Helgarpósturinn - 03.03.1988, Síða 34
BREIÐFYLKING
BLEKKING?
Nemendur vid Háskóla Islands
kjósa fuUtrúa úr sínum hópi til setu
í stúdentarádi og háskólaráöi. Stúd-
entarád er skipad 30 nemendum og
í háskólaráöi eiga þeir 4 fulltrúa af
16. Þeir nemar sem sœti eiga í há-
skólarádi sitja einnig í stúdentaráöi.
Kosiö er um 15 stúdentarádsfulltrúa
á ári þannig ad hver fulltrúi situr 2
ár í ráöinu.
Undanfarin ár hafa þrjú félög hafa
boðið fram lista í þessum kosning-
um: Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, Félag umbótasinnaðra
stúdenta og Félag vinstrimanna.
Nú hefur Vaka 13 menn í stúd-
entaráði, vinstrimenn 13 og um-
bótasinnar 4. Vaka vann umtals-
verðan kosningasigur síðasta vor,
en vinstrimenn og umbótasinnar
mynduðu saman meirihluta eftir
kosningar.
NÝTT FÉLAG — RÖSKVA
Það sem nú hefu r gerst er að umb-
ar og vinstrimenn hafa ákveðið að
bjóða fram sameiginlega nú í vor.
Nýtt félag, „Röskva", samtök félags-
hyggjufólks í HÍ, hefur verið stofnað
um framboðið en FUS og FVM
starfa áfram sem slík.
Grunnurinn að hinu sameiginlega
framboði liggur, að sögn forsvars-
manna félaganna, í meirihlutasam-
starfinu í vetur. Það hafi komið í ljós
að ágreiningur milli félaganna hafi
ekki verið meiri en milli einstakl-
inga innan sama félags. Það hafi því
verið réttast og jafnframt heiðar-
legast gagnvart kjósendum að fara
þessa leið.
Þegar Félag umbótasinnaðra
stúdenta var stofnað árið 1981 hafði
það sem aðalbaráttumál að stúd-
entaráð sinnti hagsmunamálum
nemenda ópólitískt. Fyrir þann
tíma var einungis um hægri og
vinstri að ræða í stúdentakosning-
um, Vöku og Félag vinstri manna.
Það er aðallega eftir tilkomu um-
bótasinna sem Vaka hefur reynt að
þvo af sér hægristimpilinn og sagst
vilja vinna að hagsmunamálum
stúdenta óháð flokkspólitískri sann-
færingu. Vinstrimenn hins vegar
hafa alla tíð talið að málefni stúd-
enta verði ekki slitin úr samhengi
við hin almennu þjóðmál og jafnvel
viljað álykta í stúdentaráði um utan-
ríkismál. Einn aðalhvatamaðurinn
að stofnun FUS, Finnur Ingólfsson,
segir í samtali við Mbl. 23. feb. að á
þeim tíma hafi þeir átt litla samleið
með „últrakommum" í FVM.
Umbótasinnar unnu stórsigur er
þeir buðu fyrst fram, en síðan þá
hefur fylgi þeirra dvínað jafnt og
þétt. Þeir hafa notið þess að vera í
oddaaðstöðu í stúdentaráði og hafa
ýmist starfað með Vöku eða FVM.
Formaður stúdentaráðs í vetur er úr
þeirra hópi þrátt fyrir að þeir séu
miklu minni en FVM.
GOTT SAMSTARF
GRUNNURINN
Ómar Geirsson, formaður stúd-
entaráðs, sagði í samtali við HP að
gott samstarf í vetur væri grunnur-
inn að hinu sameiginlega framboði.
Mönnum væri ljóst að stúdentar
yrðu að standa sameinaðir til að sjá
hagsmunum sínum borgið. Um af-
skipti stúdenta af málefnum þjóðfé-
lagsins sagði hann að sum málefni
sem snertu stúdenta, s.s. dagvistun-
armál, væri ekki hægt að slíta úr
samhengi við það sem væri að ger-
ast í þjóðfélaginu, þar ættu stúdent-
ar að taka afstöðu eins og aðrir þjóð-
félagshópar. Hann hafnaði hins veg-
ar alfarið því að nota ætti stúdenta-
ráð í flokkspólitískum tilgangi og
sagði ekki ágreining um það innan
Röskvu.
HP hefur heimildir fyrir því, að á
stúdentaráðsfundi, eftir að stofnun
Röskvu hafði verið ákveðin en áður
en hún var gerð opinber, hafi verið
lögð fram lagabreytingartillaga um
fækkun fulltrúa í stúdentaráði úr 30
í 15. Því hefði einungis átt að kjósa
um 8 fulltrúa í vor en 7 næsta vor.
Þessar breytingar hafi átt að gera til
þess að tryggja hinu nýja félagi
meirihluta í komandi kosningum.
Vaka hefði þurft að fá 5 fulltrúa af 8
til að ná meirihluta skv. tillögunum
en þarf 8 af 15 fulltrúum í núverandi
kerfi til þess að ekki sé hægt að
mynda meirihluta án þeirra. Fyrra
hlutfallið, 5 af 8, er þeim mun óhag-
stæðara og lagabreytingartillagan
því í rauninni „kosningaplott". Vaka
hafði skv. heimildum HP hlerað
stofnun Röskvu tveimur dögum fyr-
ir fundinn í ráðinu og felldi tillög-
urnar en % atkvæða þarf til sam-
þykktar lagabreytinga. Tillögur sem
Vaka lagðr-fram um endurskipu-
lagningu nefnda innan stúdenta-
ráðs voru síðan felldar af meirihlut-
anum svo ekkert náði fram að
ganga.
Þessu „plotti" er hafnað af öðr-
um. Þeir segja að öllum sé ljóst að
„Gengisfelling þýöir í raun að við rýrum
kaupmátt launafólks og fœrum
yfir til útflutningsatvinnuveganna.“
„Ég hef hugleitt hvort verið sé að gera
mér óbærilegt að starfa i ríkisstjórn-
inni." Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra.
„Öryggisvörður meinaði mór aðgang aö
lóðinni, þá varð mér Ijóst að ég hafði ver-
ið rekinn." Eysteinn Helgason
fyrrverandi forstjóri lceland Seafood.
„Ég hafði allan tímann einsett mér aö
tala sem minnst um einstakar persónur,
verk þeirra og framkomu... Ef byrjað er é
Geir Magnússyni þá..."
Guðjón B. Ólafsson
forstjóri SÍS.
Porsteinn Pálsson Torsætlsráðherra.
„Það er auðvitað fullt af pempíum
hér á Alþingi sem þola ekki að talað
sé til þeirra é almennilegri is-
lensku."
Sverrir Hermannsson
bankastjóri og alþingismaður.
„Umræðan um bjór snýst ekki um það
hvort áfengismagn muni aukast eða
minnka. Hún snýst um mannréttindi, þ.e.
hvort við treystum meöbræörum okkar
til aö ráða sínu eigin lífi."
Hrafn Gunnlaugsson
kvikmyndaleikstjóri.
stúdentaráð sé ekki eins skilvirkt og
það ætti að vera og bæta verði úr
þessu á einhvern hátt.
BREIÐFYLKING —
„ÚLTRAKOMMAR"
í stefnuskrá Röskvu kemur fram
að samtökin byggja á „félags-
hyggju“ en skv. skilgreiningu sam-
takanna er félagshyggja lífsskoðun
sem gerir ráð fyrir jöfnum rétti fólks
til frelsis, lífs, afkomu og menntunar.
Samtökin telja að háskólinn hafi
mikilvægu hlutverki að gegna og
því sé nauðsynlegt að sjálfstæði
hans gagnvart stundarhagsmunum
sé tryggt. Það sé skylda stjórnvalda
að tryggja öllum jafnan aðgang að
menntun. Röskva telur Félagsstofn-
un stúdenta þjónustufyrirtæki byggt
á félagslegum sjónarmiðum. Lána-
sjóður íslenskra námsmanna er að
mati Röskvu félagslegur fram-
færslusjóður sem á að tryggja fullt
jafnrétti til náms, óháð efnahag.
Þess vegna er það grundvallaratriði
að námslán dugi fyrir framfærslu.
Vegna þess að lánin eru framfærslu-
lán sé óverjandi að leggja á þau
vexti og eðlilegt sé að endurgreiðsla
þeirra taki mið af tekjum. í utanrík-
ismálum styður Röskva baráttu
námsmanna fyrir jafnrétti til náms
og öðrum sjálfsögðum mannréttind-
um hvar sem er í heiminum. Að lok-
um segir í stefnuskránni að ekki sé
hægt að slíta hagsmunabaráttu
námsmanna úr tengslum við aðra
baráttu sem eigi sér stað í þjóðfélag-
inu en félagið leggi áherslu á þau
þjóðmál sem tengjast hagsmunum
stúdenta.
„Félagshyggja" er ákaflega víð-
tækt hugtak. Þrátt fyrir að stefnu-
skrá samtakanna hafi verið mótuð
er erfitt að segja fyrir úm hvaða
stefnu samtökin muni taka í framtíð-
inni. Ljóst er að Röskva, sem breið-
fylking félagshyggjuaflanna, er
hreyfing þar sem margir geta starf-
að saman á félagslegum grunni.
Innan Röskvu er samankomið fólk
með margar og mismunandi
pólitískar skoðanir. Ef þetta gengi
eftir væru að ýmissa áliti nýir tímar
runnir upp í stúdentapólitíkinni.
Hins vegar er Ijóst að ítök harðra
vinstrisinna í Röskvu eru mikil og
félagið gæti þróast í eins konar
„últrakommagrúppu" sem tældi
fólk er vildi starfa að málefnum
stúdenta á grunni félagshyggjunnar
til sín, þ.e. „notaði nytsama sakleys-
ingja til þess að draga fyrir sig vagn-
inn“ eins og einn viðmælandi HP, er
kynnt hefur sér þessi mál, orðaði
það.
í samtali við HP sagði Þórunn
Sveinbjarnardóttir, formaður
Röskvu, að hún teldi að samtökin
myndu lifa áfram sem breiðfylking
stúdenta enda væri lítið um „últra-
komma" í dag. Breidd væri í skoð-
unum innan félagsins og allir væru
velkomnir til starfa á grundvelli fé-
lagshyggju. Aðspurð sagði hún að
stúdentar væru hluti af þjóðfélaginu
og gætu ekki lokað sig af í fílabeins-
turni, heldur yrðu að taka afstöðu til
ýmissa mála.
Bæði hún og Sveinn Andri Sveins-
son, oddviti Vöku, voru sammála
um að ekki bæri mikið á milli fylk-
inganna varðandi málefni, frekar
væri ágreiningur um leiðir. „Bar-
áttumál stúdenta verða ávallt hin
sömu þó áherslurnar hjá hreyfing-
unum séu mismunandi," sagði Þór-
unn. Sveinn sagði að hið nýja félag
eins og Félag vinstrimanna vildi
hafa stúdentaráð þátttakanda í
hinni almennu þjóðmálaumræðu.
Vaka væri þessu algerlega ósam-
mála og teldi að hagsmunir nem-
enda ættu ekki samleið með slíku.
Þarna væri um grundvallarmun að
ræða.
ÁHUGALEYSI
Nú gæti einhverjum dottið í hug,
vegna þeirrar miklu umfjöllunar
sem kosningar til stúdentaráðs fá í
fjölmiðlum, að allur þorri háskóla-
stúdenta sýndi kosningunum ótak-
markaðan áhuga og fylgdist spennt-
ur með þeim hræringum sem eiga
sér nú stað. Að halda þetta væri leið-
ur misskilningur. Ekki er hægt að
segja annað en hinn almenni há-
skólanemi leiði kosningarnar að
miklu leyti hjá sér. Á fundum FUS og
FVM, þar sem sameiningin var sam-
þykkt, voru örfáar hræður og
ákvörðunin um stofnun félagsins
hafði í raun verið tekin áður.
Þeirri skýringu hefur verið varp-
að fram á þessu áhugaleysi að þótt
fólk sé reiðubúið að starfa að félags-
málum vilji það ekki gefa sig ákveð-
inni hugmyndafræði á vald, sem
það telur sig verða að gera ef það
gengur í stúdentafélögin. Þarna
eiga í raun sömu rök við og þegar
fólk telur að hið gamla fjórflokka-
kerfi í stjórnmálum höfði ekki til
þess. jgþ
„Við verðunt ffyrsft ojj fremsft i
leiðbeiningahualeiðingum
vegna iiýju umverðarlaganna og
með góðum hug/#
„Ég þekki bjórinn."
Ólafur Þ. Þórðarson
alþingismaður.
„Það þýðir ekki að ráðast á einkenni
verðbólgunnar. Ekki læknarðu mislinga
með þvi að velta þér upp úr hveiti."
Þorsteinn Pálsson
forsætisráðherra.
„Kenning HP um samsæri gegn Guðjóni
B. Ólafssyni er ekkert annaö en jaka-
burður af lygi... Þetta er einhver viöur-
styggilegasta grein sem ég hef séð."
Valur Arnþórsson
stjórnarformaður SlS.
lógregluvarðstjóri.
„Guðrún Kristjánsdóttir fré Akureyri var
meðal keppenda í stórsviginu í Calgary
en féll úr keppni eins og margar aðrar
frægar skiðakonur."
JKS á DV.
„Þetta er skipulögð herferð til að ræna
mig mannoröinu."
Guðjón B. Ólafsson
forstjóri SÍS.
„Ég held aö ég geti sagt að miöað við
Bandaríkin hafi launakjör mín verið lág,
í þaö minnsta ekki há."
Guðjón B. Ólafsson
forstjóri SIS.
STJORNUSPA
4.-6. MARZ
mi'tmuiiL'L'inB—
Þótt rómantíkin blómstri þessa dagana
skaltu varast aö bindast viðkomandi per-
sónu of sterkum tilfinningaböndum. Loforð
geta verið vel meint en sprottið upp úr mis-
skilningi. Manneskja í fiskamerkinu virðist
eitthvað trufla daglegt líf þitt. Lokaðu á for-
tíðina og horfðu fram á veginn.
NAUTIÐ (21/4-21/5
Þú færð tækifæri til að efnast fjárhagslega
en verður að leggja nokkuð á þig til þess. Lík-
legt er að þér bjóðist nýtt starf en þú þarft
að íhuga vel tilboðið, sér i lagi með tilliti til
fjölskyldunnar. Þér gefst nú færi á að byrja
að nýju og láta leiðinleg mál fyrri tíma falla
i gleymsku.
TVIBURARNIR (22/5-21/6
Þér verður Ijóst í fyrsta skipti í langan tíma
hvar þú í rauninni stendur varðandi fjárhag-
inn og starf þitt. Settu takmarkið hátt því í
rauninni geturenginn hindrað þig, nema þú
sjálfur. Reyndu endilega að komast að
kjarna málsins, þér verður ekkert ágengt
öðruvísi.
KRABBINN (22/6-20/7
Rómantíkin gerir vart við sig á þeim stað
sem þig síst grunar. Beindu athyglinni aö
manneskjum sem þú hittir næstu dagana,
einhver þeirra býr yfir meiru en virðist við
fyrstu kynni. Glaölynd persóna auðgar líf
þitt og kennir þér að mét'a hluti sem þú hafð-
ir aldrei tekið eftir fyrr. Þ ú færð gest á sunnu-
daginn sem kemur langt að.
LJÓNIÐ (21/7-23/8
Það er tímabært fyrir þig að athuga betur við
hvaða öryggi þú býrð. Einhver óróleiki sækir
að þér og þú unir þér ekki nema á ferð og
flugi. Beittu kimnigáfu þinni eftir megni, hún
á eftir að reynast þér vel. Undirritaðu enga
samninga nema að vandlega íhuguðu máli.
Persóna í Krabbamerkinu leikur stórt hlut-
verk i lífi þinu þessa dagana.
MEYJAN (24/8-23/9
Samkvæmislífið er í miklum blóma hjá þér
þessa dagana. Einhverjir fjárhagsörðugleik-
ar eru í nánd, en óþarft er að hafa áhyggjur
af þeim. Kannaðu fjármálin gaumgæfilega
og þú kemst að raun um að þér hefur orðið
á i messunni. Þessa hluti geturðu lagfært á
auðveldari hátt en þér virðist í fyrstu. Vertu
opinskár í samskiptum þínum við aðra.
r77TH-j,'wn-q m iiyiiWH
Sjálfsagi er það sem skiptir máli þessa dag-
ana. Þreyttu ekki vini þína með smáatriðum,
það getur hvort sem er enginn nema þú
sjálfur leyst úr vandamálunum. Þér berast til
eyrna sögusagnir sem gera það að verkum
að þú gerir þér betur grein fyrir hvað er að
gerast í málefnum ákveðinna aðila. Taktu
ekki á þig meiri ábyrgð en þú ræður við.
SPORÐDREKINN (23/10-22/11
Vertu viðbúinn breytingum á högum þínum.
Þær geta falist í hverju sem er, ferðalagi eða
jafnvel rómantík. Eitthvað sem þig hefur
lengi langað að vita kemur nú upp á yfir-
borðið en ef þú ert of íhaldssamur í skoðun-
um getur niðurstaðan valdið þér vonbrigð-
um. Vertu ekki vonsvi kinn þótt óskir þínar fái
ekki góðan hljómgrunn hjá fjölskyldunni. Þú
verður fyrst að leysa ú r ákveðnum deiluefn-
um og ef þú ferð að f inna til sjálfsvorkunnar
gengur dæmið ekki upp.
BOGMAÐURINN (23/11-21/12
Vegna ómótstæðilegra persónutöfra þinna
tekst þér að brúa bilið milli ákveðinna aðila,
sem eru ósáttir um gang mála. Góður vinur
þinn þarf á samúð þinni og skilningi að
halda. Deildu með honum hugmyndum þin-
um. Tónlist og önnur list skiptir þig miklu
máli um þessar mundir. Þú hlýtur eftirtekt
sem þú hefur lengi sóst eftir og lykillinn að
velgengni þinni er í höndum þess sem þig
sist grunar.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Athyglin beinist að þér þessa dagana, ein-
mitt þegar þú vilt hafa næði. Þótt þú hafir
þörf fyrir að vera í einrúmi geturðu ekki horft
framhjá því „sviðsljósi" sem þú ert nú
staddur í. Hafðu hugfast að ekki er allt gull
sem glóir og oft þarf að kafa dýpra til að
finna rétta hlið á málunum. Talaðu við menn
á réttum stöðum til að fá skýringu á því sem
er að gerast.
VATNSBERINN (22/1—19/2
Gríptu tækifærin þegar þau gefast. Ef þú
hikar missirðu af mikilvægu tækifæri sem
varðar stöðu þína. Þungri byrði verður af þér
létt og þér tekst að hjálpa þeim sem til þín
leitar. Heimsæktu nýja staði og hikaðu ekki
við að leita ráða hjá vini þínum þótt fjar-
staddur sé. Ástamálin taka óvænta stefnu
sem kemur þér verulega á óvart.
FISKARNIR (20/2-20/3
Hjálpleg manneskja veitir þér þá aðstoð
sem þú biður um. Láttu sem þú takir ekki
eftir afbrýðisemi sem beinist að þér. Einhver
sem vill ekki láta á þvi bera ber til þín mun
sterkari tilfinningar en þig órar fyrir. Varastu
óþolinmæði þótt einhver hnykkur hafi kom-
ið á fjárhagsáætlunina. Fólk i Krabbamerk-
inu og Steingeitinni kemur mikið við sögu.
34 HELGARPÓSTURINN