Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 03.03.1988, Qupperneq 20

Helgarpósturinn - 03.03.1988, Qupperneq 20
starfinu lauk með heilmikilli yfirlits- sýningu sem við Garðar Gíslason borgardómari hjálpuðum til með. Kannski var það rangt hjá okkur, að reyna að gera upp listferil fertugs manns. Það væri nær að gera það svolítið síðar... ég veit það ekki. Sverrir var stórsnjali málari, gífur- lega duglegur þegar hann var við vinnu. Sumir segja að hann sé eitt- hvert mesta talent, tæknilega séð, sem hér hefur fæðst og starfað í myndlist. Hann fór illa með sig, dó fyrir aldur fram.“ Knútur skýst inn í annad herbergi og kemur med sýningarskrá af síd- ustu sýningunni sem hann hjálpadi Sverri vid. „Hann var ekki sídur góður má/ari áður en ég fór að hafa afskipti afhonum. Ég sá það á þess- ari sýningu. Það var mér dálítið áfall!' Og Klausturhólar hafa komið til um svipað leyti eða hvað? „Já, við vorum með Klausturhóia á þessum tíma, Guðmundur Axels- son og ég, byrjuðum á því að vera með bókauppboð, en sátum svo uppi með bækur sem við gátum ekki losað okkur við svo við stofn- uðum versiun. Það fóru margar góð- ar bækur um okkar hendur. Annars voru þessi uppboð mjög skemmti- leg. M.a. voru þrír miklir bókasafn- arar sem keyptu hjá okkur, Jón Steffensen, Torfi Hjartarson og Frið- jón Skarphéðinsson, og það var best þegar þeir komu því þá vissum við að við myndum selja fyrir sannvirði og jafnvel gott betur.“ LISTAVERKAKAUP f HÖFN Til þess að ná í myndir sem við seldum í Klausturhólum fór ég um nokkurra ára skeið þrisvar, fjórum sinnum á ári til Hafnar, auglýsti í „Berlingske" eftir íslenskum mál- verkum og sat svo á Hotel dAngle- terre og beið eftir fólki. Einhverju sinni var á herberginu hjá mér læknir af íslenskum ættum og var að selja mér tvær myndir eftir Jón Stefánsson. Þá er hringt upp og mér sagt að komin sé kona sem vilji selja mér málverk. Ég bað lækninn að hinkra, fer niður og hitti gamla konu og tvo menn sem hún kynnir sem eiginmann sinn og bróður. Hún er með mynd innpakkaða í brúnan pappír og ég dreif þau inn í hliðarsal til að líta á myndina. Reyndi að hraða þessu eins og ég gat tii að láta ekki lækninn bíða. Konan tekur ut- an af myndinni, sem var eftir Þórar- in B. Þorláksson, undurfalleg mynd. í flýtinum bauð ég 5.000 kr. danskar. Hún, hæglát gömul konan, byrjaði að pakka myndinni inn aftur. Ég vildi ekki missa myndina og bauð 7.000. Hún hélt áfram að pakka inn. Þá bauð ég 10.000 sem síðasta boð. Þá sagði hún: Það er einmitt það verð sem ég hafði hugsað mér að fengist fyrir hana. En þér hafið á fimm mínútum farið frá fimm þús- undum upp í tíu. Við slíkan mann vil ég ekki eiga viðskipti. Svo fóru þau en eftir sat ég með sárt ennið og skammaðist mín meira en ég hef gert fyrr eða síðar. Einhverju sinni fór ég á uppboð hjá Arne Bruun Rasmussen, fræg- um uppboðshaldara. Hann bauð upp litla vatnslitamynd eftir Kjarval sem ég var ákveðinn í að ná í. Hún var metin á 500 kr. danskar, sem var töluvert verð fyrir svo litla mynd. Ég var þarna ungur fálki, nervös og sveittur, sat í stiga og þegar kom að Kjarvalsmyndinni lyfti ég biek- penna sem ég var með í hendinni. Kona, sem ég kannaðist ekki við, bauð á móti mér og hún hélt biýanti á sama hátt. Svo söng Arne Ras- mussen: blyanten tyvehundrede, fyldepenen enogtyvehundrede, blyanten toogtyvehundrede, fylde- penen treogtyvehundrede. Að lok- r | Drog |um u ir i ni ■ ■ai oa u ■ -oki im al í sl k] w 1 isei JUJgERÐA mu i pymmi og féiagasamtök AKU REYRI IR mUR STASUR FYRIR RÁÐSTEFNUR 0G FUNDAHAld V ¥ V K0MIQ 0GNJÓTIQ GÓÐRA STUNVA FYRIR ÓTRÚLEGA LÁGT V E R Ð GERUM VERÐTILBOÐ FYRIR HOPA :Á Feróaskrifstofa Akureyrarhf. Ráðhustorg 3 - SIMI (96)25000 um var ég orðin svo sveittur ég sá ekki lengur en fékk myndina fyrir 3.600 krónur, sem var alltof hátt verð, en ég var engu að síður ánægður enda var þetta falleg mynd sem ég hafði ætlað mér að ná í.“ GALLERÍSREKSTUR OG BÓKAÚTGÁFA Listmunahúsið átti ég og rak t ein sex ár og það var bráðskemmtilegur tími. Ég kynntist mörgum lista- mönnum og reyndi að reka gallerí með stefnu. Gallerí sem átti að vera vettvangur fyrir þá list sem var að skapast í samtímanum. Ástæða þess að ég hætti með það var fyrst og fremst fjárhagsleg. Þetta var alla tíð rekið með tapi og það gekk einfald- lega ekki lengur en ég held að þetta gallerí hafi staðið nokk fyrir sínu. Þar voru haldnar þó nokkuð margar merkilegar sýningar, m.a. síðasta sýning á verkum Þorvalds Skúla- sonar að honum lifandi. Hann var þá kominn undir áttrætt og sýndi litlar myndir, geysilega fallegar. Svo vann ég að tveimur heimildarmynd- um, um Helga Gíslason mynd- höggvara og Louisu Matthíasdóttur, og ég hefði áhuga á að gera fleiri slíkar. Listmunahúsið var, eins og Klausturhólar, í Lækjargötu 2 og meðan Listmunahúsið var þar var á sömu hæð kaffistofan Mensa og þar var mikill samgangur á milli og fyr- irtækin studdu hvort annað. Einu sinni var ég bókaútgefandi. Við áttum saman útgáfufyrirtækið Skálholt ég og Njörður P. Njarðvík og gáfum út nokkrar bækur, m.a. viðtalsbók við Harald Björnsson eft- ir Njörð og Síðasta skip suður eftir Jökul Jakobsson, sem Baltasar myndskreytti af mikilli snilld. Við ætluðum okkur stóra hluti á tíma- bili, höfðum t.d. i hyggju að gefa út reyfara til að fjármagna útgáfu á fagurbókmenntum og gáfum út bækur til notkunar í skólum. Svo reyndum við að gefa út vikublaðið Fálkann um hríð. Það var gjaldþrota fyrirtæki þegar við tókum við því og gekk ekki upp. Útgáfan lagðist af þegar Njörður fór af landi brott, ég gat ekki hugsað mér að hætta að stunda mína lögfræði, þannig að við seldum fyrirtækið.“ MIKKI REFUR Hvernig stendur á öllum þessum framkvœmdum, er þetta í blóðinu? „Ég veit það ekki, ætli skýringin sé ekki sú að ég er sporðdreki." Er þetta löngun í ríkidœmi? „Ég hef aldrei stefnt að því að verða ríkur en hins vegar get ég ekki neitað því að ég hef viljað vera fjárhagslega sjálfstæður og geta notað mitt fé í það sem mig hefur langað til. Ég á sæmilega gott með af afla fjár, hins vegar helst mér ekki of vel á því. Ég myndi ekki vilja breyta því. Lífið er þannig, maður tekur og maður gefur og ég held að það sé betra að gefa of mikið en taka of mikið. Vissulega hef ég viljað fá fyrir minn snúð, ég neita því ekki. En ég hef vonandi gefið jafnmikið og ég hef tekið.“ Ertu harður í viðskiptum? „Nei, það held ég ekki. Þvert á móti of linur ef eitthvað er og kannski ekki of vel fallinn til við- skipta. Það er einkenni góðs við- skiptamanns að haldast vel á fé, kannski frekar en afla þess. Þess vegna er ég ekki gott dæmi um slík- an mann. Það er kannski einkenni á íslensku þjóðinni að hún aflar mikils fjár en helst illa á því. Annars máttu ekki láta mig segja einhverja speki. Ég kann það ekki.“ Ertu ekki dálítill refur? „Ég veit það ekki. Sumir segja það, ég veit ekki. Ég hef getað kom- ið ár minni fyrir borð. Annars held ég að ég sé svo mikill krakki í mér... ég hlýt þá bara að vera Mikki refur.“ Sáttur við tilveruna? „Já, mér hefur fundist gaman að lífinu. Ef ég lifði það aftur myndi ég gera margt það sama. Auðvitað hafa komið erfiðleikar, ég hef farið upp og niður ef svo má segja og það hef- jll lenging og útvíkkun beina á sér oftast stað til 20 ára aldurs. Mesta vaxtarskeið drengja er í kringum 12-14 ára aldurinn og stúlkna um 10-12 ára. ð i Fólksem hreyfirsíg mikið hefurmeiri beinmassa á efri árum en þeirsem hreyfasiglítið. 20 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.