Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.04.1988, Qupperneq 2

Helgarpósturinn - 07.04.1988, Qupperneq 2
Af hverju sérstakt stéttarfélag? Selma Dóra Þorsteinsdóttir, formaöur Fóstrufélags íslands „Meiningin með því að stofna sérstakt stéttarfélag er að sameina fagfélagsmálin og kjaramálin. í dag er Fóstrufélag íslands fagfélag og við teljum að okkar málum sé best borgið með því að sameina þetta undir einn hatt. Við telj- um okkur hafa orðið undir í baráttunni, sérstaklega hvað varðar ýmis sérhagsmunamál fóstrustéttarinnar, og teljum að að það sé meiri möguleiki að ná þeim fram ef við fáum málin í okkar hendur og náum þannig betur til viðsemjenda okkar." í hvaða félögum eru fóstrur nú? „Fóstrur eru almennt í starfsmannafélögum bæjarfélag- anna víðs vegar um landið og einnig innan starfsmannafé- lags ríkisstofnana." Er tími heildarsamtaka af því tagi liöinn? „Ég held að þaö þurfi að stokka þau upp, það er engin spurning. Það þarf að byggja kjarabaráttuna og þar með stéttarfélögin upp á öðrum grunni og út f rá öðrum forsend- um." Hvaða áherslubraytingar verða hjá fóstrum við stofn- un þessa nýja félags? „Það á eftir að koma í Ijós og ererfitt að segja til um. Við komum til með í kjarabaráttu okkarað leggja mikinn þunga á fagleg sjónarmið. Þau verða rökin að baki bættum kjörum og bættum aðbúnaöi á vinnustað" Er sórstök kjarabarátta þá framundan í framhaldi af stofnun hins nýja félags? „Það hefur ekkert verið ákveðið. Það þurfa % hlutar starfandi fóstra á landinu að ganga í nýja félagið til þess að það fái samningsrétt og við ætlum að ná þeim fjölda inn í félagið fyrir 1. október þannig að við getum samið sjálfar fyrir okkur þegar samningar losna um áramót." Hvað meö þær fóstmr sem greiddu atkvæði gegn stofnun félagsins. Verða þær áfram í sínum gömlu félög- um og fóstrur því sundraðar? „Það er Ijóst að samkvæmt túlkun á nýju samningsrétt- arlögunum geta þær verið áfram í sínum félögum. Það er rétt að það komi skýrt fram að það hefur engin fóstra sagt nei við því að stofna stéttarfélag, en sumar hafa verið á móti því að stofna það núna. Þær hafa talið að það væri of skammur tími frá því að samningsréttarlögin tóku gildi og finnst ekki vitað hvað verður. Við hinar bendum á að þetta verði að gerast núna þannig að við getum sem fyrst fengið samningsréttinn og finnst við hafa beðið nógu lengi. Mér finnst mjög ótrúlegt að þær verði eftir í starfsmannafélög- unum en það á náttúrulega eftir að reyna á það." Núverandi Fóstrufélag íslands er einungis fagfélag. Verður það þá lagt niður þegar nýja félagið verður stofn- að? „Já, í rauninni. Við leggjum félagið formlega niður og byggjum nýtt félag á gamla grunninum. Við komum því til með að leggja til að eignir og skuldir gamla félagsins renni óbreyttar til nýja félagsins." Hvaða viðbrögð hafið þið fengið frá gömlu félögunum, t.d. Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar? „Mér vitanlega höfum við ekki fengið nein viðbrögð eftir þessar kosningar. Hins vegar vitum við að meirihluti stjóm- ar Starfsmannafélags Reykjavíkur er mótfallinn þvi að fé- lögin taki sér samningsréttinn. Það er rétt að undiistrika að við verðum áfram í BSRB." Fóstrur hafa í almennri atkvæðagreiðslu innan Fóstrufélags ís- lands samþykkt að stofna sérstakt stéttarfélag en Fóstrufélag ís- lands hefur hingað til einungis verið fagfélag. Af þessu tilefni ræddi HP við Selmu Dóru Þorsteinsdóttur, formann félagsins. FYRST OG FREMST REYKJAVÍK er höfuðborg allra landsmanna og margir í dreif- býlinu hafa átt hér lengri eða skemmri dvöl við nám og störf. Margir láta sig því varða hvað fram fer hér í borginni. Sigurdur O. Pálsson skrifar í „Austra" nýlega .Jrmlegg í Tjarnartai' og fer á kostum um ritvöllinn. Hér er sýnishorn: „Auðvitað ætti að vera búið að fylla þennan tjarnarpoll af byggingum fyrir löngu. Ég leyfi mér „að harma það mjög“, eins og Steingrímur segir, að Hallgríms- kirkja var ekki látin ofan í hann á sínum tíma í stað þess að tylla henni upp á þetta endemis berangursholt þar sem hún stendur á gröf Steinunnar frá Sjöundá, og ég tel það meiriháttar skipulagsslys, að Morgunblaðs- höllin, Seðlabankamusterið, Borgarleikhúsið, Mikligarður, hálfturn íslenskra aðalverktaka og Kringlan, auk svo sem eins hótels eða tveggja, skuli ekki hafa verið látin ofan í Tjörnina. En úr því svona óhönduglega tókst til var náttúrulega einboöið að leggja Keflavíkfurflugvöll niður, gera Vatnsmýrna að almennilegum millilandaflugvelli og koma flug- stöðinni sælu með eðlunum og pálmunum fyrir í Tjörninni. Að vísu hefði þurft að ryðja ein- hverjum húskofum í burtu fyrir flugvöllinn, en hvað munar oss íslendinga um einn og einn blóðmörskepp í sláturtíðinni?" SIÐAR í grein sinni segir Sigurður Ó. Fálsson: „Verði Tjörnin ekki orðin full eftir þessa landhreinsun hlýtur að mega finna einhver náttúruvætti í Reykjavíkurhreppi og grennd til að kóróna verkið, og ef allt um þrýtur má senda vænan vörubíla- flota til Þingvalla Þar er allt fullt af grjóti, sem enginn veit í hvað á að nota. Með í púkkið má svo nota gömul hús, t.d. úr Grjóta- þorpinu og víðar, sem upplýstu nútímafólki hafa lengi verið þyrnir í augum, og lofa peningamönnum að reisa hallir í nýraunsæisstíl á grunnum þeirra, svo að við verðum ekki að athlægi hjá komandi kynslóðum fyrir kauða- skap og nesjamennsku." Það er ekki að sjá að ráðhúsið auki veg eða vegsemd Davíðs úti á landsbyggðinni fremur en í höfuðborginni. AF „þenslunni" í höfuðborginni er það meðal annars að frétta að framkvæmdir fara senn að hefjast við byggingu rúmlega 2.000 fermetra íþróttahúss við Austur- berg 3 — langþráðs íþróttahúss Fjölbrautaskóla Breidholts. Þeir í byggingarnefnd borgarinnar sýndu skilning á málinu og samþykktu áformin í trausti þess að kröfum hennar um fjölgun bílastæða yrði mætt... LIFIÐ virðist eitthvað pirrað í Nesjahverfinu við Skerjafjörð, bak við Reykjavíkurflugvöll. Tveir menn sóttu um leyfi til byggingar- nefndar Reykjavíkur að reisa alls 547 fermetra íbúðarhús við Bauganes 39, en þessum áformum var mótmælt af eigendum Bauganess 42, Skeljaness 4 og 6. Byggingarnefnd var sammála um að húsið væri of stórt. Þá sótti Þórður Einarsson um leyfi til að stækka ris og byggja blómaskála við hús sitt í Skildinganesi 31 en þessu mótmæltu þau Olafur Erlingsson á Baugatanga og Ingibjörg Jónsdóttir á Baugatango 1. Sýnist okkur einsýnt að á na;stunni verði stofnuð samtökin „Skerjafjörður lifi“ ... FJÖLMIÐLAFÓLK, hér á landi sem annars staðar, leggur ákveðinn metnað í að vera fyrst með fréttirnar. Starfsmanni á Stöð 2 tókst þetta heldur betur á páskadag. Raunar má segja að hann hafi verið á undan sinni samtíð. í þýðingu á þætti með söngkonunni Kiri Te Kanawa kom nefnilega fram að Margrét prinsessa, systir Bretadrottningar, hefði verið viðstödd tónleikana og hefði eiginmaður hennar verið með í förinni. Þetta voru heldur betur fréttir til næsta bæjar, því síðast þegar menn vissu var Margrét einstæð móðir og þar með gjörsamlega makalaus. Áhorf- endur, sem lögðu við eyrun, heyrðu enska þulinn hins vegar segja frá því, að Princess Michael of Kent væri mætt á staðinn með eiginmanni sínum. LJÓ5 BóÓR & BELTI HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR Þú og þeir Kvíöinn er ég yfir því, aö þú hylli náir. Þeir sem dýrka Debmssy í Dublin venða fáir. Niöri „Viö erum alltaf ad auglýsa óspillta náttúru, en þad er hreinasta bull." — INGVAR ÞORSTEINSSON, NÁTTÚRU- FRÆÐINGUR, i ALÞÝÐUBLAÐINU UM HELGINA. I 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.