Helgarpósturinn - 03.03.1988, Side 22
DAGBÖKIN HENNAR DÚLLU
Kæra dagbók.
Ég fann alveg rosalega skrítna út-
varpsstöð um daginn. Það var eigin-
lega engin tónlist. Ekkert nema tal,
tal, tal og meira tal. Ég hef aldrei vit-
að neitt fúlara á ævi minni. Svo
gerði mamma bara grín að mér og
sagði að þetta væri ekki nein leyni-
stöð (eins og ég hélt) heldur eitt-
hvert Útvarp Rót, sem allir vissu
um. Hún sagðist meira að segja sjálf
alltaf vera að hlusta á þessa stöð og
hún væri alveg frábær... Glætan,
maður.
Mér finnst það í alvöru orðið of-
boðslega líklegt að mamma hafi
fengið vitlaust barn heim með sér af
fæðingardeildinni. Ég á sko ná-
kvæmlega ekkert sameiginlegt með
þessum svokölluðu foreldrum mín-
um! Til dæmis get ég ekki skilið
hvað er svona æðisgengið við að
hlusta á eilíft raus um hvað esper-
antó sé meiriháttar og heyra
homma segja frá vídeómyndum og
blöðum, sem þeir eru með á bóka-
safninu í félaginu sínu. Hvaða erindi
á þetta eiginlega til venjulegs fólks?
Af hverju hringjast þessir furðufugl-
ar ekki bara á? (Það er líka greini-
legt að ég hef rétt fyrir mér, vegna
þess að þeir fá akkúrat engar aug-
lýsingar. Nema bara stundum frá
Borgarholtsbraut 19
Hrísateigi 47
Verið velkomin!
Esperantófélaginu, sem borgar ör-
ugglega ekki krónu fyrir þær.) En
mamma segir að þessi útvarpsstöð
ætli ekkert að græða helling af pen-
ingum. Þetta sé hugsjórú
Eg sagðist nú ekki fatta af hverju
einhver færi út í bisness, ef það væri
ekki til að græða. En þá fékk ég
náttúrulega einn af þessum hund-
leiðinlegu fyrirlestrum, sem
mamma er heimsmeistari í, bara af
því ég leyfði mér að opna munninn.
Hún sagði, að þessi Rót kæmi til
móts við þarfir alls konar hópa, sem
sumir af hinum fjölmiðlunum ætl-
uðu að þagga í hel út af pólitík en
NAMSKEK)
ENSKA
ÞÝSKA
FRANSKA
SPÆNSKA
DANSKA
PORTÚGALSKA
ÍTALSKA
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga
Uppl. í síniurn 10004/21655/11]09
Mímir
■MMMMHMHBJlNllNÁUmiM 15M
aðrir „ignoreruðu" af því að þeir
gætu ekki grætt nógu mikið á þeim.
Þeirra sjónarmið þyrftu hins vegar
líka að heyrast. Mamma sagðist þar
að auki vera orðin dauðþreytt á
tyggjótónlistinni, sem væri örugg-
lega lífshættuleg fyrir blóðþrýsting-
inn og ætti sök á helmingi af öllum
umferðarslysum. Það væri algjör
unaður að geta í staðinn hlustað á
fallega talað mál og umfjöllun um
alls konar mikilvæga hluti, eins og
friðarmál, jafnréttisbaráttu, launa-
mál og svoleiðis. (Þetta hljómaði nú
soldið sannfærandi hjá henni — þó
ég myndi auðvitað aldrei í lífinu við-
urkenna það fyrir henni — og þeir
mega svo sem vera með þessa stöð
sína í friði, en ekki dettur mér sko í
hug að hlusta á hana!)
Amma á Einimelnum segir, að
það séu stórhættulegir kommúnist-
ar sem reka þessa útvarpsstöð og að
hún geti leitt óþroskaða unglinga
eins og mig á glapstigu. Mæ
gooood... Meira að segja ÉG er klár-
ari í sálfræði en amma fyrst hún seg-
ir þetta! Hún fattar ekkert að svona
yfirlýsing er einmitt það sem myndi
láta (óþroskaðan ungling eins og)
mig fara að hlusta á þessa útvarps-
stöð dag og nótt — ef eitthuad gæti
gert það. Það er algjörlega óþol-
andi, þegar einhver reynir að hafa
vit fyrir manni. Fullorðna fólkið
nær bara ekki upp í það. T.d. pabbi
og mamma hennar Siggu í mínum
bekk. Þau voru í háskóla í Ameríku,
þegar Sigga var lítil, og eru alveg
tryllt í að ota að henni ensku. Hún
þolir sko ekki þennan endalausa
enskuáróður á heimilinu og fær
bleikar bólur, þegar maður minnist
á „english". Sigga er lika lélegust í
bekknum í ensku, þó hún sé efst í
öllu hinu. En þetta fullorðna fólk
pælir ekkert í því hvað það er að
gera manni... Bless, Dúlla.
S., „
tveir fimmtíu og tveir er þín leið til
aukinna viðskipta. . .
Nýr aiiglýsingasími
625252
AUK/SÍA
ora
1 grænmeti
OG LJÚFFENGT!
22 HELGARPÓSTURINN