Helgarpósturinn - 03.03.1988, Blaðsíða 27

Helgarpósturinn - 03.03.1988, Blaðsíða 27
NYHOFN Nýr myndlistarsalur í gömlu húsi Kannski er gamli miðbærinn í Reykjavík hægt og bítandi að hrista af sér dauðaslenið og gráa skrif- stofudrungann og ummyndast í al- vöru lifandi hjarta borgar. Kannski. Stöðugt fleiri mannlífstré brjóta sér leið upp um afírystar steinhellurnar og teygja sig upp til að bjóða roki og rigningu byrginn. í stað gulleitra vagna í hringferð á gráum fleti krussar fólk í fullkominni óreiðu eig- in tilfinninga á rauðum skóm milli kaffihúsa og listasafna hresst með hryssinginn og hætt að keyra haus- inn niður í nöp við náttúru og í kapphlaupi við tímann og bankann. Sífellt fjölgar veitingastöðunum, þeir eru orðnir svo margir að maður er löngu hættur að gera sér grillur um að prófa þá alla. Bjórlausu krárnar eru ómissandi samkomu- staðir. Myndlistarsölum fjölgar stöð- ugt og þeir hreiðra jafnt um sig í gömlu tryggingahúsnæði sem tísku- verslunum. Einn slíkur var opnaður 27. febrúar síðastliðinn, NYHÖFN, myndlistarsalur í Hafnarstræti 18. Eigendur Nýhafnar eru þær Svala Lárusdóttir og Svava Aradóttir. Nafnið er þannig komið til að eftir síðustu aldamót var i húsinu verslun með nafninu Nýhöfn og gekk það síðan undir þvi heiti. Elsti hluti húss- ins er reyndar frá 1795 þegar Jacob- æus kaupmaður í Keflavík flutti krambúð sína ásamt tveimur skemmum til Reykjavíkur. En er kannski orðið of mikið um myndlist- arsali í miðborginni? Svala Lárusdóttir: ,,Nei ég held að svo sé ekki. Margir myndlistarsalir munu að mínu mati styrkja hver annan frekar en standa í beinni sam- keppni og það þróist þá kannski mismunandi stefnur hjá hverjum þeirra." Svava Aradóttir: „Okkar stefna er í mótun, en hún miðar að því að vera með sem bestar einkasýningar á veturna og samsýningar á sumrin. Það er engin spurning að Nýhöfn verður hrein viðbót við það sem fyr- ir er, því íslenskir myndlistarmenn eru geysimargir og þá vantar sali frekar en hitt. Aðsókn að myndlist- arsölum, galleríum og nú síðast að Listasafni íslands sýnir að almenn- ingur kann að meta þetta aukna framboð á myndlist til sýnis." Er þella fyrst og fremst salur fyrir máluerk? Svala: „Hér er hægt að sýna hvaða myndlist sem er, skúlptúr og vefnað ekki síður en málverk. Við útilokum ekkert." Svava: „Skúlptúristar sem hingað hafa komið eru sérlega hrifnir af marmaragólfinu hér og segja það henta skúlptúr mjög vel." Nú er lýsing oft vandamál þegar myndlist er annars vegar. Svala: „Já, lýsing í myndlistarsöl- um er alltaf dálítill galdur. Ljósið þarf að dreifast mjög jafnt svo ekki sé skjannabirta í einu horni myndar og myrkur í öðru. Þetta tekst mjög vel hér og lausnin er eins einföld og hugsast getur; flúorsent dagsbirtu- perur á bak við eins konar kappa." Svava: „Við römbuðum eiginlega á þessa lausn, vegna þess sem hér var fyrir. Arkítektar og myndlistar- menn sem hingað hafa komið eru mjög hrifnir af lýsingunni." NYHÖFN opnar með sýningu á verkum Ragnheiðar Jónsdóttur Riem, sem lést árið 1977, sextug að aldri. Aðalsteinn Ingólfsson list- fræðingur segir um Ragnheiði ,,að hún hafi komið eins og ferskur and- blær inn í íslenska myndlist og borið með sér ný viðhorf og nýja mynd- sýn". Sjálf sagði Ragnheiður um verk sín: „Myndir mínar eru ekki fyllilega abstrakt. Þær eru ævinlega byggðar á náttúrunni. Islenskt landslag æsku minnar, ómælisvíð- átta og tær norðanbirta, þessi er hvati mynda minna." Svava: „Við erum mjög ánægðar með að geta sýnt Ragnheiði Riem. Sýningin er mjög góð og falleg og það er í raun mikill heiður að sýna svo frábæran listamann. Ragnheið- ur Riem hefur ekki verið mikið fyrir augum almennings." Sýningin á verkum Ragnheiðar JónsdótturRiemstendurtil 16. mars næstkomandi. NÝHÖFN opnar síð- an aðra sýningu sína þann 19. mars meö olíumálverkum Sigrúnar Harð- ardóttur, en hún hefur verið við nám í Hollandi undanfarin sex ár og meðal annars getið sér orð fyrir vídeóverk sín. Tvœr konur í röð og tvœr konur reka salinn, eruð þið að opna kvennasal? Svala: „Nei, svo sannarlega ekki, hér er einungis um tilviljun að ræða. Við förum ekki að úthýsa góðum listamanni fyrir þá sök eina að hann er karlmaður." Hvernig sýnist ykkur aðsókn vera að myndlistarsölum og -söfnum? Listasafn Islands hefur starfað í um mánuð og aðsókn þar mikil... Svava: „I Listasafni íslands gefst fólki loksins kostur á að sjá yfirlit yf- ir góða íslenska myndlist. Góð myndlist er auðvitað kveikjan að áhuga almennings fyrir listgrein- inni. Góð íslensk myndlist þarf að vera aðgengileg fyrir almenning og þar mun Listasafn íslands gegna lykilhlutverki. Það er svo mikið af vondri myndlist í gangi að fólki er brátt áfram nauðsyn að hafa stöðug- an samanburð. Listasafn íslands virkar án efa hvetjandi fyrir íslenska myndlist." Góð myndlist, vond myndlist, ekki sést munurinn á verðinu. Auð- vitað verður maður að kynnast myndlist með þvi að fara á sýningar og söfn og læra af reynslu að meta gott og vont. Til þess þarf að vera úrval myndlistar á almannafæri. Listasöfnin gegna þar stóru hlut- verki, en minni myndlistarsalir og gallerí ekki síður. Það getur verið svo dæmalaust þægilegt á brúna- þungu mánudagssíðdegi að hverfa inn á myndlistarsal eins og Nýhöfn og næra hugann litum og formum um stund áður en maður heldur á ný út á steingráa stéttina og upp í gulleita vagninn til að halda hring- ferðinni áfram. FÞ UTVARP SJONVARP Þegar enginn hlustar Ríkisstarfsmannaspjall Það er einhvern veginn þannig að dagskrárgerð hjá útvarpi fer að mestu leyti framhjá þorra fólks. Blöðin, sjónvarpið og síbyljurnar hreinlega metta upplýsinga- og af- þreyingarþörfina. Þess á milli er maður á bíó eða einhvers staðar úti þar sem útvarp á ekki heima. Þó maður sé allur af vilja gerður að missa nú ekki af neinu fljúga vandaðir þættir framhjá manni, oft án þess að maður hafi minnstu hugmynd um þá. Á rás eitt er þátt- um varpað út í löngum röðum og klukkustundum saman um óskyldasta efni. Á öðrum ijósvaka- miðlum er dagskrá meira spiluð af fingrum fram með viðtölum á staðnum og tónlist að uppistöðu. Þar ræður plötusnúðamenning ríkjum, svo ég vitni sem víðar í Einar Má Guðmundsson rithöf- und. Ég vil annars helst ekki tala um dagskrárgerð á tónlistarrásun- um enda hlustar enginn á þær rás- ir, þar fer efnið inn um annað og út um hitt líkt og annar umhverfis- hávaði. Rás eitt er hins vegar kappfull af þáttum sem mennta- málaráðherra vil! reyndar að séu jafnódýrir í vinnslu og plötu- snúðadagskrá. Á bak við klukku- tíma þáttargerð liggur kannski margra daga vinna fleiri en einnar manneskju, heilabrot um orðalag, atriðaröð, framsetningu og guð má vita hvað. Síðan er útvarpað í samkeppni við plötusnúða og í kapphlaupi við tímann. Svo er þátturinn horfinn inn í þoku for- tíðarinnar. Og kannski var enginn að hlusta. Ósjaldan les maður bréf í dagblöðum þar sem lýst er frati á dagskrá rásar eitt en tónlistar- stöðvarnar lofaðar fyrir fínan vinnutakt. Það er engu líkara en öll þjóðin vinni við að stimpla. Hún hefur hvorki tíma, nennu né þrek til að hlusta á eitthvað sem þarf að hugsa um. Það er svo erfitt að hugsa. Ef enginn hlustar eiga dagskrárgerðarmenn bara að „fílósófera" niðri á kaffistofu og út- varpa þögn á meðan. Útvarp þar sem enginn er að hlusta á ekkert. Þá værum við komin í svolítið skemmtileg mál. Freyr Þormóðsson Þaö er oft ágætis skemmtun að fylgjast með Leiðara Jóns Óttars á Stöð 2. Oftar en ekki er hann hitt- inn á efni og velur oftast saman hið skemmtilegasta fólk til að ræða mál sem efst eru á baugi hverju sinni. Undanskilinn er „ráðhúsþátturinn" sem sýndur var ekki alls fyrir löngu. En það er annar handleggur. í fyrrakvöld fékk Jón Óttar til sín fjóra menn til að velta fyrir sér kostum og gölium ríkisrekstrar andspænis einkarekstri. Umræðu- hópinn skipuðu þeir Hannes H. Gissurarson, Hreinn Loftsson, Sig- urður Þórðarson og Sighvatur Björgvinsson. Tveir fyrstnefndu þekktir sem ákafir talsmenn einkarekstrar og „nýfrjálshyggju" og þeir siðarnefndu reyndir „ríkis- afskiptamenn", hvor með sínum hætti. Annar alþingismaður til margra ára. Hinn starfsmaður fjár- málaráðuneytis og nú vararíkis- endurskoðandi. 1 stuttu máli þróuðust umræð- urnar með skemmtilegum hætti út í það að annars vegar sátu tals- menn hugmyndanna, þeir Hannes og Hreinn, og hins vegar fulltrúar raunveruleikans — fulltrúar hins pólitíska raunveruleika. Og hverju sinni sem þeir fyrrnefndu hentu á loft hugmynd um kosti einka- rekstrar skutu þeir síðarnefndu hugmyndina niður með dæmum — skemmtilegum dæmum um þann greiða aðgang sem einkaað- ilar hafa að sameiginlegum sjóð- um. Niðurstaðan varð málefnaleg umræða um kosti og galla hvors rekstrarformsins fyrir Sig, en ekki karp og skætingur eins og stund- um vill verða. Óneitanlega skondið að þátttak- endur skyldu allir vera ríkisstarfs- menn því forvitnilegt væri að heyra menn úr einkarekstri ræða sjálfa yfirburði einkarekstrar yfir rikisrekstri. Helgi Már Arthursson TÖNLIST Sönghátíd í Gamla bíói Ég komst aðeins á eina tónleika af þrennum, þar sem þýski söngvarinn Andreas Schmidt flutti þrjá falleg- ustu lagaflokka Schuberts ásamt landa sínum Thomas Palm. Á þrennum tónleikum var boðið upp á Malarastúlkuna fögru, Vetrarferð- ina, sem ég heyrði, og síðast Svana- söng. Það mun vera næsta fátítt að sami söngvari flytji alla þessa laga- flokka í runu, enda er hver þeirra fyrir sig feiknalega erfiður. En Ándreas og Thomas fóru létt með það. Samvinna þeirra er með eindæm- um náin. Báðir eru snillingar, hvor á sínu sviði, og meir en það: þeir bæta hvor annan upp og útkoman verður snilldartvenna. Það þarf nefnilega tvo til að flytja söngljóð eða „Lied". Oft er hlutverk píanósins jafn mikil- vægt því sem söngvarinn hefur fram að færa, stundum jafnvel enn- þá mikilvægara. Það er því óheppi- leg málvenja að tala um undirleik í þessu sambandi, miklu nær er að tala um meðleik eða samleik. Það HELGARPÓSTURINN 27

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.