Helgarpósturinn - 03.03.1988, Page 13
Skattsvikin og Hœstiréttur
ÁHUGALEYSI AKÆRU-
VALDS OG DÓMS1ÓLA!
Skattsvikanefndin: Skortur á tœkjum og vinnu-
afli, tregda ákœruvalds og dómstóla, refsi-
heimildir mjög sparlega notaðar.
Á sama tíma og Jón Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra lýsir því yfir að með öllum ráðum verði að
bregðast gegn skattsvikum einstaklinga og lögaðila, sér-
staklega með hertu eftirliti og viðurlögum, þykja Ákœru-
valdiö og Hœstiréttur fram úr hófi mild í kærum og dóm-
um, jafnvel í hinum alvarlegustu málum. Þetta sýndi sig
ljóslega í máli Landvéla hf., setn Helgarpósturinn rakti
ítarlega í síðustu viku. Þar féll Ákæruvaldið frá hluta af
kröfum sínum gegn forráðamönnum fyrirtækisins vegna
söluskattssvika þess og Hæstiréttur mildaði verulega
sektar- og refsivistardóma undirréttarins.
EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON
Forráðamenn Landvéla hf. voru
sekir fundnir um að hafa á 19 mán-
aða tímabili svikist undan að greiða
söluskatt af veltu, sem á núvirði
hijóðar upp á 94 milljónir króna.
Hin svikna upphæð nam þannig
rúmlega 20 milljónum króna, sem
fyrirtækið hirti inn í veltu sína með
því að beita tvöföldu tekjuskráning-
arkerfi. Ef að líkum lætur auðnaðist
forráðamönnum fyrirtækisins að
„ávaxta" upphæð þessa í rekstrin-
um. Þó varð útkoman sú hjá Hæsta-
rétti að iækka sektir undirréttar úr
23,5 milljónum króna á núvirði í 9,4
milljónir alls. Niðurstaða HP var, að
með tilliti til álags embættis ríkis-
skattstjóra hefðu forráðamenn fyrir-
tækisins sloppið á sléttu frá máiinu.
Nánast útilokað er að skjóta á um-
fang söluskattssvika á íslandi, en
lauslega er þó talið að þau geti num-
ið um 11% af skiluðum söluskatti —
sem jafngildir nálægt 2,5 milljörð-
um króna í dag. Reynslan sýnir að
„svört vinna", nóíulaus viðskipti,
duldar tekjur, lækkun hagnaðar,
vanmat vörubirgða og fleira þess
háttar tíðkast mjög og þá einkum
meðal smæstu fyrirtækjanna. Enn-
fremur að eftirlit og aðhald eru af
mjög skornum skammti og viðurlög
ákaflega mild.
Fyrir tveimur árum skilaði nefnd,
sem kannaði umfang skattsvika, af
sér. I skýrslu fjármálaráðherra um
niðurstöðurnar kom meðal annars
fram, að refsiákvæði skattalaga
væru mjög víðtæk, sömuleiðis eftir-
lits- og rannsóknarheimildir skatt-
yfirvalda. Að rannsókn og meðferð
skattsvikamála ættu að geta verið
skjótvirkar og vandaðar. Beita má
sérstöku álagi umfram sektir og
aðra refsingu. Að refsimörkin hafa
verið rýmkuð verulega, þannig að
sé brot ítrekað eða sakir miklar
megi sekta viðkomandi um tífalda
þá upphæð sem undan var dregin
og dæma menn í varðhald eða fang-
elsi allt upp í 6 ár. Sekta má bæði for-
ráðamenn fyrirtækjanna og fyrir-
tækin sjálf (lögaðilana) og svipta
viðkomandi starfsréttindum.
En reynslan sýnir svart á hvítu að
óhemjubreitt bil er á milli lagaheim-
ilda annars vegar og réttarfram-
kvæmdar hins vegar, hjá skattyfir-
völdum, rannsóknarlögreglu,
ákæruvaldi og dómstólum. Nefndin
áðurnefnda taldi til þrjú einkenni
framkvæmdarinnar sem spiluðu
hér einkum inn í.
í fyrsta lagi ríkir skortur á tœkjum
og vinnuafli. Skattyfirvöld hafa æ
minni tíma til að yfirfara og endur-
skoða skattframtöl og um leið dreg-
ur óðfluga úr áhættu skattgreið-
enda og ótta við afleiðingar rangrar
skýrslugjafar. Tölvubúnaði er mjög
ábótavant.
I öðru lagi'einkennast rannsokn
og rrieðferð skattsvikamála talsvert
af tregdu og áhugaleysi, ekki síst hjá
ákœruvaldi og dómstólum. Það
hlýtur að teljast ákaflega alvarleg
niðurstaða lögskipaðrar nefndar
sérfróðra manna, að ákæruvaldið
og dómstólarnir séu beinlínis
áhugalaus um skattsvikamál!
I þriðja lagi eru heimildir til
ákvörðunar refsingar og annarra
viðurlaga mjög sparlega notadar,
svo ekki sé meira sagt! Ríkisskatta-
nefnd beitir sjaldan álagi eða skatt-
sektum. Sárafá mál koma fyrir dóm-
stólana. Viðurlög eru væg, hvort
sem eru sektir eða refsivist. Refsi-
vist er ætíð skilorðsbundin, nema
um hegningarlagabrot sé jafnframt
að ræða, t.d. skjalafals, rangfærslu
skjala, fjársvik eða fjárdrátt.
Athygli vekur í máli Landvéla, að
við munnlegan flutning í Hæstarétti
féll saksóknari frá kröfu um sakfell-
ingu ákærðu fyrir bókhaldsbrot og
er ástæðan væntanlega sú, að hið
almenna refsiákvæði 262. greinar
hegningarlaga er að ýmsu leyti
mjög ófullkomið. Það tekur ekki til
vanrækslu um einstakar færslur,
nema um^.stórfellda óreglusemi" sé
að ræða. I öllum tilfellum nýtur sak-
borningurinn túlkunarvafans. í
þessu tilfelli hlýtur það að hafa orð-
ið saksóknara um megn að sýna
fram á ásetning!
í tilfelli Landvéla virðist koma
fram skólabókardæmi um „áhuga-
leysi og tregðu" dómstóla þ.e.
Hæstaréttar í þessu tilfelli. í undir-
rétti leituðust dómararnir í Kópa-
vogi við að gefa gott fordæmi. For-
sprakkinn var dæmdur í 15 mánaða
óskilorðsbundið fangelsi og sonur-
inn í 6 mánaða fangelsi. Hæstiréttur
mildaði fangeisisdómana allveru-
lega. í undirrétti var fyrirtækið
dæmt í 17,8 milljóna króna sekt,
sem er nær þreföldun hinnar sviknu
upphæðar eða 180%. Raunvirði
þeirrar sektar í dag er um 23 millj-
ónir. Hæstiréttur iækkaði sektar-
upphæðina niður í 9,4 milljónir
samtals, en í dag hljóðar hin svikna
upphæð upp á 20,6 milljónir króna!
Ef sektarheimildin hefði verið fuli-
nýtt með tíföldun hinnar sviknu
upphæðar gætu sektirnar hafa farið
allt upp í um 64 milljónir króna.
Skattsvikanefndin komst meðal
annars að þeiri niðurstöðu að end-
urskoða þyrfti ákvæði um refsingu
og álag, að setja þyrfti nýtt refsi-
ákvæði um stórfelld skattsvik inn í
almenn hegningarlög, að bæta sjálf-
stæðum refsiákvæðum í bókhalds-
lögin með heimild til sviptingar
starfsréttinda, auk þess sem það
þyrfti að einfalda skattalögin, fækka
undanþágum og afnema ýmiss kon-
ar frádráttarliði.
Þegar þú borgar
I stöðumæli
stuðlar þú að
áframhaldandi
fjölgun
bílastæða í
borginni.
1. mar tóku starfsmenn Reykjavíkurborgar að sér eftirlit með stöðu-
mælum og stöðubrotum. Allar tekjur af stöðumælum og stöðubrotum
renna í bílastæðasjóð borgarinnar.
Verkefni bílastæðasjóðs er að eiga og reka stöðumæla við götur
borgarinnar og reka sérstök bílastæði. Sjóðnum er einnig ætlað að
standa undir byggingu og rekstri bílastæðahúsa og bílskýla fyrir
almenning.
Markmið borgarinnar er að fullnægja þörfinni eftir bílastæðum í
öllum borgarhverfum. Auknar kröfur verða gerðar um bílastæði fyrir
nýbyggingar í gömlum hverfum þannig að ekki verði skortur á bíla-
stæðum með tilkomu þeirra.
Nú hefur verið hert á innheimtuaðgerðum vegna stöðu-
brota. Ef ökumaður greiðir ekki í stöðumæli eða leggur
bifreið sinni ólöglega þarf hann að greiða aukastöðu-
gjald eða stöðubrotsgjald. Sé gjaldið ekki greitt innan
2ja vikna hækkar það um 50%. Síðar verður gert lögtak
í bflnum til greiðslu skuldarinnar.
Fjölgum bílastæðum
Borgum i stöðumælana
HELGARPÓSTURINN 13
V|Sf7ESO