manna eins og hún er ákveðin í frumvarpinu og þá verða þær að mestu óbreyttar frá því sem nú er. Lagt er til að við héraðsdóm Reykjavíkur starfi 21—27 dómarar, héraðsdóm Vesturlands 1—2 dóm- arar, héraðsdóm Vestfjarða 1—2, héraðsdóm Norðurlands 3—6, hér- aðsdóm Austurlands 1—2, héraðs- dóm Suðurlands 2—4 og við héraðs- dóm Reykjaness 7—11 dómarar. Dómsmálaráðherra skal ákveða endanlega tölu dómara. Þar sem dómarar eru fleiri en einn skal ráð- herra skipa dómstjóra til sex ára í senn. Hlutverk hans er að skipu- leggja starfsemi dómstólsins en hver héraðsdómari starfar sjálfstætt að þeim málum sem honum eru fal- in. Sem áður getur ráðherra löggilt fulltrúa við héraðsdómstól til að framkvæma dómsathafnir, sem dómstjóri felur honum. Þá er lagt til að stofnuð verði sér- stök nefndskipuð þremur mönnum, einum tilnefndum frá hverjum að- ila, Hæstarétti, Dómarafélagi ís- lands og Lögfræðingafélagi íslands, sem á að meta hæfni umsækjenda um héraðsdómarastöður. Það þykir horía til þess að styrkja sjálfstæði dómsvaldsins gagnvart fram- kvæmdavaldinu en ekki mun hafa verið samkomulag um þetta innan nefndarinnar. SÝSLUMENN EINUNGIS STJÓRNSÝSLUHAFAR Drög nefndarinnar gera ráð fyrir 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.