Helgarpósturinn - 03.03.1988, Side 12
jÍGolfskóli
/\ John Drummond
Lærið að leika golf RÉTT
hjá atvinnumanni.
Nýja Bflaborgarhúsinu,
Fosshálsi 1 - gengið inn að norðvestanverðu
Fullkomin kennsla og ráögjöf jafnt
fyrir byrjendur sem lengra komna:
• Kennt alla daga vikunnar
• Hópkennsla — Einkakennsla
• Fullkomin æfingaaöstaða opin
öllum • Sala á nýjum og notuðum
golfbúnaði • Sérfræðileg ráðgjöf
við val á búnaði • Leiga á kennslu-
myndböndum • Allar frekari
upplýsingar veittar í síma 67-38-22.
^Golfskóli
/\ John Drummond
GERUM VERÐSAMANBURÐ
Undanfamar vikur hefur VERÐLAGSSTOFNUN
framkvæmt verölagskannanir reglulega. Þessar
kannanir geta neytendur hagnýtt sér til að efla
eigið verðskyn.
Skattkerfisbreytingin og tollalækkanir sem
komu til framkvæmda um síðustu áramót hafa
áhrif á verðlag í landinu.
Vissuð þið til að mynda að fjölmargar vömr eiga
að lækka í verði vegna tollalækkana? Til að þessar
lækkanir skili sér til neytenda er nauðsynlegt að
vera á verði. Dæmin sýna að ef verðskyn og
verðlagseftirlit almennings slævist, skirrast
verslanir við að lækka vömverð til samræmis við
kostnaðarlækkanir.
Það er kominn tími til að landsmenn kanni
vömverð í sama mæli og nágrannaþjóðir okkar.
Slíkt skapar ekki aðeins aðhald, heldur stuðlar það
einnig að samkeppni milli verslana. - Betra verð-
skyn er leið til betri kjara.
Nú þegar viðamiklar breytingar ganga yfir
þjóðfélagið er það gmndvallaratriði að hafa
augun hjá sér við öll innkaup, hvort sem um er að
ræða fiskflök, kveikjulok eða steypu.
Besta tryggingin fyrir lágu vömverði er hið
vakandi auga neytandans. Vemm á verði - gemm
verðsamanburð.
VTÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ
S,8,„„
maður Reykjavíkurborgar sem
annast málsvörn f.h. borgarinnar í
málarekstri Karvels Pálmasonar
hafi lagt áherslu á að fá umsagnir
annarra sérfræðinga en þegar
höfðu metið afleiðingarnar af
meintum læknamistökum þeg-
ar Karvel var undir hendi lækna
Borgarspítalans. í síðustu viku var
enn á ný sett fram um það krafa af
borgarlögmanni, Magnúsi
Óskarssyni, að fimm sérfræðingar
til viðbótar skoðuðu alþingismann-
inn. Vægt til orða tekið er málsmeð-
ferð þessi farin að vekja nokkra
furðu. . .
D
H^^eglur um umboðsmann
Alþingis munu nú vera á leiðinni
en samkvæmt lögum sem Alþingi
samþykkti í fyrravor á það sjálft að
setja nánari reglur um starfsemi og
starfsháttu umboðsmannsins. Vand-
að hefur verið til reginanna og það
hefur tekið sinn tíma en búast má
við að þær verði lagðar fyrir þingið
til umfjöllunar von bráðar. Gaukur
Jörundsson, fyrrverandi laga-
prófessor og hæstaréttardómari,
sem kjörinn var umboðsmaður Al-
þingis nú fyrir áramótin, hefur sjálf-
ur haft hönd í bagga við samningu
reglnanna. Það styttist því vonandi
í að Gaukur taki til starfa en ákvörð-
un um húsnæði undir manninn mun
vera á lokastigi. . .
Tryggingafélögin tala nú um
hundraða milljóna króna tap á síð-
asta ári í bifreiðatryggingunum til
rökstuðnings því að hækka ábyrgð-
artryggingaiðgjöld sin upp úr öllu
valdi. Menn velta því þá eðlilega fyr-
ir sér hvernig í ósköpunum tvö þess-
ara félaga treystu sér til að leggja
fram verulegt fjármagn þegar aðil-
arnir 33 vildu kaupa Útvegsbank-
ann. Þá var Tryggingamiðstöðin
hf. til í að reiða fram 50 milljónir
króna og Sjóvá 10 milljónir
króna...
A
•^^■ðalfundur Flugleiða verð-
ur haldinn síðar í þessum mánuði.
Ekki er búist við neinum markverð-
um breytingum á stjórn félagsins, en
4 af 9 stjórnarmönnum eru í kjöri til
áframhaidandi setu, Haildór H.
Jónsson, stjórnarformaður og ann-
ar fulltrúa Eimskipafélagsins,
Grétar Kristjánsson, Kristinn
Olsen og Jóhannes Markússon.
Aðrir stjórnarmenn sitja áfram og
ekki er búist við mótframboði gegn
fjórmenningunum, þótt hlutföll hafi
riðlast lítillega við að Eimskipafé-
lagið keypti hlut Einars Árnason-
ar á síðasta ári og jók hlut sinn úr
23% í 27%. Síðasta ár var félaginu
erfitt vegna kostnaðarhækkana og
fastgengisstefnunnar og þurfti fé-
lagið að selja flugvélar til þess að
halda sér við núll-punktinn fræga,
eina á síðasta ári og aðra nýverið. . .